Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1992, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 20. JÚLf 1992.
Fréttir
Einstaklega vel varðveittur landnámsbær finnst á Grænlandi:
Einn mikilvaegasti forn-
leif af undur síðari ára
- segir Guðmundur Ólafsson fornleifafræðingur sem tók þátt 1 uppgreftmum
,Ég tel þetta með mikilvægustu
fomleifafundum síðari ára á Norður-
löndum því varðveisluskilyrðin eru
svo góð. Ef vel tekst til er þetta
kannski eini möguleiki okkar til að
rannsaka nákvæmlega byggingar-
sögu svona landnámsbæjar á Græn-
landi og þróim hans,“ segir Guð-
mundur Ólafsson fomleifafræðingur
sem er nýkominn frá Grænlandi þar
sem hann tók þátt í uppgreftinum.
„Við fundum norrænan bæ sem
sennilega hefur verið í byggð frá þvi
um 1000 og fram yfir miðja 14. öld.
Þetta er sennilega einn stærsti bær
sem þama hefur fundist. Hann hefur
legið undir sandi og sífrera þannig
aö varðveisluskilyrðin vom alveg
einstök. Veggimir stóðu nánast
óhreyfðir og heilir. Það hafði kvikn-
að í bænum og hann síðan verið yfir-
gefinn og allt skilið eftir. Þakið hafði
brunnið og falliö niður á gólf en und-
ir því var eins og að koma inn í hús
þar sem menn höfðu hlaupið út í flýti
og skilið allt eftir.
Ég tala um bæ en þetta em gríðar-
lega mörg hús, húsaþyrping sem öll
hefur verið undir sama þaki. Það
hefur v'erið innangengt í öll hús,
bæði skepnuhús og vistarverur
manna, þánnig að menn þurftu aldr-
ei að fara út á vetuma. Við sáum á
bakkanum að það vom byggingar-
leifar á 100 metra kafla, 25-30 metra
breiðum. Þannig að þetta er gífurlega
stórt svæði sem þarf að rannsaka."
Þjóðminjasafn Grænlands stendur
fyrir greftinum en Guðmundi var
boðið sem gestafomleifafræðingi.
Staðurinn fannst fyxir 2 árum þegar
jökulá fór að brjóta af bakkanum.
Forkönnun var gerð í fyrra en gröft-
urinn hófst fyrir alvöm í sumar.
Guðmundur segir að þeim hafi ekki
tekist að grafa upp nema um 5% af
bænum, enda er bærinn undir 10.000
tonnum af sandi. Það þarf því að
koma vélum að, sem er mjög kostn-
aðarsamt, auk þess sem menn óttast
að jökuláin eyöileggi bæinn. Fram-
haldið ræðst af því hvort fjármagn
fæst en Guðmundur telur þetta vera
algert forgangsverkefni sem gæti
tekið um 5 ár. -pj
Hlaut 2. verölaun í Carl Flesch-fiðlukeppnmm:
Þettaernýög
gottmál
- segir Sigrún Eðvaldsdóttir, fær fjölda tilboða í kjölfarið
,Þetta er mjög gott mál því að þetta
er ofsalega þekkt keppni, sérstakiega
1 Evrópu. Það að komast svona ná-
lægt 1. verðlaununum er æðislega
gott og það verður haft samband við
mig í kjölfariö. Ég á að fá fullt af til-
boðum og það er heill listi af aðilum
sem þau tilboð eiga að koma frá
þannig að ég bara bíð núna,“ sagði
Sigrún Eðvaldsdóttir sem lenti í öðru
sæti í hinni virtu Carl Flesch-fiðlu-
keppni í London.
„Kvöldið sem ég spilaði í úrshtun-
um var ofsalega mikið af mikilvægu
fólki og það gekk alveg rosalega vel
þegar ég spilaöi, fullt af bravóum og
svona. Þetta er rnjög stór keppni og
ansi mikið sem kemur í kjölfar verð-
launanna."
Sigrún býr í Indianapolis í Banda-
ríkjunum þar sem hún einbeitir sér
eingöngU að fiðluleik eftir að hún
fékk Ustamannalaun frá íslandi.
„Ég er bara algjörlega að demba
mér í þetta allt saman, æfa mig, halda
tónleika og fara í keppnir. Ég er svo
ánægð með þetta því sem fiðluleikari
er ég aUtaf að verða sterkari og sterk-
ari.“
Keppnin er nefnd eftir Carl Flesch
sem var mjög frægur fiðluleikari og
kennari. Eftir að hann dó hófst þessi
keppni sem nú var haldin í 13. skipti. ~
-Pj
Sigrún Eðvaldsdóttir segist fá fullt af tilboðum eftir glæsilegan árangur I
þessari virtu fiðlukeppni.
Fljótshlíö:
Ökumaður bif-
hjóls slasaðist
Ungur maður slasaðist Ula þegar
bifhjól, sem hann ók, fór út af vegin-
um í Fljótshhð. Maðurinn var öku-
maður bifhjólsins en var með farþega
aftan á og var hvorugur með öryggis-
hjálm sem þykir mikið kæruleysi.
Farþeginn slapp með skrámur og
þykir mesta mfidi að ekki fór verr.
Ókumaðurinn var fluttur á Borgar-
spítaiann en meiðsh hans reyndust
ekkialvarleg. -ELA
Þjóðverji slas*
aðist á bifhjóli
Þjóðveiji slasaðist alvarlega þegar
hann missti stjóm á bifhjóh sínu á
FjaUabaksleið nálægt Landmanna-
laugum seinnipartinn á fóstudag.
Þjóðveijinn var á leiö í Sigöldu ásamt
nokkrum löndum sínum. Þyrla vam-
arhðsins sótti manninn og kom hon-
um undir læknishendur á Borgar-
spítalanum. Aðgerð á manninum
mun hafa tekist vel.
-ELA
I dag mælir Dagfari__________________
Perot pakkar saman
BiUjónamæringurinn Ross Perot
hefur tilkynnt aö hann verði ekki
í framboði í bandarísku forseta-
kosningunum. Reyndar var Perot
aldrei í framboði og haföi aldrei
lýst yfir neinu framboði. En samt
telur hann ástæðu til að lýsa því
yfir að hann sé hættur við framboð
og stafar það einkum af því að Pe-
rot hefur verið í framboði án þess
að vera í framboði.
Máhð var nefnUega það aö meöan
Perot var ekki í framboði var hann
vinsælasti frambjóðandinn. Hann
naut fylgis á viö Bush og Clinton
og sumar skoðanakannanir mældu
hann jafnvel í efsta sæti. Perot var
manna vinsælastur og eftirsóttast-
ur og hann setti upp sérstakan
símabanka til aö fólk gæti hringt
til hans og hvatt hann til framboðs.
Það var ekkert lát á hringingum
og Perot var undir miklu álagi,
hvort hann færi í framboð eða ekki.
Að minnsta kosti að eigin sögn,
enda er það lenska í Bandaríkjun-
um að þeir sem helst eru í fram-
boði eru sífeUt aö lýsa yfir því aö
þeir verði ekki í framboði og það
færir þeim jafnan mikið fylgi.
Ekki var annað að sjá og heyra
en biUjónamæringurinn frá Texas
heföi gaman af þessu kosninga-
brölti sínu. Hann var aðalmaður-
'inn í USA og sendi forsetanum og
þingmönnunum kaldar og óþvegn-
ar kveðjur og Perot var á kafi í
póUtíkinni og réð til sín kosninga-
stjóra og auglýsingasfjóra og sagð-
ist eiga nóga peninga til að standa
undir kostnaði við forsetaframboð.
Þó var hann aldrei í framboði og
það var ekki fyrr en hann lofaði
aö fara aö hugsa alvarlega um þaö
hvort hann gæfi kost á sér sem fylg-
ið fór aö dala. Perot var sem sagt
ágætur meðan hann var ekki í
framboði og það var örlagarík
skyssa hjá honum að taka sjálfan
sig alvarlega því þá fóru aðrir að
taka hann alvarlega.
MáUð var jafnvel komið á það
stig að Perot þurfti að fara að segja
Bandaríkj amönnum hvaða skoð-
anir hann hefði og hver væri
stefnuskráin og þá fór gamaniö að
káma. Perot hefur enga stefnuskrá
nema þá aö haim hafði þá stefhu
að hann mundi koma sér upp
stefnu þegar hann væri kominn í
framboð. Það kom sem sé í ljós í
Bandaríkjunum að kjósendur
þyrpast að frambjóðendum sem
ekki eru í framboði og ekki hafa
neina stefiiu og slíkir menn ná jafn-
vel meira fylgi heldur en sjálfur
forsetinn. En þegar þeir þurfa að
taka ákvörðun um að fara í fram-
boð og neyðast til að hafa skoðanir
og stefnu þá viU enginn kjósa þá.
Þetta verða frambjóðendur fram-
tíðarinnar aö hafa í huga þegar
þeir hyggja á forsetaframboð í
Bandaríkjunum.
Önnur aöalástæðan fyrir því að
Perot dró framboð sitt til baka var,
að hans eigin sögn, sú að demó-
kratar hafa komiö sér saman og
Perot hefur fundið það út áður en
kosið er að hann geti ekki unnið
kosningamar. Skítt veri með mál-
staöinn og skítt veri með hlutverk-
ið sem Perot hefur taUð sig hafa
fram að þessu. Ef hann getur ekki
unnið fyrirfram er ekkert gaman
að þessu lengur. Þá tekur því ekki
að fara í kosningar. Perot vildi fara
í kosningar gegn því að vera ömgg-
ur um aö sigra. En ef hann er ekki
lengur öruggur og eiginlega bara
ömggur með að tapa þá hafa kosn-
ingar ekkert upp á sig. _
Bæði Bush og CUnton vom him-
inlifandi þegar þaö fréttist að Perot
færi ekki i framboð. Þeir hringdu
báðir til hans umsvifalaust og
gerðu hosur sínar grænar og nú er
Perot aUt í einu orðinn þeirra besti
lagsmaður þótt hann hafi verið
þeirra mesti fjandmaður meðan
hann var í framboði með því að
vera ekki í framboði. Nú er Perot
sem sagt ekki lengur í framboði
eftir að hafa ekki verið í framboði
og þá þarf auðvitaö að ná í öll at-
kvæðin sem Perot segist eiga trygg
og eitthvað verður að gera við þessi
atkvæði og nú verður Perot aftur
aðalmaðurinn þegar hann fer að
úthluta atkvæðunum sínum til
Bush eða Clintons, eftir því hvor
þeirra býður betur.
Nú mun Perot uppgötva það að
hann verður hálfu vinsælh fyrir
að fara ekki í framboð heldur en
að hafa ekki verið í framboði áður
en hann afturkallaði framboðið.
Það getur meira segja farið svo að
Perot verði aftur fylgismeiri en
hinir tveir frambjóðendumir en
það er því aðeins með því skUyrði
aö hann láti ekki nokkum mann
vita að hann verði í framboði.
Dagfari