Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1992, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992.
11
Vínarblóð í Sjónvarpinu:
Konungar valsanna
og örlög þeirra
Saga Straussættarinnar austur-
rísku, Vínarblóö, er viðamesti sjón-
varpsmyndaflokkur sem gerður
hefur verið í Evrópu. Sögusviðið
er Vín 19. aldarinnar og fóru tökur
fram á 150 stöðum í og umhverfis
Vín á fyrri helmingi ársins 1990.
Sjónvarpið hefur nú sýnt fyrsta
þáttinn af tólf og hófst hann á
kynnum Johanns Strauss eldri og
tónlistarmannsins Josefs Lanners.
Þeir spiluðu saman fyrir Vínarbúa
en urðu síðar keppinautar í tónhst-
inni. Þeir kepptu líka um hylli
sömu konu, Önnu Streim. Þegar
Anna og Strauss gengu í hjónaband
lauk vináttu Strauss og Lanners.
Með Önnu eignaðist Strauss þijá
syni, Johann Strauss yngri, Josef
og Eduard. Þegar synimir lýsa því
yfir að þeir vilji verða tónlistar-
menn bannar Strauss þeim það og
sendir Johann í verslunarskóla.
Hann fer hins vegar á laun í tónlist-
artíma til Lanners, keppinautar og
fyrrum félaga föður síns. Strauss
hótar að hætta að greiða skóla-
gjöldin en þá hættir Johann í skó-
lanum. Með aðstoð móður sinnar
hellir hann sér út í tónlistina. Það
var svo hann sem skrifaði vals ald-
arinnar, Dónárvalsinn.
Konumar í lífi Straussfeðganna
em margar og þær bæði elska þá,
hvetja þá og nota þá. Eiginkonu
Strauss eldri leikur Lisa Harrow
sem er frá Nýja-Sjálandi. Hún fékk
styrk til að læra leiklist í Englandi
1965. Hún hefur verið búsett í Eng-
landi síöan og leikið bæði á sviði,
í kvikmyndum og sjónvarpsþátt-
um.
Anthony Higgins, sem leikur
Strauss eldri, er íri. Hann býr í
London og hóf feril sinn á sviði eins
og margir gera á Bretlandseyjum.
Um Strauss segir Higgins að hann
hafi verið knúinn áfram af metnað-
argimi og því ekki tekið tillit til
tilfinninga annarra. „Sjálfselska
hans var nauðsynleg fyrir hann
sem listamann. Hann er aldrei ill-
gjarn og þegar hann reynir að
hindra að synir hans verði tónlist-
armenn er það til að bjarga þeim
frá erfiðu lífi.“
Leikstjóri myndaflokksins er
Marvin J. Chomsky sem er þekktur
fyrir sjónvarpsþáttaraðirnar Ræt-
ur og Helforina. Hann segist hafa
ákveðið að gera myndaflokk um
ævi Straussfjölskyldunnar eftir að
hann komst að því hversu við-
burðaríkt líf hennar hafði verið.
„Ég hef unnað tónlist Straussfeðg-
anna alla ævi en í myndaflokknum
er tónlistin ekki í fyrsta sæti heldur
mannleg örlög,“ segir Chomsky.
Astum og örlögum Straussfjölskyldunnar austurrísku eru gerð skil í
myndaflokknum Vínarblóð.
NÆTURSALA
Opið til kl. 4 í nótt
Verð á spólurn:
95 195 295 395 EXTRA-EXTRA 1 Allir þættir á verði ^innar spók^
WA afsláttur við ) aðra spólu seni tekin er
Steinar
C.I.C.
Bíómyndir,
Opió sunnudaga
til fimmtudaga
til kl. 1 eftir miðnætti,
föstud. og laugard.
til kl. 4 eftir miðnætti.
TOPP-MYNDIR A TOPP-LEIGU
Video START
-:«SVS DiANÍ KtiAlOH MAtrTWSHOXT ;
FaTHER of the BRIDE
Jöldugróf
K|a"hó'rt" ,
VlvannÞö'T"
ytL'^o/S'a"hó'rf"
■*y<
■ .5 G*
Gata
Gata
D’
aia.— C- ? Gata
f'offöt' B-Gata 65
^Ga'a s
Skemmuvegur
x T-? 1
q O Q
Engihia"' | § § »
Smiðjuvegi 6, s. 677005, Kóp.