Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1992, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1992, Síða 31
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992. 43 „Tákn læknisfræðinnar hefur um aldir verið slangan," sagði Tjörvi. „Gömlu faraóarnir báru um enni sér skartgripi í slöngulíki og víða í gröfum fornra Egypta hafa fornleifafræðingar rekist á slöngumyndir sem verja skyldu hinn dána. „Þetta eru skrítin vístndi," sagði ein konan á fyrirlestrinum. „Er ekki ormurinn tákn um karlveldið í læknastétt. Þið eruð allir eins og slöngur í laginu, lævisir eins og þær og með eina slöngu hang- andi framan á ykkur.“ , Læknisfræöin í grískri goðafræði Tjörvi læknir hefur um langt skeið verið mikiU áhugamaöur um gríska goðafræði og sögu læknis- fræðinnar. Hann uppgötvaði ungur að spekingslegar athugasemdir og tilvitnanir í sígildar bókmenntir fomþjóðanna vekja alltaf mikla að- dáun. Ungir hjúkmnar- og lækna- nemar horfðu á Tjörva lotningar- augum þegar hann þuldi nöfn sem ættuð vom úr grárri grískri forn- eskju. Sjaldnast vissi hann hvað nafhið þýddi eða kunni söguna bak við heitið en það kom aldrei að sök. „Best er að vita pínulítið um eitt- hvað sem enginn kann neitt um. Þá halda allir að maður sé vitrari en raun ber vitni,“ sagði hann eitt sinn brosandi við geðlækninn sinn. Á námsámm sínum tókst Tjörva nokkmm sinnum að fá konur upp í til sín með því að horfa djúpt í augu þeirra og segja: „Mér finnst þú sláandi lík Afródítu." Stúlkumar héldu að Afródíte þessi væri söngkona í nýrri rokk- hljómsveit og smeygðu sér úr fotun- um og andvörpuðu. Eitt vor varTjörvi beðinn að halda fyrirlestur á vegum kvenna í heil- brigðisstétt um konur í grískri goða- fræði. Tjörvi varð við þessari bón. Hann mætti til fundarins, skartbú- inn að vanda með laxableikt shpsi skreytt myndum af nöktum skógar- meyjum. Hópur kvenna á öllum aldri var kominn tíl fundar og heUs- uðu þær Tjörva með kurteislegu lófaklappi. Upphaffarsótta „Þegar Promeþeus hafði stohð eld- inum frá guðunum varð Seifur æva- reiður,“ sagði Tjörvi í upphafi máls síns. „Hann sendi því eggjandi konu að nafni Pandóra á fund eldþjófsins. Hún reyndi að fá hann til fylgilags við sig en Prómeþeus vUdi ekki þýð- ast konuna. Bróðir hans, Epimeþe- us, var á hinn bóginn tU í tuskið og giftist Pandóra. í brúðkaupsgjöf gaf hún manni sínum faUega öskju sem hánn opnaði. Þá flugu út aUar heimsins farsóttir og plágur sem síðan hafa herjað á mannkynið. Epimeþeus flýtti sérþáaðlokaöskj- unni en þá var vonin ein eftir á botn- inum. Honum tókst því einungis að geyma vonina (Elpis) í öskjunni, voninaumbata.“ , Tí örvi þagnaði og leit tómlega út ísalinn. „Þannig má segja að allar farsóttir séu frá Pandóra þessari komnar.“ Konurnar horfðu á hann í for- undran. „Þetta er karlremba á háu stigi,“ sagði sjúkrahði nokkur, stundar- hátt. „Pandóra er greinUega fórnar- lamh Seifs og gerist sendiboði hans. Á læknavaktinni Óttar Guðmundsson læknir Sjálf vissi hún ekkert af þessum klækjabrögðum svo að hún var sak- laus eins og konur reyndar eru aUt- af í þessu lævísa karlmannasamfé- lagi.“ Að vanda var Tjörvi bæði yfir- horðslegur og Ula lesinn í fræðunum og gat því aUs ekki svarað konunni sem skyldi. Hann lét því athuga- semdina sem vind um eyra þjóta en héltáfram. Slanganertákn læknisfræðinnar „Tákn læknisfræöinnar hefur um aldir verið slangan," sagði Tjörvi. „Gömlu faraóamir bára um enni sér skartgripi í slöngulíki og víða í gröfum fomra Egypta hafa forn- leifafræðingar rekist á slöngumynd- ir sem veija skyldu hinn dána. Egypski læknisguðinn Sarapis var slöngmn skreyttur, enda þótti orm- urinn hafa græðandi lækningamátt sem sést best á hæfni hans til að hafa hamskipti. Flestir lækninga- guðir bæði Rómveija og Grikkja bára slöngu eða orm með sér hvert sem þeir fóra. Merki nútímalæknis- fræði er slanga sem hringar sig utan umstaf." Ein kvennanna var óróleg. „Þetta era skrítin vísindi," sagði hún. „Er ekki ormurinn tákn um karlveldið í læknastétt. Þið eruð aU- ir eins og slöngur í laginu, lævísir eins og þær og með eina slöngu hangandi framan á ykkur.“ AUar konumar í salnum hlógu hátt en Tíörvi roðnaði og var að vanda svarafátt. Pallas Aþena og fleiri „Pallas Aþena er taUn hafa fundið upp læknisfræðina og er vemdari hennar. Hún ber slöngu til merkis um gott heUsufar sitt. Hún steig al- sköpuð út úr höfði Seifs við alvæpni svo að hún var kjarnorkukona. Þeg- ar Seifur skyldi verða léttari var höfuð hans klofið í tvennt til að hleypa Pallas Aþenu út, enda hafði hann engan annan fæðingarveg.“ Tiörvi leit feimnislega á áheyrend- ur sína en engum stökk bros. „ App- olon var guð heilbrigðinnar, enda var sagt að aUir frægir læknar, skáld, tónlistarmenn og listamenn værasynir hans.“ „Þá getur þú ekki verið skyldur honum, Tjörvi,“ sagði ein af konun- umog salurinnhló. „Systir Appolons hét Artemis en hún var verndarguð veröandi mæðra og guð kvenlegrar fijó- semi,“ hélt Tjörvi áfram. „Sonur Appolons kallaðist Asklepios. Hann nam læknisfræði hjá þekktum lækni sem Keiron hét. Sá var kentár eða hálfur hestur og hálfur maöur. „Það hefur verið erfitt að koma honum í slopp," sagði ein af konun- um úr hreingerningadeUdinni og hló. „Keiron var líka unnandi góðrar tónhstar svo að hann hafði ýmsa hæfileika sem eru sjaldgæfir meðal lækna á okkar tímum. Asklepios þótti svo frábær læknir að sfjórn- endur ríkis dauðra kvörtuðu yfir minnkandi aðsókn til sín vegna að- gerða þessa færa doktors. Þá var hann snarlega drepinn af Seifi sem leist ekkert á þessi afrek læknisins." „Læknamir á minni deUd þurfa líka að óttast shk örlög. Þeir era svo duglegir að lækna,“ sagði ein af kon- unum sem vann á skurðdeUdunum. „Einnig læknamir mínir á lyfja- deUd,“ sagði önnur, „þeir hafa hrifs- að margan úi' klóm dauðans," bætti hún við á skáldlegan hátt. „Mínir læknar á geðdeild þurfa ekki að óttast refsingu guðanna. Þeir hafa aldrei læknað nokkum mann,“ sagði feitlaginn sjúkraUði afgeðdeUdunum. „ÆUaröu ekki að segja okkur eitt- hvað um Hippókrates?" Tiörvi ákvað þá að hætta þessu spjalU, enda var hann að vanda Ula fyrirkallaður og hörmulega undir- búinn. Hann gat ekki áttað sig á því hvemig krati þessi Hippokrates hefði verið. Hann kastaði kveðju á sahnn, fékk sér kaffttár og laumað- ist á brott undir daufu lófaklappi. TIL SÖLU Volvo F 12 vöruflutningabíll, yfirbyggður '80, og húsbíll GMC van '79, 24 feta frystigámur með Polar frystivél, 4 sænskar tölvustýrðar færarúllur og Baader flatningsvél 440 '81, netaspil og netaafdragari fyrir 20-30 tonna bát. Uppl. í síma 96-61952 og 96-61052. Verktakar Höfum til sölu úr þrotabúi eftirtalin tæki: - ABG-Werke GmbH, valtari, árg. 1972. - ABG-Alexander-130, valtari, árg. 1984. - Barber-Green, malbikunarvél SB-140. - 3 stk. Lada bifreiðar í slæmu ástandi. Óskað er eftir skriflegum tilboðum í framangreindar eignir. Tilboðum skal skilað til skrifstofu undirritaðra fyrir 9. október 1992. Myndir af tækjunum og frek- ari upplýsingar á skrifstofunni. Lögmenn sf. Bæjarhrauni 2 Hafnarfirði sími: 653222 Útboð Vesturlandsvegur um Hellistungur Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagn- ingu 5,0 km kafla á Vesturlandsvegi um Hellis- tungur. Helstu magntölur: Fyllingar og burðarlag 115.000 m3, rofvarnir 5.000 m3, skeringar 45.000 m3, þar af farvegsskurðir 38.000 m3. Gerð farvegsskurða og varnargarða skai lokið 1. júní 1993 en verki í heild skal lokið 15. okt- óber 1993. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi og Borgartúni 5, Reykjavík (aðal- gjaldkera), frá og með miðvikudeginum 7. okt- óber 1992. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 19. október 1992. Vegamálastjóri Greiðsluáskorun Sýslumaðurinn Siglufirði skorar hér með á gjaldend- ur, sem ekki hafa staðið skil á gjöldum sem voru álögð 1990, 1991 og 1992 og féilu í gjalddaga 15. sept. 1992 og eru til innheimtu hjá ofangreindum innheimtumanni, að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá birtingu þessarar greiðsluáskorunar. Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, útsvar, eignaskattur, sérstakur eignaskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðn- aðarmálagjald, lífeyristryggingagjald samkvæmt 20. gr. laga nr. 67/1971, slysatryggingagjald atvinnurek- enda samkvæmt 36. gr. sömu laga, atvinnuleysis- tryggingagjald, kirkjugarðsgjald, gjald í fram- kvæmdasjóð aldraðra, sérstakur skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, launaskattur, bifreiðaskattur, slysatryggingagjald ökumanna, þungaskattur sam- kvæmt ökumæli, viðbótar- og aukaálagning sölu- skatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskattur og miðagjald, virðisaukaskattur af skemmtunum, trygg- ingagjald af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, vinnueftirlitsgjald, vörugjald af innlendri framleiðslu, aðflutningsgjöld og útflutningsgjöld, verðbætur á ógreiddan tekjuskatt og verðbætur á ógreitt útsvar. Jafnframt er skorað á gjaldendur að gera skil á virðis- aukaskatti fyrir 24. tímabil 1992, með eindaga 5. ágúst 1992 og staðgreiðslu fyrir 8. tímabil 1992, með eindaga 15. september 1992, ásamt gjaldfölln- um og ógreiddum virðisaukaskattshækkunum, svo og ógreiddri staðgreiðslu fyrir fyrri tímabil, einnig fasteignagjöldum, sem voru álögð 1992 og eru fallin í gjalddaga ásamt eldri ógreiddum fasteignagjöldum. Athygli er vakin á því að auk óþæginda hefur fjár- námsgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir gjald- anda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að kr. 10.000,- fyrir hverja gerð. Þinglýsingargjald er kr. 1.000,- og 1,5% af heildarskuldinni greiðist í stimpilgjald, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur því hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Siglufirði, 25. september 1992 Sýslumaðurinn Siglufirði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.