Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1992, Síða 44
FR ÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn- Auglýsingar-Áskrift-Dreifing: Sími 632700
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 20. JÚLl 1992.
Reykjavík:
Ung stúlka
kærir nauðgun
«****•■ Ung stúlka kom á lögreglustöðina
við Hverfisgötu í Reykjavík aðfara-
nótt laugardags og kærði nauðgun.
Að hennar sögn var henni nauðgað
skömmu áður í húsagarði í miðborg-
inni af manni sem var með henni á
skemmtistað. Lögreglan náði mann-
inum en hann þvemeitar sakargift-
um. Máhð er í rannsókn hjá RLR.
-bjb
Ringluðítívolíi:
Dattístigaog
brauttennur
Sautján ára stúlka braut tvær
framtennur og brákaðist á hendi eft-
ir að hafa dottið í stiga í tívolíinu á
Bakkastæði í Reykjavík í gærkvöldi.
Hún var að koma úr leiktæki þar sem
fólk hristist til og frá og jafnvægis-
skynið fer úr skorðum. Þegar stúlk-
an kom úr tækinu var hún mjög
ringluð eftir hristinginn. Stiginn
varð henni ofviða. Hún var flutt á
slysadeildeftiróhappið. -bjb
Svalbarðsströnd:
Þrenntibílveltu
Bílvelta varð við Litla-Hvamm á
Svalbarðsströnd í gærkvöldi. Þrennt
var í bílnum en sakaði ekki. Bíllinn
er hins vegar töluvert mikið
skemmdur að sögn lögreglu á Akur-
eyri. -bjb
Bilbelti björg-
uðu sex manns
Talið er fullvíst að bílbelti hafi
bj argað sex manns frá sly si er harður
árekstur og bílvelta varð í Önundar-
firði á fostudagskvöldið. Bíll, sem var
— að fara fram úr öðrum, lenti framan
á bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Við
það valt annar bíllinn og er hann
talinn ónýtur. Hinn bíllinn er mikið
skemmdur. Tveir vom í öðrum bíln-
um og fjórir í hinum og er tahn mesta
mildi að allir skyldu sleppa heihr.
-ELA
Slasaðureftirskot
úr loftrifffli
A laugardaginn var haldið þrefalt systrabrúðkaup í Skálholti og á eftir var veisla í stóru tjaldi á Kiðjabergi í Gríms-
nesi. Brúðhjónin eru frá vinstri: Matthías Jónasson, Dagbjört Kristinsdóttir, Bergur Þorgeirsson, Sigriður Kristins-
dóttir, Andrés I. Guömundsson og Bergljót Kristinsdóttir. Á myndinni er einnig Benedikt Reynir, sonur Andrésar
og Bergljótar. DV-mynd GVA
Garðabær:
Ævintýraleg nótt á Hesteyrarfirði:
Tveir bátar
m ■ ■ m mt
stronduðu
- er þeir hjálpuðu skútu á flot
Bandarísk skúta, Nomat, til- Daníel Sigmundssyni frá Ísaílrði. betur til en svo að Daniel rak upp
kynnti strand rétt fyrir klukkan Taliðvaraðámilli30og40hnúta í fjöru og reyndist vélarvana. Varð-
þrjú aðfaranótt sunnudagsins og vindhraði hefði verið á strand- skipið Týr kom þá til hjálpar.
óskaði aðstoðar þar sem veður fór staðnum og áttu bátamir því mjög ÁskútunniNomatvorutværsjá-
mjög versnandi. Skútan var þá óhægt með að komast að banda- anlegar dældir en hún sigldi engu
stödd skammt frá landi í Hesteyr- risku skútunni. Var sómabáturinn að síður til ísafjarðar. Týr aðstoö-
arfirði. Þrír Bandaríkjamenn vora Jóhanna einnig fenginn til hjálpar. aði síöan Daníel Sigmundsson og
um borð og sakaði þá ekki. Varð- Ekki vfidi betur til en svo að Jó- komust öll skipin loks til ísafjarðar
skipið Týr var ekki mjög langt frá hanna strandaði einnig. Skipverjar eftir ævintýralega nótt. Engan sak-
strandstað en skútan Ósk heldur á Daníel fengu lánaða dráttart- aði og hættuástand var ekki hjá
nær. Vegna veðursins taldi hún sig rossu hjá varðskipinu og drógu skipverjum þar sem strandið var
ekki komast á strandstað og var Nomat á flot. Síðan reyndu þeir að það nálægt landi.
þá óskað eftir björgunarbátnum draga Jóhönnu en ekki vildi þá -ELA
Fimmtán ára drengur slasaðist illa
á auga þegar skot úr loftriffli hafnaði
í andliti hans á laugardagskvöld.
Drengurinn var fluttur á slysadeild
Borgarspítalans en þaðan í aðgerð á
----‘'Landspítalanum. Lögregla mim hafa
fundið skotmanninn og var máliö að
fuhuupplýstígær. -ELA
LOKI
Þarf ekki að koma upp
strandgæslu fyrir vestan?
Innbrotsþjófar staðnir að verki
Tveir innbrotsþjófar um tvítugt anna hefur áður komið við sögu í menn tengist þeim. Máhð er í rann-
vora staðnir að verki í videoleigu í innbrotamálum. Mikið hefur verið sókn hjá RLR.
Garðabænum um þrjúleytið aðfara- um innbrot í Garðabæ og Hafnarfirði -ELA
nótt sunnudagsins. Annar mann- undanfarið en ekki er tahð að þessir
Veðriðámorgun:
Léttskýjað
sunnanlands
Á hádegi á morgun verður
norðan- og norðaustanátt, víðast
kaldi. Skúrir verða norðanlands
og austan en víðast léttskýjað
sunnanlands. Heldur kólnandi,
hiti verður 3-15 stig að deginum
og hlýjast á Suðurlandi.
Veðrið í dag er á bls. 52
V
Hólmavík:
Þyria sótti slas-
aðan mann
Alvarlegt umferðarslys varð rétt
við Hólmavík á laugardagsmorgun
og var óskað eftir þyrlu landhelgis-
gæslunnar til að flytja slasaðan
mann til Reykjavíkur. Maður, sem
var farþegi í bíl, hafði kastast út úr
bílnum er hann valt og hlotið alvar-
lega höfuðáverka. Þyrlan lenti við
Borgarspítalann um klukkan tíu á
laugardagsmorgun. -ELA
Flateyri:
Brutust inn til
aðfágistingu
Tveir menn voru handteknir í
íbúðarhúsnæði á Flateyri aöfaranótt
sunnudagsins en talið var aö um inn-
brotsþjófa væri að ræða. í ljós kom
að mennirnir, sem báðir voru mjög
ölvaðir, höfðu hugsað sér aö ná sér
í næturstað á heimili kunningja sem
var reyndar ekki heima. Þeir brutust
því inn um glugga og var annar
þeirra þegar sofnaður þegar lögregla
kom á staöinn. Mennirnir gátu ekki
gefið aðra skýringu á framferði sínu
en að þetta hafi verið fyllirísrugl.
,-ELA
Sophia Hansen:
Tyrklandsför
án árangurs
í fjórða sinn fékk Sophia Hansen
ekki að sjá dætur sínar í Tyrklandi.
Halim Al, fyrrum eiginmaður Sop-
hiu, lét ekki sjá sig á laugardaginn
og fannst ekki þrátt fyrir lögregluleit.
Sophia kom til landsins í nótt og
meö henni í för er lögfræðingur
hennar tyrkneskur. Hann mun safna
hér gögnum áður en mál Sophiu og
Halims verður tekið fyrir í dómi í
Istanbúl í haust.
-bjb
KolIaQörður:
Rakstutan
ívegrið
Þrennt var flutt á slysadeild eftir
umferðaróhapp í Kollaflrði síðdegis
í gær. BíU lenti utan í vegriði og hafn-
aði síðan utan vegar. Bíllinn
skemmdist töluvert. Þrír vora í bíln-
um. Ökumaður slapp að mestu
ómeiddur, svo og farþegi í aftursæti,
en farþegi í framsæti hlaut meiðsl á
höföi. -bjb
"2Fkjúklinga-
pMborgarar
Kgntuchy
Fried
Ghicken
m
\
í
t
í
t
t
t
i
í
í
í
t
í
í
i