Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991.
27
Svona litu allar úra- og skartgripaverslanir í Kúveitborg út aðeins nokkrum
dögum eftir innrásina. íraskir hermenn brutust inn í þær allar fyrstu dag-
ana og tæmdu þær.
brugðist á neinn hátt við þessari
skýrslu.
Menn ókyrrast
Næsta skýrsla sem Finnbogi Rút-
ur skrifar 16. október til ráðherra,
ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra
utanríkisráðuneytisins, ber með sér
að hann er farinn að ókyrrast. Hann
vekur athygli manna á því að fjöl-
skylda mín og fjölmiölar knýi stöðugt
á um svör við því, hvað gert sé til
að fá mig lausan og hvers vegna ráð-
herra hafði enn ekki farið formlega
frammá það við írösk stjómvöld.
Finnbogi segist svara öllum þessum
fyrirspumum á þann veg, að stöðugt
sé unnið að lausn málsins í ráðuneyt-
inu, en það verði hins vegar htið um
svör hjá honum þegar spurt er í
hverju sú vinna sé fólgin. Þremur
vikum síðar skrifar Finnbogi enn
eina skýrsluna og vekur athygli á því
að ráðherra þurfi að skrifa bréf til
íraska utanríkisráðherrans. En þessi
skýrsla féll eins og aðrar skýrslur
og ábendingar í grýttan jarðveg.
Um þessi mál öll vissi ég ekkert
þegar ég talaði við Finnboga Rút í
síma um miðjan nóvember, stuttu
eftir að ég kom til Bagdad. Ég var
þá enn fullviss um að það væri spurs-
mál um hvem næstu daga ég fengi
brottfararleyfi. Sænskalyfjasending-
in var þá á leiðinni til íraks og ég
hélt að Svíamir myndu losna strax
eftir að hún kæmi og ég færi með.
Finnbogi spurði mig í þessu símtali
hvort ég teldi að það þyrfti að senda
einhvem sendiboða frá íslandi til að
fá mig lausan, en ég aftók það með
öllu. Það hafði að vísu reynst mjög
árangursrík aðferð að senda sendi-
boða til íraks. Evrópskir stjórnmála-
menn höfðu komið hver á fætur öðr-
um til Bagdad og haft á burt með sér
tugi landa sinna. Þetta var í sam-
ræmi við þann vilja íraskra stjóm-
valda að vilja láta biðja sig milliliða-
laust um brottfararleyfi. En ég var
svo bjartsýnn að ég taldi þetta alger-
an óþarfa. Hins vegar datt mér ekki
í hug að spyrja Finnboga hvort Jón
Baldvin hefði ekki ömgglega skrifað
bréf eða skeyti til Tariks Aziz og kraf-
ist þess eða farið þess formlega á leit
að ég yrði látinn laus. Ég gekk ein-
faldlega út frá því sem vísu að það
bréf væri löngu komið til skila. En
svo var ekki.
Beðið eftir
Jóni Baldvin
Æ fleiri vora hins vegar beðnir
að gerast milhgöngumenn og reyna
að telja stjómvöld í Bagdad á að veita
mér fararleyfi. Um miðjan nóvember
skrifar Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra bréf að undirlagi
Stefaníu Khahfeh, th Marwans Ka-
sems utanríkisráðherra Jórdaníu.
Jórdanar vom þá ein örfárra þjóða
sem hélt vinfengi við ríkisstjóm
Saddams Husseins og íraski utanrík-
isráðherrann Tarik Aziz kom viku-
lega til fundar við starfsbróður sinn
í Amman. Tarik Aziz var að vísu
önnum kafinn í sáttaumleitunum í
Moskvu um þessar mundir og mætti
ekki til funda í Amman, en Kasem
skrifaði honum bréf þar sem hann
óskaði eftir að þessum eina íslend-
ingi yrði veitt fararleyfi. Þegar leið
að lokum nóvembermánaöar var
með sama hætti búið að biðja sov-
éska utanríkisráðuneytið og norska
utanríkisráðuneytið að leggja mér
hð.
En án þess að ég vissi var stöðugt
beðið eftir bréfi eða skeyti Jóns Bald-
vins beint til Tariks Aziz. Bima gekk
stöðugt eftir þessu bréfi. Hún hafði
samband við utanríkisráðuneytið að
minnsta kosti einu sinni í viku.
Svona gekk þetta allan októbermán-
uð og fram eftir nóvember, aö aldrei
fengust skýr svör um það hvort bréf
utanríkisráðherra væri á leiðinni til
íraks. Einhvern daginn seinni hluta
nóvember óskaði hún eftir fundi með
ráðuneytismöimum og fékk að hitta
Þorstein Ingólfsson ráðuneytisstjóra
og Svein Bjömsson yfirmann al-
þjóðaskrifstofu ráðuneytisins. Faðir
minn fór með Birnu á fundinn. Einu
svörin sem Birna fékk þarna vom
að ráðuneytið hefði allar klær úti,
en það mætti samt ekki segja í hvetju
það væri fólgið! Hún yrði bara að
treysta ráðuneytinu til að gera aht
það sem hægt væri að gera th að fá
mig lausan, sagði skrifstofustjórinn.
Gengið á fund forseta
Eftir þennan fund missti Birna
samt endanlega traustið á utanríkis-
ráðuneytinu og ákvað að reyna aðrar
leiðir. Miðvikudaginn 28. nóvember
hringdi hún á skrifstofu forseta ís-
lands og óskaði eftir að fá að ræða
við Vigdísi Finnbogadóttur forseta.
Vigdís bauð Bimu að koma á skrif-
stofu sína þennan sama morgun. Th-
gangur Birnu var að fá Vi'gdísi th að
hvetja Jón Baldvin th að sinna skyld-
um sínum í máhnu og skrifa það
bréf sem vitað var að leysti mig úr
prísundinni í Bagdad. Það var auð-
vitað ekki auðvelt fyrir Birnu að vera
að blanda þjóðhöfðingja íslands í
I kvöldverðarboði heima hjá Mohammad og Stefaníu Khalifeh í Amman.
Talið frá vinstri: Birna, Hassan, Magnús Hallgrímsson, Guðríður Baara,
Mohammad Khalifeh, Sameh Issa, ég og Stefanía Khalifeh.
þetta mál. En þessa síðustu daga í
nóvember horfði svo hla um lausn
mína, að hún vhdi reyna aht sem
hægt var. Þegnar annarra ríkja
fengu fararleyfi hver af öðrum í stór-
um hópum, en ég íslendingurinn sem
ahir héldu að fengi að fara vand-
ræðalaust, sýndi ekki á mér neitt
fararsnið.
Það er th marks um hvað þetta
ástand lagðist þungt á fjölskyldu
mína, að daginn eftir að Bima talar
við forseta íslands hundskammar
hún utanríkisráðuneytið í viðtali við
DV og segir þá engan áhuga sýna á
að fá mig lausan. Hún segist þar orð-
in langþreytt á ástandinu og ef þeir
geri ekki neitt í máhnu, þá muni hún
flytja th Bagdad með bömin. „Mér
finnst alveg thgangslaust að hanga
hérna heima meðan Gísh er í
Bagdad. .. .Ég er hreinlega að
springa," er haft eftir Bimu og lýsir
vel hugarástandi konu minnar þegar
þessi orð em töluð.
Vigdís skrifarbréf
Svo háttaði th að sunnudaginn
næsta á eftir, 2. desember, ætlaði
Albert Butros, sendiherra Jórdaníu
á íslandi, að afhenda forseta íslands
trúnaðarbréf sitt að Bessastöðum.
Það átti að gerast að viðstöddum ut-
anríkisráðherra, eins og venja er th.
Það varð því niðurstaðan af viðtah
Birnu við forsetann, að Vigdís skrif-
aði bréf th Husseins Jórdaníukon-
ungs þar sem hún óskaði hðsinnis
hans við að fá mig lausan úr gíslingu
í Bagdad. Sendiherrann tók að sér
að koma bréfinu th skha. Bréf Vig-
dísar hefur því borist th Husseins
Jórdaníukommgs 4. desember.
í bréfinu segir Vigdís að kona mín
hafi óskað eftir áheyrn hjá henni th
að fá hðsinni við að fá mig lausan frá
Bagdad. Vigdís segir að saga hennar
hafi snortið sig svo mjög, að hún
hafi heitið að leggja henni persónu-
lega hð í máhnu. Hún rekur ferh
minn sem læknis í Kúveit og bendir
á, að ég hafi ekki farið frá sjúkrahús-
inu fyrr en íraskir læknar hafi kom-
ið þangað th starfa í minn stað. Ég
hafi af þeim sökum ekki lagt inn
umsókn um brottfararleyfi fyrr en í
nóvember. Þá vekur Vigdís athygh
Husseins konungs á því, að ég sé
ekki aðeins ábyrgur fyrir konu
minni og þremur börnum á íslandi,
heldur sé ég líka elsti sonur aldraðra
foreldra. Að þessu sögðu segist Vig-
dís hta á það sem persónulega greiða-
semi, ef Hussein vhji beita áhrifum
sínum th þess, að írösk yfirvöld taki
með jákvæðum hætti á umsókn
minni um brottfararleyfi.
(Ath. millifyrirsagnir eru blaðsins)
REDSTONE
s| ónvarpsleikt æki
Nintendo samhæfð. Stýripinnar og tengingar við sjónvarp lylgja.Steríó útgangur. A/V útgangur.
Sýnishom úr leikjaskrá:
TURTLES II.....kr. 2.900 T0P6UN..._______kr. 2.900 SOCCER...........kr. 1.950
SIMPS0NS...kr. 2.900
ARMLJLA 11
^ 91-BB1500
Konami Olympics kr. 2.900
Skreytinguna
á leióió þróu í
Garóshom
Krossar..............
Leiðisgreinar....
.........kr. 1.980,-
....kr. 1.200,-
ÍJtikerti og luktir
í miklu úrvali
Ilmandi hýasintu-
skreytingar.
Hýasintur kr. 145,-
Afgreiðslutími um hátíðirnar: 21.-22. des. kl. 9-22
Þorláksmessa kl. 9-23 - Aðfangadagur kl. 8-16
Jóladagur lokaó - Annar í jólum kl. 13-19
27.-30. desember kl. 10-19
Gamlársdagur kl. 9-16 - Nýársdagur lokað
Frá 2. janúar 1992 verður opið frá kl. 10-19
og sunnudaga kl. 13-19
GARÐSHORN Sg
v/Fossvogskirkjugarð
símar 16541 og 40500