Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1992, Page 52
Ln
Om
Oi
~\l!
o;
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992.
Héraösdómur Reykjaness: hefur
dœmt 23 ára Hafnfirðing, Hilmar
Ögmundsson, í 4 ára fangelsi fyrir
tilraun tU mamtdráps með því aö
stinga 25 ára íbúa raðhúss aö
Smyrlahrauni með stórum eidhús-
hnífi 16-18 cm inn i brjósthol aðf-
aranótt föstudagsins 3. apríl síð-
astliðins. Árásin var tilefnislaus og
gat sakborningurinn ekki gefiö
skýringu á hvötum á bak við hana.
Hann benti þó á aö síðustu ár fyrir
atvikið hefði hann verið sprautaö-
ur með hormóna- og steralyflum
eflir ávísun frá lækni. Guðmundur
L. Jóhannesson héraösdómari
kvað upp dóminn.
Hiimar, fórnarlambið og þriðji
aðili voru orðnir verulega ölvaöir
og sátu að drykkju þegar atburður-
inn átti sér stað á Smyrlahrauni.
Mennimir voru að horfa á kvik-
myndina Iicense to kill þegar
Hilmar fór fram í eldhús og sótti
hnif. Nokkru síöar lagði hann til
gestgjafans. Hnífurinn gekk 16 18
cm inn i bijóstið. Maðurinn lá með-
vitundarlaus nokkra stund áður en
hringt var til lögreglu en það geröi
sakbomingurinn sjálfur. Hann
flúöi af vettvangi en náðist síðar.
Hnifstungan var lífsliættuleg og
var maðurinn 5-6 vikur á eftir á
sjúkrahúsi að jafna sig.
Hilmar gat ekki skýrt hvaða
hvatir hefðu legið að baki verknað-
inum en kom því á framfæri við
skýrslutökur að hann heföi spraut-
að sig með hormóna- og steralyfj-
unum testavion og primabola frá
árinu 1988 - meö innihaldi tveggja
250 mg hyikja á viku í allt að 6 vik-
ur i senn en siðan hvílt sig í 6 vik-
ur. Þetta var til aö efla vöðvaaflið
í krafflyftingum og líkamsrækt.
Hann kvaðst hafa veitt því athygli
að eftir að neyslan hófst hefði hon-
um bætt til að missa stjóm á skapi
sínu, aðallega undir áhrifum áfeng-
is - hann heföi oröið miklu hömlu-
lausari en áöur. Megniö af lyfiun-
um keypti maðurinn í lyfjaversiun
eftir ávísun frá lækni. Læknirinn
hafði svo sprautað hann meö vissu
millibili. Hilmar varðveitti kvittan-
ir um heimsóknir sínar til hans og
færslur í dagbók. Gögn um þetta
voru lögð fram í málinu. -
í niðurstöðu lækna vegna rann-
sóknar málsins kom fram aö ekki
væri hægt að útiloka að notkun
Hilmars á anabólískum sterum
heföi haft etnhver áhrif í þeirri
ti-uflun sem leiddi til hnifstung-
unnar. Þó væri útilokað að meta
vægi þeirrar neyslu gagnvart
áfengisneyslu og langvarandi per-
sónuleikatruflunum. Líklegast
heföi þá verið um samverkandi
áhrif allra þátta að ræða.
Hiimar hefur verið í gæsluvarð-
haldi frá 3. apríl. Málinu hefur ekki
verið áfrýjað ennþá og hefur hann
verið úrskurðaður í áframhaldandi
gæsluvarðhald til 30. apríl. Sá úr-
skurður var kærður til Hæstarétt-
ar. Fangelsisafplánun hefst ekki
nema fyrir liggi að hvorki rikissak-
sóknari né sakborningurinn áfrýi
málinu. Gæsluvarðhaldið mun síö-
an dragast frá afþlánunínni.
-ÓTT
Röntgentæknar:
Enginn f undur
v">
verið boðaður
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
röntgentæknar og vinnuveítendur
þeirra hittast á ný til að reyna að ná
samkomulagi um vinnutíma en eins
og kunnugt er létu röntgentæknar á
Borgarspítala og á Rikisspítulunum
af störfum um mánaðamótin.
„Þeim stendur til boða að hefja
vinnu og við munum ekki gera nein-
ar ráðstafanir til að breyta vinnutim-
anum meðan við bíðum eftir því að
samið verður um þetta. Það er ljóst
að það verður að semja,“ sagði Davíð
Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítal-
anna.
NSK
KULULEGUR
SuðurlMKtobraut 10. 8. 6864M.
Ákærð fyrir
aðdeyða
barn sitt V
Jörð skalf og úr giljum hrundi möl þegar jötnarnir Magnús Ver Magnússon og Gerrit Badenhorst tókust á við
Gullfoss í gær. Ásamt átta kraftakörlum taka þeir þátt i keppni um titilinn sterkasti maður heims. Keppninni lýkur
síðdegis í dag en áður verða karlarnir að sýna sig hæfa til kraftaverka, meðal annars að hlaupa með Húsafells-
helluna og draga flugvél. DV-mynd GVA
- sjá nánar á bls. 19
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur konu af Suðurnesj:
um en henni er gefið að sök að hafa
deytt nýfætt barn sitt á fyrstu dögum
þessa árs. Máhð var þingfest í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær. Már Pét-
ursson héraðsdómari hefur málið til
meöferðar og verður þingað fyrir
luktum dyrum.
Konan er ákærð fyrir brot á 212.
grein almennra hegningarlaga. Þar
segir orðrétt:
„Ef móðir deyðir bam sitt í fæðing-
unni eða undir eins og það er fætt,
og ætla má að hún hafi gert það vegna
neyðar, ótta um hneisu eða sökum
veiklaðs eða ruglaðs hugarástands,
sem hún hefur komist í við fæðing-
una, þá varðar það allt að 6 árum.
Ef aðeins er um tilraun að ræða,
og bamið hefur ekki beðið neitt tjón,
má láta refsinguna falla niður.“
Lögregluraimsókn málsins hjá
RLR leiddi í ljós að móðirin kæföi
bamið. Hún gekkst við athæfi sínu
viðyfirheyrslur. -ÓTT
LOKI
Spurninginer hvort
Magnús vertitilinn!
Veður á sunnudag og mánudag:
Hætt við næturfrosti
Á sunnudag verður vestan- og suðvestanátt, skúrir sunnanlands og vestan en þurrt austan- og norðaustan til. Á mánudag verður hæg breytileg
eða vestlæg átt. Smáskúrir verða við vesturströndina en þurrt og léttskýjað annars staðar, fremur svalt og hætt við næturfrosti.
Veörið í dag er á bls. 61
!
í
í
i
!
!
!
!