Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1993, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1993, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993. Fréttir Réttarhöld í máli fyrrum aðstoðarútsölustjóra ÁTVR í héraðsdóml 1 gær: Veit ekki hve mikla fjármuni hann dró sér - ákærður fyrir 23 milljóna flárdrátt sem ÁTVR fer fram á að fá í skaðabætur „Þetta er hreinlega meö ólíkindum en svona er þetta nú,“ sagði Arnar Guömundsson, deildarstjóri hjá RLR, í sóknarræöu sinni í héraös- dómi í gær þar sem þinghaldi lauk í máli ákæruvaldsins gegn Þorkeli Einarssyni, fyrrum aðstoöarútsölu- stjóra ÁTVR við Lindargötu. Arnar vék að því hvemig Þorkell dró sér fé frá útsölunni á árunum 1986-1991. Hann er ákæröur fyrir að hafa dregiö sér rúmar 23 milljónir króna á þessu timabili og krefst ÁTVR sömu upphæðar í skaðabætur í máhnu. Ákærði bar við dómsyfir- heyrslu í gær að hann hefði veriö aö bjarga sér fyrir hom með fjárdrætti sínum en gat ekki gert grein fyrir því hve há fjárhæðin var né ná- kvæmlega í hvað peningamir fóra. Þorkell viðurkenndi að þegar fjár- drátturinn byxjaði hefði ætlun hans verið að greiða það til baka sem hann tók. Síðan hefðu hlutirnir farið úr böndunum - þegar úttektimar urðu fleiri og fleiri gerði hann sér grein fyrir að geta sennilega aldrei staðið í skilum - þetta hefði farið að verða „eins og veltandi snjóbolti". Fjárdrátturinn fór aðallega fram með þeim hætti að hann dró sér and- virði svokallaðra veisluvínstékka úr kassa verslunarinnar. Viðskiptavin- ir, sem fengu stórar pantanir af- greiddar, greiddu þannig með tals- vert háum tékkum, jafnvel andvirði hundraða þúsunda, og fór Þorkell einn höndum um þær. Þegar greitt var fór hann með tékkana í kassann, án þess að stimpla, og skipti þeim í í dórnsalnum Óttar Sveinsson peninga. Til að „dekka“ það sem fór af lagernum setti hann tóma kassa í stæðumar. Við talningu reyndust það vera 217 tómir kassar. Þegar ekki var hægt að hlaöa fleiri tómum kössum í stæðumar svo vel færi breytti Þorkell tölum í uppgjör- um gagnvart ríkisendurskoðun. Um þetta sagði sækjandinn: „Það er kaldhæðnislegt að við þetta vann ákærði í aukavinnu." Þannig passaði bókhald gagnvart lager og það var Þorkell sem hafði umsjón með taln- ingum. Fram kom í héraðsdómi í gær að innra eftirlit ÁTVR var- nánast ekki til fyrr en breytingar vora gerð- ar skömmu áður en allt komst upp. Þorkell var mjög lítið frá vinnu og tók sér t.a.m. engin lögboðin frí á áranum 1987-1988. Ekkert hefur komið fram í málinu um að aðrir hafi vitað um brot Þor- kels, hvorki samstarfsmenn né fjöl- skylda. Faðir hans var útsölustjóri en hann var ekki ákæröur í málinu. Verjandinn, Páll Arnór Pálsson, mót- mælti skaðabótakröfu ÁTVR og kvað hana allt of háa með hliðsjón af því að lagertalning hefði verið ónákvæm og öðram óvissuþáttum sem ekki hefði tekist aö sanna að Þorkell bæri ábyrgð á. Allan Vagn Magnússon héraðsdómari kveður upp dóm í málinu á næstu vikum. Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra óskar Jóni Baldvin Hannibalssyni utanrikisráðherra til hamingju með samþykkt Alþingis á EES-samningnum. Sighvatur handleggsbrotnaði í gærmorgun þegar hann datt á tröppum stjórnarráðsins. DV-mynd GVA Ekkert hefur komið fram um hvort forseti hyggst staðfesta lögin um EES: Vigdís vill halda ríkis- ráðsf und í dag - ég er henni sammála - sagði Davíð Oddsson seint í gærkvöldi Heimildir DV herma að innan rík- isstjómarinnar séu menn órólegir þar sem ekki hggur fyrir hvort Vig- dís Finnbogadóttir, forseti íslands, staðfestir lögin um EES eða hvort hún skýtur málinu til þjóðarinnar. Ríkisstjómin kom saman til fundar í Ráðherrabústaðnum í gærkvöldi. Að fundinum loknum vörðust allir ráðherramir frétta af gangi málsins. Davið Oddsson forsætisráðherra sagði að Vigdísi hefði óskað eftir rík- isráðsfundi og hann sagðist vera henni sammála. Stefnt er að því að fundurinn verði í dag en um mið- nætti í gær sagði Davíð að ekki væri búið að tímasetja fundinn. Þegar Davíð var spurður hvort rétt væri að Vigdís Finnbogadóttir hefði neitað að staðfesta lögin um EES í gær sagði það ekki vera rétt. DV hefur heimildir fyrir því að Jón Bald- vin Hannibalsson hafi lagt áherslu á að forseti staðfesti lögin í gær. Einn þeirra sem DV ræddi við sagði óljóst hvað forseti gerði. Vitað er að hún hefur orðið fyrir miklum þrýst- ingi um að staðfesta ekki lögin. Með- al þeirra sem hafa skorað á hana að gera það ekki, era nokkrir tryggir stuðningsmenn hennar. Fari svo að Vigdís ákveði að vísa málinu til þjóð- aratkvæðagreiðslu þá yrði það í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins sem forseti gerði slíkt - en samkvæmt sfjómarskrá hefur forseti fuUa heim- ild til að vísa málum til þjóðarinnar. Stjómarliðar voru famir að velta þessum málum fyrir sér í gær. Einn þeirra sagði, í samtali við DV, að ef Vigdís staðfesti þá' mundi Davíð Oddsson biðjast lausnar fyrir ríkis- stjómina og boða til kosninga. Mikil spenna er vegna þessa máls og þar til að loknum ríkissráðsfundi, sem sennilega verður í dag, virðist með öllu óljóst hver framvinda EES- málsins verður, það er hvort Vigdís Finnbogadóttír staðfestir lögin eða vísar málinu tíl þjóðaratkvæðis. Davíð Oddsson sagði í gærkvöldi að sjaldgæft væri að ríkisráð kæmi saman þegar lög væra staðfest enda kæmi ráðið venjulega ekki saman nema tvisvar á ári en Davíð sagði þetta stórt mál og þegar forseti hefði óskað eftir fundinum hefði hann strax verið henni sammála. -sme Alþmgi samþykkti a EES-samninginn í gær: Ég stend við það sem ég hef sagt - um efnahagslegan ávinning af EES, segir Jón Baldvin „Ég stend við það sem ég hef sagt. Þetta era ekki nákvæmnivísindi en ég hef verið að meta hagvaxtaráhrif, aukið vinnsluvirði í útflutningi, lægra innflutningsverð, lægri vexti og þannig mættí lengi telja. Það hafa margar stofnanir í okkar þjóðfélagi reynt að leggja mat á þetta, Þjóðhags- stofnun, Seðlabankinn, fjármála- ráðuneytið, Byggðastofnun, fyrir ut- an hagdeildir hinna ýmsu samtaka atvinnuveganna. Það er hægt að deila um forsendumar en þaö getur enginn deilt um að hinn efnahagslegi ávinningur er mikiU og hið efnahags- lega tjón, sem viö hefðum orðið fyrir hefðum við verið fyrir utan, hefði orðið mjög alvarlegt," sagði Jón Baldvin Hannibalsson þegar hann var spurður um hvort hann stæði við það sem hann hefði áður sagt um efnahagslegan ágóða okkar af Evr- ópska efnahagssvæðinu. „Ég er feginn að málið er til lykta leitt á Alþingi. Úrslitin era mjög svip- uð þvi sem ráð hafði verið fyrir gert. Með þessari atkvæðagreiðslu er öll- um efasemdum eytt um vilja okkar til aðildar að Evrópska efnahags- svæðinu, það kemur ekki framar tíl álita að við getum ekki átt aöild að þeirri bókun sem þarf að gera og leggja fyrir þingin vegna brotthvarfs Sviss.“ - Hvaða áhrif mun EES hafa hér á landi fyrst í stað? „Það er ljóst að við verðum að bíða þess fyrst að samkomulag takist um viðbótarbókunina og að hún verði staðfest af öllum þingum þannig að það veröur viðbótarfrestur. Af því bíðum við skaða eins og aörir.“ - En til lengri tíma litíð? „Við getum best metið hver áhrifin hefðu orðið hefðum við lent utan við, sennilega einir Vestur-Evrópuþjóða, á markaði sem tekur viö 80 prósent af okkar útílutningi. Ef viö værum utan tollmúranna en Noregur fyrir innan þá þýddi það djúpa kreppu fyrir íslenskan sjávarútveg. Það myndi dýpka hina íslensku kreppu, auka atvinnuleysið og það er eitt- hvað sem ég hef allan tímann ekki mátt til hugsa,“ sagði Jón Baldvin. Þegar hann var spuröur hvort hann myndi nú takast á við annað ráðherraembættí, það er hvort kom- ið væri að stólaskiptum, sagði hann það opið sem áður og ekkert nýtt vera í því máli. -sme Leikritsuppfærsla Sveins Einarssonar 1 Kaupmannahöfn: Frábærir dómar fyrir leik- sljórn á Afturgöngunum - eftir Henrik Ibsen í Folketeatret Dagskrárstjóri Sjónvarps, Sveinn Einarsson, hefur undanfamar vikur dvalið í Kaupmannahöfn við leik- stjóm verksins Afturgöngumar eftir Henrik Ibsen. Verkið var frumsýnt í byriun janúar og hefur það fengiö einróma lof gagnrýnenda jafnt sem áhorfenda. Öll stærstu blöðin í Danmörku gefa verkinu góða dóma og fara lofsam- legum orðum um leikstjóm Sveins. í Berlingske Tidende er meöal ann- ars sagt að „verkið hafi óvenjusterk áhrif á áhorfandann í leikstjóm Sveins Einarssonar vegna þess hve hann setur efnið fram á skýran og samræmdan rnáta". í Politiken fær Sveinn einnig lof- samlega dóma og Ekstra Bladet gefur verkinu 6 stjömur af 6 mögulegum. Þar er sagt að „framsetning íslenska leikstjórans Sveins Einarssonar og frammistaða 5 frábærra leikara nái verki Ibsens á mikiö flug“. í BT, sem gefur verkinu 5 af 6 mögulegum stjömum, erþví haldið fram að „leik- stjórinn frá Islandi taki á verkinu af umhyggjusemi án málalenginga" og uppfærslan er sú besta sem gagnrýn- andinn hefur séð af Afturgöngunum til þessa. Dómur gagnrýnenda í Jyllands- posten er á svipuðum nótum. „Út- koma verksins er sjaldgæf og ein- hver fallegasta og sterkasta upp- færsla á verki Ibsens sem lengi hefur sést á dönsku leiksviöi.“ ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.