Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1991, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 1991.
Um leið og við þökkum frábærar móttökur viljum við óska hlustendum okkar og viðskiptavinum
árs og friðar.
Aðalstöðin er stöð bjartsýni og framfara. Af því tilefni helgum við dagskrá stöðvarinnar um áramót
framtíðinni, bjartsýni, von og kærleik.
,,S|á dagar koma“
Á gamlársdag kl. 13.00 mun Ingvi Hrafn Jónsson ræða við fulltrúa stjórnmálaflokkanna um framtíð-
arsýn þeirra. Hvert stefnir í íslenskum atvinnumálum, menningarmálum og hvernig sjá þeir framtíð
þjóðarinnar? Þátttakendur í þessum umræðum verða: Steingrímur Hermannsson, Svavar Gestsson,
Björn Bjarnason, Ingiþjörg Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéðinsson.
, ,Ledurblakanc c
Kl. 20.00 á gamlárskvöld verður á dagskrá óperettan Leðurblakan eftir Jóhann Strauss. Það er víða
hefð í óperuhúsum að flytja Leðurblökuna á gamlárskvöld. Aðalstöðin ætlar að tryggja sanna Vínar-
stemmningu þetta kvöld með flutningi þessarar skemmtilegu óperettu.
,,Framtídarsýncc
Ríkisstjórn íslands á úr vöndu að ráða í efnahags- og atvinnumálum. Forsætisráðherra, Davið
Oddsson, mun í sérstökum þætti; „Framtíðarsýn", sem hefst kl. 14.30, ræða um það hverjum aug-
um hann lítur framtíðina. Stjórnandi þáttarins er Óskar Magnússon.
,,La Boheme“
Að lokum viljum við benda á að kl. 18.00 á nýársdag verður á dagskrá óperan La Boheme eftir
Puccini og flytjendur ekki af verri endanum; m.a. Luciano Pavarotti og Mirella Freni.
Af þessu má sjá að Aðalstöðin leggur metnað sinn í vandaða dagskrá. Við munum á nýju ári þæta
um betur og vanda dagskrá stöðvarinnar eftir megni.
um
, ,Nýár stónleikar1 c
Við viljum benda sérstaklega á nýárstónleika Aðalstöðvarinnar sem hefjast kl. 10.00 á nýársdag.
Þar verður m.a. flutt Klukkusinfónía Haydn's og óratorían Sköpunin eftir sama höfund. Séra Karl
Sigurbjörnsson flytur ritningarorð.
„Ávarp forseta íslandscc
Ávarpi forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, verður útvarpað á Aðalstöðinni kl. 13.00 á
nýársdag. Það er Aðalstöðinni kærkomið að flytja áramótaávarp frú Vigdísar.
, jFramtiðar spác c
Aðalstöðin lætur sér framtíð þjóðarinnar miklu skipta og hefur sýnt það í verki í þáttum sínum. Á
nýársdag, að loknu ávarpi foresta Islands, munu nokkrir valinkunnir menn flytja sína framtíðarspá
í samnefndum þætti. Meðal þeirra sem fram koma eru Sigurjón Sighvatsson, Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir, Brynjólfur Bjarnason, Jóhannes Kristjánsson; Gunnár Helgi Hálfdánarson, Orri Vigfús-
son, Sveinbjörn Björnsson og €dda Helgason.
Aðalstöðin óskar
hlustendum sínum og
viðskiptavinum
gleðilegs árs og þakkar
ánœgjulegar
samverustundir
á liðnu ári.
M90WFMTO
AÐALSTÖOIN