Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1992, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1992.
39
Breytingar meó tilkomu EES-samninganna:
Réttindi neyt-
enda aukast
Svanurinn er samnorrænt merfci fyrir umhverfisvænar vörur sem lúta ströng-
um skilyröum en merkið til hægri er þaö sem stefnt er aö fyrir löndin í EB
og EFTA.
„Þaö sem er ef til vill stærsta málið
við EES-samningana er að þegar viö
erum að fara inn á þetta svasði þá
breytist eðli allra samninga þannig
aö Island fer úr þessari skandinav-
ísku vemd yfir í það sem kalla má
upplýsingar. Evrópubandalagið
byggir miklu meira á upplýsingum,
það er fjölbreytni vörunnar og upp-
lýsingar um hana til neytandans.
Ekki að tryggja hana fyrirfram, neyt-
andinn þarf, í gegnum upplýsingar,
miklu fremur að átta sig á því hvort
hluturinn sé góður fyrir hann eða
ekki,“ sagði Þorlákur Helgason,
deildarsérfræðingur í menntamála-
ráðuneytinu, í samtali við DV.
„Sem aðilar í EES erum við í raun
að fara frá vernduðu svæði, sem ein-
kennir skandinavísku löggjöfina, yf-
ir í upplýsinguna. Um leið kemur
annað atriði til, sem Evrópubanda-
lagið leggur mikið upp úr, en það er
neytendafræðsla í skólum og neyt-
endakennsla. Þar verðum við að taka
okkur tak ef við ætlum inn í þetta
samstarf.
Réttindi neytenda ættu að aukast
með tilkomu EES-samninganna. Það
verða miklu harðari ákvæði varð-
andi mengun og annað sem við þurf-
um að lúta. Það er kostur að lönd
innan EES mega beita harðari
ákvæðum en kveður á um í samn-
ingnum, ef þau vilja svo við hafa. Það
eru fyrst og fremst lágmarksákvæði
sem koma inn í neytendamálum og
hægt að ganga lengra.“
Þrengt að einokunaraðilum
„Þó að neytendamálefnin séu jað-
armálefni hjá EES er líklegt að það
gangi efdr aö vöruverð lækki í mörg-
um tilfellum ef EES-samningurinn
gengur í gildi. Ómögulegt er að segja
til um hvaö sú lækkun geti orðið
mikil að jafnaði en ætti að mestu aö
gæta á matvöru. Það verða ýmsar
heimatilbúnar hindranir sem detta
út, sem við veröum kannski vör við
fyrr heldur en almennar verðlækk-
anir. Þær hindranir eru til dæmis
fólgnar í því aö hér gildi helminga-
skipti upp á íslenska vöru, þjónustu
og markaði
Við erum með einokunaraðila á
mörginn sviöum, eins og til dæmis
oliufélögin. Það eru mörg tilvikin hér
á íslandi þar sem fáeinir aðilar skipta
með sér markaðnum. Það er klárt
að það gengur á skjön við þá samn-
inga sem gilda innan EES. Það getur
verið að samtök neytenda geti krafist
að einokun verði aflétt eða að
Neytendur
minnsta kosti slakað á klónni.
Eins má nefna að í Danmörku eru
ýmsir milliliðir, aðallega fyrir mat-
vörukaup, sem hafa mataö krókinn
á íslandi. Einhveijir aðilar, eins og
til dæmis Jóhannes í Bónusi, eru
farnir að stunda sín innkaup fram
hjá þeim, en það er alveg klárt mál
aö með tilkomu EES-samninganna
getum við kært slikt athæfi. Það skal
þó tekið fram að almennt eru tollar
á íslandi orðnir töluvert lægri en
meðaltalið í Evrópú.
Hinu verður einnig athyglisvert aö
fylgjast með, en það er sú breyting
sem verður á einokunartaxta á út-
seldri vinnu. Það á til dæmis viö um
taxta lögfræðinga, tannlækna og
verkfiæðinga sem verða ekki í sömu
einokunaraðstöðunni,“ sagöi Þorlák-
ur.
Merki EES fyrir umhverfis-
væna vöru
„Hjá EB er í undirbúningi um-
hverfisvænt merki og sama umfiöll-
un er í gangi hjá EFTA. íslendingar
eru aöilar að umhverfisvæna merk-
inu á Norðurlöndum, svaninum.
Strangar kröfur eru gerðar um vör-
una og framleiðsluna á henni til þess
að fá gæðastimpil svansins. Þeir hjá
EB og EFTA vita af því og ætla að
taka tillit til þess viö gerð þess merk-
is sem verið er að vinna að,“ sagði
Þórunn Erhardsdóttir, deildarstjóri
í viðskiptaráðuneytinu.
„Hjá öðrum löndum eru ýmis önn-
ur merki í gangi, til dæmis blái eng-
illinn í Þýskalandi. í framleiðslu efiia
hér á landi myndi það til dæmis vera
notað við málningarframleiðslu,
framleiðslu á þvottaefiium ýmiss
konar, en við erum náttúrlega með
frekar takmarkaða framleiðslu hér á
landi,“ sagði Þórunn.
Mikil sala á regnfatnaði
Fyrri hluti sumars hefur verið
vætusamur á suðvesturhomi lands-
ins og lítið sést til sólar þar til í síð-
ustu viku. íbúar á höfuðborgarsvæð-
inu hafa þurft aö búa við vætu á
meðan aðrir landshlutar hafa fengið
ríkulegar úthlutað af sólargeislum.
Mikið hefur selst af regnfatnaði
ýmiss konar á suðvesturhomi lands-
ins og er hann uppseldur á mörgum
stöðum.
„Regnfatnaður seldist upp hjá okk-
ur á örskömmum tíma. Við vorum
með einnota regnslár til sölu sem
vom ódýrar og þær seldust upp en
einnig hefur verið mikil sala í betri
regnfatnaði hjá okkur.
Við pöntum að jafnaði regnfót
tvisvar á sumri og gerðum ráð fyrir
aö pöntunin dygöi fram ágúst. Birgð-
imar seldust hins vegar upp á innan
við einum fiórða þess tíma sem við
bjuggumst viö að hann myndi duga.
Regnslámar dugöu ekki nema fram
í miðjan júní,“ sagði Tryggvi Þor-
steinsson afgreiðslumaður hjá Byko,
í samtali við DV.
Sömu sögu var að segja frá Mikla-
garði, þar vom regnslámar uppseld-
ar vegna mikillar eftirspumar.
Einnota regnslár fást víða
Margir vifia eiga regngalla sem á
að duga til margra ára en sumum
finnst þægilegt að geta brugðið sér
Sumarið hefur veríð vætusamt á
suövesturhorni landsins þó eitthvað
hafi glaðnað til síðustu daga. Þegar
úrhellísrigningu gerir er eins gott
aö klæðast vatnsheldum fatnaöi.
inn í næstu búð í regnskúr og keypt
sér einnota regnhlíf eða slá sem jafh-
vel er hægt að henda að lokinni notk-
un. DV kannaöi hvar hægt er að
kaupa regnfót og hvað neytandinn
þarf aö leggja út mikið fé fyrir flíkina. \
Það kom á óvart á hve mörgum
stöðum einnota regnslár fást. Flestir
stórmarkaöimir sefia regnslár af
einfaldri gerð. Hagkaup selur þær á
889 krónur, Mikligarður á 995 og
Fjarðarkaup á 825. Regnslámar vora
uppseldar Ifiá Miklagarði en von á
þeim aftur fijótlega.
Einnota regnslár fást einnig i Útilíf
á 940 krónur en bamastærö var á 400
krónur. Byko og Húsasmiðjan era
með regnslár til sölu sem era einfald-
ari að gerð, úr þyxmra efiú, sem duga
ekki nema í eitt eöa örfá skipti.
Regnsláin hjá Byko kostar 164 en hún
er uppseld í bili. Húsasmiðjan selur
regnslá á 322 krónur stykkið.
Hægt er að fá vandaðri regnfot af
mörgum tegundum, vatnsþétt fot
sem nota má við vinnu eins og til
dæmis garðyrkju. Hagkaup selur til
dæmis regngalla á 4990 krónur (bux-
ur og jakki) og Byko galla á 6.000
krónur. Verslunin Ellingsen selur
galla af tveimur tegundum, sá ódýr-
ari kostar 6.568 en sá dýrari er á 12
þúsund krónur.
Fyrirtækið Max regnfatnaður er
með galla á 7.789 og Húsasmiðjan er
með nokkrar gerðir af regngöllum
sem kosta frá 3.545 og upp í 8 þúsund
krónur. Flestallar íþróttabúöir era
með eins konar regngalla eða vatns-
helda galla. Verðiö er nánast eins
mismunandi og fiöldi verslana.
GRAM K-245 GRAM K-285 GRAM K-395
GRAM KF-195
GRAM KF-233
GRAM KF-264
GRAM KF-250
GRAM KF-355
GRAM KF-344
STADREYND!
á stórlœkkuðu verði
nú aðeins 51.600 kr.
nú aðeins 53.750 kr.
nú aöeins 73.950 kr.
47.990 49.990 68.770
(staðgreltt) (staögreitt) (staðgreltt)
nú aöeins 57.950 kr.
nú aðeins 73.500 kr.
nú aöeins 79.550 kr.
/FO nix
HÁTÚNI 6A SÍMI (91) 24420
_s_t___________
Máliö er heitt því með sérstökum samningi við GRAM
verksmiðjurnar bjóðum við nú allar gerðir dönsku
GRAM kæliskápanna á stórlækkuðu verði. GRAM
býður 16 gerðir kæliskápa með eða án frystis,
til innbyggingar eða frístæða, til dæmis neðangreinda:
244 Itr. kælir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 126.5 cm
274 Itr. kælir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 126.5 - 135,0 cm (stillanleg)
379 Itr. kælir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 166.5 - 175,0 cm (stillanleg)
172 Itr. kælir + 62 Itr. frystir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 126.5 cm -135,0 (stillanleg)
274 Itr. kælir + 62 Itr. frystir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 166.5 - 175,0 cm (stillanleg)
194 Itr. kælir + 146 Itr. frystir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 166.5 - 175,0 cm (stillanleg)
53.890
68.360
73.980
(staðgreltt) (staðgreltt) (staðgreltt)
Góðir greiðsluskilmálar: 7% staðgreiðsluafsláttur og 3% að auki
séu keypt 2 eða fleiri stór tæki samtfmis (magnafsláttur). EURO og
VISA raðgreiðslur til allt að 18 mánaða, án útborgunar
nú aöeins 44.950 kr.
41.800
(staðgreitt)
204 Itr. kælir + -29 Itr. frystir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 126.5
nú aðeins 52.650 kr.
48.960
(staðgr«itt)
199 Itr. kœlir + 64 Itr. frystir'
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 146.5 cm
nú aöeins 58.950 kr.
54.820
(staðgreltt)
166 Itr. kælir + 31 Itr. frystir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 106.5 cm
I