Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Síða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Síða 62
70 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991 Sviðsljós Egill Ólafsson kynnti lög af plötunni sinni Tifa tifa og Berglind Björk Jónasdóttir var Agli til aðstoðar en hún tókst mjög vel upp. syngur með honum á plötunni. Stórtónleikar á Tunglinu: Egill og Geiri Sæm Söngvaramir Egill Ólafsson og Geiri Sæm efndu til stórtónleika á Tunglinu á flmmtudagskvöldið til að kynna nýútkomnar plötur sínar. Egill flutti þar lög af plötunni Tifa tifa, sem er fyrsta sólóplata Egils, og hljómsveit hans, Draumasveitin, lék undir. Geiri kynnti hins vegar plötuna Jörð ásamt hljómsveitinni Tunglinu. Báðir sendu þeir þessar plötur frá sér núna fyrir jólin. Fjöldi manns var á tónleikunum sem þóttu takast mjög vel enda náðu listamennimir upp dágóðri stemn- Geiri Sæm fór á kostum og var klappaður upp í þrígang. DV-myndir BG ingu. Þjóðleikhúsið frumsýnir á annan í jólum Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare. Þessi ástarsaga allra tíma er í þýðingu Helga Hálfdanar- sonar. Aðalhlutverkin leika Haildóra Björnsdóttir og Baltasar Kormák- ur. Búningarnir eru sniðnir að nútímanum. DV-mynd GVA Sálin hans Jóns míns: Platínu- tónleikar Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns hélt tónleika á Púlsinum á fimmtudagskvöldið fyrir troðfullu húsi og komust færri að en vildu. Tónleikunum var útvarpað í beinni útsendingu á rás 2 og þóttu takast meiriháttar vel. Segja má að hljómsveitin sé að upplifa viss timamót um þessar mundir því nýlega var þeim afhent platínuplata fyrir nýjustu breiö- skífuna sem þýðir að hún hefur selst í yfir 7.500 eintökum um allt land. Geri aðrir betur! Sumir létu sig hafa það að standa allan tímann sem þeir hlýddu á hljómsveitina. Það var reykmettað andrúmsloftið á Púlsinum, enda stemningin góð og troðfullt hús. Stefán Hilmarsson söng af mikilli innlifun, eins og hans er von og vísa. DV-myndir RASI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.