Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1993, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1993, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993. Fréttir Formaður tryggingaráðs vill ekki rannsókn á svikmn eUiheimiIa: Kerf ið hef ur boðið upp á misnotkun - Jón Sæmundur telur bættan hag gamla fólksins réttlæta lyflasvikin „Kerfið hefur verið mjög marg- brotíð og í raun boðið upp á mis- notkun. Þegar mönnum er hins vegar gert að komast af með ákveðna fjárveitingu þá er náttúr- lega ekki ætlast ti) að þeir notfæri sér aðrar leiðir í ríkissjóð til að fjár- magna húsin sín. Menn hafa hins vegar ekki verið að þessu til að auðgast persónulega heldur verið að bæta hag gamla fólksins. Það er því fullsterkt að tala um svik í þessu máli; misnotkun væri nær lagi,“ segir Jón Sæmundur Sigur- jónsson, formaður tryggingaráðs og skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu. í samtali við DV í gær sagði Sig- hvatur Björgvinsson aö elliheimili hefðu ástundað svik með því að hlunnfara Tryggingastofnun vegna greiðslu lyfjakostnaðar. Því verði fjárveitingar til þessara heimila skertar sem nemur svikunum. Að sögn Sighvats er það trygg- ingaráðs en ekki ráðuneytisins að ákveða hvort rétt sé að óska eftir opinberri rannsókn á meintum svikum elliheimila. Jón Sæmund- ur, formaður tryggingaráðs, telur hins vegar afar ólíklegt að ráðið muni óska eftir slíkri rannsókn enda ættu þessi svik nú að heyra sögunni til. „Það ber að fara mjög varlega í þessa hluti. Þessi misnotkun, sem átt hefur sér stað, hefur ekki fahð í sér að menn hafi auðgast persónu- lega. í raun hafa menn verið að hjálpa gamla fólkinu og menn því komist upp með rýmri fjárráð en til var ætiast. Aðalatriðið er að menn haldi réttu róh í framtíð- inni.“ Jón Sæmundur segir óskaplega erfitt að reikna út hversu mikla fjármuni elliheimihn hafi haft af ríkissjóði með því að misnota lyfja- kerfið. Aðspurður segist hann því ekki vita hvernig heilbrigðisráðu- neytið æth að skerða framlög til umræddra öldrunarstofnana. „Það er öldungis ómögulegt að slá á þessa upphæð og sennilega verð- ur hún aldrei reiknuð út. í gegnum tíðina gæti hins vegar verið um nokkuð háar upphæðir að ræða.“ -kaa Ámeshreppur: Heittíhús- magnsleysi Regráa Thoiarensen, DV, Selfossi; Ég talaöi við Jakob Jens Thor- arensen á Gjögri snemma á þriðjudag og var hann þá að koma frá því að taka veðrið. Raf- magnslaust er í Árneshreppi og hefur veriö á IQórða sólarhring. Ekki er von til að breyting verðí á fljótiega þvi mikið er um raf- magnsbilarnir við Hólmavík og vinna þar á fullu. Veðrinu er nú að slota í Árnes- hreppi, þó eru enn sjö vindstig og sjö stiga frost. Jakob segist ekki vita betur en að allir Árnes- hreppshúar séu við bestu heilsu og heitt í húsum þrátt fyrir raf- magnsleysið. Flestir eru með katla til að brenna rekavið. Eldamennska gengur vel og fólk með fjölhæf eldunartæki, allt frá Sólóvélum niður í prímusa og gastæki. Forseti ASÍ eftir fundi meö verkalýösleiötogum á Norðurlandi: Andúð og reiði ríkir í garð stjórnarinnar - einfaldar og fáar kröfur er tónninn í komandi kröfugerö „Á þessum fundum kom fram ein- dregin andúð og reiði í garð ríkis- stjórnarinnar vegna aðgerða hennar. Menn virðast nokkuð sammála um að það verði að takast á við atvinnu- leysið og kjaraskerðinguna jöfnum höndum í komandi kröfugerð. Ein- faldar og fáar kröfur, sem samstaða er um, var tónninn," segir Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, um fundi sem hann sat á Norðurlandi um síðustu helgi með forsvarsmönnum verka- lýðsfélaga. Að sögn Benedikts er hann ánægð- ur með að ríkisstjómin skuli ætla að taka aftur upp endurgreiðslu á virð- isaukaskatti vegna vinnu við íbúðar- húsnæði. Með því sé ríkisstjómin í raun að viðurkenna að útreikningar ASÍ hafi verið réttir. „Þaö má segja að þetta sé góð byij- un en er engan veginn nægjanlegt. Mér þætti betra að þeir skoðuðu líka hinar aðgerðirnar. Þá kæmi vafa- laust í ljós að það er ástæöa til að taka mark á fleiru sem við höfuin sagt. Á mörgum sviðum valda þessar aðgerðir auknu atvinnuleysi." Benedikt er þessa dagana á stjórn- arfundi Norræna verkalýðssam- bandsins í Helsinki. Hann segir að þar hafi menn sameiginlegar áhyggj- ur af vaxandi atvinnuleysi. Menn séu sammála um nauðsyn þess að stjórn- völd á Noröurlöndum grípi til að- gerða til að efla atvinnustigið þrátt fyrir erfiðleika í ríkisfjármálum. Benedikt er væntanlegur til lands- ins á fimmtudaginn. Þá taka við frek- ari fundahöld á landsbyggðinni með forystumönnum launþega. Á föstu- dag og laugardag eru fyrirhugaðir fundir á Vestfjörðum en á sunnudag- inn verður stefnan sett á Suðurland. -kaa í hvassviörinu á mánudag skemmdist festing í álklæðningu í húsi Granda hf. Með aðstoð krana var saltpoki látinn styðja við klæðninguna á meðan viðgerð fór fram. DV-mynd S í dag mælir Dagfari Mistök á mistök ofan Forsætisráðherra gegnir embætti fjármálaráðherra um þessar mundir. Hann hefur notað tæki- færið til að draga aftur þá ákvörð- un fjármálaráðherra að lækka end- urgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnulauna við viðhald húsa. Hann segir að sú ákvörðun hafi verið mistök. Skynsamlegast er fyrir forsætisráðherra aö skoða fleiri ákvarðanir fjármálaráðherra meðan forsætisráðherra er fjár- málaráðherra vegna þess að hugs- anlegt er að hann flnni fleiri mistök sem má leiðrétta. Fjármálaráöherra, sem ekki er íjármálaráðherra meðan hann er í útlöndum, er greinilega ber að mis- tökum meðan hann er fjármálaráð- herra hér heima og því lengur sem forsætisráðherra er flármálaráö- herra og fjármálaráðherra er ekki fjármálaráðherra því meiri von er til að mistökin fmnist. Getur ekki flármálaráðherra ver- ið lengur í útlöndum svo forsætis- ráðherra verði lengur flármálaráð- herra? Og er ekki jafnvel best að forsætisráðherra sé flármálaráð- herra í sinni eigin ríkissflóm úr því flármálaráöherrann, sem er flármálaráðherra meðan hann er hér heima, gerir tóm mistök sem flármálaráðherra? Þar að auki sýn- ist forsætisráðherra mikið betri flármálaráðherra heldur en flár- málaráðherra og betri flármálaráð- herra en forsætisráðherra. Hann uppgötvar að minnsta kosti mistök á augabragði. Hann var ekki búinn að vera flármálaráðherra nema í nokkrar klukkustundir þegar hann uppgötvaöi mistökin. Mistökin lágu í því að lækkun endurgreiðslunnar hefur fleiri galla en kosti. -Gallamir era þeir að vextimir hækka vegna þess að framfærsluvísitalan hækkar vegna þess að kostnaöur við viðhald húsa hækkar. Skattar í ríkissjóð lækka við að lækka endurgreiðslu virðis- aukaskattsins í stað þess að hækka eins og til stóð. Með því að játa mistökin við að gera þessi mistök ætla bankarnir að leiðrétta þau mistök að hækka vextina sem vom afleiðing af þeim mistökum sem ríkissflómin hefur játað á sig. Með því að lækka vext- ina lækkar verðbólgan og dregur úr þeim mistökum, sem mistök rík- issflómarinnar hafa í för með sér. Vonandi er að fleiri mistök finn- ist til að hægt sé að leiðrétta þau mistök sem gerð em í kjölfarið í hinum mistökunum. Var ekki gengisfellingin mistök? Getur for- sætisráðherra ekki sagt sem flár- málaráðherra að það hafi verið mistök hjá forsætisráöherra að fella gengið og leiðrétt þannig sjálf- an sig? Með því að játa mistökin með gengisfellingunni lækkar framfærsluvísitalan enn meir, sem lækkar verðbólguna enn meir, sem lækkar útgjöldin enn meir og vext- ina enn meir! Menn eiga ekki að láta misskilið stolt koma í veg fyrir að mistök séu leiðrétt þegar menn átta sig á mis- tökunum. Svo segir í það minnsta forsætisráðherra þegar hann er orðinn flármálaráðherra og með því getur hann leiðrétt ýmislegt sem hann hefur sem forsætisráð- herra gert sem forsætisráðherra en ekki séð fyrr en hann er orðinn fl ármálaráðherra. Þetta leiðir hugann að því hvort ráðherrar geti ekki í vaxandi mæh orðið aðrir ráðherrar en þeir eru, meðan aðrir ráðherrar eru í út- löndum og þannig geta þeir leiðrétt sín éigin mistök án þess að þeir séu í rauninni að breyta um skoðun. Þeir eru þá ráðherrar í öðmm ráöuneytum og sjá betur mistökin í þeim ráðuneytum. Ekkert er far- sælla fyrir land og þjóð heldur en ráðherrar sem sjá mistök og draga þau til baka til að koma skikki á þau mistök sem ella verða varanleg mistök ef fyrstu mistökin standa óbreytt. Spurningin er í rauninni sú hvort núverandi ríkissflóm er ekki ein allsheijarmistök? Það er engin skömm að því að játa á sig þau mistök að fara í ríkissflórn og fram- kvæma margvísleg mistökin, án þess að hafa tækifæri til að koma auga á þau vegna þess að ráðherrar geta ekki séð sín eigin mistök fyrr en þeir em hættir að vera þeir ráð- herrar sem þeir em. Þetta hefur forsætisráðherra játað eftir að hann varð flármálaráðherra. Mistökin eru þau að að það eru mistök ef menn sjá ekki að þeim hefur mistekist við að komast í þá stöðu að koma auga á mistökin. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.