Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1991, Qupperneq 16
16
MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 1991.
Mirmisverðustu atburðir ársiris 1991
i>v
Ásmundur Stefánsson:
Megum ekki
brotna í
bölsýninni
„Égheldað
stærstiat-
burðurársins
hljótiaðtelj-
astmislukkað
valdarání
Sovétríkjun-
um.Þaðsýndi
aðbreyting-
arnar, sem
Gorbatsjov
hefur náð
fram, voru
orðnar svo miklar að valdakerfið gat
ekki beitt hernum. Hér heima brenn-
ur sérstaklega á mér hve illa gengur
að koma samningaviðræðum áfram.
Það vakti athygli að samningamir,
sem við gerðum í fyrra, stóðust ótrú-
lega nákvæmlega á síðasta og þessu
ári þannig að verðbólgan náðist nið-
ur. Hins vegar eru vextir mjög háir
og halli ríkissjóðs er enn gífurlegur
þrátt fyrir tveggja ára stöðugleika,"
sagöi Asmundur Stefánsson, forseti
ASÍ.
„Ef ég horfi fram á veginn er verið
að ausa yfir mig bölsýnisáróðri úr
öllum áttum og bent á skerðingu afla-
kvóta, skort á álveri og fleira slæmt.
Það er óhjákvæmilegt að horfast í
augu við staðreyndir og gera sér
grein fyrir að margt er okkur and-
stætt í dag. Hins vegar mega menn
ekki brotna í bölsýninni. Tveggja ára
stöðugleiki gefur okkur betri mögu-
leika en áður og ef tekst að ná vöxt-
unum niður má örugglega snúa mál-
um til betri vegar.“ -hlh
Ögmundur Jónasson:
Mistökvið
stjóm
efnahagsmála
„Aferlendum
vettvangieru
hinirsögu-
leguatburðir
íausturvegi
ogfyrirbotni
Persaflóamér
eftirminnileg-
astir. Þessir
atburðirhafa
orðiðtilað
gerhreyta
heimsmynd-
inni. Af innlendum vettvangi eru
mér minnisstæðust hin alvarlegu
mistök sem menn hafa verið að gera
í stjóm efnahagsmála. Þar hefur ver-
ið gripið til vanhugsaðra og rang-
látra ráðstafana sem geta haft alvar-
legar afleiðingar fyrir íslenskt þjóð-
félag,“ sagði Ógmundur Jónasson,
formaðurBSRB.
„Mínar óskir um framvinduna á
næsta ári eru aö okkur takist að snúa
af þeirr óheillabraut sem mér virðist
ríkisstjómin vera að reyna aö leiða
okkurinná." -hlh
Einar Oddur Kristjánsson:
Lánskjara-
vísitalanvarð
neikvæð
„Mérerlang-
minnisstæð-
astaðþaö
tókstaðgera
lánskjaravísi-
tölunanei-
kvæöa. Það
telégmestu
tíðindiná
þessuáriog
merkilegan
áfanga. Varð-
andiheim-
sviöburði hef ég eins og aðrir horft
á hið mikla heimsveldi í austri hðast
í sundur," sagði Einar Oddur Kristj-
ánsson, formaður VSÍ.
yÁ næsta ári vænti ég þess að við
Islendingar sýnum að það sé ekki
nauðsynlegt að við séum á reki fyrir
veðri og vindum. Við þurfum að sýna
áfram þau tilþrif sem við höfum sýnt
gagnvart lánskjaravisitölunni á
þessu ári. Varðandi tíðindi í austur-
vegi held ég að það sé nær útilokað
að gera sér grein fyrir hvað er að
gerast og ég ber mikinn kvíðboga
fyrir þessum vetri. Þetta kerfi varð
að hrynja, annað gat ekki gerst, en
afleiðingamar geta verið óskaplegar.
Miðað viö hvað ég veit um fyrrnm
Sovétríkin og stöðuna þar óttast ég
framhaldið. Maður getur vart ann-
aö.“ -hlh
Bjöm Grétar Sveinsson:
Góðir
veiðidagar
„Góðirdagar,
sem égáttiá
urriðasvæð-
inuviðLaxáí
Þingeyjar-
sýslu, ofan
stíflu, eru
mérmjög
minnisstæðir.
Aföðrumat-
burðumvilég
nefnaaðat-
vinnuástand
á Höfn hefur haldist í þolanlegu
ástandi. Síðan hlýtur Verkamannas-
bandsþingið að verða mér minnis-
stætt þar sem ég tók við formennsku
af Guðmundi J. Guðmundssyni. Við
stjómarmyndun í vor gerðust síöan
hlutir sem maður átti ekki von á eft-
ir úrsht kosninganna. Á alþjóðavett-
vangi standa breytmgamar í austur-
vegi líklega upp úr. Maður spyr sig
enn hvaða afleiðingar þær breyting-
ar hafi og hve lengi umrótið varir,“.
sagði Bjöm Grétar Sveinsson, ný-
kjörinn formaður Verkamannasam-
bands íslands og formaður Verak-
lýösfélagsins Jökuls á Höfn.
„Á næsta ári er mikhvægt að at-
vinnumálin verði í þokkalegu
ástandi en maður sér blikur á lofti í
þeim efnum. Það verður barátta að
halda fiskveiöiheimildum á viðkom-
andi stöðum og sennilega misjafnt
hvernig til tekst. Ég vona að samn-
ingamáhn leysist á komandi vikum
en það er frumskilyrði þess að þetta
þj óðfélag rúlh áfram. ‘ ‘ -hlh
Guðmundur J.
Guðmundsson:
Stefnir í átök
ávinnu-
markaði
„Égheldað
mérsévalda-
rániðíSvét-
ríkjunum
minnisstæð-
ast ogafleið:
ingarþess. Ég
séekkifyrir
afleiðingam-
arogóttast
þær.Éghafði
vonastthað
málinþar
eystra þróuðust friðsamlega ogí
bræðralagi. Hér heima sýnist mér
stefna í erfiðleika og ógæfu með af-
stöðu vinnuveitenda og ríkisstjómar
og að það komi th átaka á vinnu-
markaði. Það þarf gífurlegt þjóðará-
tak til að afstýra þeim. Formanns-
skiptin í Verkamannasambandinu
standa ekki sérstaklega upp úr en
þau voru mér þó viss léttir,“ sagði
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Verkamannafélagsins Dags-
brúnar. -hlh
Lýður Friðjónsson:
Nýttstarf
ogbúferla-
flutningar
„Hvað mig
sjálfansnert-
irvarðmesta
breytinginsú
aðégfluttist
búferlumtil
Noregs með
fjölskylduna
ogtókviö
. nýjustarfihjá
Coca-Colaí
Noregi eftir
aðhafastarf-
að hjá Verksmiðjunni Vífilfelh síð-
asthðin tíu ár,“ segir Lýður Friðjóns-
son, framkvæmdastjóri Coca-Cola í
Noregi.
„í heimsmálunum hafa miklir at-
burðir gerst á árinu og ber þar hæst
endalok Sovétríkjanna. Éghafðiþá
ánægju að fara th Eystrasaltsríkj-
anna á árinu. Það var mjög eftir-
minnhegt að sjá hvað þau eiga langt
í land og hvað ahir horfa samt með
jákvæðum augum á framtíðina. Þetta
fólk hefur miklu minna á milli hand-
anna en við íslendingar en það er
ekki síður bjartsýnt en við.
Ég held að næsta ár verði ágætt ár.
Mér líður vel hér í Noregi og ég tel
að árið verði árangursríkt fyrir
Coca-ColaáNorðurlöndunum.“ jgh
Svavar Egilsson:
Verðlækkun á
fargjöldum
„Úrferða-
þjónustunni
berhæstsú
verðlækkun
sem varð á
flugfargjöld-
umog náðist
meðaukinni
samkeppni
ferðaskrif-
stofa. Al-
menntséðvar
áriðfremur
erfitt fyrir íslenskt'viðskiptalíf. Háir
raunvextir hafa íþyngt atvinnulífinu
og sett svip sinn á viðskiptin," segir
Svavar Eghsson, eigandi Ferðamið-
stöðvarinnar Veraldar og Hótel
Höfða.
„Ég tel að næsta ár verði árangurs-
ríkt fyrir mína ferðaskrifstofu, Ver-
öld, þrátt fyrir að við blasi kreppa í
atvinnulífinu. Fargjöld eiga trúlega
eftir að lækka enn í verði. Brýnt
verkefni ríkisstjórnarinnar í upphafi
árs er hins vegar aö stuðla að samn-
ingum við launþega og ná niður
raunvöxtunum." -JGH
Séra Hanna María
Pétursdóttir:
Stórkostlegt
aðverðaaftur
sóknarprestur
„Þaðstór-
kostlegasta
sem gerðist í
mínulífiáár-
inueraðég
skiptium
starfogvarð
aftur sóknar-
prestureftir
nokkurraára
hléogvarð
umleiðþjóð-
garðsvörður,
og svo auðvitað búferlaflutningamir
sem fylgdu því. Þetta hefur verið
ákaflega skemmtilegur tími,“ segir
séra Hanna María Pétursdóttir,
sóknarprestur og þjóðgarðsvörður á
Þingvöhum.
„Hvað varðar nýtt ár á maöur nátt-
úrlega svo marga drauma og gerir
kannski miklar kröfur. En ég á þá
ósk heitasta að þjóðarskútan nái
jafnvægi svo fólk fái að lifa bjartsýni
ogfriðartímaáíslandi." -ns
Hörður Sigurgestsson:
Erfiðverkefni
1 efnahags-
málum
„Kosningarn-
arsíðasthðið
vormeðnýrri
ríkisstjóm og
stefnubreyt-
inguvið
stjómlands-
insermérefst
íhugaafinn-
lendumvett-
vangi. Það
verður mjög
erfittverkefni
að breyta th í efnahagsmálunum og
væntanlega tekur það nokkur ár að
snúa ofan af málum svo að vit verði
í,“ segir Hörður Sigurgestsson, for-
stjóri Eimskips og stjórnarformaður
Flugleiða.
„Af erlendum vettvangi ber hæst
mikh umskipti í Evrópu, samningar
rnn evrópskt efnahagssvæði og það
uppbrot sem er að verða á austur-
kanti Evrópu með endalokum Sovét-
ríkjanna.“
„Mikh óvissa er ríkjandi í efnahags-
málum heimsins sem og hér innan-
lands á næsta ári. Efnahagshorfur
heimsins em heldur svartari en
menn hafa vonast th. Hér innanlands
stefnir atvinnulífið í meiri samdrátt
en við höfum áttað okkur á. Afkoma
og staöa okkar íslendinga er engu
að síður þannig að við eigum að tak-
ast á við þessa erfiðleika og ná tökum
á þeim án þess að leggjast í svart-
sýni.“ -JGH
Bjarni Ámason:
Opnun
Perlunnar
„Velheppnuð
opnunPerl-
unnará
Öskjuhhö
meðöllu þvi
sem tilheyrði,
súraogsætu,
er mér minn-
isstæðastá
árinu,“segir
BjarniÁrna-
son, eigandi
Brauðbæjar
og Hótel Óðinsvéa og veitingamaður
í Perlunni.
„Ég vænti þess að ríkisstjórninni
takist að ná tökum á ríkisbúskapn-
um á næsta ári. Ef raunvextir lækka,
verðbólga helst í skefium og friöur
ríkir á vinnumarkaði verður áfram
hægt að leyfa sér þann munað að
eiga framtíðardrauma á íslandi.
Varðandi ferðaþjónustima, þá at-
vinnugrein sem ég starfa við, held
ég að áfram verði stígandi í komu
erlendra ferðamanna til landsins
þrátt fyrir ákveðna óvissu í heims-
málunum.
Auðvitað vona ég svo að næsta ár
verði okkur laxveiðimönnum ár
margra stórlaxa og mikhlar veiði.
-JGH
Páll Kr. Pálsson:
Eignaðist
bam á árinu
„Afmínum
eiginhögum
ermérminn-
isstæðastað
viðhjónin
eignuðumst
sonáárinuog
égskiptium
starf. Af vett-
vangiþjóð-
málaberhæst
tilkomuhýrr-
arríkissfióm-
ar og þær aðgerðir sem hún hefur
lagt grunninn að viö aö snúa stefn-
unni í þjóðmálunum við, stefnunni
frá miðstýringarhugsun th markaðs-
hyggju,“ segir Páh Kr. Pálsson, fyrr-
verandi forsfióri Iðntæknistofnunar
og núverandi forsfióri Verksmiðj-
unnar Vífilfehs, framleiðanda Coca-
Cpla á íslandi.
„Ég trúi að ríkissfiómin nái árangri
þótt það taki sinn tíma. Þegar skipt
er um stefnu er eðhlegt að menn
lendi í hrotsjó fyrst um sinn. Ég held
að þegar á næsta ári muni þjóðin sjá
árangur af þessu starfi. Ég held að
við náum að halda stöðugleika og
lágri verðbólgu. Þetta verður eflaust
erfitt og kostar átök en menn eiga
eftir að átta sig á hvað borgar sig
best.“ -JGH
Friðrik Þór Friðriksson:
Vona að
„Bömin" fái
tilnefningutil
óskarsverð-
launa
„Gagnvart
mérpersónu-
lega er mér
minnisstætt
alltíkringum
Börnnáttúr-
unnar.Fyrri
hluti ársins
fóríaðfuh-
gerahanaog
seinni hluti
ársinsfóríað
fylgjahenni
eftir út um ahan heim. Hvað varðar
innlenda atburði era mér minnis-
stæð þau hörmulegu sjóslys sem hafa
orðið á árinu og svo frammistaða ís-
lensku bridgesveitarinnar en sumir
í henni eru æskufélagar mínir. Hvað
erlenda atburði áhrærir er minnis-
stæðastfall Sovétríkjanna.
Hvað mig varðar þá vænti ég þess
að ég framsýni nýja kvikmynd á ár-
inu og svo dreymir mig um að Börn-
in verði thnefnd til óskarsverðlauna.
í alþjóðamálum vænti ég að hlutirnir
fariaðbotnfahafyriraustan." -HK
Hrafn Gunnlaugsson:
Pólitískthug-
rekki Davíðs
„ÍSaigoneða
Ho-Chi-Min-
borgíSuður-
Víetnamhitti
églítinnhóp
Bandaríkja-
mannaífylgd
geðlæknis og
sálfræðings.
Þessirmenn
höfðubarist
sembanda-
riskirher-
menn í Víetnam-stríðinu og áttu við
geðræn vandamál að stríða síðan
þeir sneru aftur heim th Bandaríkj-
anna. Nú átti að reyna að hjálpa með
því að láta þá heimsækja aftur það
umhverfi sem þeir höfðu barist í og
snúa ofan af kefh minningana. Kynni
mín af þessum mönnum er sterkasta
persónulega minning mín frá hðnu
ári.
Af innlendum atburðum þá dáðist
ég mest af póhtísku hugrekki Daví ðs
Oddssonar þegar sefasýki greip mn
sig í hópi þingmanna í þyrlukaupa-
málinu í kjölfar sjóslyssins hörmu-
lega í Grindavík. Davíð þorði að segja
hlutina eins og þeir vora,“ segir
Hrafn Gunnlaugsson kvikmynda-
leiksfióri.
„Varðandi næsta ár vona ég að ís-
lenskur almenningur stöðvi þá rán-
yrkju sem stunduð er á gróðurríki
þessa lands með því að sýna sam-
takamátt sinn og neita að borða
lambakjöt þar til öhu sauðfé í land-
inu hefur verið komin fyrir innan
girðingar. Þau landspjöh, sem lausa
ganga búfiár hefur valdið, verða
seint bætt. Við horfum fram á
stærsta umhverfisslys í sögu þjóðar-
innar. Trúlega lætur landbúnaðarm-
afian ekki undan fyrr en almenning-
ur sameinast um að hætta að snæða
skaðvaldinn." -JJ