Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1992, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 13. JUNI 1992.
23
listahátíð:
Frægtgötu-
leikhús sýn-
ir listir sínar
- í miðbænum í dag
Mikið verður um dýrðir í Reykja-
vík um helgina en það er frönsk list
sem setur svip sinn á listahátíð. Leik-
hópurinn Théatre de l’Unité hefur
verið með sýningar í Borgarleikhús-
inu en í dag verður hann með götu-
leikhús í miðbænum. Sýningin byrj-
ar klukkan eitt í dag og nefnist Le
Mariage eða Hjónabandið. Þessi leik-
hópur var stofnaður sem götuleikhús
árið 1968 og hefur náð ótrúlegum vin-
sældum um alla Evrópu. Leikhópur-
inn hefur geiið út þá yfirlýsingu að
hann vilji fara með listina til fólksins
og hafi þess vegna sýnt á ólíklegustu
stöðum, má þar nefna á götum, í
görðum, í stórmarkaði, inni í bílum,
á íþróttavöllum og á flestum þeim
stöðum sem fólk kemur saman á.
Sýning götuleikhússins nær frá
Bankastræti, Austurstræti og aö
Tiöminni (ráðhúsinu).
Á sunnudagskvöld sýnir síðan
dansflokkur Maguy Marin í Borgar-
leikhúsinu. Maguy Marin er einn
þekktasti danshöfundur Evrópu um
þessar mundir. Dansflokkur hennar
hefur farið víða um lönd með sýning-
ar sínar og Marin sjálf er eftirsótt
sem danshöfundur af ölliun helstu
ballettflokkum beggja vegna Atlants-
hafsins og undantekningarlaust
vekja sýningar hennar alþjóðaat-
hygh.
Maguy Marin hlaut fyrstu verð-
laun sem danshöfundur tvö ár í röð
1977 og 78 á alþjóðlegu danshátíðun-
um í Nyon og Bagnolet. Hún stofnaði
eftir það sinn eigin dansflokk Ballet
Thétre de l’Arche í samvinnu við
danshöfundinn Daniel Ambash.
Verk þeirra vöktu fljótt slíka athygli
að franska menningarmálaráðu-
neytið styrkti flokkinn með árlegu
framlagi. Þekktasta verk Marin, May
B, var frumsýnt árið 1981 en sama
ár var dansflokknum boðið að taka
upp fast aðsetur í bænum Cretéil
utan við París og hefur svo verið síð-
an.
May B sem gestur Borgarleikhúss-
ins fá að njóta annað kvöld hefur
verið sýnt þrjú hundruð sinnum og
er talið eitt af merkari verkum dans-
og leikhúslistarinnar sem komið hef-
ur fram á síðari árum.
Leikhópurinn mun sýna aftur í
Borgarleikhúsinu á þriðjudagskvöld
en þá verður flutt leikverkið Cortex.
íslensk Ust verður einnig í háveg-
um höfö um helgina og má þar nefna
tónleika íslensku hljómsveitarinnar
í Langholtskirkju annað kvöld kl. 20.
Þar verður flutt verk eftir Þorkel
Sigurbjömsson og dóttur hans, Misti.
-ELA
Franski götuleikhúshópurinn hetur hvarvetna notið mikilla vinsælda og svo
mun væntanlega vera í miðbænum i Reykjavík í dag.
Klúbbkortið giidir á öllum
KODAK EXPRESS stöðunum
um allt iand
Bókaverslun Andrésar Níelssonar, Akranesi.
Bókaverslun Jónasar Tómassonar, ísafirði.
Pedrómyndir, Skipagötu 16, Akureyri.
Bókabúð Brynjars, Sauðárkróki.
Vöruhús K.Á., Selfossi.
Hraðmynd, Egilsstöðum.
M A
með eftirsóknarverðum
fríðindum
Verslanir Hans Petersen hf.:
Bankastræti, Glæsibæ, Austurveri,
Kringlunni, Lynghálsi, Laugavegi 178,
Hólagarði og Skeifunni 8.
Kaupstaður í Mjódd.
Ljóshraði í Hamraborg, Kópavogi og Eiðistorgi.
Filmur og Framköllun, Strandgötu, Hafnarfirði.
Hljómval, Keflavík.
SÉRSTAKT KYNNINGARTILBOÐ
- .12 MYNDIR ÓKEYPIS
gildir frá 1. júní til 30. september
Pú kaupir KODAK GOLD II, filmutvípakka með 24 mynda
og 36 mynda filmum, á verði tveggja 24 mynda filma.
Pú færð sem sé 12 myndir ókeypis.
Þegar pú kemur með filmu í framköllun og skilar umbúð-
irnar af filmutvípakkanum færðu einnig þessar 12 myndir
framkallaðar ókeypis gegn framvísun klúbbkortsins.
FRÍÐINDI KLÚBBFÉLAGA:
Framkölfun á KODAK EXPRESS stöðunum
5. hver filma: 50% afsláttur.
10. hver filma: Einnig ein stór stækkun 28x35 cm
+ ein minni.
Eftir 20 filmur: Einnig 10% afsl. af römmum.
Eftir 30 filmur: Gullkort sem veitir 50% afsl. á 4. hverri
filmu og aukasett af myndum á hálfvirði.
KODAK EXPRESS klúbburinn mun gefa út frétt-abréf
nokkrum sinnum á ári þar sem m.a. verða kynnt ný
tilboð til félagsmanna. Klúbburinn mun jafnframt
standa fyrir fræðslustarfsemi af ýmsu tagi.