Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Page 53
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991.
61
Jólasiðir að
fomu og nýju
Ýmsir þeirra siöa sem viöhaföir
eru á jólunum eiga rætur sínar aö
rekja til heiðni en sumir byggja á
þörf gamla bændasamfélagsins á
veisluhöldum í skammdeginu.
Margir siðanna sem íslendingar
viðhafa á stærstu hátíð ársins eru
einnig komnir langt að.
Aðventuljós
Kerti voru jafnan mikið notuð á
jólunum og því er ef til vill ekki að
undra að íslendingar skyldu eins
og aðrir Norðurlandabúar taka upp
þann sið að kveikja aðventuijós á
jólafóstunni. Talið er að sá siður og
einnig sá að hengja jólastjömu út í
glugga hafi komið frá Þýskalandi til
hinna Norðurlandanna í byijun
þessarar aldar. Ekki em ýkja mörg
ár síðan hann var tekinn upp hér.
Lúsíuhátíð
Lúsíuhálíðin er sænskur siður og
hingað kominn með Svíum búsett-
um hér og íslendingum sem dvaliö
hafa í Svíþjóð. Hátíðin tengist helgi-
sögn um stúlku sem tekin var af
lífi árið 304 í Sýrakúsu á Sikiley.
Ekki er vitað hvers vegna Lúsía
kiæðist hvítiun serk en talið er að
sá siður geti átt rætur sínar að rekja
til þýsks siðs frá 18. öld er böm í
hvítum serkjum áttu að tákna litla
Jesúsa.
Jólablóm
Líklegt þykir að hugmyndin að
sérstökum jólablómum, eins og
túlípönum, hýasintum og jóla-
stjömum, tengist fomri hugmynd
um að iifandi jurtir innanhúss
færðu bænum og fólkinu nýja orku.
Jólasveinar
íslensku jólasveinanna er fyrst
getið í Grýlukvæði eignuðu sr. Stef-
áni Ólafssyni í Valianesi frá 17. öld.
Þar em þeir taldir synir Grýlu og
Leppalúða. Það er ekki fyrr en líða
tekur á 19. öld sem þeir fara að
mildast svolítið.
Upp úr síðustu aldamótum taka
jólasveinamir að fá meiri svip af
hinum alþjóðlega jólasveini, heil-
ögum Nikulási, og verða þeir um
leið vinir bamanna og færa þeim
gjafir.
Jólagjafir
Meðal almennings á íslandi fóm
jólagjafir ekki að tíðkast að ráði fyrr
en fyrir hundrað árum. Jólagjafir
þekktust hins vegar aö fomu og
nýju meðal konunga og höfðingja.
I upphafi síðustu aldar var það
nokkuð almennur siður að gefa öll-
um bömum kerti á jólunum. Vinnu-
hjú fengu einhverja flík frá hús-
bændum sínum og jólaskó sem vora
nýir sauðskinnsskór.
Fyrir hálfri öld fóm jólagjafir að
aukast og færast í það horf sem nú
ríkir.
Jólatré
Eitt helsta tákn jólanna, jólatréð,
barst tfi íslands um 1850 og þá fyrst
í hús danskra fjölskyldna. Siðurinn
breiddist afar hægt út hér á landi.
Jólatréð hafði borist til hinna Norð-
urlandanna um hálfri öld áður.
Fyrstu heimfidir, sem þekktar era
um eins konar jólatré, em frá
Strassburg á 16. öld.
Ekki er vitað um uppmna jóla-
trésins. En í Róm og víðar var það
siður allt frá fomöld að skreyta hús
um nýárið með grænum greinum.
Vera kann að kristnar hugmyndir
um skilningstré góðs og fil§ hafi
blandast eldri hugmyndum.
Jólamatur
Á engum öðrum árstíma hefur fólk
borðað og drukkiö meira en um jól-
in. Hangikjöt var lengi aðalhátíða-
maturinn. Síðar hafa ýmsir tísku-
réttir tekið við þó hangikjöt sé enn
á boðstólum á flestinn heimfium og
þá á jóladag.
Jólagrísinn í formi skinku og
hamborgarahryggs á rætur sínar
að rekja til heiðni. Svínakjöt hefur
alltaf verið veislukjöt.
Jólakökur
Sá siður að baka tfi jólanna er
ekki gamall hér á landi. Það var
ekki fyrr en á fyrri hluta þessarar
aldar sem algengt var að menn
hefðu eignast eldavélar með bakar-
ofni. Þá var einnig farið að flytja inn
meira af hveiti, sykri og öörum
bakstursvörum.
F YLLIN G AREFNI
Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi.
Gott efni, lítil rýmun, frostþoliö og þjappast
vel.
Ennfremur höfum viö fyririiggjandi
sand og möl af ýmsum grófleika.
m&émwww MF>
Sævarhöföa 13 - sími 681833
- 10% afsláttur af gjafavöru og leikföngum.
- Allt konfekt á sérstöku jólatilboði.
- Opið alla daga frá 10-10.
- Rennið í Rangá.
LÝSAliDI KROSSAR Á LEIÐI
Fást fyrir 6-12-24 eða 32 volta straum.
Sendum í póstkröfu
LJÓS & ORKA
Skeifunni 19
Sími 91-814488
MKJA TILB0Ð
Hjómtækjasamstæöa
\lS^
900€
JMaTÆKIN
fðjHITACHI
SUNDAB0RG15
685868