Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1992, Side 23
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1992.
35
Fréttir
Eitt þeirra húsa sem eru í byggingu á Hólmavik
DV-mynd Guðfinnur
Mikið byggt
á Hólmavík
Guðfinnur Fiuiibogason, DV, Hólmavílc
Mikil gróska er í íbúöarhúsabygg-
ingum á Hólmavík um þessar mund-
ir. Nýlokið er byggingu húss með 2
kaupleiguíbúöum á vegum sveitarfé-
lagsins og hafin bygging sams konar
húss sem tilbúið á að vera til afhend-
ingar í febrúar nk. samkvæmt samn-
ingi við verktaka. Þeir eru Ásmund-
ur Vermundsson og Benedikt Gríms-
son byggingameistarar á Hólmavík.
íbúðirnar eru 87,8 m2 og 61,5 m2
og er byggingarkostnaður á þeim
fullbúnum um 100 þúsund krónur á
fermetrann. Fyrir skömmu voru
auglýstar 2 kaupleiguíbúðir, önnur
þeirra nýju og hin í eldra raðhúsi
sem losnaði. Sjö umsóknir bárust og
segir það nokkuð um þörfma fyrir
húsnæði. Þá eru í byggingu nokkrar
íbúðir á vegum einstaklinga og lík-
lega verður byrjuð á 4 í sumar. Auk
þessa eru í byggingu eða nýlokið við
3 íbúðarhús í nágrenni Hólmavíkur.
Á 3. hæ& KRINGLUNNAR meb mikió úrval af:
geislaplötum, hljómplötum, kassettum,
myrtdböndum, hirslum, bolum,
nótnabókum o.fl.
Stórkostleg verðlækkun !
Dágóðar
aukatekjur
pilta á
Djúpuvík
Regína Thorarensen, DV, Gjögri;
Hér var besta veður og hlýtt um
síðustu helgi og framan af vikunni
en um leið og vindur snýst í norður
verður golan ísköld. Þannig var í
morgun, 16. júlí. ísinn ekki langt frá
landi og mjög kalt á kvöldin.
Amar Logi Ásbjörnsson, ungi pilt-
urinn á Djúpuvík, og vinur hans úr
Reykjavík gerðu það gott á gráslepp-
unni í vor og sumar. Fengu samtals
40 tunnur af grásleppuhrognum og
þegar kostnaður hefur verið dreginn
frá fá þeir 36 þúsund krónur fyrir
tunnuna. Dágóðar aukatekjur það,
ein milljón og 440 þúsund krónur.
Ámeshreppur:
Enn fækkar
mannfólkinu
Regína Thorarensen, DV, Gjögii:
Að sögn séra Jóns ísleifssonar
sóknarprests voru íbúar í Ámes-
hreppi hér á Ströndum 103 hinn 1.
desember 1991 svo enn fækkar fólki
mikið í hreppnum. 1. desember 1990
voru íbúamir 120.
Séra Jón sagði að þetta væri góður
staður yfir sumartímann en veturnir
væra erfiðir og lengi að hða. Oft
veöravíti þá.
ÁSÓLHÚSGÖGNUM
STÓLAR -B0RÐ -BEKKIR-SESSURo.fi.
flLLT flfl 40'/. flFSLflTTUR!
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJASLOÐ 7 • REYKJAVIK • S. 91 - 621780