Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1992, Blaðsíða 30
34
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1992.
Fólk í fréttum dv
Loftur Jóhannesson
Loftur Jóhannesson flugstjóri, bú-
settur í Bretlandi, var í DV-fréttum
í gær vegna blaöagreinar í þýska
tímaritinu Spiegel um ólöglega
vopnasölu Austur-Þjóðverja til CIA,
bandarísku leyniþjónustunnar.
Starfsferill
Loftur er fæddur 23.12.1930 í
ReyKjavík og ólst þar upp í vestur-
bænum á Stýrimannastíg 5. Hann
lauk gagnfræðaprófl, atvinnuflug-
mannsprófi 1949 en blindflugsprófi
og flugstjóraprófi hjá Air Service
Training í Hamble á Englandi árið
1950.
Loftur var flugmaður og flugstjóri
frá 1954 á fjöldamörgum flugvéla-
tegundum. M.a. B-17, Douglas DC-3,
Douglas DC-6, Constellation og Brit-
annia. Hann er nú hættur flugi og
kominn á eftirlaun.
Fjölskylda
Loftur kvæntist 14.3.1953 Irmgard
Toft, f. 14.4.1934, verslunarmanni
og ballettkennara, en hún er dóttir
Hartwig Toft, kaupmanns í Reykja-
vík, og konu hans, Kristínar Toft
húsmóður. Loftur og Irmgard skildu
1958.
Seinni kona Lofts er Sophie
Genevieve Dumas. Foreldrar henn-
ar: George Dumas, lögfræðingur í
Monein í Frakklandi, og Hougette
Dumas húsmóðir.
Dóttir Lofts og Sophie: Marina
Mia, f. 10.9.1979.
Bróðir Lofts er Bjami Markús, f.
5.12.1939, kona hans var Olivia Bla-
keney, þau skildu.
Foreldrar Lofts: Jóhannes Lofts-
son, f. 1.8.1903, d. 6.2.1961, verslun-
armaður í Reykjavik, og Bjarnveig
Bjarnadóttir, f. 18.9.1905, fyrrv. for-
stöðumaður Ásgrímssafns, þau
skildu. Seinni maður Bjamveigar
var Snorri Sigfússon, f. 31.8.1884,
d. 13.4.1978, námsstjóri.
Ætt
Jóhannes var sonur Lofts, skip-
stjóra á Seltjamamesi Loftssonar,
vinnumanns í Bollagörðum á Sel-
tjarnarnesi Loftssonar. Móðir Lofts
skipstjóra var Guðrún Einarsdóttir,
útvb. í Bollagörðum, Hjörtssonar.
Móðir Jóhannesar var Guðrún,
systir Björns, fóður Kristins læknis,
fóður Björns prófessors. Guðrún
var dóttir Jóhannesar, b. á Hóli í
Lundareykjadal, Jónssonar, b. í
Deildartungu, bróður Vigdísar,
ömmu Zóphaníasar, skipulagsstjóra
ríkisins, foður Hjalta Nick, skrif-
stofustjóra í dómsmálaráðuneytinu.
Jón var sonur Jóns, hreppstjóra og
dbrm. í Deildartungu og ættfóður
Deildartunguættarinnar, Þorvalds-
sonar. Móðir Guðrúnar Jóhannes-
dóttur var Kristín Björnsdóttir, b. á
Möðruvöllum i Kjós, Kortssonar,
þess sem Írafells-Móri var sendur,
Þorvaldssonar.
Bjamveig er dóttir Bjama, málara
í Reykjavík, bróður Vilborgar,
langömmu Sigurðar Sveinssonar
handknattleiksmanns. Bjarni var
einnig bróðir Rannveigar,
langömmu Ómars Ragnarssonar
Loftur Jóhannesson.
fréttamanns. Bjarni var sonur
Bjarna, b. í Þykkvabæ í Landbroti,
Bjarnasonar, b. í Þykkvabæ, Jóns-
sonar. Móðir Bjarna málara var
Rannveig Jónsdóttir frá Fagurhlíð í
Landbroti, Jónssonar. Móðir Bjarn-
veigar var Guðlaug Hannesdóttir,
b. í Skipum á Stokkseyri, Hannes-
sonar og Sigurbjargar Gísladóttur.
Afmæli
Bergur Sigurbjömsson
Bergur Sigurbjömsson, fyrrv. al-
þingismaöur og fyrrv. fram-
kvæmdastjóri Framkvæmdastofn-
unar ríkisins, til heimihs að Selási
17, Egilsstöðum, er sjötíu og funm
áraídag.
Starfsferill
Bergur fæddist í Heiðarhöfn í
Sauðaneshreppi í Norffur-Þingeyj-
arsýslu og ólst þar upp og viðar í
sveitinni. Hann lauk stúdentsprófi
frá MA1939, prófi í viðskiptafræði
viö HÍ1943 og framhaldsnámi við
Stockholms högskola 1946-48.
Bergur var skrifstofumaður hjá
Landsbanka íslands 1941 og hjá 01-
íuverslun íslands hf. 1942-46, stund-
aði hagfræðistörf hjá Fjárhagsráði
1948-54, var stærðfræðikennari við
Kvennaskólann í Reykjavík 1954-56,
stundaði hagfræðistörf á eigin veg-
um 1956-61 og vann þá m.a. fyrir
Stéttarsamband bænda og tvær
stjómskipaðar rannsóknarnefndir,
var starfsmaður Útvegsbanka ís-
lands í Reykjavík 1961-65, fram-
kvæmdastjóri Kjararannsóknar-
nefndar 1965-68, framkvæmdastjóri
Sambands sveitarfélaga í Austur-
landskjördæmi 1968-71 og 1975-82
og framkvæmdastjóri Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins 1972-74.
Bergur var landskjörinn alþingis-
maður 1953-56 og varaþingmaður
Reykvíkinga 1964-65. Hann var
varaformaður Þjóðvamarflokks ís-
lands 1953-61 og ritari hans eftir
það. Hann var kosinn á Alþingi 1956
í rannsóknamefnd milhliðagróða og
skipaður 1971 í nefnd til að semja
framvarp um Framkvæmdastofnun
ríkisins. Þá var hann kosinn í stjóm
Viðlagasjóðs 1973. Hann var ritstjóri
Kosningablaðs Mýramanna 1951 og
af og til ritstjóri og meðritstjóri
Frjálsrar þjóðar 1952-68.
Fjölskylda
Bergur kvæntist3.6.1944 Hjördísi
Pétursdóttur, f. 16.10.1919, d. 1.8.
1971, stúdent og húsmóður. Hún var
dóttir Péturs Þórhalls Júlíusar
Gunnarssonar, stórkaupmanns og
endurskoðanda í Reykjavík, og
konu hans, Svanfríðar Hjartardótt-
ur húsmóður.
Börn Bergs og HjÖrdísar eru Hjör-
dís Guðný, f. 13.7.1945, listmálari
og myndlistarkennari á Blönduósi,
og á hún þrj ú börn; Fríða, f. 12.2.
1948, deildarstjóri hjá Sláturfélagi
Suðurlands í Reykjavik og á hún
þrjú böm; Björn, f. 7.7.1949, kenn-
ari við MH, kvæntur Gerði Kristins-
dóttur, starfsmanni hjá DAS, og eiga
þau eina dóttur; Þórunn Guölaug,
f. 17.7.1957, sjúkraliði í Kópavogi,
gift Jóhanni Þorsteinssyni bifvéla-
virkja og eiga þau íjögur böm.
Bergur kvæntist 26.12.1979 seinni
konu sinni, Jóhönnu Arnljótu Ey-
steinsdóttur, f. 12.2.1950, bókasafns-
fræðingi og húsmóður. Hún er dótt-
ir Eysteins Bjamasonar, kaup-
manns og bæjarráðsmanns á Sauð-
árkróki, og konu hans, Margrétar
Hemmert tannsmiðs.
Böm Bergs og Amljótar era Arn-
Ijótur Bjarki, f. 17.9.1977, og Sigrún
Dóra, f. 28.7.1981.
Systkini Bergs: Líney, f. 1919, d.
Bergur Sigurbjörnsson.
1959, hjúkrunarkona í Reykjavík;
Hallur, f. 1921, fyrrv. skattstjóri á
Akureyri, kvæntur Aðalheiði
Gunnarsdóttur; Marinó, f. 1923,
deildarstjóri Kaupfélags Héraðsbúa,
búsettur á Reyðarfirði, kvæntur
Margréti Einarsdóttur.
Foreldrar Bergs vora Sigurbjörn
Ólason, f. 30.4.1888, d. 15.2.1964, b.
í Staðarseli í Sauðaneshreppi, og
kona hans, Guðný Soffia Hallsdótt-
ir, f. 25.8.1896, d. 24.8.1925, hús-
freyja.
Ætt
Sigurbjöm var sonur Óla Jóhann-
esar, b. og söðlasmiðs í Heiðarhöfn
á Langanesi, Jónssonar, og Þórann-
ar Gunnarsdóttur húsfreyju.
Guðný Soffía var dóttir Halls Guð-
mundssonar, b. á Hóh og síðar í
Heiðarhöfn, Guðmundssonar, og
Kristbjargar Jónsdóttur húsfreyju.
Bergur veröur að heiman á afmæl-
isdaginn.
Magnhildur Guðlaug
Stefánsdóttir
Magnhildur Guðlaug Stefánsdóttir
húsmóðir, Fjóluhvammi 11,
Fellabæ, Norður-Múlasýslu, er átta-
tíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Magnhildur fæddist að Sleðbijót í
Hhðarhreppi í Norður-Múlasýslu og
ólst þar upp. Hún lauk hefðbundnu
forskólanámi og stundaði verknám
einn vetur á Seyðisfirði og annan
vetur á Sauðárkróki.
Eftir að Magnhildur giftist bjuggu
þau hjónin eitt ár að Hnitbjörgum í
Hhð og síðan í fimmtíu og fjögur ár
í Grófarseh í sömu sveit.
Magnhildur tók ætíð virkan þátt
í félagsstörfum sinnar sveitar. Hún
var formaður Sleðbrjótssafnaðar og
sat löngum í sfjómum ýmissa
framfarafélaga sveitarinnar. Þá tók
hún lengi þátt í störfum Austfirskra
kvenna.
Fjölskylda
Magnhhdur giftist 27.5.1928 Birni
Kristjánssyni, f. 17.10.1903, ættuö-
um frá Svínámesi við Eyjafjörð,
lengst af b. og smiður að Grófarseh.
Foreldrar Björns voru Kristján
Gíslason, b. á Hnitbjörgum og víðar,
og Petra Bjömsdóttir húsfreyja.
Börn Magnhhdar og Bjöms: Stef-
anía Björg Bjömsdóttir, búsett í
Hafnarfirði; Petra F. Bjömsdóttir,
búsett á Egilsstöðum; Elva Björns-
dóttir, búsett á Stangarási á Vöhum;
Jónína A. Bjömsdóttir, búsett á Sól-
brekku í Fellahreppi; Bára A.
Bjömsdóttir, búsett á Seyöisfirði;
Kristján H. Bjömsson, búsettur í
Fehabæ; Gylfi S. Bjömsson, búsett-
uraðHofiíFellum.
Foreldrar Magnhhdar voru Stefán
Magnhildur Guðlaug Stefánsdóttir.
Sigurðsson, hreppstjóri í Sleðbijót,
og Björg Sigmundsdóttir frá Gunn-
hhdargerði.
Magnhildur er að heiman á af-
mæhsdaginn.
Til hamingju með afmælið 20. maí
Hreinn Magnússon,
Lpgáfpld: I7G, Reykjavik. ;;
Eiríkur Ingvarsson,
90 ára
Gróa Hertervig,
Dalbraut 27, Reykjavík.
Maria Jóhannsdóttir,
Hrafnístu v/Kleppsveg, Reykjavík.
85 ára
Lilja Ö. Thoroddsen,
Háaleitisbraut 26, Reykjavfk.
Karl Björnsson,
Ytri-Stóruborg, Þverárhreppi.
70 ára
Guðný E. Egilsdóttir,
Selvogsgötu 5, Hafharfírði.
Kristinn S. Jósefsson,
Veghúsum 31, Reykjavík.
Geir Isleifur Geirsson,
Selbraut 17, Seltjamamesi.
60 ára
Kristbjörg Ólafsdóttir,
Jöldugróf 22,
Reykjavík. ;
Eigininaöur
hertnar er Sig-
valdi Hjartarson.
Þau taka á móti
gestum á heimill
sínu; laugardag-
inn23. maíkl.20.
Eyjólfur Pálsson,
Strembugötu 20, Vestmannaeyjura.
Ólafía Hutda Sigurðardóttir,
Engihlíð 22, Ólafsvík.
Stella Stefánsdóttir,
Seljavegi 7, Reykjavfk.
Bárugötu 15,
Ágúst Karel
Bjarmalandi
Reykjavík.
Kona hans
Guðríður
mundsdóttir
fóstra.
í tilefni afm;
ins veröur
hú$ hjá 1
hjónum í i
fellowsalnum í Vonarstræti 10 á afmæl-
isdaginn kl. 17-19.
50 ára
Einar Kjartansson,
Álfhólsvegi 89, Kópavogi.
Herjolf Skogtand,
Hraunbæ 18, Reykjavik.
Sigrún Stefánsdóttir,
Veghúsastíg 9, Reykjavfk.
Guðmundur Agnarsson,
Hliðarvegi 36, Isafiröi.
Ásta Kristjana Ragnarsdóttir,
Þórólfsgötu 21, Borgamesi.
40 ára
Tryggvi Þór Tryggvason,
Efstahjaila 5, Kópavogi.
Kristján Birgisson,
Heiðartúni 4, Vestmannaej’jum.
Guðrún Jóhannesdóttir,
Sandholti 44, Ólafsvík.
Sigurður Jóhannes ögmundsson,
Sunnubraut 24, Garði.
Stefán Öndólfur
Kristjánsson
Stefán Öndólfur Kristjánsson bif-
vélavirki, Melteigi 16, Keflavík, er
fimmtugurídag.
Starfsferill
Stefán fæddist í Norðurhhð í Að-
aldal í Suður-Þingeyjarsýslu og ólst
upp í Aðaldal. Hann hefur starfað
hjá Olíufélaginu hf. á Keflavíkur-
flugvelli í tuttugu og sex ár.
Stefán er félagi í Lionsklúbbi
Keflavíkur og í framsóknarfélagi
Keflavíkur.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 10.10.1964
Oddnýju J.B. Mattadóttur, f. 10.1.
1945, verslunarkonu. Hún er dóttir
Matta Ó. Ásbjömssonar og Torf-
hhdar Guðbrandsdóttur frá Ólafs-
vík.
Börn Stefáns og Oddnýjar eru
drengur, f. andvana 10.11.1963; Guð-
brandur J. Stefánsson, f. 7.1.1965,
nemi viö íþróttaskólann á Laugar-
vatni, kvæntur Lindu B. Jósepsdótt-
ur og eiga þau tvö böm; Matti Ó.
Stefánsson, f. 21.6.1966, sjúkranudd-
ari og er unnusta hans Unnur
Magnúsdóttir og eiga þau eina dótt-
Stefán Öndólfur Kristjánsson.
ur; Friðrika K. Stefánsdóttir, f. 5.6.
1971, er að ljúka stúdentsprófi, bú-
sett í foreldrahúsum.
Systkini Stefáns: ÞórveigKrist-
jánsdóttir, Ásbjörn H. Kristjánsson,
Eydis Kristjánsdóttir, Valgerður
Kristjánsdóttir, Jakob Kristjánsson
og Agnar Kristjánsson.
Foreldrar Stefáns: Kristján Jónat-
ansson, f. 6.12.1891, d. 16.3.1964, og
Friðrika Stefánsdóttir, f. 18.4.1908,
húsfreyja.
Stefán er að heiman á afmæhsdag-
inn.