Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1992, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1992, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992. Fréttir Úttekt á tekjum presta: Heydalapresturinn hæstur enda í veraldlegu amstri - Gunnar 1 Krossinum brauðfæðir sig með 77 þúsund krónum Prestar geta vart talist auðugir menn í jarðneskum skilningi en sem kunnugt er tók Kjaradómur nýveriö til baka áður ákvarðaða launahækk- anir til þeirra. Gunnlaugur Stefáns- son, prestur í Heydölum, sker sig þó verulega úr með 597 þúsund krónur í mánaöartekjur. Þess ber þó að geta að hann býr á auðugri jörð og er þingmaður fyrir Austurland. Vænt- anlega uppsker hann því nokkum auð fyrir sitt veraldlega amstur. Samkvæmt úttekt DV á tekjum nokkurra klerka og guðsmanna í fyrra er Gunnlaugur langtekjuhæst- ur þeirra allra. Næstir á eftir koma Ólafur Skúlason biskup meö 285 þús- imd á mánuði og Hjálmar Jónsson, prestur á Sauðárkróki, með 252 þús- und á mánuði. Aðrir klerkar, sem úttektin tók tii, hafa mánaðartekjur á bilinu 147 þúsund til 230 þúsund. í þessu sambandi má benda á að veraldlegur leiðtogi prestanna, Geir Waage, formaður Prestafélags ís- lands, hefur um 174 þúsund krónur í mánaðartekjur. Til samanburðar má geta þess að ýmsir forsvarsmenn launþega, sem kröfðust þess að ný- legri launahækkun presta yrði hnekkt, eru með margfold presta- laun í tekjur. Til dæmis hefur Ás- mundur Stefánsson, forseti ASÍ, um 390 þúsund krónur í mánaðartekjur og Magnús L. Sveinsson, formaður VR, um 468 þúsund. Athygli vekur að verktakinn og trúboðinn, Gunnar Þorsteinsson, safnaöarstjóri í Krossinum, hefur einungis um 77 þúsund krónur í mánaðartekjur. Sem kunnugt er þá er safnaðarfólki hans gert að greiða tíund af sínum tekjum til safnaöar- ins. Hlutm* Gunnars í hinum sameig- inlega sjóði er því innan við 8 þúsund krónur á mánuði. Rétt er að taka fram að úttekt þessi nær einungis til tekna en ekki launa. Um er að ræða skattskyldar tekjur á mánuöi eins og þær voru gefnar upp, eða áætlaðar, og útsvar reiknast af. Tekjumar miðast við 1991 og fram- reikningur á þeim byggist á 3,8 pró- senta hækkun framfærsluvísitölu frá meðaltali 1991 til júlí 1992. -kaa Tekjur guðsmannanna — framreiknaðar mánaðartekjur 1991 í þús. kr. miðað við verðlag í júlí 1992 — Gunnar Þorsteinsson, Krossinum Rögnvaldur Finnbs., Staðastað Hjalti Guðmundsson, Dómkirkjunni Vigfús Þ. Árnason, Grafarvogi Þorbergur Kristjánnss., Digranessókn Pálmi Matthíasson, Bústaðakirkju Geir Waage, Reykhoiti Ægir Fr. Sigurgeirsson, Kársnessókn Pétur Þórarinsson, Laufási Þórhallur Höskuldss., Akureyri Ólafur O. Jónsson, Keflavík Valgeir Ástráðsson, Seljakirkju Karl Sigurbjörnsson, Hallgrímskirkju Gunnar Kristjánsson, Reynivöllum Hjálmar Jónsson, Sauðárkróki Hr. Ólafur Skúlason biskup Gunnlaugur Stefánsson, Heydölum 147 174 ,178 183 ✓ 92 197 184 183 194 220 241 ^252 I97 Gunnar Þorsteinsson í Krossinum er með 77 þúsund krónur í mánaðartekj- ur. Það kemur þó ekki í veg fyrir að hann geti búið í þessu stórglæsilega húsi í Hafnarfirði. DV-mynd BG Útsvarskv. Tekjurá álagn. '92 mánuði '91 íþús. kr. iþús. kr. GunnlaugurStefánsson, presturí Heydölum 517 574 Ólafur Skúlason biskup 221 274 Hjálmar Jónsson, prestur á Sauðárkróki 218 243 Gunnar Kristjánsson, prestur á Reynivöllu.n I Kjós 196 221 Karl Sigurbjömsson, prestur í Hallgrímskirkju 187 232 Valgeir Ástráðsson, prestur í Seljakirkju 171 212 Ólafur Oddur Jónsson, prestur I Keflavik 168 187 Þórhallur Höskuldsson, prestur í Akureyrarkirkju 152 176 Pétur Þórarinsson, prestur í Laufási 153 177 Ægir Fr. Sigurgeirsson, prestur í Kársnesprestak. 152 189 Geír Waage, prestur í Reykholti 151 167 Pálmi Matthiasson, prestur í Bústaðakirkju 149 185 Þorbergur Kristjánsson, prestur 1 Digranesprestak. 139 173 Vigfús Þór Árnason, prestur í Grafarvogi 138 171 Hjalti Guömundsson, Dómkirkjuprestur 135 168 Rögnvaldur Finnbogason, prestur á Staðastað 127 141 Gunnar Þorsteinsson, Krossinum 60 74 HjaUaskóli 1 Kópavogi nýtir ónotað húsnæði fyrir daggæslu: Athvarf utan skólatíma - leik- og námsaðstaða fyrir nemendur frá 7.45-17.30 á daginn í skúrum á skólalóð Hjallaskóla i Kópavogi er gæsla fyrir nemendur utan skólatíma þeirra. Margir skólar hafa áhuga á að koma upp svipaðri starfsemi. • DV-mynd „Meðal nemenda í skólanum voru ansi mörg böm sem höfðu ekkert fyrir stafni. Okkur langaði til að gera eitthvað fyrir þau og þegar tvær kennslustofur í lausum skúrum á skólalóðinni losnuðu tímabundið tókum við þær undir starfsemi fyrir bömin utan skóla- tíma þeirra." Þetta segir Stella Guðmundsdótt- ir, skólastjóri Hjallaskóla í Kópa- vogi, en Brynjólfur Brynjólfsson sálfræðingur hefur bent á að frí- stundastarfsemin þar sé til fyrir- myndar. í fyrirlestri, sem Brynjólf- ur hélt á norrænu ráðstefnunni um böm og bamavemd, sem haldin var í vikunni, kom fram að tveir þriðju hlutar níu ára bama em ein- ir heima hluta úr degi og að börn- um, sem era ein heima, gengur verr í námi en öðrum. Þetta var niðurstaða könnunar sem var gerð meöal níu ára bama í tíu skólum í Reykjavík. Stella segir starfsemina, sem kölluð er frístund, hafa verið í gangi síðan haustið 1988. „í upp- hafi var frístund opin öllum ár- göngum en þar sem skólinn er að stækka, nemendur em nú nær sex hundmð, þurftum við að setja tak- markiö við tólf ára aldur í fyrra. Þrátt fyrir þrengsh hafa kennarar aUs ekki viljað að frístund yrði lögð niður því að hún er taiin mjög mik- ilvæg.“ Frístund er frá 7.45 á morgnana til 17.30 síðdegis og er þá miðað við vinnutíma foreldra. Bömin hafa aðstöðu bæði til leiks og náms. í fyrra voru komur 6-7 ára barna að meðaltali 27 árdegis og 16 að jafn- aði eftir hádegi. Komur eldri nem- enda voru ekki skráðar. í hádeginu vom allt að 80 nemendur skráöir. Hægt er að kaupa létta máltíð í hádeginu, til dæmis brauð, kakó, súpu og jógúrt. „Börnin hafa ekki fast pláss í frí- stund en foreldrar geta óskað eftir því að þau taki þátt í henni. For- eldrar geta líka beðiö um að þeir verði látnir vita komi bömin ekki og einnig að þau verði ekki send heim fyrr en þau verða sótt,“ segir Stella. Foreldrar hafa greitt hundrað krónur á dag fyrir hvert barn en að öðru leyti stendur Kópavogsbær undir kostnaðinum. Tveir til þrír starfsmenn hafa séð um athvarfið. Að sögn Stellu hafa margir skólar sýnt áhuga á að taka upp svipaða starfsemi. -IBS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.