Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Síða 40
48 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991. JÓLA-SPAUG - Já, mamma mín. Ég átti líka að skila kveðju til Þín frá Bjössa með bestu þökkum fyrir þetta fallega bindi sem þú gafst honum í jólagjöf... - Ég er svolítið hræddur um að sjálfvirki jóla' sveinninn okkar hafi verið feill hjá okkur... - Vertu ekki með þessi læti, kona. Jólasveinninn færði mér hana meðan þú varst í burtu... - Og þar fyrir utan skaltu ekki halda að þú fáir jólagöf frá mér! Jól i Uppsölum. Carl, hálfbróðir Önnu, Karin Akerblom, amma Ingmars Bergman, og Anna Ákerblom, móð- ir Ingmars Bergman. Samvinna tveggja snillinga í Sjónvarpinu um jólin: Bille August leik- stýrir ástarsögu eftir Bergman - frumsýning samtímis á Norðurlöndunum Um jólin sýnir Sjónvarpið fjög- urra þátta sjónvarpsleikrit eftir handriti sænska leikstjórans Ingm- ars Bergman. Leikstjóri sjónvarps- þáttanna, sem verða frumsýndir samtímis á öllum Norðurlöndun- um um jólin, er Bille August sem fékk óskarsverðlaunin 1989 fyrir myndina Pelle sigursæh. Biile segist hafa orðið mjög snort- inn af sögunni sem fjallar um ást prestsins Henriks og Önnu. Fyrir- mynd Bergmans voru foreldrar hans sjáifs. Bille segir að sagan sé meðal fallegustu kærleikslýsinga sem hann hefur lesið. Sagan hefst árið 1909 er Henrik Bergman, fátækum guðfræðistúd- ent í Uppsölum, er boðið heim til vinar síns Ernsts sem býr við góð- an efnahag. Þar kynnist Henrik, sem þá er leynilega trúlofaður starfsstúlku á veitingahúsi, Önnu, systur Ernsts. Er Karin, móðir Ónnu, uppgötvar að ástir hafa tek- ist með dóttur hennar og Henrik gerir hún alit sem hún getur til að skilja þau að. Kostnaðurinn 700 milljónir Undirbúningur þáttanna, og kvikmyndarinnar, sem einnig var gerð efúr handritinu, hófst fyrir tveimur árum. Upptökur hófust í júh 1990 og stóðu yfir í átta mán- uði. Kostnaður við framleiðsluna er sem svarar 700 milljónum ís- lenskra króna. Auk norrænu sjón- varpsstöðvanna standa sjónvarps- stöðvar í Englandi, Þýskalandi, Frakklandi og Italíu að framleiðsl- unni. Kvikmyndin verður senni- lega frumsýnd í Cannes á næsta ári. Bergman stórhrifinn BUle August og Ingmar Bergman Ingmar Bergman lýsti því yfir á dögunum að mynd Billes væri stórkostleg. sátu fyrst saman í nokkra mánuði og fóru í gegnum handritið. Berg- man hefur lýst því yfir að hann hefði ekki getað hugsað sér neinn annan leikstjóra en Bille. Sameig- inleg undirbúningsvinna þeirra var svo nákvæm að Bille þurfti síð- an aldrei að spyija Bergman ráða. Að sögn Billes var það allan tímann á hreinu að það væri hann sjálfur sem væri leikstjórinn. „Ef ég hefði verið að hugsa um hvemig Berg- man myndi hafa gert hefði þetta orðið léleg mynd.“ Ingmar Berg- man, sem nýhúinn er að sjá mynd- ina, lýsti því yfir að hún væri stór- kostleg. Eftir að Bille hafði fengið óskars- verölaunin bárast honum mörg til- boð. Hann vildi hins vegar ekki missa af tækifærinu að leikstýra eftir handriti Bergmans og því var tökum á kvikmynd eftir sögu Isa- belle Allende, Hús andanna, frestað um tvö ár. Leikstjórinn Bille August og leik- konan Pernilla östergren urðu ástfangin við töku myndarinnar um ástir foreldra Ingmars Bergman. Hér sýna þau stolt litla dóttur síná. Leikstjórinn kvænt- ist aðalleikkonunni Á meðan Bille vann við mynd Bergmans eignaðist hann bæði konu og dóttur.Það er kona Billes, PemiUa Östergren, sem leikur yfir- stéttarstúlkuna Önnu, móður Ingmars Bergman, í myndinni. PemiUa, sem er 32 ára, þykir ein besta leikkona Svíþjóðar. Hún á sex ára dóttur með rithöfundinum Klas Östergren. Bille, sem er 42 ára, átti hins vegar þijú böm áður en dóttir hans og Pemillu fæddist. Henrik Bergman er leikinn af Samuel Fröl- er sem vakið hefur athygli í Svíþjóð fyrir góðan leik. Max von Sydow, sem tilnefndur var til óskarsverð- launa fyrir leik sinni í myndinni PeUe sigursæh, leikur föður Önnu, Johan Ákerblom. Karin, móðir Önnu, er leikin af Ghitu Norby.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.