Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1991, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 1991.
Fréttir___________________________________________________________________________pv
Byggðastofnun lánaði 11,6 milljarða á tæplega sex árum:
Fjórða til f immta hver
króna jaf nvel töpuð
fortíðarvandanefhd telur stofnunina eiga fyrir skuldum
um 500 ihilljónir. Stærsti hiutinri
Eigið fé Byggðastofnunar hefur
rýmaö um 370 milljónir að raungildi
á tæplega sex árum, eða úr tæplega
2,2 milljörðum í tæplega 1,8 miilj-
arða. Frá ársbyijun 1986 til loka okt-
óber síðastliðins námu framiög ríkis-
sjóðs til stofnunarinnar alls 1,2 miiij-
örðum. Að auki hefur ríkissjóður
tekið yfir 1,2 milljarða skuld stofnun-
arinnar við Framkvæmdasjóð is-
lands. Samtals hefur stuðningur rík-
isins við stofnunina því numið um
2,3 miiljörðum á þessu tímabili.
í nýrri skýrslu fortíðarvanda-
nefndar ríkisstjómarinnar hefur
innan við helmingur framiaga ríkis-
sjóðs til stofnunarinnar undanfarin
sex ár farið í styrkveitingar eða alis
hefur farið í að mæta töpuöum lán-
um og öðmm áfölium.
AUs hefur stofnunin veitt rúmlega
tvö þúsund ián sem á verðlagi ársins
1991 nema um 11,6 miiljörðum. Á
sama tima hefur stofnunin afskrifað
940 milljónir af veittum lánum og í
afskriftasjóöi standa ríflega 1,6 millj-
arðar tii að mæta væntanlegu út-
lánatapi. Tapist ailt þetta fé samsvar-
ar það því að fjórða til fimmta hver
króna, sem stofnunin hefur lánað,
hafi tapast.
Fram kemur í skýrslu fortíðar-
vandanefndar að þar sem eigið fé
Byggðastofnunar sé jákvætt geti hún
að öðru óbreyttu staðið undir fjár-
skuldbindingum sínum. Utlánatapið
megi skýra með lánum stofnunar-
innar til fyrirtækja sem átt hafi í
rekstrarerfiðleikum. Mat nefndar-
innar er að breyta verði hiutverki
stofnunarinnar og auka vægi hennar
viö áætlanagerð og þróunarstarf.
-kaa
íbúar hússins við Snorrabraut ræða viö slökkviliösmenn. DV-mynd S
Eldur í geymslu
Eldur kom upp í geymslu í kjaliara
húss við Snorrabraut um hálftíuleyt-
ið á laugardagskvöld. Slökkvilið var
fljótt á vettvang og náði að slökkva
eldinn. Bíldekk voru í geymslunni
og varð því töluverður reykur og
sótskemmdir í kjaUaranum.
Giunur leikur á að einhveiju log-
andi hafi veriö kastað inn um loft-
ræstiop á geymsluglugganum. Að
sögn slökkviliðs hefði getað farið
verr ef eldurinn hefði fengið að loga
aðeins lengur óáreittur en eldur í
bíldekkjum er iilviðráðanlegur og
reyk- og sótskemmdir af hans völd-
um geta orðið verulegar.
-hlh
Verkfall mjólkurfræðinga:
Engin lausn í sjónmáli
- allt mjólkurlaust í dag eða á morgun
Engin lausn virðist í sjónmáh í
deUu mjólkurfræðinga og viðsemj-
enda þeirra en verkfall mjólkurfræð-
inga hefur nú staöið yfir í rúma tvo
sólarhringa.
Hvorugur deUuaðUa hefur óskað
eftir öðrum sáttafundi eftir árang-
urslausan fund hjá ríkissáttasemjara
á föstudag. Það er því útíit fyrir að
aUt verði mjólkurlaust í dag eða á
morgun.
Mjólkurfræðingar veittu um helg-
ina undanþágu og heimUuðu að ná
mætti í föjólk til bændanna í dag og
á morgun og koma henni fyrir á
geymslutönkum MjóUíurbús Flóa-
manna.
Er þaö gert til þess að rýmka
geymslupláss bænda og til þess að
auðveldara sé að aldursgreina mjólk-
ina þegar verkfaUinu lýkur.
Engin vinnsla er nú í gangi í mjólk-
urbúunum en verkfalhð leysist um
miðnætti næsta fimmtudag og strax
daginn eftir verður mjólk komín í
allar verslanir um hádegi.
Aðspurður hvort sættir næðust
fyrir þann tíma sagðist Birgir Guð-
mundsson, bústjóri Mjólkurbús
Flóamanna, engu vUja spá um það.
„Það getur aUt breyst en ég vU
hvorki vera svartsýnn né bjartsýnn
á það, það verður bara að koma í ljós.
Þann 27. tókum við inn aUt sem tíl
var úti um sveitir og náðum að vinna
það nær því alveg niður.
Það er því töluvert magn til í mjolk-
urbúunum af pakkaðri, tUbúinni
vöru tU dreifingar í dag og undir
eðlUegum kringumstæðum ætti það
að duga tU þriðjudags en auðvitað
hefur aUt hamstur áhrif.
Birgir sagði að enginn vissi hvert
framhaldið yrði en auðvitað yrðu
menn einhvemtímann að ná sáttum
í þessu.
„Það er auðvitað mikUl óvissuþátt-
ur hver staöan er þegar þetta verk-
faU er búið. Viö vonum bara að menn
finni einhveija lausn á þessum mál-
um en eins og er þá er hún ekki í
sjónmáh," sagði Birgir.
-ingo
Atvinnutryggingarsjóður og Hlutaijársjóður:
Fortíðarvandinn vel
á annan milljarð
- sljómendursjóðannaátaldirfyrirvanrækslu
Fortíðarvandanefnd ríkisstjórnar-
innar segir fyrirsjáanlegan vanda
ríkissjóðs vegna Atvinnutryggingar-
sjóðs útflutningsgreina vera um 1,5
mUljarða krónur. Að mati Ríkisend-
urskoðunar mun fimmta hver króna,
sem sjóðurinn hefur lánað, tapast.
Ails hefur sjóðurinn lánað um 9,1
milijarð en samkvæmt þessu munu
einungis 7,3 mUljarðar innheimtast.
Þá er eigiö fé sjóðsins neikvætt um
tæpar 100 mUljónir að teknu tiUiti tU
400 miUjón króna stofnframlags rík-
issjóðs.
Áö mati fortíðarvandanefndar er
fortíðarvandi ríkissjóðs vegna Hiuta-
fjársjóðs um 200 miUjónir vegna rík-
isábyrgða sem sjóðurinn hefur veitt.
Að auki telur nefndin að aUt aö 150
miUjónir muni lenda á ríkinu vegna
ábyrgða banka og sjóða í eigu ríkis-
sjóðs á skuidabréfum Hlutafjársjóðs.
I skýrslu nefndarinnar er feUdur
þungur áfelUsdómur yfir stjómend-
um sjóðanna. Fullyrt er að þeir hafi
vanrækt hagræðingarhlutverk sjóð-
anna.
„Engar hagræðingarkröfur, svo
sem um sameiningu og samvinnu
fyrirtækja í sjávarútvegi, voru settar
sem skUyrði fyrir aðstoð sjóðanna.
Ef svo heföi verið gert er það áUt
nefndarmanna að stórlega heföi mátt
draga úr þeirri áhættu sem fylgdi
aðgerðum sjóðanna og þar með þeim
íjárhagsvanda sem þeir standa nú
frammi fyrir. Nefndarmenn leggja
áherslu á að skuldbreyting útlána
AtvinnutryggingadeUdar, sem
sljómvöld standi nú frammi fyrir,
verði bundin skUyrðum um hagræð-
ingaraðgerðir," segir í skýrslu fortíð-
arvandanefridar.
-kaa
Þótt flugeldasala fari hægt af stað í ár verður hún að öllum líkindum svip-
uð og í fyrra. DV-mynd JAK
Flugeldar:
Svipuð sala og í fyrra
Flugeldasalan virðist ætla að verða
mjög svipuö og i fyrra ef marka má
þá aðUa sem DV hefur haft samband
við. Hún fer hægt af stað en nær að
öUum líkindum hámarki á gamlárs-
dag.
SöluaðUum ber saman um að fólk
sé ekkert að spara meira nú en í fýrra
en algengast er að keypt sé fyrir 4-6
þúsund krónur á fjölskyldu.
Fólk kaupir t.d. einn fjölskyldu-
pakka og eitthvert smádót til þess að
nota innivið.
Einn söluaðiUnn sagði það vera
áberandi að meira seldist nú af
mmbombum en áður og taldi að fólk
vUdi með því tryggja sér gamanið þó
eitthvaðyrðiaðveðri. -ingo