Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1991, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 1991.
35
Menning
Thor Vilhjálmsson. Greinasafn frá siðasta áratug.
Hugleiðingar frá
heilum áratug
Það var með nokkurri eftirvæntingu sem ég hóf lest-
ur bókar Thors Vilhjálmssonar, mannsins sem hlaut
bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og Alþingi hef-
ur nú vahð í heiðurslaunaflokk listamanna.
Þessi bók er safn greina og ritgerða, líklega sú f|órða
sem Thor hefur látið frá sér fara af slíku tagi. í þessum
fjölmörgu greinum fjallar höfundur um ólíkustu hluti,
ferðalög og staði, menn og listir og hugleiðingarnar
sumar eins og spontant. Þær eru ekki byggðar upp
eins og verkfræðingurinn hannar hús með undirstöðu,
burðargrind og veðravöm. Heldur reikar hugurinn
eins og í hugdettuformi frá einu til annars. Þetta gerir
greinamar skemmtilegar aflestrar og lesandinn skynj-
ar í leiftursýn að nafnið „Eldur í laufi“ er ekki tilvilj-
un. Eldur í sinu, laufi breiðist hratt út svo vart fæst
við ráðið.
Margar greinamar eru eins og ritaðar af eldhuga
og eldurinn læsir sig í vitund lesandans, hann logar
með.
Thor segir í viðtali að hann vildi að unnt væri að
sjá mannlífið eins og honum sýnist það vera. Engir
tveir sjá það sama. I grein sinni „París-París“ vitnar
Thor í ljóð Rimbauds, ölvaði báturinn, sem endar á
setningunni:
„Og stundum hef ég séð það sem maðurinn hefur
talið sig sjá.“
Af greinasafni sem þessu kynnast menn höfundinum
betur en af skáldsögum hans.
Að skrifa skáldsögðu getur verið mikil tækni, stund-
um og oftast áunnin þannig að erfitt er að finna höf-
undinn sjálfan að baki línanna.
En þegar komið er að greinum, lýsingmn á mönnum,
málefnum og löndum gegnir öðru.
í þessum greinum komumst við í visst návígi við
Thor sjálfan. Það eru alkunn sannindi að þegar menn
lýsa öðrum mönnum og hugðarefnum þeirra, lýsa
menn sjálfum sér best. Lýsingin segir oft mest um
hvað lýsandinn sér, hvað vekur athygh hans.
Þeir sem ekki sjá höfundinn fyrir sér þegar þeir lesa
milli línanna í slíkum greinum eru ekki læsir þó þeir
þekki alla stafina.
Greinasafnið Eldur í laufi myndar ekki samfellda
heild. Þetta eru hugleiðingar frá heilum áratug 1981—’91
sem Thor segir sjálfur að sér finnist svolítið mikil-
vægt fyrir sig aö séu til einhvers staðar.
Ég get ekki á mér setið að grípa hér niður í bókina
í París-París þar sem Thor lýsir André Breton:
....að þessi maöur var eitt af stórmennum aldarinn-
ar. Ekki sizt fyrir áhrif sín á aðra menn, skáld, mynd-
listarmenn, listamenn á öllum sviðum, síörvandi þá
sem deildu geði við hann, síleitandi uppi sálufélaga
og fagnandi andríki annarra, tendrandi og hyllandi
hugvitsgleði, fijór sjálfur í samlæti sem og í skáldska-
partextum sínum, heill: og gerðist einstrengingslegur
í sínum heilindum og fastheldni við viðhorf, sem hann
trúði á en öðrum sýndust þegar á leið vera kreddur -
andlegur segull, heillandi og frjóvgandi í kynnum og
mörgum gæfa að komast í færi við hann; en flestum
lífsnauðsyn að brjótast undan töfrum hans og ósinku
ofríki."
Bókmeimtir
Guðmundur G. Þórarinsson
Þótt greinarnar séu flestar „lýsingar og frásagnir"
er skáldskapargyðjan aldrei fjarri og tekur raunar oft
völdin.
í nýjustu greininni koma fram tilfmningar höfundar
til atburðanna, sem eru að gerasat í Júgóslavíu.
„Hví þessi heift? Hví þessi grimmd?"
Stutt en mögnuð ræða, Ræða út af Norðurlandaverð-
launum, segir mikið um Thor Vilhjálmsson.
Hún hefst þannig:
„Við lifum á tímum hinnar upphöfnu lágkúru. Hins
íburðarmikla auvirðis. Öll skynjum viö að við þörfn-
umst einhvers annars."
Og í „afmagnandi rausi og góli og tölvustýrðum
skarkala" hefur Thor upp óðinn til bókarinnar:
„Bókin með sínum launhelgum. Bókin með hugsvöl-
un, gleði og sorg eflir og brynjar og leggur þér vopn
í hendur, hafirðu rétta bók. Bókina sem fær hugsunum
og tilfinningum farveg, ber þig heim á vit sjálfs þín.
Bókina, sem er spegill, töfraspégill; og spegill getur
orðið gluggi inn i fjarlæga heima, og löggildir allt flakk-
ið.“
Bókaþjóðin íslendingar ætti að hafa á hraðbergi
þennan óð allan, sem hér er drepið niður í.
Ég ætla ekki í þessu greinarkorni að grípa víðar nið-
ur í bókina. Hún er skemmtileg lesning. Það er ekki
bara svolítið mikilvægt fyrir Thor að þetta sé einhvers
staðar til eins og hann orðar það í viðtali. Það er bókel-
skandi íslendingum mikilvægt.
Vissulega eru greinamar mismunandi og eiga þar
af leiðandi misjafnan rétt til að varðveitast. En margar
eru líka þess eðhs og gerðar að þær munu lifa.
Eldur í laufi
Höfundur: Thor Vilhjálmsson.
Útgefandi: Mál og menning.
Reykjavík 1991.
TRYGGINGASTOFNUN
JJ7RÍKISINS
Lyfjaskírteini útgefin
fyrir 1. júlí 1991
falla úr gildi um áramót
Handhafar lyfjaskírteina, sem gefin voru útfyrir reglu-
gerðarbreytinguna 1. júlí 1991, verða að endurnýja
þau nú. Þau falla úr gildi um áramótin óháð áritun
um annan gildistíma. Hafa þarf samband við lækni
vegna umsóknar um lyfjaskírteini.
Tryggingastofnun ríkisins
VINNINGSNUMER
í Happdrætti
Krabbameinsfélagsins
------ Dregiö 24. desember 1991. -
FORD EXPLORER XLT: 43089
BIFREIÐ AÐ EIGIN VALI EÐA GREIÐSLA UPP í ÍBÚÐ.
VERÐMÆTI KR. 1.000.000:
12740, 65842, 161569
VINNINGAR Á KR. 130.000:
Úttekt hjá Byko, Hagkaupum, Japis, Samvinnuferöum-Landsýn,
húsgagnaverslun eöa kaupfélagi.
3547 17133 51909 84940 96378 113810 127331 142957 159064
5754 19425 54860 89416 97855 119220 133797 143110 163464
7957 29626 59659 89652 99410 119566 135332 145233
11019 41494 61040 . 92263 106710 120188 139875 149518
15932 44598 82701 92575 107413 124662 140620 150146
16571 45021 84216 93085 112100 126559 142783 154975
VINNINGAR Á KR. 80.000:
Úttekt hjá sömu aðilum.
77 24962 54957 68522 79053 88236 102947 135093 159929
3719' 27364 63440 71210 82203 88245 108105 137801 160096
5669 32354 63496 71788 84158 93713 111200 140422
16333 33429 64046 72072 84475 96908 116919 150149
18098 48271 65951 74430 85977 100173 124053 157333
22123 48941 66183 75918 86361 100338 125593 159206
Handhafar vinningsmiöa framvísi þeim
á skrifstofu Krabbameinsfélagsins
aö Skógarhlíö 8, sími 621414.
Krabbameinsfélagið
þakkar landsmönnum
veittan stuöning.
velunnurum 1991,
til sjávar og sveita,
farsœldar í leik og starfi
á árinu 1992
é
Krabbameinsfélagiö
Töfrar,
útgáfufélag
íslenskra ungtemplara.
sérhafirsig
í útgáfu á
frœðsluefni
umfikniejhamál
ungsfólks.
T Ö F R A R
ÚTGÁFUFÉLAG ÍUT
BARÓNSSTÍG 20
101 Reykjavík
Síml 91-21618