Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1992, Síða 4
Fréttir
MIÐVIKÚDÁGU'R 19. FEBRÚAR 1992.
Vatnssölumál í Hafnarfirði:
Aðaltengiliðurinn er
á fjögurra ára skilorði
„Viö munum bara bíöa átekta. Ef
ekkert hefur gerst í málinu í vor fell-
ur samningurinn sjálfkrafa úr gildi.
Þá verða aö liggja fyrir sölusamning-
ar, svo og fjármögnunarsamningar,
sem bæjaryfn-völd meta gilda áður
en vatnstaka hefst. Viö höfum engu
að tapa í málinu þannig aö viö höfum
engar áhyggjur,“ sagöi Guömundur
Arni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafn-
arfirði, er DV spurði hann um samn-
ing bæjarins við Vatnsberann hf.
Vatnsberinn hf. hefur sem kunnugt
er gert samning viö bandaríska fyrir-
tækiö United Gulf Trading Inter-
national, sem er í Kalifomíu, um
stórfelldan útflutning á vatni, eink-
um til Saudi-Arabíu. Eigandi þess,
Donald Rocco, var starfandi tann-
læknir í heimalandi sínu þar til áriö
1990. Þá var hann staðinn að trygg-
ingasvikum og hlaut fjögurra ára
skilorðsbundinn dóm. Hann er þvi á
skilorði nú. Fyrir nokkrum árum var
Rocco ákærður fyrir aö hafa kókaín
undir höndum en var þá sýknaöur.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
hefur aflaö sér stofnaði Rocco fyrir-
Frá undirskrift á samstarfssamningi Vatnsberans hf. og bandaríska fyrirtækisins United Gulf Trading. Þórhallur
Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Vatnsberans, og dr. Donald Rocco undirrituðu samninginn. DV-mynd GVA
tæki sitt í desember 1990. Það er á
heimili hans í Carmel by the Sea í
Kaliforníu. Viðskiptabankar þess
eru í Evrópu, aðallega í Sviss, að því
er hann segir sjálfur. Hann hefur
ekki viljað gefa upp neinar veltutölur
hjá fyrirtækinu þann tíma sem það
hefur verið starfrækt en samkvæmt
upplýsingum DV nema umboðslaun
þess á árinu 1991200.000-400.000 doll-
urum, eða allt að 23 milljónum ís-
lenskra króna.
Bergur Guðnason er lögmaður
Roccos hér á landi. Þegar blaöamaö-
ur DV ræddi við lögmanninn fyrir
um það bil tveim vikum fullvissaði
Bergur hann um aö Donald Rocco
væri með hreinan skjöld. Síðan hefur
hann sagt í fjölmiðlum að honum
hafi lengi verið kunnugt um að
Bandaríkjamaðurinn sé á fjögurra
ára skilorði. Bergur kvaðst ekki vilja
tjá sig um þetta mál við DV að öðru
leyti en því að það breytti engu þótt
það hefði komist í fjölmiðla. „Við
höldum okkar striki - og búið,“ sagði
hann
-JSS
Klippt á viðskiptin við United Gulf Trading:
Höfum dregið allar ábyrgðir til baka
- segir fr amkvæmdastjóri Vatnsberans
„Við höfum dregið allar fjárá-
byrgðir, sem við höfum veitt United
Gulf Trading Intemational, til baka
í dag,“ sagði Þórhallur Gunnlaugs-
son, framkvæmdastjóri Vatnsberans
hf. í Hafnarfirði, viö DV.
Þórhallur fullyrti að hann hefði
ekki haft hugmynd um „þennan blett
á fortíð" Roccos, forstjóra United
Gulf Trading Intemational, fyrr en
sl. fimmtudag. Þau tíðindi að hann
væri á fjögurra ára skilorði hefðu
komiö sér gjörsamlega í opna
skjöldu.
„Við firrum okkur allri ábyrgð
vegna þessa manns," sagöi hann.
„Hann hefur aðeins verið tengiliður
milli okkar og Hani Achmeds hjá
OMNI-fyrirtækinu sem selur vatnið
beint til Saudi-Arabíu. Við eram nú
komnir í beint samband við hinn síð-
amefnda opg höfum gert honum ljóst
að við ætlumst til þess að öll gögn,
sem hann hefur lofaö okkur, verði
komin í okkar hendur fyrir mánaða-
mótin. Við höldum þessu ekki áfram
nema öll atriði séu á hreinu.
Við höfum látið kanna fyrirtæki
Achmeds í gegnum bandaríska
sendiráðið,' svo og Verslunarráð ís-
lands. Meira getum við ekki gert í
stöðunni. Við hljótum að treysta upp-
lýsingum sem við fáum í gegnum
þessa aðila.“
Þórhallur sagði að rúmlega tuttugu
aðilar hefðu skrifað sig fyrir hlutafé
í fyrirtækinu. Söfnun fyrir B-flokk
stæði nú yfir. Hefði verið fyrirhugað
að safna allt að hundrað milljóna
hlutafé. Ekki væri séð fyrir endann
á því hvemig þeirri söfnun reiddi af
eftir þessi tíðindi. Þau hlutafjárlof-
orð, sem skrifað hefði verið undir,
væru bindandi. Hins vegar yrðu við-
komandi leystir undan loforðunum
væri farið fram á slíkt. „Ef fólk trúir
ekki á þá samninga, sem við erum
að vinna að, munum við leysa það
undan öllum kvöðum."
-JSS
í dag mælir Dagfari
Money, money!
Landssamband lögreglumanna
hefur krafist þess að Róbert Tí austi
Ámason sendiherra verði rekinn
úr starfi. Ekki stafar þessi krafa
lögreglumanna af því að löggan sé
farin aö segja utanríkisþjón-
ustunni fyrir verkum, heldur er
ástæðan sú að „Landsambandið
getur hvorki fellt sig við þaö ógeð-
fellda og lágkúrulega skopskyn,
sem embættismaðurinn opinberar,
né þá lítilsvirðingu og fyrirhtningu
sem hann hefur sýnt undirmönn-
um sínum með framkomu sinni“.
Tilefni þessara ummæla er út-
varpsþátturinn Reykjavík síðdegis,
þar sem sendiherrann sat fyrir í
viðtali vegna uppsagna lögreglu-
manna í Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar. Róbert Trausti hefur haft þaö
verkefni að gera tillögur um
breytta skipan öryggismála í flug-
stöðinni og nú er búið að segja þar
upp öllum mönnum nema einum
sem vaktar flugstöðina í stað sér-
sveitarinnar áður. Þátturinn end-
aði með því að sendiherrann fékk
leyfi til að velja sér lag og bað hann
um „Money, money“ með ABBA,
með sérstakri kveðju til lögreglu-
mannanna í flugstöiðinni.
Landssamband lögreglumanna
tekur fram að þessar uppsagnir
hafi komiö sér illa fyrir þá lög-
reglumenn sem störfuðu í flugstöð-
inni. Ekki aðeins sjái þeir nú á eft-
ir störfum sínum heldur líka drjúg-
um hluta tekna sinna. Þessar bús-
ifiar lögreglumanna hefur sendi-
herrann í flimtingum og skopast
að þeim, að sögn Landssambands-
ins. Sendiherrann var sem sé of
fyndinn til vera nógu fyndinn fyrir
skopskyn lögreglunnar.
Nú er það að vísu svo að menn
hafa misjafnt skopskyn og ekki
getur veslings sendiherrann gert
að því þótt kímnigáfa hans fari
ekki saman við kímnigáfu lög-
reglumanna, enda lögreglan þekkt
fyrir annað heldur en íslenska
fyndni. Sendiherrar era heldur
ekki sérstaklega landsfrægir fyrir
skopskyn, ef þaö þá finnst eitthvað
svoleiðis skyn í utanríkisþjón-
ustunni. Þess vegna kom það
skemmtilega á óvart aö lögreglan
skuli halda að Róbert Trausti hafi
verið að reyna aö vera fyndinn með
því að biðja um lagið með ABBA
flokknum. Ekki þannig að Dagfari
hafi velst um af hlátri, en ef þetta
átti að vera sniöugt er sjálfsagt að
leyfa manninum að halda að hann
hafi verið bæði fyndinn og sniðug-
ur með því að tileinka lögreglu-
mönnunum lag um peninga, úr því
að þeir eru að rífast út af pening-
um. Deilan um öryggisgæsluna
snýst nefnilega alls ekki um örygg-
isgæsluna heldur um það hvort
nokkrir lögreglumenn fái að ganga
þar um meö byssu á fullu kaupi.
Landssambandið segir að lögreglu-
mennimir missi dijúgan hluta af
tekjum sínum og það er einmitt
kjami málsins.
Ef Landssambandinu verður að
ósk sinni og sendiherrann rekinn
úr starfi, er það víti til varnaðar
fyrir aðra opinbera starfsmenn,
hvort heldur í löggæslu eða utan-
ríkisþjónustu. Þeir eiga ekki að
reyna að vera fyndnir á kostnaö
annarra. Þaö getur kostað þá starf-
ið. Lögreglumenn hafa ekki sama
húmor og sendiherrar og sendi-
herrar verða reknir ef þeir móðga
lögreglumenn.
Framvegis veröur og að gæta
þess að ráða eingöngu þannig fólk
í þessi störf að engin hætta sé á því
að það hafi skopskyn eða þá að það
hafi þannig skopskyn að ekki komi
að sök þegar lög eru spiluð í útvarp-
inu. Ólíklegustu menn geta fyrst
við þegar þeir heyra annarleg lög
í útvarpi og heimtað brottrekstur
þeirra húmorista sem spila lög sem
lögreglumenn geta móðgast út af.
Það borgar sig engan veginn fyrir
einn né neinn að fá alla lögreglu-
stéttina upp á móti sér fyrir þá sök
eina að hafa glapst til aö biðja um
óskalag í venjulegum útvarpsþætti.
Löggan hefur kannske nóg að gera,
en hún hefur sko tíma til að fylgj-
ast með útvarpinu og vei þeim sem
ætlar að ögra skopskyni lögreglu-
manna.
Ef Róbert Trausti sendiherra
verður rekinn úr starfi, eins og
Landssamband lögreglumanna
hefur krafist, mun það verða í
fyrsta skipti í íslandssögunni sem
opinber starfsmaöur víkur úr
starfi fyrir að hafa vitlaust skop-
skyn. Svona getur skopskynið snú-
ist upp í andhverfu sína þegar hú-
moristarnir taka sjálfan sig of al-
varlega.
Dagfari