Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1992, Blaðsíða 24
36
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1992.
Fréttir
Dýrafána hafsbotnsins kortlögð
Heimir Kristínssan, DV, DaJvílc
Norska rannsóknaskipiö Hákon
Mosby kom til Dalvíkur lO.júií, tók
þar fréttamenn og umhverfisráð-
herra, Eið Guðnason. Siglt var út á
Eyjafjörð og fréttamönnum kynntur
10 daga leiðangur sem skipið var að
koma úr fyrir Norðurlandi. Nokkur
sýni voru tekin í Eyjafirði meðan á
kynnisferðinni stóð.
Leiðangminn og úrvinnsla er sam-
starfsverkefni margra aðila; Um-
hverfisráðuneytis, Hafrannsókna-
stofnunar, Háskóla íslands og há-
skólanna í Bergen, Kaupmannahöfn,
Gautaborg, Þrándheimi, Kiel og fleiri
aðila. Jón Gunnar Ottósson, lífræð-
ingur og deildarstjóri í umhverfis-
ráðuneytinu, er formaður verkefna-
stjómar en Jörundur Svavarsson
sagði frá ferðinni. 13 vísindamenn,
innlendir og erlendir, vom um borð.
Tilgangurinn með leiðangrinum er
að kortleggja dýrafánu hafsbotnsins
á svæðinu frá Langanesi vestur und-
ir Skaga, allt frá 30 m dýpi til 1000 m
dýpis norðan við Kolbeinsey. Fiskur
er ekki í þessari rannsókn. Tekin
verða sýni í 4 ár sem 1-2 skip munu
annast í eina til tvær vikur á ári og
var þetta fyrsta ferðin. Norðmenn
leggja til skipið nú en margir aðilar
standa straum af kostnaðinum. Síð-
an er gert ráð fyrir að vísindamenn
verði nokkur ár að vinna úr gögnun-
um og um sex tugir þeirra munu
aimast nánari útfærslu verkefnisins.
í þessum fyrsta leiðangri vom tek-
in sýni af botni og við hann á 52 stöð-
um. Mælingar vora gerðar á sjávar-
seltu og hitastigi frá yfirborði til
botns. Sem dæmi má nefna að á um
1000 m dýpi var algengt hitastig -0,4
gráður C en kaldast -1,5 gráða. Af-
raksturinn var rúmlega tonn af
gögnum sem verða unnin nánar af
sérfræðingum við nokkra háskóla og
stofnanir. í máh Jörundar kom fram
að botnlífið austan Kolbeinseyjar-
hryggins var mun auðugra en vestan
viö hann og er ekki vitað um ástæður
þess. Þá kom í ljós mikil tegunda-
auðgi á grunnsævi, t.d. á Fljóta-
granni og Grímseyjarsundi.
í máh Eiðs Guönasonar og vísinda-
mannanna kom fram að þetta væri
með því merkilegra sem verið væri
að gera í umhverfismálum nú. Hér
væri verið að skoða undirstöðuna að
atvinnulífi þjóðarinnar, fiskveið-
anna, og mikilvægt væri að þekkja
þá undirstöðu vel. Fyrir um 100 áram
munu Danir hafa farið leiðangur á
þetta svæði í svipuðum tilgangi en
vitanlega var allur tækjabúnaður þá
allt annar. Síðan hefur þessum botn-
rannsóknum ekki verið sinnt nema
á litlum svæðum á grunnsævi á fáum
stöðum viö ströndina.
Hólmavik:
Sextíu settust
á skólabekk
Guðfinnux Fiimbogason, DV, Hólmavík:
Slysavamaskóh sjómanna var með
námskeið á Hólmavík í síðustu viku
og er það í fyrsta sinn sem shkt nám-
skeið er haldið hér. Þátttaka var
mjög góð því nær sextíu manns, aðal-
lega frá Hólmavík og Drangsnesi en
einnig úr sveitunum, sóttu það.
Sjómenn og aörir, sem nutu þar
leiðbeininga og kennslu, vora á einu
máh um hagnýtt ghdi skólans enda
hefur hann fyrir löngu sannað ágæti
sitt og vex stöðugt af tiltrú og trausti
hjá sjómönnum.
Fimmtíu ára aldursmunur var á
elsta og yngsta þátttakandanum. Sá
elsti 63 ára en sá yngsti 13 ára. Þá
vora tvær konur í hópnum. Fyrir þá
sem sóttu 30 tonna réttindanámskeið
sl. vetur á Hólmavík og Drangsnesi
var þetta lokaverkefni þeirrar
fræðslu. 30 sóttu það námskeið.
Síöasta daginn mætti þyrla gæsi-
unnar TF Sif og sýndi björgunaræf-
ingar og var greinilegt leikmannin-
um að þar era viö stjómvöl hreinir
snillingar. Vakti sýningaratriði
þeirra mikla hrifningu viðstaddra.
Þeir voru vel búnir strákamlr við björgunaræfingarnar.
DV-mynd Guðfinnur
Grasleppuvertlöin:
Súbesta
Þórhallur Ásmundaaan, DV, NorðurL vestra:
„Þetta var ákaflega góð og þægheg
vertíð. Ég held að alhr hér á Skaga
hafi aflað vel. Fiskiríiö jafnt og gott
og tíðarfarið ákaflega gott miðað við
það sem oft er,“ segir Þorleifur Ing-
ólfsson á Þorbjargarstöðum í Skefils-
staðahreppi á Skaga.
Þeir á Þorbjargarstöðum fengu um
ímörgár
100 tunnrn- og Skefilsstaðabændur
gott betur á grásleppuvertíðinni sem
er nýlokið og var sú besta í mörg ár.
Þorleifur segir að menn hefðu yfir-
leitt fengið 50-60 tunnur en ástæðan
fyrir því að þeir og Skefilsstaðamenn
öfluðu mest var sú að þeir vora þrír
á og því verið með fleiri net.
Verðið fyrir gráslepputunnuna er
um 40 þúsund krónur.
Eiður ráðherra, standandi fyrir miðju, fylgist með afrakstri úr Eyjafirði.
DV-mynd Heimir
Grundargörður:
Aukinn kvóti með nýkeyptum togara
Sigurður Kr. Sgurðssan, DV, Gnmdarfirði:
Togarinn Klakkur, sem Hraðfrysti-
hús Grandarfjarðar hefur keypt af
Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum,
kom í fyrsta sinn til heimahafnar á
sunnudag, 12. júh. Togarinn var
smíðaður í Póhandi og afhentur í fe-
brúar 1977. Hann er 488 smálestir
brúttó, heldur Klakks-nafninu og
hefur fengið einkennisstafma SH 510.
Skipið er selt með öhum veiöiheim-
ildum á 192,6 milljónir króna en á
móti hefur HG látið hluta af kvóta
Krossness þannig að 250 þorskígild-
istonn fylgja skipinu til Grundar-
íjarðar og bætast við þær aflaheim-
Udir sem fyrir vora. Skipstjóri á
Klakki er Kristján Guðmundsson.
Fjölmennl var á bryggjunni f Grundarfirði við komu Klakks.
DV-mynd Sigurður