Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1992, Page 8
8
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1992.
Utlönd
John Smith, hinn nýi leíðtogi
breska Verkamannatlokksins
ásamt konu sinni, Elísabetu.
Simamynd Reuter
Leiðtogaskípti í
breska Verka-
mannaflokknum
Það er erfitt verkefni framund-
an hjá John Smith sem kosinn
var nýr leiðtogi breska Verka-
mannaflokksins með 91 prósenti
atkvæða á flokksþingi á laugar-
daginn. Flokkurinn hefur tapað
þingkosningum fjórum sinnum í
röð fyrir breska íhaldsflokknum
og það er því á brattann að sækja.
Smith, sem kemur frá Skot-
landi, er 53 ára lögmaöur. Hann
hefur velkst í þrettán ár í bresk-
um stjórnmálum og er talinn hóg-
vær vinstri maður með svipaðar
akoöanir og fráfarandi leiðtogi
flokksins, Neil Kinnock.
I umfjöllun breska æsifrétta-
blaðsins Sun um Smith um helg-
ina segir: „Hann er feitur, hann
er 53 ára, hann hefur fengiö
hjartaáfall og hann er að taka viö
streitufullu starfi." Smith vill
sem minnst tala um hjartaáfall
sitt, segist vera að fullu búinn að
ná sér og vera við hestaheilsu.
„Víð byrjuöum kosningabarátt-
una í dag,“ sagði Smith á laugar-
daginn en hann þarf að bíða í
fjögur, fimm ár þar til kosið verð-
ur á ný í Bretlandi.
21deyreftirað
hafaborðaðeit-
ursveppi
Heilbrigðisráðuneyti Úkrainu
skýröi frá því um helgina að 21
maöur, þar af 10 börn, hafi látíð
lífið síðustu tvær vjkur eftir að
hafa neytt eitraðra sveppa.
í yfirlýsingu frá ráðuneytinu,
sem lesin var í sjónvarpinu, er
fólk varaö við því að boröa eítr-
aða sveppi. Að minnsta kosti 300
manns iiggja á sjúkrahúsi með
matareitrun. Sveppatínsla er
mikið stunduð í fyrrum lýðveld-
um Sovétríkjanna en talið er aö
hundruð manna deyi árlega eftir
að hafa tínt og borðaö eitraðar
sveppategundir.
Thatchertil
starfa sem ráð-
gjafi tóbaks-
framleiðanda?
Margrét Thatcher, fyrrum for-
sætisráðherra Bretlands, á nú í
viðræðum við bandaríska iyrir-
tækjarisann í tóbaksframleiöslu,
Philip Morris, sem hefur boðiö
henni starf sem ráögjafi í um-
hverfismálum.
Blaöafulltrúi Thatcher sagði að
viöræðumar hefðu staðið yfir í
ár en ekki hefitr enn náðst sam-
komulag um starfssamning.
Stjómmálamenn og heilbrigð-
isfulltrúar hafa lýst þeim ótta sin-
um að ef af ráðningu Thatcher
verður yrði það fjöður í hatt tób-
aksframleiðenda.
Reuter
Bardagamlr í Bosníu-Hersegóvínu:
Umsamið vopnahlé
þverbrotið enn og aftur
Hersveitir Serba réðust á Sarajevo,
höfuðborg Bosníu, í nótt með mikilii
stórskotaárás en einnig réðust þeir á
tvo bæi nálægt borginni.
Fólk, sem býr á svæðinu, hringdi í
útvarpsstöð í Sarajevo til aö biðja um
hjálp þegar sprengjum úr sprengju-
vörpum og fallbyssuskot dundu á
miðborg Sarajevo og útborg hennar,
Dobrinja, sem hefur orðið fyrir sí-
endurteknum árásum.
íslamar, Króatar og Serbar höföu
gert með sér vopnahlé sem taka átti
gildi síðdegis í gær en það var að
engu haft strax í upphafi því í alla
nótt geisuöu harðir bardagar í
íslömsku bæjunum Visoko og Breza,
norðvestur af Sarajevo.
Að sögn júgóslavnesku fréttastof-
unnar Tanjug lést einn serbneskur
hermaður og annar særðist í árás
íslama á þorpið Okgrulica, nálægt
flijas. Fimm óbreyttir borgarar særð-
ist en átök þessi áttu sér stað í gær-
kveldi eftir að vopnahléið átti að
hafa gengið í gildi.
Milan Panic, forsætisráöherra
Júgóslavíu, flaug til Sarajevo í gær
til að ræða við forseta Bosníu, Ahja
Izetbegovic. Bauðst Panic til að hefja
þegar friðarviðræður. Þrátt fyrir að
vopnahléið heíði verið brotið sagði
Panic aö sér hefði tekist aö ná sam-
komulagi um að stórskotaliðstæki í
og í kringum borgina Gorazde yrðu
fjarlægð.
„Stríði Serba í Bosníu er lokið,“
sagði Panic. „Þaö mun ríkja friöur í
Gorazde á morgun og öll þungavopn
allra aðila verða flutt til Júgóslavíu
á svæði Sameinuðu þjóðanna." Izet-
begovic sagði eftir fundinn að svo
Milan Panic, forsætisráðhei'ra Júgóslavíu, flaug til Sarajevo í gær til að ræða við forseta Bosniu. Hann sést hér
taka utan um einn friðargæsluliöa Sameinuðu þjóðanna. Símamynd Reuter
virtist sem Panic væri illa upplýstur
um hvað væri aö gerast í Bosníu og
hann stórefaðist um að honum tæk-
ist að efna loforð sín.
Eftir fundinn í gær flaug Panic til
New York til að ræða við fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna,
Boutros Boutros-Ghali.
Reuter
Yfirmaður hermála í Svíþjóð:
Vill varnarbanda-
lag Norðurlanda
Yfirmaður sænska hersins hefur
lýst yfir þeirri skoðun sinni að Norð-
urlöndin eigi að stofna með sér sam-
eiginlegt varnarbandalag í stað þess
að ganga í Vestur-Evrópusambandið
sem er vamararmur Evrópubanda-
lagsins.
Utanríkisráðherrar Norðurland-
anna hafa tekið heldur fálega í uppá-
stungu Bengts Gustafsson sem kom
með þessa tillögu í viðtali við sænska
dagblaðið Sydsvenska Dagbladet.
„Sviþjóð á að halda sig fyrir utan
áætlanir Evrópubandalagsins um
sameiginlega utanríkis- og varnar-
pólitík. Við vitum ekki hvernig sam-
skiptum á milh valdakjama heims-
ins kemur til með aö verða háttað í
framtíðinni. Því ætti Svíþjóð að hafa
aðra valmöguleika opna,“ sagði Gu-
stafsson sem er yfirmaður sænskra
hermála.
Gustafsson sagði að Svíþjóð ætti
að hcdda hlutleysi sínu og bætti við
aö eingöngu Svíar myndu verja Sví-
þjóð. Hann sagði að Svíþjóð væri á
milli þriggja valdakjama, Rússlands
í austri, EB í suðri og Bandaríkjanna
í vestri.
„Ég sé fyrir mér aö Norðurlöndin
gangi til liðs við Evrópubandalagið á
efnahagslega sviðinu en haldi sig fyr-
ir utan það vamarlega séð. Noröur-
löndin ættu að stofna meö sér eigið
varnarbandalag og halda samskipta-
möguleikum opnum við alla þrjá
valdakjamana.
Carl Bildt, forsætisráðherra Sví-
þjóöar, vildi í gær ekki tjá sig um
málið fyrr en hann hefði rætt við
Gustafsson.
Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis-
ráðherra Dana, sagði að hugmyndin
um vamarbandalag Noröurland-
anna væri gömul lumma sem hefði
verið léttvæg fundin á sínum tíma
og því alls ekki áhugaverð nú.
Elisabeth Rehns, utanríkisráð-
herra Finnlands, segir hugmyndir
Gustafssons koma sér á óvart en þær
verðskuldi umræðu.
Thorvald Stoltenberg, utanríkis-
ráðherra Noregs, telur að aðstæður
í Noregi, Danmörku og íslandi séu
aðrar en í Svíþjóö þar sem þessi lönd
hafi valið aö ganga í Atlantshafs-
bandalagið, Nató.
TT, NTB, Ritzau, FNB og Reuter
Maf ían drepur dómara
Sprengja, sem sprakk í Palermo á
Sikiley í gær, varð þekktum dómara
og fimm lífvörðum hans að bana.
Dómarinn, Paolo Borsellino, var
þekktur fyrir baráttu sína gegn
glæpastarfsemi mafiunnar.
Þetta er í annað skipti á skömmum
tíma sem dómari, sem berst gegn
mafíunni, er drepinn í sprengjutil-
ræði. Sprengjan, sem varð Borsellino
að bana, var mjög öflug og tætti í
sundur nálæg hús. Sprengjunni var
komið fyrir í bíl.
Giuliano Amato, forsætisráðherra
Ítalíu, sagði í gær að barátta ríkisins
gegn mafíunni myndi halda áfram
og hvatti fólk til að beijast gegn þeim
sem væru „í stríði gegn ríkinu".
Borsellino var góður vinur Falcone
dómara sem mafían drap í maí síð-
astliðnum og haföi heitiö að taka til
starfa í baráttunni gegn mafíunni
þar sem Falcone hætti.
Reuter
Skip sekkur
eftir árekstur
undan Noregs-
ströndum
- sex manns enn saknað
Sex manns af norsku vöruflutn-
ingaskipi er saknað eftir aö skipið
rakst á danskt fiskiskip undan
suðurodda Noregs í gærkveldi.
Aö sögn björgunarmanna er
norska skipstjórans og fimm
pólskraskipverja enn saknaö.
Kamilla, sem var 1200 tonna
norskt vöruílutningaskip, sökk
samstundis eftir áreksturinn við
danska fiskiskipið Isafold, Einum
pólskum skipverja var bjargað
um borð í Isafold.
Sex skip og þyrla leita nú á
Skagerrak aö mönnunum sem
saknað er. Áreksturinn varð um
30 sjómílum fyrir sunnan Lindes-
nes, syðsta odda Noregs en Kara-
illa var að flytja gijót frá Noregi
tfi Þýskalands. Ekki er ennþá vit-
að hvað olli árekstrinum en gott
veður var á slysstað þegar óhapp-
ið varö.
Havets hreins-
Vaclav Havel, forseti Tékkósló-
vakíu, sagði í gær aö afsögn sin
myndi hreinsa loftið i landinu
sem nú mun senn liðast í sundur.
„Ég held að ég hafi gert eitthvað
til að bæta ástandið, til aö hreinsa
Ioftið,“ sagöi Havel í síðustu út-
varpsræðu sinni sem forseti áður
en hann lætur af embætti.
NTB og Reutcr