Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1992, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1992.
19
A P T 0 N
Einfalt • auðvelt • handhægt
Smíðakerfi
sniðið f/rir hvern og einn
Helgarpopp
Hljómsveit
gefurútblað
Síðan skein sól tekur ekki þátt
í plotuslagnuni fyrir þessi jol
Hljómsveitin hefur síðan í sept-
ember verið að vhma nýtt efhi á
stóra plötu fyrir erlendan mark-
að. Sólin, sem ekki hefur gefið
ut plötu i meira en ár, ætlar að
rækta sambandið við aödáendur
sína í gegnum nýjan miðil nu í
desembcr. Síöan skein sól ætlar
nefnilega aö gefa út 24 síðna blað
sem verður allt í senn dónalegt,
rokkað og listrænt
Helgi Bjömsson, söngvari
hljómsveitarinnar, segir vonir
standa til aö blaöiðkomi út i byij-
un næsta mánaöar. Því hefur
verið gefið nafnið SS Sól en það
nafh notar Síöan skein sól utan
landsteinanna. Ýmsir þekktir
skríbentar munu skrifa í blaðið
og ljósmyndarar kynna list sína
á síðum þess.
í fyrsta skipti á íslandi fylgir
kaupbætir í fornn geisladisks
með blaði en sá háttur er stund-
um haföur á erlendis. Geisla-
diskinn munu prýða tvö ný lög
Sólarinnar. Annað ku vera rapp-
aður rútubílasöngur til heiðurs
Önnu og útlitinu og kallast það
Toppurinn að vera í teinóttu. Hitt
heitir Blómin sofa. Þessl lög tók
hljómsveitin upp í haust i sam-
vinnu við Eyþór Amalds úr
Todmobiie.
Hljómsveitin Orgill
- nafn með 1001 merkingu
„Þetta byijaði fyrir þremur ámm
sem órafmagnað djamm í stássstofu
á Njálsgötunni. Stuttu síðar stimgum
við í samband og þá var ekki aftur
snúið." Þannig lýsir trymbillinn Ing-
ólfur Sigurðsson tilurð hljómsveitar-
innar Orgils sem vakið hefur athygli
fyrir forvitnilegar lagasmíðar á und-
anfómum missemm. Þrátt fyrir að
hljómsveitin hafi starfað síðan 1989
era aðeins nokkrir dagar síðan fyrsta
plata hennar kom á markað. Orgill
er að sögn Ingólfs nýyrði með þúsund
og eina merkingu. Nafnið hefur vak-
ið athygli en það mun vera útbreidd-
ur misskilningur hjá fólki að Orgill
sé þungarokkshljómsveit. Sú er
hreint ekki raunin.
Gera alltsjálf
Orgil skipa Hanna Steina söng-
kona, Hermann Jónsson hassaleik-
ari, Ingólfur, Kolli gítarleikari og
Biff Burger sem leikur á hljómborð.
Saman hafa fimmmenningamir
hamið skáldafákinn og leitt hann á
nýjan bás. Tónlist Orgils er nefnilega
ólík flestu því sem íslenskar hljóm-
sveitir hafa verið að gera undanfarin
ár. Trommuleikurinn er óheftur og
spunakenndur, gangandi bassalínan
er ágeng, afrísk sveifla setur svip á
gítarinn og rödd Hönnu Steinu flæðir
sem eitt af hljóðfærunum.
„Sumir heyra Police-áhrif í tónlist-
inni og aðrir áhrif frá King Crim-
son,“ segir Ingólfur. „Ég er ekki dóm-
bær á hvort þetta er rétt. Við leggjum
hins vegar mikið upp úr sándi og því
að gera eitthvað nýtt. Kolli og Sigurð-
ur Bjóla upptökumaður eyddu mikl-
um tíma í sándpælingar og þeir eiga
mestan heiður af því hvemig platan
hljómar. Hljómuriim bindur efnið
saman því platan sem slík saman-
stendur af ólíkum þáttum en hún
nær því samt að vera heilsteypt.“
Orgill hélt útgáfutónleika I Tunglinu um miðjan mánuðinn. Þar vakti htjóm-
sveitin mikla lukku fimm hundruð áheyrenda.
Það vekur athygli við þennan
frumburð Orgils að fáir koma nálægt
framleiðslu hennar aðrir en Orglam-
ir fimm. Þeir gáfu plötuna út sjálfir,
hönnuðu umslag, gera myndband og
sjá um alla kynningu.
Einn hattur
„Við reyndum að fá útgefendur og
ræddum meðal annars við stóm fyr-
irtækin tvö,“ segir Ingólfur. „Þeir
samningar sem okkur vom boðnir
vom lélegir brandarar og því ákváð-
um við að gera þetta sjálf. Reyndar
er menningarfélagið Einn hattur
skrifað sem útgefandi en það er fé-
lagsskapur ungra listamanna sem
við tökum þátt í. Þetta merka félag
hefur staðið fyrir alls kyns listuppá-
komum og flutti m.a. inn franskt
ska-reggy band í síðustu viku.“
Orgill tengist Frakklandi ákveðn-
um' böndum því hijómsveitin fór í
tæplega mánaðar tónleikaferð til
Frakklands í árbyijun 1991. í þeirri
ferð tók bandið út mikinn þroska.
Það hristist saman og varð að heild.
Reyndar höfðu piltamir fiórir verið
saman í hljómsveitinni Rauðir fletir
sem vakti athygli fyrir nokkrum
árum og þekktust þvi vel. Þeir vom
heldur ekki ókunnugir Hönnu Steinu
sem er af miklu söngfólki komin.
Systkin hennar em Sigrún Hjálmtýs-
dóttir og Páll Óskar Hjálmtýsson.
Eftir Rauða fleti barði Ingólfur Sig-
urðsson húðir með Síðan skein sól í
nokkur ár eða þar til í byijun þessa
árs að hann tók Orgil fram yfir Sól-
ina. Þá hafði hann verið samtímis í
sveitunum tveim.
„Ég sá að Sólin var á ákveðnum
tímamótum, verið að skipuleggja upp
á nýtt. Síðan skein sól hafði alltaf
gengið fyrir Orgli og því var orðið
tímabært fyrir mig að velja á milli.
Mér fannst skemmtilegri hlutir í
gangi í Orgli. Þess vegna valdi ég
hana.
Þessi fyrsta plata Orgils heitir eftir
skapara sínum. Platan var tekin upp
á 250 tímum í sumar en lögin 11 dreif-
ast nokkuð jafiit á árin þijú sem
sveitin hefur starfað. Þau gefa því
nokkuð góða mynd af viðfangsefnum
Orgils í þijú ár. Ingólfúr segir sveit-
ina alltaf vera leitandi og platan sýni
því fiölbreytilegt þukl og þreifingar.
USTASNDMM
Litríkur lager
Mý sending -
fallegir litir
fyrir leir,
trölladeig
og fleira.
Listasmiðjan
Korðnrbraut 41, Hafnar&rði,
sími 652105
IVóatúni 17, sími 623705
étaéndoj
0DEXION SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI31 • SÍMI 62 72 22
Ný dönsk flýgur hærra
„Hijómsveitin er ekki að hætta,“
sagði Bjöm Jörundur Friðbjömsson,
bassaleikari Ný danskrar, við blaða-
mann þar sem hann virti fyrir sér
umslag nýrrar plötu sveitarinnar. Á
því em sveitarmeðlimir í líki fljúg-
andi engla með gullna hliðið sem
áfangastað.
„Myndin og nafnið á plötunni era
að öllu leyti hugarsmíð Guðmundar
Karls Friðjónssonar sem hannaði
umslagið. Hann bar hugmyndina á
borð fyrir okkur í haust áður en plat-
an var tekin upp. Okkiir fannst hún
góð og keyptum hana strax,“ bætir
Bjöm við.
Nýrhljómur
Hijómsveitin Ný dönsk hélt utan
til Englands seinni hlutann 1 sept-
ember þar sem hún dvaldist innan
Umsjón:
Snorri Már Skúlason
um ær og kýr á sveitasetri í Surrey.
Setrið er vel tækjum búið til hljóðrit-
unar og á átján dögum töfraði hljóm-
sveitin ásamt upptökumanninum
Ken Thomas fram tíu lög á nýja plötu
sem heitir Himnasending. Allir
hijómsveitarmeðlimir eiga lag á
Himnasendingu en slíku hefur ekki
verið að heilsa á fyrri plötum hljóm-
sveitarinnar. í fyrra sendi Ný dönsk
frá sér plötuna Deluxe og bar hún
nafn með rentu. Það gerir Himna-
sending á vissan hátt líka. Plötumar
eru ólíkar þó þær séu skyldar. Eins
og epli af sama trénu sem þó falla
sitt hvorum megin girðingar. Deluxe
var tekin læf upp á tíu dögum við
allt að því frumstæð skilyrði á meðan
Hljómsveitin Ný dönsk.
nostrað var við Himnasendingu í
hljóðveri á heimsmælikvarða. Það
er því gaman að bera þessa tvo gripi
saman.
Aðspurður segir Daníel Ágúst Har-
aldsson söngvari það ekki hafa plag-
að hljómsveitina á nokkurn hátt að
þurfa að fylgja Deluxe plötunni eftir
þrátt fyrir að hún hafi verið hiaðin
lofi. Og Bjöm Jörundur bætir við:
„Ef hljómsveit getur ekki staðið
undir því að fyigja góðu verki eftir_
þá á hún ekki skilið að vera til. De-
luxe var komin og við urðum að
halda áfram. Deluxe átti að vera hrá
og ekta og það gekk upp. Vinnan við
Himnasendingu var allt öðmvísi. Við
vomm með hugann svo mikið við
utanferðina, tilstandið og fyrirhöfn-
ina að við höfðum einfaldlega ekki
tíma til að hafa áhyggjur af útkom-
unni.“
Daníel segir undirbúning fyrir
upptökur þessara tveggja platna hafa
verið mjög áþekkan. Farið í æfinga-
búðir og pælt sameiginlega í laga-
smíðunum og útsetningum. Eins og
á Deluxe spilaði hljómsveitin allt efn-
ið inn saman og svo var byggt ofan
á það.
Bjöm segir plötumar tvær í grund-
vallaratriðum ekki ósvipaðar þó að
hijómurinn á þeirri nýju sé í raun
nýr. Hann getur ekki rökstutt þenn-
an meinta skyldleika en segir hann
hyggðan á tilfinningu.
Á huglægum nótum
- Um hvað syngur Ný dönsk á nýju
plötunni?
„Þemað, ef það er nokkuð, tengist
huglægum hlutum. Við erum að
teikna myndir og sefia fólk í ný hlut-
verk. Við gerum stúlku að hiébarða
og skyifium konur í gegnum nef.
Þannig brjótum við gömul gildi þvi
að í söngvum um fagrar fraukur hef-
ur fyrst og fremst verið skírskotað
til augnanna," segir Daníel.
Ný dönsk spilaði á nokkrum klúbb-
um í Englandi í haust og eftir áramót
stefnir bandið á að komast út aítur.
Hljómsveitin tók upp enskar útgáfur
af þremur lögum á Himnasendingu
og ætlar að kanna hvemig sá
skammtur fer í Tjailann. Jakob Frí-
mann Magnússon, menningarfuil-
trúi í London, vinnur ötvdlega að
kynningarmálum ytra fyrir Ný
danska eins og fiölmargar aðrar ís-
lenskar hljómsveitir.
Fram að jólum mun hfiómsveitin
hins vegar kynna nýju afurðina vítt
og breitt um landið. Ný dönsk hefur
þegar troðið upp fyrir vestan og á
Suðurlandi auk höfuðborgarsvæðis-
ins og í kvöld verður Akureyringum
boðað fagnaðarerindið sem Himna-
sending hefúr að geyma.