Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1991, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 1991. Um leið og við þökkum frábærar móttökur viljum við óska hlustendum okkar og viðskiptavinum árs og friðar. Aðalstöðin er stöð bjartsýni og framfara. Af því tilefni helgum við dagskrá stöðvarinnar um áramót framtíðinni, bjartsýni, von og kærleik. ,,S|á dagar koma“ Á gamlársdag kl. 13.00 mun Ingvi Hrafn Jónsson ræða við fulltrúa stjórnmálaflokkanna um framtíð- arsýn þeirra. Hvert stefnir í íslenskum atvinnumálum, menningarmálum og hvernig sjá þeir framtíð þjóðarinnar? Þátttakendur í þessum umræðum verða: Steingrímur Hermannsson, Svavar Gestsson, Björn Bjarnason, Ingiþjörg Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéðinsson. , ,Ledurblakanc c Kl. 20.00 á gamlárskvöld verður á dagskrá óperettan Leðurblakan eftir Jóhann Strauss. Það er víða hefð í óperuhúsum að flytja Leðurblökuna á gamlárskvöld. Aðalstöðin ætlar að tryggja sanna Vínar- stemmningu þetta kvöld með flutningi þessarar skemmtilegu óperettu. ,,Framtídarsýncc Ríkisstjórn íslands á úr vöndu að ráða í efnahags- og atvinnumálum. Forsætisráðherra, Davið Oddsson, mun í sérstökum þætti; „Framtíðarsýn", sem hefst kl. 14.30, ræða um það hverjum aug- um hann lítur framtíðina. Stjórnandi þáttarins er Óskar Magnússon. ,,La Boheme“ Að lokum viljum við benda á að kl. 18.00 á nýársdag verður á dagskrá óperan La Boheme eftir Puccini og flytjendur ekki af verri endanum; m.a. Luciano Pavarotti og Mirella Freni. Af þessu má sjá að Aðalstöðin leggur metnað sinn í vandaða dagskrá. Við munum á nýju ári þæta um betur og vanda dagskrá stöðvarinnar eftir megni. um , ,Nýár stónleikar1 c Við viljum benda sérstaklega á nýárstónleika Aðalstöðvarinnar sem hefjast kl. 10.00 á nýársdag. Þar verður m.a. flutt Klukkusinfónía Haydn's og óratorían Sköpunin eftir sama höfund. Séra Karl Sigurbjörnsson flytur ritningarorð. „Ávarp forseta íslandscc Ávarpi forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, verður útvarpað á Aðalstöðinni kl. 13.00 á nýársdag. Það er Aðalstöðinni kærkomið að flytja áramótaávarp frú Vigdísar. , jFramtiðar spác c Aðalstöðin lætur sér framtíð þjóðarinnar miklu skipta og hefur sýnt það í verki í þáttum sínum. Á nýársdag, að loknu ávarpi foresta Islands, munu nokkrir valinkunnir menn flytja sína framtíðarspá í samnefndum þætti. Meðal þeirra sem fram koma eru Sigurjón Sighvatsson, Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir, Brynjólfur Bjarnason, Jóhannes Kristjánsson; Gunnár Helgi Hálfdánarson, Orri Vigfús- son, Sveinbjörn Björnsson og €dda Helgason. Aðalstöðin óskar hlustendum sínum og viðskiptavinum gleðilegs árs og þakkar ánœgjulegar samverustundir á liðnu ári. M90WFMTO AÐALSTÖOIN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.