Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1992, Page 39
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1992.
51
ÐV Fjölmiðlar
Ríkissjónvaipiö -
besti vinur bíóanna
Það or hreint með ólíkindum
hvað starfsmenn ríkissjónvarps-
ins eru lagnir við að setja saman
léiðinlega dagskrá, Ég held raun- |
ar að þeir einu sem geta glaöst
yfir dagskránni séu bíóeigendur
og forsvarsmenn Stöðvar 2.
Laugardagskvöld eru án efa
þau kvöld sem sjónvarpsmönn-
um tekst best upp í leiðindunum
og það síðasta var engin undan-
tokning. Eftir fréttaííma, sem
engu bætti við fréttir Stöðvar 2,
kom líflegasta sjónvarpsefni
Iandsins; Lottóið, Því næst skutu
snillingarnir inn þættinum Blóm
dagsins sem er áreiðanlega fersk-
asta hugmyndin sem fram hefur
komið í íslensku sjónvarpi frá
1966. Að þessu sinni var loðvíðir-
inn tekinn fyrir en hann er helst
merkilegur fyrir það að sauð-
kindinni fmnst hann Ijúffengur
og er því sjaldgæfur. Þátturinn
Fólkið í landinu var næstur. Að
þessu sinni var hetja dagsins
bókasafhsfræðingur meö röðun-
arsýki. Einhvern tímann eftir níu
hófst svo þátturinn Hver á að
ráða? en sá þótti frumlegur og
jafnvel skemmtilegur fyrir 7
árum eða svo. Þegar hér var kom-
ið sögu held ég að ansi margir
hafi verið farnir í bíó eða búnir
að skipta yfir á Stöð 2.
Við skulum vona að sólin fari
nú að láta sjá sig og beini geislum
sínum inn í stóra, græna húsiö að
Laugavegi 176. Ari Sigvaldason
Andlát
María Hjaltadóttir frá Hvoli í Vestur-
hópi andaðist að morgni laugardags-
ins 18. júlí í sjúkrahúsinu Hvamms-
tanga.
Margrét Hallgrimsdóttir, Skúlagötu
80, lést á heimili sínu aðfaranótt 17.
júlí.
Jón Guðmundur Ólafsson, Bólstað-
arhlíð 5, andaöist í Borgarspítala-
num 17. þessa mánaðar.
Elísabet Magnúsdóttir, Ölduslóð 40,
Hafnarfirði, lést í Landspítalanum
föstudaginn 17. júlí.
Guðjón Ó. Guðjónsson er látinn.
Guðrún M. Teitsdóttir frá Bergsstöð-
um í Húnavatnssýslu lést á dvalar-
heimilinu Skjóli föstudaginn 16. júlí.
Jarðarfarir
Útför Stefáns Þóris Guðmundssonar
fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 21. júlí kl. 13.30.
Anton Björn Ingólfsson, Funafold 21,
lést á Bamaspítala Hringsins þann
16. júlí. Jarðarförin fer fram frá Foss-
vogskapellu þriðjudaginn 21. júlí kl.
10.30.
Laura Hildur Proppé verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni þriðjudag-
inn 21. júlí kl. 13.30.
Sigurjón Júlíus Þorvaldsson frá
Raufarfelli, Austur-Eyjafjöllum,
andaðist í Landspítalanum miðviku-
daginn 15. júlí. Utförin fer fram frá
Fossvogskapellu föstudaginn 24. júlí
kl. 13.30.
Jóna Guðrún Björnsdóttir, sem lést
9. júlí sl. á heimili sínu, Hátúni lOa,
Reykjavík, verður jarðsungin mið-
vikudaginn 22. júlí frá Fossvogs-
kirkju (nýju kapellunni) kl. 13.30.
Sveinn Gisli Eiríksson kennari, sem
lést í Landspítalanum 11. júlí, verður
jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
þriðjudaginn 21. júlí kl. 13.30.
Þorbjörg Hannesdóttir, Lönguhlíð
17, Reykjavik, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju þriðjudaginn 21. júlí
kl. 13.30.
Guðni Helgason, er lést 12. þessa
mánaðar, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju í dag, mánudaginn
20. júlí, kl. 13.30.
Arndís Jónsdóttir, Engimýri 1,
Garöabæ, lést 10. júlí sl. Hún var
fædd 22. maí 1914 og var dóttir hjón-
anna Amalíu Jósefsdóttur og Jóns
Hjartarsonar. Hún giftist Hannesi
Sveinssyni (látinn 1980) og eignuðust
þau fjögur börn. Hún verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju í dag,
mánudaginn 20. júlí, kl. 13.30.
)1991 by King Features Syndicate, Inc. Worid rights reserved. <)20
©KFS/Distr. BULLS
'ReiNet?
Ef Hrafn Gunnlaugsson hringir segðu honum
þá að ég verði komin heim klukkan sex.
Lalli og Lína
Spakmæli
Við fyrirgefum á meðan við elskum.
La Rochefocauld.
Slökkvilið-lögregla
Reykjavík: Lögreglan sími 11166 og
0112, slökkvilið og sjúkrabifreið sími
11100.
Seltjarnarnes: Lögreglan sími 611166,
slökkviliö og sjúkrabifreið sími 11100.
Kópavogur: Lögreglan sími 41200,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100.
Keflavík: Lögreglan sími 15500,
slökkvilið sími 12222 og sjúkrabifreið
sími 12221.
Vestmannaeyjar: Lögreglan sími
11666, slökkvilið 12222, sjúkrahúsið
11955.
Akureyri: Lögreglan símar 23222,23223
og 23224, slökkviliö og sjúkrabifreiö
sími 22222.
ísafjörður: Slökkviliö simi 3300, bruna-
sími og sjúkrabifreið 3333, lögreglan
4222.
Apótek
Nætur- og helgidagaþjónusta apótekanna
i Reykjavik 17. júli til 23. júlí, að báðum
dögum meðtöldum, verður í Reykjavík-
urapóteki, Austurstræti 16, sími 11760,
læknasímar 24533 og 18760. Auk þess
verður varsla í Borgarapóteki, Álfta-
mýri 1-5, sími 681251, læknasimi 681250,
kl. 18 til 22 virka daga og kl. 9 til 22 á
laugardag.
Upplýsingar um læknaþjónustu eru gefn-
ar í síma 18888.
Mosfellsapótek: Opið virka daga frá
kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12.
Apótek Garðabæjar: Opið mánudaga-
fostudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl.
11-14. Sími 651321.
Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá
kl. 9-19, laugardaga kl. 9-12.
Hafnarfjörður: Norðurbæjarapótek er
opið mánudaga til fimmtudaga frá kl.
9-18.30, Hafnarfjarðarapótek frá kl.
9-19. Bæði apótekin hafa opið fóstudaga
frá kl. 9-19 og laugardaga frá kl. 10-14
og til skiptis annan hvem helgidag frá
kl. 10-14. Upplýsingar í símsvara apó-
tekanna, 51600 og 53966.
Apótek Keflavíkur: Opið frá kl. 9-19
virka daga, aðra daga frá kl. 10-12 f.h.
Nesapótek, Seltjarnarnesi: Opið virka
daga kl. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka
daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokað laugar-
daga og sunnudaga.
Akureyrarapótek og Stjörnuapótek,
Akureyri: Virka daga er opið í þessum
apótekum á afgreiðslutíma verslana.
Apótekin skiptast á sína vikuna hvort
að sinna kvöld-, nætur- og helgidaga-
vörslu. Á kvöldin er opið í þvi apóteld
sem sér um þessa vörslu til kl. 19. Á
helgidögum er opiö kl. 11-12 og 20-21. Á
öðrum tímum er lyfjafræðingur á bak-
vakt. Upplýsingar eru gefnar í síma
22445.
Heilsugæsla
Slysavarðstofan: Sími 696600.
Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur
og Seltjamames, sími 11000,
Hafnarfjörður, sími 51100,
Keflavík, sími 12222,
Vestmannaeyjar, sími 11955,
Akureyri, sími 22222.
Krabbamein - Upplýsingar fást hjá fé-
lagsmálafulltrúa á miðvikudögum og
fimmtudögum kl. 11-12 í síma 621414
Læknar
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-
arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar-
stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl.
17 til 08, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráðleggingar og tímapantanir í
sími 21230. Upplýsingar um lækna og
lyfjaþjónustu em gefnar-'í símsvara
18888.
Borgarspitalinn: Vakt frá kl. 8-17 alla
virka daga fyrir fólk sem ekki hefur
heimilislækni eða nær ekki til hans
(sími 696600) en slysa- og sjúkravakt
(slysadeild) sinnir slösuðum og skyndi-
veikum allan sólarhringinn (sími
696600).
Læknavakt Þorfinnsgötu 14: Skyndi-
móttaka rúmhelga daga kl. 10-16. Sími
620064.
Seltjarnarnes: Heilsugæslustöðin er
opin virka daga kl. 8-17 og 20-21, laugar-
daga kl. 10-11. Sími 612070.
Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes:
Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta
morgun og um helgar, sími 51100.
Keflavík: Neyöarvakt lækna frá kl. 17-8
næsta morgun og um helgar. Vakthaf-
andi læknir er í síma 14000 (sími Heilsu-
gæslustöðvarinnar).
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna í
síma 11966.
Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Heilsu-
gæslustöðinni í síma 22311. Nætur- og
helgidagavarsla frá kl. 17-8, sími (far-
sími) vakthafandi læknis er 985-23221.
Upplýsingar hjá lögreglunni í síma
23222, slökkviliðinu í síma 22222 og
Akureyrarapóteki í síma 22445.
Heimsóknartnm
Landakotsspítali: Alla daga frá kl.
15-16 og 18.30-19. Bamadeild kl. 14-18,
aðrir en foreldar kl. 16-17 daglega. Gjör-
gæsludeild eftir samkomulagi.
Borgarspitalinn: Mánud.-fóstud. kl.
18.30-19.30. Laugard.-sunnud. kl. 15-18.
Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og
18.30-19.30.
Fæðingardeild Landspitalans: Kl.
15-16 og 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Heimsóknartími
frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30.
Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla
daga kl. 15-16.30
Kleppsspitalinn: Alla daga kl. 15-16 og
18.30- 19.30.
Flókadeild: Alla daga kl. 15.30-16.30.
Grensásdeild: Kl. 18.30-19.30 alla daga
og kl. 13-17 laugard. og sunnud.
Hvítabandið: Frjáls heimsóknartími.
Kópavogshæliö: Eftir umtali og kl.
15-17 á helgum dögum.
Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug-
ard. kl. 15-16 og 19.30-20. Sunnudaga
og aöra helgidaga kl. 15-16.30.
Landspítalinn: Alla virka daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Barnaspítali Hringsins: Kl. 15-16 alla
daga.
Sjúkrahúsið Akureyri: Alla daga kl.
15.30- 16 og 19-19.30.
Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: Alla
daga kl. 15-16 og 19-19.30.
Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl.
15.30- 16 og 19-19.30.
Hafnarbúðir: Alla daga frá kl. 14-17 og
19-20.
Vífllsstaðaspítali: Alla daga frá kl.
15-16 og 19.30-20.
Geðdeild Landspítalans Vífilsstaða-
deild: Heimsóknartími: Sunnudaga kl.
15.30- 17.
Söfnin
Ásmundarsafn við Sigtún. Opið dag-
lega kl. 13-16.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74: Op-
ið daglega nema mánudaga kl. 13.30-16.
Árbæjarsafn: Opið í júní, júli og ágúst
alla daga nema mánudaga kl. 10-18 og
um helgar í sept. á sama tíma. Upplýs-
ingar í síma 84412.
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155.
Borgarbókasafniö í Gerðubergi 3-5, s.
79122, 79138.
Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270.
Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814.
Ofangreind söfn eru opin sem hér segir:
mánud.-fimmtud. kl. 9-21, fóstud. kl.
9-19, laugard. kl. 13-16.
Aöalsafn, lestrarsalur, s. 27029. Opið
mánud.-laugard. kl. 13-19.
Hofsvallasafn, Hofsvallagötu 16, s.
27640. Opið mánud.-fostud. kl. 16-19.
Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir víðs
vegar um borgina.
Sögustimdir fyrir böm:
Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15.
Borgarbókasafnið í Gerðubergi,
fimmtud. kl. 14-15.
Bústaðasafn, miðvikud. kl. 10-11.
Sólheimar, miðvikud. kl. 11-12.
Lokað á laugard. frá 1.5.—31.8.
Kjarvalsstaðir: opið daglega kl. 11-18.
Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7:
er opið daglega nema mánud. kl. 12-18.
Listasafn Einars Jónssonar er opið
alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16.
Höggmyndagarðurinn er opinn alla
daga kl. 11-16.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar á
Laugarnesi er opið mánud.-fimmtud.
kl. 20-22 og um helgar kl. 14-18. Kaffi-
stofan opin á sama tima.
Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg:
Opið sunnud., þriðjud., fimmtud. og
laugard. kl. 13.30-16.
Norræna húsið við Hringbraut: Sýn-
ingarsalir í kjallara: alla daga kl. 14-19.
Bókasafn Norræna hússins: mánud. -
laugardagakl. 13-19. Sunnud. kl. 14-17.
Sjóminjasafn íslands er opið alla daga
nema mánudaga 14-18.
J. Hinriksson, Maritime Museum,
Súðarvogi 4, S. 84677. Sjóminja- og vél-
smiðjumunasafnið er opið frá kl. 13.-17
þriðjud. - laugard.
Þjóðminjasafn íslands. Opiö þriðjud.,
fimmtud., laugard. og sunnud. kl. 12-16.
Leiðsögn á laugardögum kl. 14
Bilanir
Rafmagn: Reykjavik, Kópavogur og
Seltjamames, sími 686230.
Akureyri, sími 11390.
Keflavík, sími 15200.
Hafnarfjörður, sími 652936.
Vestmannaeyjar, sími 11321.
Hitaveitubilanir:
Reykjavík og Kópavogur, sími 27311,
Seltjamames, sími 615766.
Vatnsveitubilanir:
Reykjavík sími 621180.
Seltjamames, sími 27311.
Kópavogur, sími 41580, eftir kl. 18 og
um helgar, sími 41575.
Akureyri, sími 23206.
Keflavík, sími 11552, eftir lokun 11555.
Vestmannaeyjar, simar 11322.
Hafnarfjörður, sími 53445.
Simabilanir: í Reykjavík, Kópavogi,
Seltjamamesi, Akureyri, Keflavík og
Vestmannaeyjum tilkynnist í 05.
Bilanavakt borgarstofnana, simi
27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17
síðdegis til 8 árdegis og á helgidögum
er svarað allan sólarhringinn.
Tekið er við tilkynningum um bilanir á
veitukerfum borgarinnar og í öðrum
tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa
að fá aðstoð borgarstofnana.
Tilkyimingar
AA-samtökin. Eigir þú við áfengis-
vandamál að stríöa, þá er sími samtak-
anna 16373, kl. 17-20 daglega.
Leigjendasamtökin Hverfisgötu 8-10,
Rvík., sími 23266.
Líflinan, Kristileg símaþjónusta. Sími
91-676111 allan sólarhringinn.
Vísir fyrir 50 árum
Mánudagur 20. júlí:
Árás á brezkan togara undan
íslandsströndum.
Stjömuspá
(£%)
Spáin gildir fyrir þriöjudaginn 21. júlí
Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.):
Skipuleggðu vel málefni fjölskyldunnar. Taktu enga áhættu varð-
andi eitthvað sem þú þekkir ekki. Farðu vel yfir allt sem þú ger-
ir. Happatölur eru 11, 23 og 31.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars.):
Dagurinn lofar góðu sérstaklega fyrir handlagið fólk. Þér gengur
vel að fást við erfið verkefni. Þú færð upplifgandi fréttir með
rómantísku ívafi.
Hrúturinn (21. mars-19. april):
Þú ert mjög fundvís og átt auðvelt með að leiðrétta misklíð í vin-
áttusambandi. Umhverfisbreyting hæfir skapi þínu vel.
Nautið (20. apríl-20. mai):
Þú verður að skapa rólegt andrúmsloft til að fá fólk á þitt band.
Það er enginn gróði í árekstrum af neinu tagi.
Tvíburarnir (21. maí-21. júní):
Hæfileikar þínir til að fást við tölur og fjármál fá að njóta sín á
næstunni. Vertu viss um að vita allan sannleikann í máli sem
kemur þér við.
Krabbinn (22. júni-22. júlí):
Dagurinn lofar góðu fyrir persónulegan metnað þinn. Þú þarft
að taka ákvörðun varðandi ástarmálin.
Ljóniö (23. júlí-22. ágúst):
Þú ert í góðu jafnvægi tilfinningalega. Láttu ekki óútreiknanlega
hegðun annarra hafa áhrif á þig. Einbeittu þér að persónulegum
málum þínum. Happatölur eru 6,17 og 30.
Meyjan (23. ágúst-22. sept.):
Þú hefur ekki nægt svigrúm til athafna. Þig skortir valmögu-
leika. Þú færð sérstaka ánægju út úr því að hjálpa öðrum.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Einbeiting þín og minni gæti svikið þig. Vertu raunsær og haltu
þig við staðreyndir. Notaðu orku þína í eitthvað sem þú þekkir.
Sporödrekinn (24. okt.-21. nóv.):
Taktu þátt í gleði og ánægju í kringum þig eins og þú mögulega
getur. Reyndu að gera öðrum til hæfis en á hagnýtan hátt.
Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.):
Taktu þátt í því sem er að gerast í kringum þig. Hikaðu ekki við
að breyta áætlunum þínum tíl að vera með í einhveiju skemmti-
legu. Þig skortir ekki hugmyndir.
Steingeitin (22. des.-19. jan.):
Þú hefur ákveðnar skoðanir varðandi ákveðin mál. Taktu ekki
þátt í kreddufúllum deilumálum eða skoðanaágreiningi. Snúin
staða gæti þarfnast skjótra ákvarðana.