Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1992, Qupperneq 32
44
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1992.
Trimm
Á trimmsíðunni í dag bætast við sér-
stakar áætlanir fyrir þá sem ætla að
þreyta hálfmaraþon og skemmti-
skokk 23. ágúst nk. en áætlun fyrir
maraþonið er auðvitað enn í fullum
gangi og heldur áfram samhhða hin-
um tveimur. Sem fyrr er það Jakob
Bragi Hannesson sem sér um taka
saman þessar áætlanir fyrir DV en
hann er sjálfur kunnur hlaupari og
var ennfremur framkvæmdastjóri
Reykjavíkurmaraþonsins í fyrra. En
hér koma áætlanimar fyrir næstu
viku og þá fyrst fyrir maraþonið.
Mánudagur: Skokka í 1 klst.
Þriðjudagur. 5 km tímataka á mældri
vegalengd eða braut. (Hlaupa á fullu
álagi).
Miðvikudagur: Hlaupa rólega í 1-1 'A
klst.
Fimmtudagur: Skokka rólega í 20-30
mínútur.
Föstudagur: Hlaupa rólega í 1 Vi-2
klst.
Laugardagur: Rólegur hraðaleikur í
30-45 mínútur.
Sunnudagur: Hlaupa rólega í 1 'A-2
klst.
Hálfmaraþon
Áætlunin fyrir háifmaraþon miðar
einkum að því að þjóna hlaupurum
sem ætla að bæta sig og stefna á að
hlaupa vegalengdina á 1 klst. og 35-45
minútum. Þessi viðmiðun gengur út
frá því að viðkomandi hlaupi hvern
kílómetra á 4'/2-5 mínútum. Þriðju-
daga, miðvikudaga, fimmtudaga og
laugardaga á að hlaupa á jöfnum
hraða en rólega á sunnudögum.
Hvfid er á mánudögum og á föstudög-
um skal notast viö hráðaleik. Vegná
síðasttalda atriðisins fylgir hér upp-
rifjun á hraðaleik sem birtist í DV
30. apríl sl.
Fyrst hitarðu upp með því að
hlaupa rólega ákveðna vegalengd.
Síðan hleypurðu kannski hratt í 10
mínútur og síðan rólega í 5 mínútur
og svo hratt aftur í 5 mínútur o.s.frv.
Hraðaleik er hægt að útfæra á marg-
víslegan hátt. T.d. er hægt að hlaupa
rólega mifii þriggja ljósastaura og
síðan hratt mifii þriggja o.s.frv. Með
Hlaupaskórnir eru það mikilvægasta
í útbúnaðinum, segir Jakob Bragi
Hannesson.
þessu venst líkaminn á að hlaupa
með misjöfnu álagi og einnig eykur
hraðaleikurinn fjölbreytnina í
hlaupunum. Athugið að fyrsti dagur-
inn í áætluninni fyrir hálfmaraþon
og skemmtiskokk er sunnudagur en
ekki mánudagur eins og fyrir mara-
þonið.
Sunnudagur: Hlaupa 13 km rólega.
Mánudagur: Hvíldardagur.
Þriðjudagur: Hlaupa 10 km á jöfnum
hraða.
Miðvikudagur: Hlaupa 6 km á jöfnum
hraða.
Fimmtudagur: Hlaupa 13 km á jöfn-
Æfingaáætlanir fyrir þá sem ætla í hálfmaraþon og skemmtiskokk bætast nú við ráðleggingarnar handa maraþon-
hlaupurunum sem verið hafa í DV siðan í vetur.
um hraða.
Föstudagur: Hlaupa 8 km í formi
hraðaleiks.
Laugardagur: Hlaupa 6 km á jöfnum
hraða.
Skemmtiskokk
Samhliða ráðleggingum Jakobs
Braga um undirbúning fyrir hlaupin
mun hann huga stuttlega að ein-
hveijum þætti er varðar hlaupara í
hverri viku og fyrst fyrir valinu er
útbúnaður. Og lítum nánar á ráð-
leggingar hans áður en kemur að
æfingaáætlun fyrir skemmtiskokkið.
Útbúnaður er einfaldur, léttur galli
og hlaupaskór en það síðamefnda er
reyndar það mikfivægasta í útbúnað-
inum og menn skulu ætíð hlaupa á
góðum skóm. Þumalfingursreglan á
Islandi er sú að skómir eru betri eft-
ir því sem þeir eru dýrari. Skómir
eiga að laga sig vel að fætinum og
gefa góðan stöðugleika. Sé hlaupið á
hörðu undirlagi, t.d. malbiki, þarf
mjúka skó til að dempa viðnáms-
höggið en bestu hlaupaskórnir inni-
halda svokallaðan loftpúða sem
draga úr höggþunganum. Varast ber
að hlaupa í skóm með slitnum skó-
sóla því slíkt getur aflagað fótinn og
sömuleiðis er mikil hætta á meiðsl-
um. Skemmtiskokkarar, og auðvitað
aliir aðrir hlauparar, ættu því að
hafa þessi atriði í huga áður en farið
er af stað.
Sunnudagur: Hlaupa í 20 mínútur.
Mánudagur: Hvfidardagur.
Þriðjudagur: Hlaupa í 15 mínútur.
Miðvikudagur: Hvíldardagur.
Fimmtudagur: Hlaupa í 15 mínútur.
Föstudagur: Hvfidardagur.
Laugardagur: Hvfidardagur.
Þessi viðmiðun á tíma markast af
því að viðkomandi hlaupi einn kfió-
metra á 5-8 mínútum en það er ein-
mitt hraði byrjenda í skemmtiskokk-
inu og jafnframt ætti þessi sami út-
reikningur að gera fólki kleift að fara
vegalengdina, 7 km, á 35-56 minút-
um. DV vonast til að sem flestir taki
nú fram hlaupaskóna og fari aö und-
irbúa sig undir hlaupin sem verða
23. ágúst nk. Fyrirspurnum til Jak-
obs Braga má koma tfi umsjónar-
manns trimmsíðunnar í síma 632827
og jafnframt væri vel þegið ef hlaup-
arar hefðu samband og segðu frá því
hvemig undirbúningurinn gangi.
-GRS
Kvennahlaup ISÍ fer nú fram í þriðja sinn.
Víðavangshlaup ÍR:
DVóskareftir aö komast ísam-
band við Ijósmyndara sem voru
yið endamark Víðavangshlaups
ÍR á sumardaginn fyrsta. Þeir
sem vóru viö myndatöku á áður-
neíhdum staö eru vinsamlegast
beðnir aö hafa samband við um-
sjónarmann trimmsíðunnar í
síma 632827.
-GRS
17. júní
Oðins
17. júni hlaup Óðins i Vest-
mannaeyjum fer fram á miðviku-
daginn, lýðveldisdaginn, eins og
nafnið gefur til kynna. Frekari
upplýsingar um hlaupið veitir
Hólmfríður Júlíusdóttir í síma
98-12474. -GRS
Kvennahlaup
íþróttasam-
bands íslands
Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugar-
daginn 20. júní eins og greint var frá
á trimmsíðunni sl. laugardag. Safn-
ast verður saman við léttar upphit-
unaræfingar við Flataskóla í
Garðabæ en hlaupið sjálft hefst kl.
14. Hægt er að velja um þijár vega-
lengdir, 2, 5 eða 7 kflómetra, og má
hlaupa, skokka eða ganga áður-
nefndar vegalengdir. Markmiðið
með Kvennahlaupi ÍSÍ er að allar
konur, yngri og eldri, verði með í
hollri hreyfingu og útiveru en þetta
er í þriðja skiptiö sem hlaupið fer
fram. Að vepju er Garðabær vett-
vangur hlaupsins en að því loknu
verður boðið upp á veitingar og
skemmtiatriði.
Tilkynningu um þátttöku má senda
Kvennahlaupi ÍSÍ, íþróttamiðstöð-
inni í Garðabæ, eða í síma 91-657251.
Forskráning, greiðsla og afhending á
bolum er í Kringlusporti í Borgar-
kringlunni, Útilífi í Glæsibæ, Frí-
sporti á Laugavegi, Músík og sporti
í Hafnarfirði, Sportbúðinni Hamra-
borg í Kópavogi og H-búðinni í
Garðabæ. Þátttökugjald er kr. 350.
Kvennahláup ÍSI er þó ekki það
eina sem er að gerast í kvennaíþrótt-
um þessa dagana. Áðumefnt hlaup
er aðeins einn dagskrárhður í svo-
kallaðri „íþróttaviku kvenna" 16.-22.
júní sem umbótanefnd ÍSÍ stendur
fyrir en frekari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu ÍSI.
-GRS