Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Síða 47
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991. 55 DV systkinin Ethan og Halley og aöferð- ir sem þau beita til þess að fá þá einu jólagjöf sem þau vilja, en það er að foreldrar þeirra taki saman á ný. Þetta er hugljúf og falleg mynd en um leið nokkur húmor í henni. Leik- arar eru allir óþekktir fyrir utan Leslie Nielsen sem leikur jólasvein- innn og Laureen Bacall sem fer með lítið hlutverk í myndinni. Þá má nefna úrvalsmyndina Tvöfalt lífVer- óníku sem er fyrir alla sem unna góðum kvikmyndum og íslensku myndina Hvíti víkingurinn. Þess má geta að um áramótin mun Háskóla- bíó taka til sýningar nýjustu kvik- mynd Mike Nichols, Regardin Henry, mynd sem fengið hefur góða dóma þar sem hún hefur verið sýnd. Laugarásbíó Laugarásbíó hefur þegar hafið sýn- ingar á einni jólamynd sinni, er það Prakkarinn 2 sem er framhald vin- sællar myndar um hrekkjalóm mik- inn sem er sannkallaður skelfir allra foreldra. Ekki bætir úr skák í nýju myndinni þegar hann hefur fengið keppinaut sem er lítil prakkara- stelpa. Aðaljólamynd Laugarásbíós er aftur á móti verðlaunakvikmynd- in frá Cannes í haust, Barton Fink. Mynd þessi fjallar um leikritahöf- undinn Barton Fink sem býr í New York á þvi herrans ári 1941. Hann verður allt í einu vinsæll þegar leik- rit hans slær í gegn og er beðinn að koma til Hollywood til að skrifa handrit að kvilunynd. Þegar þangað kemur gengur honum erfiðlega að skrifa og lendir í slagtogi við ná- granna sinn sem sýnir honum dökk- ar hliðar lífsins. Aðalhlutverkið leikur John Turt- urro og fékk hann gullpálmann í Cannes fyrir leik sinn í myndinni. Aðrir leikarar í stórum hlutverkum eru John Goodman og Judy Davis. Barton Fink hefur alls staðar fengið frábæra dóma og staðfestir þessi mynd snilii þeirra sem komið hefur berlega fram í fyrri myndum þeirra, Blood Simple, Raising Arizona og Miller’s Crossing. Regnboginn Regnboginn sýnir sem fyrr margar myndir en aðaljólamyndin þar er Fjörkálfar (City Slickers) sem naut mikilla vinsælda í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári. Fjörkálfar er fram- leidd aif hinum þekkta leikara Billy Crystal og leikur hann einnig eitt aðalhiutverkið. Fjallar myndin um þrjá félaga sem bregða sér á búgarð Kvikmyndir Billy Crystal leikur einn fjörkálfinn I samnefndri mynd sem er jólamynd I Regnboganum. Curly Sue, sem leikin er af Alisan Porter, er hér á milli gæslumanna sinna sem þau James Belushi og Kelly Lynch leika. Curly Sue er jólamynd I Bíóhöllinni. Ethan Randall og Ed O’Neill i hlutverkum sínum I gamanmyndinni Dutch, sem er ein jólamynda I Bióhöllinni. í Nýju Mexíkó. Þeir eru ekki einu borgarbúamir sem þarna eru, tveir tannlæknar bætast í hópinn auk annarrra skrautlegra persóna. í fyndnum atriðum læra þeir félagar að sitja hross og eiga að reka kúa- hjörð 200 mílna leið en fyrir hópnum fer reyndur kúreki sem deyr á miðri leið og eftir sitja fjörkálfarnir með hjörðina. Önnur jólamynd Regnbogans er franska úrvalsmyndin Heiður foður míns (La Glorie de mon Pére). Mynd- in er byggð á æviatriðum hins dáða franska rithöfundar Marcel Pagnol. Leikstjóri er Yves Robert. Mynd þessi hefur farið sigurfór um heim- inn og alls staðar verið vel tekið. Aðrar kvikmyndir sem Regnbog- inn mun sýna yfir hátíðirnar eru Fuglastríðið sem er með íslensku tali, spennumyndin Ungir harðjaxk- ar og tvær úrvalsmyndir sem óhætt er að mæla með; Ó Carmela, nýjasta kvikmynd Carlos Saura og þýska kvikmyndin Homo Faber sem leik- stýrt er af Volker Schloendorff. Stjörnubíó Bilun í beinni útsendingu (The Fisher King) er nýjasta kvikmynd breska leikstjórans Terry Gilliam. Er hún jólamynd Stjömubíós í ár. Mynd þessi hefur fengið góðar við- tökur í Bandaríkjunum og er meðal metaðsóknarmynda þar. Er það í fyrsta sinn sem mynd eftir Terry Gilliam fær slíkar viðtökur í Banda- ríkjunum, en fyrir utan að vera einn af aðalmönnum Monthy Pythons hópsins er hann þekktastur fyrir kvikmynd sína Brazil. Fjallar myndin um Jack Lucas sem stjórnar símaviðtalsþætti. Hann ger- ir óspart grín að viðmælendum sín- um enda drambsamur maður og hrokafullur. Það kemur aö því að drambið verður honum að falh og hann neyðist til að horfa á lífið frá öðru sjónarhorni. í þeirri viðleitni kynnist hann fyrmm prófessor sem nú gengur um götur stórborgarinnar í furðufótum. Hann hefur skapað sér eigin heim til að einangra sig frá hörmulegum atburði í fortíð sinni. Þessir tveir einstaklingar tengjast sterkum böndum og þótt ólíkir séu verða þeir vinir. Það eru úrvalsleikaramir Robin Williams og Jeff Bridges sem leika þessa tvo einstaklinga og hafa þeir báðir fengið frábæra dóma fyrir leik sinn. Stjömubíó sýnir einnig Addams fjölskylduna yfir hátíöimar, hina vinsælu kvikmynd Tortímandann og íslensku kvikmyndina sem margir hafa falliö fyrir, Böm náttúrunnar. -HK Nýr spennusagnahöfundur Martin Cruz Smith kveður sér hljóðs á íslandi. Einstök frásagnargáfa. Óvenjulegt sögusvið. Dularfullt dauðsfall á sovésku verksmiðjuskipi. Rannsókn veldur árekstrum milli kerfisins og einstaklinganna. 10% af andvirði bókarinnar renna í Þyrlukaupasjóð. PÓLSTJARNAN - Þitt framlag til Pyrlukaupa. PÓLSTJARNAN - 6 mánuði á metsölulista í Bandaríkjunum. Bókaútgáfan ALDAMÓT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.