Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Síða 52
60 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991. Skreytingin á þessu tré er ekki mikil. Fyrir utan Ijósaseríu eru litlir kransar á greinunum og slaufur úr rauðköflóttu efni. Strá eru einnig not- uð með slaufunum. Fyrir þá sem vilja mikið og fagur- skreytt tré kemur hér hugmynd. Allt á trénu er rautt eða gyllt. Hjartalaga krans með jólaseríu er fallegt skraut, ekki síst á gamlan furuskáp. Hægt er að fá kransinn í blómabúðum og þú vefur siðan greni um hann. Loks er lítilli jólas- eríu vafið um og hjartað lýsir fal- lega. Fallegar jólaskreytingar: Svona gerum vid þegar við skreyt- um okkar hús Það er mismunandi hvað fólk vill skreyta heimili sitt mikið fyrir jólin. Sumir láta sér nægja að selja aðventuljós í gluggann og hafa svo kannski eina aðventuskreytingu á borði. Aðrir gjörbreyta heimilinu, setja upp jólagardínur og hengja jólaskraut um alla íhúð. Þá er hug- myndaflugið látið ráða ferðinni því margt er hægt að bralla fyrir jólin. Helgarblaðið fann nokkrar hug- myndir að skemmtilegu jólaskrauti sem gleður augað í skammdeginu og lífgar upp á heimiliö. Hér ættu lesendur að finna eitthvað við sitt hæfi eða geta útbúið eitthvað nýtt með þessar hugmyndir til hliðsjón- ar. Sumir eru fyrir löngu búnir að skreyta en aðrir vilja gera það um helgina og hafa nýja stemmningu í húsinu síðustu dagana fyrir jól. Flestar þessar skreytingar eru auð- veldar og þurfa ekki mikið nostur. Hver hefði t.d. trúað að hægt væri að búa til jólaskreytingu úr pasta. Það er hægt, eins og sjá má á með- fylgjandi mynd. Einnig koma hér hugmyndir að skreytingu á jólatré þó sumir haldi í gamla siðinn þar frá ári til árs. -ELA Hér kemur ný aðferð við jóla- skreytingu. Þú kaupir pakka af pastaslaufum, sprautar þær gylltar og hengir síðan á tvinna. Slaufurn- ar eru fallegar í glugga eins og sjá má á myndinni. * ; * ■' Þetta tré er sérstaklega hugsað fyrir þá sem VV V. hafa mjög lítið pláss. T réð er með rót og hef ur verið sett hér í bastpott. Til að það sýnist stærra hefur stráum veriö stungið i pottinn og í tréð hér og þar. Lítil - Ijósasería er á trénu, rautt band vafið í kring, krans er efst og rauð * « slaufa neöst. Það er víst *. allur galdurinn við þetta fallega tré. Jólastemming við arin- inn. Glerskál með log- andi kertum, rauðlökk- uð karfa með skreyttu greni og stráhestar. Er þetta ekki jólalegt? Bastkörfur er hægt að skreyta með margvís- legasta móti ef hugar- flugið fær að ráða. Ef þú ert með póstkassa fyrir utan húsið má ekki gleyma að skreyta hann. Bréfberinn yrði sannarlega kátur yfir þvi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.