Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1992, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1992, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992. Skák Haustmót Taflfélags Reykjavíkur: Júlíus með fullt hús að loknum fimm umferðum Júlíus Friöjónsson hefur gert sér lítið fyrir og unnið fimm fyrstu skákir sínar í A-flokki á haustmóti Taflfélags Reykjavíkur sem nú stendur yfir í Faxafeni. Áttatíu skákmenn taka nú þátt í mótinu og tefla í fjórum flokkum. Engir alþjóðlegir titiihafar eru að þessu sinni meðal keppenda en betur er þó skipað í sæti en oft áður. Þannig hafa nokkrir valinkunnir garpar orðið að láta sér lynda að tefla í B-flokki, s.s. landsliðsmennimir fyrrverandi, Jón Þorsteinsson og Bragi Halldórsson. Júlíus hóf aftur aö tefla á mótum hér á landi fyrir um tveimur árum eftir aö hafa dvahst erlendis við nám. Hann var landsliðsmaður hér á árum áöur og frammistaða hans þyrfti því ekki að koma á óvart. Hann hefur unnið skákir sínar til þessa af miklu öryggi, gjaman í endatafli eða honum hefur tekist að færa sér í nyt tímahrak mótherj- ans. Keppendur hafa nú 90 mínútur til umhugsunar á fyrstu 36 leikina og síðan 45 minútur til aö ljúka skákinni. Biðskákir heyra því loks sögunni til. Sjöttu umferð mótsins átti að tefla í gærkvöldi en sjöunda umferð verður tefld á morgun, sunnudag. Alls verða tefldar ellefu umferðir og lýkur mótinu 14. október. Þannig var staðan í A-flokki að loknum fimm umferðum: 1. Júlíus Friðjónsson 5 v. 2. Helgi Áss Grétarsson 4,5 v. 3. -5. Ágúst S. Karlsson, Benedikt Jónasson og Tómas Bjömsson 3,5 v. 6. Jón G. Viðarsson 2,5 v. 7. -8. Halldór G. Einarsson og Bjöm Freyr Björnsson 2 v. 9. Guðmundur Gíslason 1,5 v. 10. -11. Magnús Sólmundarson og Áskell Örn Kárason 1 v. 12. Sigurbjöm Bjömsson 0 v. Staða efstu manna í B-flokki var þessi: 1. Magnús Öm Úlfarsson 4,5 v. 2. -3. Olafur B. Þórsson og Haraldur Baldursson 3,5 v. 4. -7. Bragi Halldórsson, Jón Þor- steinsson, Gunnar Bjömsson og Kristján Eðvarðsson 3 v. í C-flokki var Ingvar Jóhannes- son efstur með 4,5 v., Matthías Kjeld í 2. sæti með 4 v. Þorvaröur Fannar Ólafsson hafði 3,5 v„ Jón Viktor Gunnarsson 3 v„ Páll Agnar Þórarinsson, Siguröur Ingason og Amar E. Gunnarsson höfðu 2,5 v. í opnum flokki hafði Friðgeir Hólm unnið allar sínar skákir, hafði 5 v. Láms Knútsson og Frið- rik Egilsson höfðu 4,5 v. og Harald- ur Haraldsson hafði 4 v. Helgi Áss Grétarsson er helsti keppinautur Júlíusar um sigur- launin, 65 þúsund krónur, og titil- inn „skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur 1992“. Helgi er mikill baráttumaður við borðið og sumir hafa nefnt hann „íslenskan Agde- stein“ enda margt líkt með þeim tveimur. Helgi er markvöröur í unglingalandshðinu í knattspymu en í skákinni vih hann heldur sækja, eins og norski félagi hans. Hér sjáum við árangursríka sókn eftir vinstri kantinum úr skák í flmmtu umferð. Hvítt: Halldór G. Einarsson Svart: Helgi Áss Grétarsson Katalónsk byrjun 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. Bg2 Be7 5. Rf3 0-0 6. 0-0 b6 - en Helgi Áss veitir honum harða keppni fft <>*« J Helgi Ass Grétarsson er markvörður í unglingalandsliðinu f knattspyrnu að sækja. en við skákborðið líkar honum betur DV-mynd JAK Með þessum leik skiptir svartur yfir í drottningarindverska vöm en afbrigðið eftir 7. cxd5 exd5 8. Rc3 er áhtið eihtið hagstæðara hvítum. Hahdór fer rólegar í sakimar og svartur jafnar taflið. 7. Re5 Bb7 8. b3 Rbd7 9. Bb2 Dc8 10. Rd2 c5 11. cxd5 Rxd5 12. Rxd7 Dxd7 13. dxc5 Bxc5 14. Re4 Be7 15. Dd4 f6 16. Hfdl Had8 17. Rc3 Bc5 18. Dc4 DÍ7 19. Rxd5 Bxd5 20. Bxd5 exd5 21. Dh4 Svartur hefur fengið stcikt peð á d5 en virk staða hans ætti að vega upp á móti. í síðasta leik virðist 21. Dd3 eðlilegra. 21. - Hfe8 22. e3 Dg6 23. Da4!? h5! Hleypur upp eftir vinstri kanti! Svartur kærir sig kollóttan um a- peöið; eftir 24. Dxa7 h4 og upp- skipti á g3, vofir yfir fóm á e3. En 24. Ba3 hefði dregið vígtennumar úr svörtum. 24. Bd4 Bd6!? 25. Bb2?! Hvítur hefði mátt láta slag standa og þiggja fómina. Eftir 25. Dxa7 h4 26. Dxb6 hxg3 (26. - h3 27. Db5 De4 28. Dfl) 27. hxg3 er ekki að sjá að fóm á g3 gefi svörtum vinnings- færi. 25. - Bb8 26. Dc6? Tapleikurinn. Eftir 26. Hacl He4 27. Hd4 heldur hvítur stöðunni saman. 26. - h4! 27. Hxd5 hxg3 28. hxg3 28. - Hc8! Trúlega hefur hvítum sést yfir þennan millileik áður en svartur fómar á g3 sem gerir gæfumuninn. Umsjón Jón L. Árnason 29. Db7 Bxg3! 30. Kfl Bxf2! 31. Hd7 Dgl + 32. Ke2 Hxe3 + 33. Kd2 Bel + Og hvitur gafst upp. Rennum loks yfir stutta skák úr fimmtu umferð þar sem vafasamt byrjunarafbrigði varð svörtum að falli. Hvitt: Benedikt Jónasson Svart: Áskell Örn Kárason Spænskur leikur. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 f5 Sjaldséð afbrigði sem hefur ekki hlotið náð fyrir augum fræði- manna. Benedikt bregst rétt viö. 5. d4 exd4 6. e5! Bc5 7.0-0 Rge7 8. De2 Samkvæmt byijanabókum er 8. Bb3 nákvæmari leikur en þá er hvítur reiðubúinn að svara b7-b5 með a2-a4 að bragði. 8. - b5 9. Bb3 Ra5 10. Rbd2 d5?! Eftir 10. - Bb6 11. Rg5? Rxb3 12. Dh5+? g6 13. Dh6 Rc5 14. Dg7 HÍ8 15. Rxh7 Re6 (Pachman - Hromadka 1944) rann sókn hvíts út í sandinn en 11. a4! gefur hvítum von um fmmkvæði. 11. exd6 frhl. Dxd612. Hel h613. Re5! Svartur er kominn í mestu vand- ræði. Hvítur hótar 14. Rf7 og einnig 15. Dh5+ og rústa stöðunni. 13. - Rxb3 14. Rxb3! Bb4 Ef 14. - 0-0 15. Rxc5 Dxc5 16. Rd3 og síðan fellur riddarinn á e7 og 14. - KfB (beint gegn 15. Dh5+) strand- ar á 15. Rxc5 Dxc5 16. Rg6+! Rxg6 17. De8 mát. 15. c3! dxc3 16. Dh5+ g6 17. Rxg6 Be6 18. Rxh8+ Kd7 19. Rf7 cxb2 20. Bxb2 - Svartur gaf. Taflfélag Kópavogs Haustmót Taflfélags Kópavogs, sem hefst 22. október nk. verður nú með breyttu sniði. Aðeins verða tefldar sex umferðir og stendur mótið í fjóra daga - hefst á fimmtu- degi en lýkur á sunnudegi. Um- hugsunartími verður 90 mínútur á 30 fyrstu leikina og síðan 30 mínút- ur til að ljúka skákinni. Skráning á mótsstað og í síma TK á miöviku- dögum og laugardögum og er öllum heimil þátttaka. Vetrarstarf TK er nú komið á fulla ferð en öll starfsemi félagsins fer nú fram í húsnæði þess að Hamraborg 5. Hraðmót (5-15 mín- útna umhugsunartími) verða á miðvikudögum kl. 20 og á laugar- dögum kl. 14 í vetur. Unglingaæf- ingar veröa á þriðjudögum kl. 17 og á sunnudögum kl. 14 og hefst starfið á morgun, sunnudag 4. okt- óber. Áhersla verður lögð á að veita viðurkenningar fyrir bestan árang- ur í mótum og einnig fyrir ástund- un. Einnig verður stefnt að því að standa að fjölteflum, sveitakeppn- um milli skóla o.fl. Haustmót ungl- inga hefst síðan sunnudaginn 1. nóvember kl. 14. Fleira verður á dagskrá félagsins í vetur. Fyrirhugaö er atskákmót 1 samvinnu TK, Taflfélags Hafnar- fjarðar og Hellis í nóvember. Ungl- ingameistaraót íslands, 20 ára og yngri, verður haldið í Hamraborg- inni 5.-8. nóvember. Þá hyggst TK gefa út veglegt blað í október/nóv- ember. Aðalfundur Taflfélags Kópavogs verður haldinn nk. fimmtudag, 8. október, kl. 20 og eru félagar hvatt- ir til að mæta og taka þátt í umræð- um. -JLÁ ( í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.