Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1992, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1992, Síða 9
' MIDVIKUDÁGÍJR ‘ÍO. MÁl léÓ2. Ötlönd Drap konu sína og fimm aðra ættingja Sextíu og sex ára gamall afi á Nýja-Sjálandi gekk berserksgang á býli sínu í morgun og drap sex manns úr fjölskyldu sinni, þar á meðal eigin- konu sína og bam. Að sögn lögreglu var rifrildi orsök ódæðisverksins. Lögreglan sagði að maðurinn, Brian Schlaepfer, hefði síðan svipt sig lífi. Fjölskylda hans hafði yrkt jörðina í þrjá ættiiði. Níu ára stúlka, bamabam bónd- ans, hringdi í lögregluna úr herbergi á efri hæð hússins þar sem hún hafði lokað sig inni. Hún sagði lögreglunni að afi hennar hefði drepið móður hennar og bróöur eftir mikið rifrildi. Sextíu lögregluþjónar, þar á meöal tuttugu skyttur, voru sendir á stað- inn til að fást við byssumanninn. Ekki hafa verið borin kennsl á öll fómarlömbin þó svo að meðal þeirra sé eiginkona bóndans, dóttir hans og tengdasonur og ellefu ára drengur. Hinir tveir látnu voru fullorðnir. Þrjár fjölskyldur bjuggu á býhnu. Líkin fundust í tveimur húsum á landareigninni og á heimreiöinni. Lögreglan sagði að fundist hefðu bæði riffill og haglabyssa. „Ástæðan fyrir þessu var einhvers konar heimiliserjur. Við erum að reyna að komast að því hvað það var nákvæmlega,'1 sagði Graham Bell, varðstjóri í lögreglunni. Hann sagði að eiginkona Schlaepf- ers hefði áður skýrt nágrönnum sín- um frá að bóndi sinn þjáöist af þung- lyndi. Reuter Stuðningurvið líknarmorð Samkvæmt upplýsingum, sem birtust í Bandaríkjunum í gær, fjölgar þeim nú stöðugt þar í landi sem em hlynntir líknarmorðum. Þessi þróun mun mjög líklega hafa í för með sér að meiri áhersla veröur lögð á að hknar- morð verði gerð lögleg. Árið 1950 var það aðeins um þriðjungur Bandaríkjamanna sem fannst að læknar ættu að hafa leyfi th þess að binda enda á líf þeirra sem þjáðust af ólækn- andi sjúkdómum, ef sjúkhngarn- ir sjálfir og aðstandendur þeirra fóra fram á það. Rúmlega 40 árum síðar eru þaö um 63 prósent bandarísku þjóðarinnar sem eru sama sinnis. Der Spiegel bannaðílran írönsk stjómvöld hafa bannað ákveðið tölublað af þýska tíma- ritinu Der Spiegel. Ástæðan er sú að þar birtíst teiknimynd af fyrr- um leiðtoga írana, Ayatohah Ru- hohah Khomeini, þar sem hann beinir skotvopni að bók. í sama tölublaði er viðtal við breska rit- höfundinn Salman Rushdie, en fyrir þremur árum gaf Khomeini út þá yfirlýsingu að Rushdie væri réttdræpur þar sem bók hans, The Satanic Verses, væri móðgun við Múhammeð spámann. Frá þeim tíma hefur Rushdie lifað í felum. 23tonnaf froskalöppum Tohverðir í Bangladesh hafa fundið 23 tonn af froskalöppum, sem smygla átti úr landi. Var löppunum pakkað í 1.150 kassa og hefðu fengist um 15 mihjónir ef tekist hefði að selja þær. Viður- lögerusjöárafangelsi. Reuter Bill Clinton sigraði í forkosningum demókrata í tveimur fylkjum Banda- rfkjanna í gær. Teiknlng Lurie Forstöðumenn demantaupplýsingamiðstöðvarinnar i Tokyo í Japan eru þeirrar trúar að það þurfi nú meira en kreppu til að halda japönsku kven- fólki frá demöntum. Þeir hafa því sett á markaðinn farsima, allan alsettan demöntum. Eru hvorki fleiri né færri en 1300 demantar á gripnum, settir i 18 karata gull. Framleiðandi simans segist gjarnan myndu selja hann hverj- um sem væri, svo framarlega sem viðkomandi ætti rúmlega 46 milljónir. Helmingur japanskra kvenna á þrítugsaldri á demanta og fannst framleið- anda símans því ekki annað hægt en að framleiða eitthvað hentugt úr demöntum. Símamynd Reuter Forkosningar í Oregon og Washington: Yf irburðasigur hjá Bush og Clinton George Bush Bandaríkjaforseti og Bill Clinton, fylkisstjóri í Arkansas og væntanlegur forsetaframbjóðandi demókrata, sigraðu í forkosningum í Oregon í gær og þeim var einnig spáð sigri í nágrannafylkinu Wash- ington. Búist hafði verið við því fyrirfram að Bush og Clinton færu með sigur af hólmi í fylkjunum tveimur. Fyrstu tölur í Oregon bentu tíl þess að Bush fengi 76 prósent atkvæða hjá repúblikönum og keppinautur hans, Pat Buchanan, fengi 21 prósent. I Washington hafði Bush fengið 83 prósent en Buchanan aðeins 14 pró- sent. Clinton hafði fengið 63 prósent at- kvæöa í Washington en Jerry Brown 18 prósent þégar tvö prósent atkvæða höfðu verið talin. Paul Tsongas sem hefur hætt kosningabaráttunni hafði fengið 15 prósent. Þótt bæði Bush og Clinton hafi sigr- að í þessum forkosningum benda skoðanakannanir tíl þess að þeir eigi undir högg að sækja í baráttunni við milljarðamæringinn Ross Perot. í síðustu viku benti könnun til þess að Ross Perot mundi sigra þá báða, þar á meðakl í lykilfylkjum eins og Texas og Kalifomíu. Reuter Skrifstofuhúsnæði til leigu í miðbænum Skrifstofuhúsnæði til leigu á fjórðu hæð (efstu) í lyftuhúsi við Hafnarstræti. Húsnæðið er í nýlegu húsi, ca 270 fm og mjög smekklega innréttað. Laust fljótlega. Upplýsingar veittar í síma 25101 á skrifstofutíma og í síma 689818 á kvöldin og um helgar. SPURNINGHSEÐILL y y n FRNTR 0G BYLGJUNNRR 11.- 22. maí Leikurinn byggist á því að flutt er brot úr alþekktu dægurlagi sem allir eiga að þekkja. Lagið sem leikið er fjallar á einhvern hátt um ákveðinn hlut, atvik, persónu eða aðgerð sem hægt er að þekkja á þelm myndum sem blrtast hér að neðan. Myndirnar eru merktar A, B og C og merkja þátttakendur við þann bókstal er þeir telja að standi fyrir rótt lag. Fylla veröur ót svörin á svarseðlinum sem birtur var í upphafi leiksins, þann 9. maí. Þegar öllum spurningunum hefur verið svarað þá þarf að koma þeim svarseðli til Bytgjunnar, tryggilega merktum þátttakanda. ■*— ■ i HíTSI GS: 20.5. | MerkiO réttan bnkstaf Inn á svarseðílinn Ekki senda þennan seðll, heldur svarseðilinn sem birtist í DV þann 9. maí. Bíðið með að senda inn svarseðilinn þar til öll lögin hafa verið flutt. Dreglð verður úr réttum svörum þann 1., 2., S. og 4. júní á Bylgjunní. í hvert skipti verður dreglð um 15 BAUER LÍNUSKAUTA. ranfci -gott appelsín 989 GOTTUTVARP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.