Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1993, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR1993
Útlönd
Morðóðurflóð-
hesturtreður
konutil bana
Öskuillur flóðhestur réöst á og
drap konu í Transvaalhéraði í
Suður-AfHku, að sögn lögreglu.
Flóðhesturinn braut sér leið
gegnum rafgiröingu í Mabel-
ingwe náttúruvininni og óð í hina
fixnmtugu Heibrecht Beukes.
„Svo virðist sem flóðhesturinn
hafi troðiö hana niður og bitiö
hana,“ sagöi talsmaður lögregl-
unnar og bætti við aö konan hefði
verið í gönguferð með hund sinn
þegar árásin átti sér stað.
Líkiegt er taliö að geltiö í hund-
inum hafi farið fyrir brjóstiö á
flóðhestinum. Hann haföi áöur
ráðist á tvær aðrar manneskjur.
Flóöhesturinn var skotinn til
bana.
IMtrllllrllUUs
sjálfsbjargar-
viðieitninni
Ján C. Guðruundsson, DV, Astralíu;
í kjöifar vaxandi atvinnuieysis
i Ástraiíu hcfur reynst erfitt fyrir
nemendur að finna sér vinnu meö
skóianum þrátt fyrir ákafar tii-
raunir. Lögreglan í Brisbane hef-
ur aö undanfórnu veriö á höttun-
um eftir nokkrum nemendum
sem hafa gengið heist til langt í
ieit að aukavinnu.
Samkvæmt heimildum lögregl-
unnar hefur nemendum nýlega
tekist að bijótast inn í háleynileg-
ar tölvuskrár bandarísku airikis-
iögreglunnar FBi og geimvís-
indastofnunarinnar NASA, meö
því að nota aðstööu sina í háskól-
anum, og þegið greiðslu fyrir.
Taiið er aö stórir alþjóðlegir
glæpahringir standi á bak við at-
hæfið og bjóöi auralausum ungl-
ingum vænar fiílgur fyrir,
DamrogLitháar
gera samning
umkjamorku-
viðvörun
Danir og Lithár undirrita um
miðjan næsía mánuð samning
um viövörunarskyldu vegna
hættulegasta kjamorkuversins í
nágrenni Danmerkur.
Þetta kom frara í frétt í blaðinu
Jylland8-Posten í gær. Samning-
urinn verður undirritaður í
Kaupmannahöfn.
Tveir af stærstu kjamakijúfum
heimsins eru i Ignalina orkuver-
inu 1 Litháen. Þeir eru sömu gerð-
ar og kjamakljúfurinn í Tsjemo-
byl í Úkraínu þar sem mesta
kjamorkusiys sögunnar varð ár-
ið 1986.
Dönum stafar miklu meiri
hætta af geisiamengun frá Igna-
lina en sænska kjamorkuverinu
Barsebáck.
Hórurveitaaf-
^ImLJUL aama
siatt peun sem
notasmokka
Vændiskonur i borginni Cebu á
Filippseyjum eru svo hræddar
viö að smitast af eyðni að þær
hafa ákveðiö að veita þeim við-
skiptavinum sem nota smokka
fimmtíu prósent aíslátt.
Aö sögn blaösins Phiiippine
Daily Inquirer verða þeir sem
neita að nota smokkinn að borga
fullt gjald eða þá að þeim verður
vfsað á brott
Juan Flavier heilbrigðisráð-
herra hefur hafið herferð fyrir
aukinni smokkanotkun til að
hefta útbreiðslu eyðni, þrátt fyrir
áköf mótmæli kirkjunnar.
Reutcr og Bitzau
Breytinga að vænta á álmörkuðunum eftir offramboð á rússnesku áli:
Skera hlut Rússaáls
niður um þrjá fjórðu
álframleiðendur í Evrópubandalaginu segjast ekki þola lága verðið lengur
Áiframleiðendur í ríkjum Evrópu-
bandalagsins krefiast þess nú að
kvóti verði settur á innflutning á
rússnesku áh til Evrópu til að hækka
veröiö. Talað er um að skera inn-
flutning Rússa niður um nærri þijá
fjórðu eða úr 300 þúsund tonnum í
80 þúsund tonn.
Framkævmdastjóm Evrópubanda-
lagsins er sögð fylgjandi þessari hug-
mynd enda er áliðnaður í Evrópu að
komast í þrot vegna undirboða frá
Rússlandi. Svo mikill samdráttur í
sölu á Rússaáh í Evrópu myndi
hækka verðið og það er þaö sem
Verð á áli gæti hækkað i náinni
framtíð ef kvóti kemur á Rússaálið.
framleiðendurnir stefna að.
Verö á áli hefur verið mjög lágt í
meira en ár og í fyrra keyrði um
þverbak í útflutningi Rússa, sem
verða selja alla sína framleiðslu á
nánast hvaða verði sem er til að afla
gjaldeyris.
Sænska fréttastofan TT segir að
forráðamenn Gránges álframleið-
andans í Svíþjóö horfi vonaraugum
til þess að Evrópubandalagið taki af
skarið í álmálunum og setji kvóta á
Rússana. Gránges er eitt þriggja fyr-
irtækja sem hyggja á byggingu álvers
á Keilisnesi.
Það eru helst Þjóðverjar sem eru
andvígir svo hörðum aðgerðum gegn
Rússum enda hafa Rússar hótað á
móti að selja áhð á lágu verði til he-
gagnaiðnaðar utan Evrópu og halda
verðinu þannig niðri enn um sinn.
Náist samstaða í framkvæmda-
sljóm EB um að setja kvóta á Rússa-
álið má búast við að verð hækki fljót-
leg eftir að dregur úr framboöi og
. birgðir taka að minnka. Nokkur bið
gæti þó orðið á að verðið hækki því
víða hggja álframleiðendur með ál í
geymslum sínum og bíöa þess að úr
rætistámörkuðunum. tt
Herklæði tískunnar
Breskir tískuhönnuðir eru þessa dagana að kynna framleiðslu sina og
ætla að bjóða til mikillar tiskuhátíðar i byrjun mars. Þegar hafa um 25
þúsund fatakaupmenn hvaðanæfa að úr heiminum komið til að skoða hvað
Bretarnir hafa að bjóða. Meðal þess sem vakið hefur athygli eru klæði
sýningarstúlkunnar Rachel Luckhurst.
Hristi barn til bana
Tvítug bamfóstra í Sydney í Ástr-
alíu hefúr verið dæmd í þriggja ára
fangelsi fyrir að hrista barn, sem hún
gætti, þar til það lést. Læknar sögðu
aö bamið, sem var 14 vikna gamalt,
hefði fengið alvarlegan heilahristing
og látist af völdum hans.
Bamfóstran, Caroline Vangelder
að nafni, hefur ailtaf haldið fram
sakleysi sínu en segir að barnið hafi
veriö óvenju óþægt og hún því þurfit
aö tukta það til. Þetta ásamt úr-
skurði læknamia þótti nóg til að sak-
fellahana. Reuter
Söluskatturinn
varð á endanum
Mulroney að falli
Brian Mulroney, forsætisráðherra
Kanada, ákvað að leggja á söluskatt
áriö 1991 og eftir það hefur vinsæld-
um hans hrakað jafnt og þétt og í gær
sá hann ekki annað ráð vænna en
að segja af sér formennsku í íhalds-
flokknum og búa flokksmenn sína
þannig undir kosningar í haust.
Mulroney leiðir því ekki flokk sinn
aftur í kosningum. Hann hefur búið
við fádæma óvinsældir síðustu miss-
eri og komst lægst í 12% stuðning
meðal þjóðarinnar í skoðanakönn-
unum. Vinsældirnar hafa lítið aukist
frá þessu lágmarki.
Mulroney hefur einnig verið gagn-
rýndur fyrir undanlátssemi í við-
skiptasamningum við Bandaríkja-
menn. Hafa menn kennt innflutningi
frá risanum í suöri um vaxandi at-
vinnuleysi.
Mulroney varði gerðir sínar þegar
hann flutti þjóðinni tíðindin af fram-
tíð sinni í stjórnmálunum. Hann
sagði ákvörðunina um söluskattinn
hafa verið óhjákvæmilega og aö eftir-
menn sínir myndu sjá að ekki væri
annar kostur betri til að auka tekjur
ríkissjóðs og draga úr halla á fjárlög-
um.
Fréttaskýrendur segja að Mulron-
Brian Mulroney átti ekki annarra
kosta völ en að segja af sér.
Símamynd Reuter
ey hafi lent í sömu aðstöðu og Marg-
aret Thatcher þegar hún varð að
hrökklast úr embætti forsætisráö-
herra í Bretlandi. Flokksmenn
treystu sér ekki í kosningar með
óvinsælan leiðtoga og knúðu fram
afsögn. Enn er óvíst hver tekur við
formennskuafMulroney. Reuter
Bérégovoy, forsætisráöherra Frakklands:
Evrópubandalagið setji
lágmarksverð á fisk
Pierre Bérégovoy, forsætisráð-
herra Frakklands, kenndi nýlegum
gengisfellingum í Bretlandi og á
Norðurlöndum um lækkandi fisk-
verð sem varð kveikjan að uppþot-
um franskra sjómanna.
Hann sagði í sjónvarpsviðtali að
framkvæmdasfjóm Evrópubanda-
lagsins yröi aö bregðast við með
því að ábyrgjast verð og bæta sjó-
mönnum upp sveiflur á gjaldmiðl-
um.
Embættismenn EB, sem fást við
sjávarútvegsmál, koma saman til
fundar í Brassel í dag til að ræða
15 til 30 prósent verðfall sem hefur
orðið á fiskmörkuðum bandalags-
ins. Franskir embættismenn hafa
sagt aö framkvæmdastjómin
mundi setja lágmarksverð á nokkr-
ar fisktegundir á morgun, fóstudag.
Bérégovoy sagði að lausnin væri
fólgin í meiri skipulagningu mark-
aðarins. „Viö getum ekki sett
traust okkar á blindar reglur
markaðarins^ og á óhefta frjáls-
hyggju,“ sagði hann.
Franskir sjómenn eru reiðir
vegna innflutnings á ódýrum fiski
og segja hann keyra fiskverð niður
og rýra lífskjör þeirra. Sjómennim-
ir bmtu allt og brömluöu á fisk-
markaði í París á þriðjudag þar sem
þeir unnu skemmdir sem metnar
eru á rúmar 250 milljónir króna.
Reuter