Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1991, Qupperneq 37
MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 1991.
45
dv Smáauglýsingar - Sími 27022
■ Keruisla-nám-
skeið____________________
Námskeið i svæðameðferð. Kvöld- og
helgarnámskeið verður haldið dagana
3.-11. jan. Alls 52 tímar. Sími 91-30246,
Kristján Jóhannesson kennari.
■ Skemmtanir
Nýr vaikostur. Tökum að okkur allar
tegundir af einkasEunkvæmum, svo
sem jólaböll, þorrablót, brúðkaup, árs-
hátíðir o.fl. Garðakráin, Garðatorgi
1, Garðabæ, sími 657676.
Hljómsveit, trió eða tveir menn leika
og syngja á árshátíðum og þorrablót-
um. Upplýsingar í símum 91-44695,
92-46579 og 91-78001._______________
L.A. Café, Laugavegi 45.
Leigjum út sali fyrir stærri og smærri
hópa. L.A. Café, Laugavegi 45,
sími 91-626120, fax 91-626165.
■ Verðbréf
Til sölu hlutabréf i Eimskip,
nafnverð 50 þús., seljast fyrir áramót
gegn staðgreiðslu. Tilboð sendist DV,
merkt „Eimskip 2539”.
■ Framtalsaóstoð
Einstaklingar - Fyrirtæki. Alhliða bók-
haldsþjónusta og rekstraruppgjör.
Skattframtöl, ársreikningar, stað-
greiðslu- og vsk-uppgjör, launabók-
hald, launakeyrslur, áætlanagerðir og
rekstrarráðgjöf. Reyndir viðskipta-
fræðingar. Færslan sf., sími 622550.
■ Bókhald
Alhliða framtals- og bókhaldsþjónusta.
Bókhaldsstofan ALEX, Hólmgarði 34,
108 Reykjavík, sími 91-685460.
Alexander Árnason viðskiptafr.
M Þjónusta____________________
Græni siminn, DV.
Smáauglýsingasíminn fyrir lands-
byggðina: 99-6272. Græni síminn
- talandi dæmi um þjónustu!
Husbyggjendur, húseigendur. Húsa-
smíðameistari getur bætt við sig
smáum sem stórum verkum. Tilboð
eða tímavinna. S. 642707 og 629251.
■ Ldkamsrækt
Líkamsræktarstöð til leigu í Árbæ, 7
Flott-form-bekkir, fallegar innrétting-
ar. Allt tilbúið. Uppl. i síma 91-35116.
■ Ökukennsla
Sigurður Gíslason, ökukennsla - öku-
skóli. Kenni á sjálfskiptan Nissan
Sunny ’91 og Mözdu 626 GLX. Nem-
endur fá að láni kennslubók og ein-
hver þau bestu æfingaverkefni sem
völ er á. Sími 679094 og 985-24124.
•Ath. Páll Andrés. Kenni á Nissan
Primera ’91. Kenni alla daga. Aðstoða
við endurþjálfun. Námsgögn. Nýnem-
ar geta byrjað strax. Visa/Euro.
Sími 91-79506 og 985-31560.
Ath. Gylfi K. Sigurðss. Nissan Primera.
Kenni allan daginn. Engin bið.
Ökuskóli. Öll prófgögn. Einnig ensk
og dönsk kennslugögn. Visa og Euro.
Símar: heima 689898, vinna 985-20002.
Ath. Eggert V. Þorkelsson, ökukennsla.
Kenni á nýjan Volvo 740 GL, UB-021,
ökuskóli. Utvega öll prófgögn. Visa
og Euro. Símar 985-34744 og 679619.
Ath. Magnús Helgason, ökukennsla,
bifhjólapróf, kenni á nýjan BMW ’92
316i. Ökuskóli og öll prófgögn ef óskað
er. Bílas. 985-20006, 687666.
Gylfi Guðjónsson kennir á nýjan Su-
baru Legacy sedan 4WD í vetrarakstr-
inum, timar eftir samk. Ökusk. og
prófg. Vs. 985-20042 og hs. 666442.
Jón Haukur Edwald. Kenni allan dag-
inn á nýjan Mazda 323 F GLXi, árg.
’92, ökuskóli, öll kennslugögn,
Visa/Euro. S. 91-31710 og 985-34606.
Már Þorvaldsson. Ökukennsla, endur-
þjálfun, kenni allan daginn á Lancer
GLX ’90, engin bið. Greiðslukjör.
Sími 91-52106._______________________
Sverrir Björnsson. Kenni á Galant 2000
GLSi ’90 hlaðbak, hjálpa til við end-
urnýjunarpróf, útvega öll prófgögn.
Engin bið. Sími 91-72940 og 985-24449.
• Vagn Gunnarsson. Kenni á M. Benz
Þ-52, ökuskóli ef óskað er, útv. náms-
efni og prófgögn, engin bið, æfingart.
f. endurn. Bílas. 985-29525 og hs. 52877.
Ökukennsla Ævars Friðrikssonar.
Kenni allan daginn á Mazda 626 GLX.
Útvega prófgögn. Hjálpa við endur-
tökupr. Engin bið. S. 72493/985-20929.
Ökukennsla - biíhjólakennsla. Lærið
akstur á skjótan og öruggan hátt.
Lancer GLX ’90. Euro/Visa. Sigurður
Þormar, hs. 91-670188, bs. 985-21903.
■ Innrömmun
Rammamiðstöðin, Sigtúni 10, Rvk.
Sýrufr. karton, margir litir, állistar,
trélistar, tugir gerða. Smellu- og ál-
rammar, margar st. Plaköt. Málverk
eftir Atla Má. Islensk grafík. Opið frá
9-18 og lau. frá 10-14. S. 25054.
■ Til bygginga
Vinnuskúr óskast, ca 10 fermetrar.Helst
með rafmagni. Úppl. í síma 91-42499.
M Húsaviðgerðir
Byggingaþjónusta. Tré- og múrviðg.
Pípu-, raf- og flísalagnir, þak- og
gluggaviðg. Tæniráðgjöf og ástands-
mat. Ódýr þjónusta. S. 653640/670465.
■ Tilsölu
Léttitœki
íurvali
Mikið úrval af handtriilum, borðvögn-
um, lagervögnum, handlyftivögnum
o.fl. Bjóðum einnig sérsmíði eftir ósk-
um viðskiptavina. Sala - leiga.
Léttitæki hf., Bíldshöfða 18, s. 676955.
Eldhúsháfar úr ryðfriu stáli, kopar og
lakkaðir. Opið mánudaga - fimmtu-
daga 10-18 og föstudaga 10-16.
Hagstál hf., Skútahrauni 7, s. 651944.
llFGoodrich
Amerísk jeppadekk. Gæði á góðu verði.
All-Terrain 30"-15", kr. 10.710 stgr.
All-Terrain 31"-15", kr. 11.980 stgr.
All-Terrain 32"-15", kr. 12.980 stgr.
All-Terrain 33"-15", kr. 13.300 stgr.
All-Terrain 35"-15", kr. 14.385 stgr.
Bílabúð Benna, sími 91-685825.
STÓRU
JEPPADEKKIN
Gerið verðsamanburð.
Mödder.
36"-15", verð kr. 20.850 staðgr.
38"-15", verð kr. 23.700 staðgr.
44"-15", verð kr. 29.350 staðgr.
Dick Cepek.
36"-15", verð kr. 23.400 staðgr.
38"-15", verð kr. 27.800 staðgr.
44"-15", verð kr. 32.950 staðgr.
Bílabúð Benna, sími 91-685825.
Það er þetta með
bilið milli bíla...
Uar"”
Menning
Tjúttað af krafti
Valgeir Skagíjörð, höfundur söngleiksins Tjútt og
tregi, lætur svo ura mælt í leikskrá að hann sé ósáttur
við ríkjandi afstöðu gagnvart söngleikjum og fmnist
þeir vanmetnir. Á meðan hæft fólk standi að sýningum
og um frumsmið sé að ræða, sjái hann ekkert athuga-
vert við uppfærslu þeirra eða afþreyingargildi.
Og hann lætur sannarlega ekki sitja við orðin tóm.
Leikfélag Akureyrar frumsýndi „Tjútt og trega“ eftir
Valgeir á fostudagskvöldið, svona „typiskan" söngleik
með öllum þeim hefðbundnu töktum sem þar má
Leiklist
Auður Eydal
vænta. Ejöldi laga er í verkinu, mikið dansað og at-
burðarásin sveiflast á milli gamans og alvöru.
Valgeir er ekki aðeins höfundur textans og laganna
heldur leikstýrir hann sjálfur sýningunni. Af verkum
hans er þetta hið viðamesta til þessa og hann hefur
greinilega lagt mikla vinnu og metnað í að fullvinna
og finpússa alla þætti þess.
Efniviðurinn er sóttur aftur til ársins 1955 og vissu-
lega stemma ýmsar ytri staðreyndir og atburðir, sem
getið er í verkinu, við þann tíma. En engu að síður
svífur andi stríðsáranna yfir vötnunum og margt í
viðhorfi persónanna, tíðaranda og atburðarás leiksins
virðist eiga betur heima 10-20 árum fyrr.
Margir höfundar hafa róið á þessi mið í verkum sín-
um og ekkert meira um það að segja þó svo að sum
efnisatriði komi kunnuglega fyrir. Ætlunin er ekki að
gera alvarlega þjóðfélagsádeilu, heldur að sýna svo-
litla mannlífsmynd, búa hana í búning söngleiksins
og leiða áhorfendur á vit endurminninga, þá sem ald-
ur hafa til, en kynna hinum þennan horfna tíma.
í verkinu segir frá ungri stúlku sem uppalin er uppi
í Borgarfirði. Hún liggur í því að lesa ástarómana,
foreldrum sínum til nokkurs ama, en hefur takmark-
aðan áhuga á því að stússast í búverkum.
Það veldur straumhvörfum í lífi hennar þegar hún
kemst að því að hún er ættleidd (að vísu systurdóttir
fósturmóður sinnar) og á sama tíma verður hún skot-
in í liðleskjulegum dægurlagasöngvara sem kominn
er í sveitina til að syngja á balli í félagsheimilinu.
Og leið ungu stúlkunnar, Lilju, liggur til höfuðborg-
arinnar þar sem hún kynnist listaspírum, bröskurum
og utangarðsfólki. Hún þroskast og augu hennar opn-
ast í tíma fyrir því hversu lítið er í söngvarann spunn-
ið. Þegar hún er komin yfir ástarórana getur hún snú-
ið sér að því standa á eigin fótum og byggja upp fram-
tíð sína.
Efnisþráðurinn er þannig í ætt við reyfarana, sem
Lilja les sem mest, sveitarómantík í bland við Reykja-
víkursögur. Persónurnar eru líka einfaldar að gerð
og uppbyggingu. Atburðarásin er farsakennd á köfl-
um, mikið um glens og grín, en sárir undirtónar í
bland.
Burðarás verksins er fjörug sönglög og ágætlega
gerð dansatriði sem Henny Hermannsdóttir hefur
samið og æft. Hún púslar ótrúlega fjölbreyttum ogíjör-
ugum dönsum inn í takmarkað rými sviðsmyndarinn-
ar og bæði dansarar og leikarar sveiflast eins og at-
vinnumenn hvort sem er í tjútti, mambó eða gömlu
dönsunum.
Lögin eru ekki ýkja frumleg en ljómandi áheyrileg
þau bestu. Þau eru samin í anda sjötta áratugarins
áður en rokkið heldur innreið sína og útsetningar eru
líka í stíl þess tíma.
Sviðsmyndina gerði Baldvin Bjömsson sem einnig
sá um búninga. Atriði eru mörg og skiptingar þurfa
að ganga fljótt fyrir sig. Þetta tekst með sæmilega ein-
foldum lausnum.
Hljómsveitin er á sviðinu allan tímann og skilar sínu
hlutverki með ekta sveiflu. Leikendumir sjá um söng-
inn og koma margir á óvart með vel frambærilegum
söng- og danshæfileikum. Það er líka reynt, þar sem
söngraddirnar eru óhjákvæmilega misjafnar, að of-
bjóða þeim ekki með of miklum kröfum og full ástæða
er til að hrósa söngstjórn Hjartar Howser. Áhorfend-
um er að mestu hlíft við að þurfa að horfa upp á leikar-
ana rembast við að syngja lög, sem þeir ráða ekki við,
eins og oft hefur viljað brenna við þegar söngleikir eru
á fjölunum.
Hlutverk Lilju er í öruggum höndum Steinunnar
Ólinu Þorsteindóttur sem ræður vel við alla þætti leiks
og söngs. Hún sneiðir fimlega hjá allri væmni og gerir
persónuna elskulega og lifandi.
Felix Bergsson leikur hinn hjartahreina (og svolítið
einfalda) sveitapilt, Arngrím mjólkurbílstjóra. Hann
er broslegur innan um veraldarvana braskarana í
bænum en kemst þó sína leið. Felix spilar óspart á
kómíkina í hlutverkinu og myndar gott mótvægi við
borgarbúana, Áka agent, Villa boxara og Sonní Carls-
son, dægurlagasöngvara og hjartaknúsara.
Aðalsteinn Bergdal smellur í hlutverk Áka, sleipur
og útsmöginn. Þetta er hinn sígildi braskari og
skemmtanastjóri sem hvað eftir annað skýtur upp
kollinum í verkum frá þessum tíma og þarf ekki lengi
að leita til að finna fyrirmyndimar.
Jón St. Kristjánsson er Villi boxari, hreinræktuð
grínfígúra, sem vakti hláturrokur áhorfenda. Og Skúli
Gautason leikur annað burðarhlutverkið, Sonní Carls-
son. Hann náði vel yfirborðslegum töffarastælunum
og ekki síður eymd Sonnís og niðurlæginu í lokin.
Þráinn Karlsson og Sunna Borg fóru létt með stöðluð
hlutverk foreldra Lilju og sama má segja um þau
Marinó Þorsteinsson og Þóreyju Aðalsteinsdóttur í
smærri hlutverkum.
Ingrid Jónsdóttir lék Helgu Maggý, sem hefur lent í
sollinum í henni Reykjavík. Hún réð vel við hlutverk-
iö og tókst að láta skína í ekta sársauka undir niðri.
Og Þórdís Arnljótsdóttir vann ágætlega úr vandasömu
hlutverki skáldkonunnar Ásu, útlitið var prýðilegt og
best tókst henni upp, þegar Ása varpar grímunni.
Já, það er tjúttað af krafti í gamla samkomuhúsinu
á Akureyri og sungið svo að undir tekur í burðarvið-
um. Valgeir Skagfjörð á auðvitað mest í sýningunni,
hann og samstarfsfólkiö hafa unnið hörðum höndum
og árangurinn er ágætlega frambærilegur söngleikur
sem án efa á eftir að skemmta áhorfendum vel fram
eftir vetri.
Leikfélag Akureyrar sýnir söngleik:
TJÚTT OG TREGI
Handrit, tónlist og leikstjórn: Valgeir Skagljörð.
Leikmynd og búningar: Baldvin Björnsson.
Hljómsveitarstjórn: Jón Rafnsson.
Söngstjórn: Hjörtur Howser.
Tónlistarútsetningar: Jón Hlööver Áskelsson og Hjörtur Hows-
er.
Dansar: Henny Hermannsdóttir.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
■ Verslun
Jólagjöfin hennar. Eitt besta úrvalið
af gullfallegum og vönduðum undir-
fatnaði á frábæru verði. Einnig
æðislegir kjólar frá East of Eden.
Korselett frá kr. 4373, m/sokkum.
Samfellur frá kr. 3896. Brjóstahald-
arasett frá kr. 4685, m/sokkum o.m.fl.
Ath. við erum með þeim ódýrustu.
Myndalisti yfir undirfatn. kr. 130.-
Opið frá 10-23 mán.-föstud., 10-22
laugard. og 13-18 sunnud.
Kristel, Grundarstíg 2, sími 91-29559.
Vélsleðakerrur - jeppakerrur.
Eigum á lager vandaðar og sterkar
stálkerrur með sturtum. Burðargeta
800-2.200 kg, 6 strigalaga dekk.
Yfirbyggðar vélsleðakerrur. Allar
gerðir af kerrum, vögnum og dráttar-
beislum. Veljum íslénskt.
Öpið alla laugard.
Víkurvagnar, s. 91-43911/45270.
Nýársgjöfin sem kemur þægilega á
óvart. Stórkostlegt úrval af stökum
titrurum, settum, kremum, olíum
o.m.fl. f/dömur og herra. Einnig nær-
fatn. á dömur og herra. Sjón er sögu
ríkari. Opið frá 10-18, mán.-föstud.,
10-14 laugard.
Erum á Grundarstíg 2 (Spítalastígs-
megin), sími 91-14448.
Brettakantar á Toyota, MMC Pajero og
flestar aðrar t-egundir jeppa og
pickupbíla, einnig skúffulok á jap-
anska pickupbíla. Tökum að okkur
trefiaplastklæðningu í gólf og hliðar
á sendi- og pickupbílum, sem og aðrar
plastviðgerðir. Boddíplasthlutir,
Grensásvegi 24, sími 91-812030.
' ' "S
•Q efitit Ifolta
lamut Itatn /
FERÐAR