Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Side 67

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Side 67
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991. 75 Afmæli Sveinn Kristinn Guðmundsson Sveinn Kristinn Guðmundsson, fyrrv. kaupfélagsstjóri og bankaúti- bússtjóri, Espigrund 7, Akranesi, verður áttræður á morgun. Starfsferill Sveinn er fæddur á Búðum í Fá- skrúðsfirði og ólst upp á þeim slóð- um. Hann var við nám í Héraðsskól- anum á Laugarvatni 1930-32 og vann aila algenga sjávarvinnu á Búðum til 1935 er hann hóf verslun- arstörf hjá Kaupfélagi Fáskrúðs- firðinga. Sveinn íluttist til Akraness 1941 og hóf störfhjá Kaupfélagi Suð- ur-Borgfirðinga. Hann varð þar kaupfélagsstjóri 1942 og gegndi því starfi til 1963 en síðasttalda árið varð hann einnig umboðsmaður Samvinnutrygginga. Sveinnvarð útibússtjóri Samvinnubankans á Akranesi við stofnun hans 1964 og gegndi því starfi til 1981. Sveinn er einn stofnenda Verka- lýðsfélags Fáskrúðsfjarðar og var formaður þess 1935-41, sat í hrepps- nefnd Búðahrepps og var varaodd- viti 1937-41, í bæjarstjóm Akraness 1946-50, í yfirkjörstjóm Vestur- landskjördæmis 1959-71 og 1978-91, var formaður Fræðsluráðs Akra- ness 1959-71 og endurskoðandi Sem- entsverksmiðju ríkisins 1971-72. Hann var í stjóm Andakílsárvirkj- unar 1967-72 og 1978-87, endurskoð- andi Sparisjóðs Akraness og í stjóm hans í nokkur ár, í stjórn kjördæm- isráðs Alþýðuflokksins í Vestur- landskjördæmi í 16 ár, lengst af sem formaður, í stjóm sama flokks fyrir sama kjördæmi frá 1977 og fulltrúi á þingum hans um áratugaskeið frá 1938. Sveinn var formaður stjórnar Skallagríms hf. 1979-80, í stjórn Byggðasafnsins í Görðum 1973-86, lengst af sem gjaldkeri, í stjórn Hjartaverndar frá 1978 og í banka- ráði Seðlabankans 1980-85. Sveinn hefur einnig starfað í Góðtemplara- og Oddfellowreglunum, auk margra smærri félagsstarfa. Fjölskylda Sveinn kvæntist 14.11.1953 Guð- rúnu Þóreyju Ömólfsdóttur, f. 3.8. 1914, húsmóður. Foreldrar hennar: Örnólfur Jóhannesson, hann vann ýmis störf til sjávar og sveita og síð- an um langt skeið hjá Prentsmiðj- unni Eddu, og Margrét Þórlaug Guðnadóttir húsmóðir. Börn Sveins og Guðrúnar: Guðrún Margrét, f. 1.11.1944, d. 17.11.1971, kennari, hennar maður var Páll Ing- ólfsson jarðfræðingur, þau eignuð- ust eitt barn, Guðnýju Þóru, nema í Bandaríkjunum; Ömólfur Guð- mundur, f. 20.11.1947, lögreglumað- ur í Reykjavík, maki Guðrún Björnsdóttir húsmóðir, þau eiga tvö börn; Kristján, f. 6.5.1949, deildar- stjóri hjá Olíufélaginu hf. á Akra- nesi, maki Sigrún Karlsdóttir sjúkraliði, þau eiga þrjú börn; Sig- urbjöm, f. 13.8.1955, fulltrúi hjá NATO á Keflavíkurflugvelli, maki Dagbjört Hansdóttir kennari, þau eigaþrjúbörn. Sveinn er sjötti í röð tíu systkina en níu þeirra komust upp. Tvær systur hans em á lífi, Svanhvít, búsett á Fáskrúðsfirði, og Auðbjörg búsett í Mosfellsbæ. Foreldrar Sveins: Guðmundur Stefánsson, f. 14.11.1875, d. 9.8.1952, járnsmiður, fæddur á Geststööum, Fáskrúðsfirði, og Guðrún Jónsdótt- ir, f.29.6.1874, d. 28.7.1961, húsmóð- ir, fædd að Holtum, Mýmrn, Horna- firði, en þau bjuggu allan sinn bú- skap að Búðum, Fáskrúðsfirði. Ætt Guðmundur var sonur Stefáns Guðmundssonar, bónda á Geststöð- um, Fáskrúðsfirði, og Guðnýjar Guðmundsdóttur. Guðrún var dóttir Jóns Jónsson- ar, bónda á Stóra-Bóli, Mýrum, A- Sveinn Kristinn Guðmundsson. Skaftafellssýslu. Sveinn tekur á móti gestum á af- mælisdaginn í Oddfellowhúsinu, Kirkjubraut 54 á Akranesi, kl. 14-17. Handbók fyrir búrfiskaeigendur Búrfiskaeigendur og væntanleg- ir slíkir geta nú glaðst því að kom- in er á markaðinn handbók um þessa tegund gæludýra. í bókinni, sem heitir einfaldlega Búrfiskar, eru ýmsar haldgóðar upplýsingar um fiskategundir og meðferð þeirra, fylgihluti og hjálpartæki, innréttingu fiskabúrsins, atferli fiskanna og fleira. Hér á eftir fer útdráttur úr tveimur köflum bók- arinnar: Varist mest offóðrun Fyrsta meginreglan varðandi fóðrun fiska hljóðar svo: Betra of htið en of mikið! Offóðraðir em þeir viðkvæmari fyrir sjúkdómum en magrir fiskar. En hitt er verra að vatnið í búrinu spilhst af offóðrun. Fóðra á einu sinni eða tvisvar á dag og rétt nógu mikið til þess að fiskarnir ljúki máltíðinni á 5 mín- íítnm Það á ekki að setja meira fóður í vatnið og takið ekki mark á því þó letrað sé utan á pakkann að „fóðrið óhreinki ekki vatnið." Það bætir lífkerfi búrsins að selja saman í það ólíkar fisktegundir sem skipta með sér verkum til að nýta fóðrið sem best. Tannkarpar og aðrir skásyndir fiskar sækja fæðu í yfirborðið, granar sækja fæðu á botninn en t.d. neónar og skalarar hirða allt æti svífandi í miðju vatnsins. Síöustu leifar fá sníglarnir og broddsniglar sækja ætið jafnvel niður í botnlagið. Sumir fiskar em þó ekki sérlega gráðugir og því má ekki rígbinda sig við 5 mínútna regluna. Margir karpjaxlar éta aðeins htið í einu en eru á stöðugu svamh í búrinu og vilja alltaf vera aö narta og fá smá- bita allan daginn. Landareignvarin Sikhngar em harðskeyttir í land- vörnum og búreigandinn þarf að gera sér grein fyrir hve mikil al- vara getur fylgt því. Þeim er svo mikið niðri fyrir að þeir vilja, ef svo má segja, „deyja fyrir fóðurland- ið“. Segjum t.d. að siklingshængur Afrískir glergranar. Flestir granar eru botnfiskar. hafi verið einn í búri sínu. Svo vih eigandinn gleðja hann og fær hon- um hrygnu til hjúskapar. Hann sleppir henni út í búrið í besta til- gángi og sér hænginn koma á móti henni, reigja sig í allar áttir og lemja vatnið með sporðinum. Þá heldur búreigandinn, sem kannski hefur ekki nóga reynslu, að hæng- urinn sé að gera hosur sínar græn- ar fyrir kvenfiskinum með því að teygja úr öllum uggum. En næsta dag, eða kannski bara 20 mínútum síðar, verður eigand- inn þess allt í einu var að nýkomna hrygnan flýtur dauð í vatninu, hörmulega útleikin, alhr uggar af henni rifnir, hreistrið skafið og kviðurinn rifinn upp. Eigandinn verður bálreiður og fer að óskapast yfir því hvílíkt óhræsi hængurinn sé. En það sem hér gerðist var að búreigandinn skildi hæng sinn ekki rétt. Þegar hann strekkir á uggunum, sveiflar breiðsíðu af vatni móti öðrum fiski, lækkar neðri skoltinn og gapir þá er það augljós ógnun. Og hafa verður það í huga að þegar hængurinn var einn í fiskabúrinu eignaði hann sér það aht og ver það gegn hvaða fiski sem settur er í það. Og það var áberandi í ógnunum hængsins að hann reyndi að sýnast sem stærst- ur til að gefa til kynna sem mestan kraft og veldi. Beita þarf sérstökum aðferðum til að venja landeignarfiska hver við annan í fiskabúri. Aðalreglan er að taka þann stærsta eða þá stærstu, séu þeir fleiri, úr búrinu og síðan að setja þann nýja í það. Þá fyrst, þegar hann hefur komið sér sæmilega fyrir, er óhætt að setja hina aftur inn. Ef um er að ræða mjög árásargjarnar tegundir eins og Tanganjika-munnklekjar- ann þarf aö ryðja fiskabúrið og færa allt til í því, gróður og skraut- hleðslur, svo að allt sé gjörbreytt þegar fiskamir koma aftur heim. Þá þekkja fyrri íbúar búrsins sig ekki og verða ekki jafnfrekir í land- areignun sinni. Einungis í því til- felh að nýi fiskurinn sé stærri en þeir sem fyrir eru er óhætt að setja hann umsvifalaust 1 búrið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.