Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Side 13
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1993
13
pv__________________________________________Vísnaþáttur
Þar sem ádur allt var heitt
„Hjónabandið er erfitt viðfangsefni.
Það er alveg óháð hamingju og óham-
ingju hvort okkur tekst að ráða fram
úr því. Það hefur aldrei verið til
hjónaband sem hefði ekki getað orðið
himnaríki á jörðu, og aldrei það
hjónaband sem hefði ekki getað orðið
sannkallað helvíti."
Það er bandaríski rithöfundurinn
Kathleen Norris sem hefur komist
að þessari niðurstöðu. Það kemur
raunar berlega fram í Ijóðum og stök-
um íslenskra skálda og fara nokkur
sýnishom í þá veru hér á eftir.
Mikill kærleikur var með hjónun-
um Sigurði Gunnarssyni, bónda og
oddvita á Ljótsstöðum í Vopnafirði,
og Jóhönnu Siguijónsdóttur konu
hans. Eitt seinasta árið sem hann
lifði orkti hann til hennar:
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
Til mín þú á hvítum kjól
komst um græna engið.
Aldrei síðan okkar sól
undir hefur gengið.
Þorleifur Jónsson á Blönduósi
orkti til eiginkonu sinnar:
Ég held þó mitt fari fjör
frá þér ekki víki,
veit ei neitt hver vildarkjör
verða í himnaríki.
Ásgrímur Kristinsson, bóndi á Ás-
brekku í Vatnsdal, var á heimleið
þegar hann kvað:
Brátt mun verða brautin greið
beztu vonum mínum,
hugurinn ber mig hálfa leiö
heim að barmi þínum.
Og söknuður hans, er hann missti
konu sína, kemur glögglega fram í
eftirfarandi stöku hans:
Þeim sem eiga yl i sál
og unna hlíðum grænum,
sárt er að missa um sumarmál
sólskinið úr bænum.
Guðmundur Bjömsson, sýslumað-
ur í Borgamesi, orkti til konu sinnar:
Án þín trúin væri veik,
vonin hefði sofið,
þú hefur gert mér lífið leik,
lán úr slysum ofið.
Gott er að vinna fé og frægð,
fækka mótlætinu,
en betra er að eiga yl og gnægð,
ásta á heimiiinu.
Og gamall vinur minn, öðlingurinn
Guðmundur Jósafatsson frá Brands-
stöðum í Blöndudal, sem horfinn er
af vettvangi fyrir allmörgum árum,
lýsir viðhorfi sínu á svofelldan hátt:
Gleymskan hefur sagt til sín
- svo mun um fleiri kynni -
þegar hljóðlát hlýjan þín
horfin er úr minni.
„Eiginkonur hafa marga galla, eig-
inmenn aðeins tvo: allt sem þeir segja
og allt sem þeir gera.“ Það hefur ver-
ið glöggur náungi sem komst að þess-
ari niðurstöðu en ekki er gott að segja
hvort þetta hefur átt við um þann
sem fékk eftirfarandi vitnisburð frá
Stefáni Stefánssyni frá Móskógum:
Mörgum fremri að mannviti,
matti auð sem glingur,
hjúskapar í hyldýpi
hvarf sá vesalingur.
Gísh Guðmundsson, bóndi á Her-
jólfsstöðum í Laxárdal í Skagafirði
(1810-84), kom að Hvammi í sömu
sveit og heyrði hávært tal prests-
hjóna út á hlað og kvað:
Hlákublæ með hlýjum yl
hvergi fæ ég dulið,
en þó vægir ekki til
innanbæjarkulið.
Og hjá mörgum hefur andrúmsloft-
ið verið í svalara lagi. Guðrún Sig-
urðardóttir, húsfreyja á Heiði í
Gönguskörðum:
Hér er æði fullt með fúss,
fást ei ræður þuldar,
utan bæði og innanhúss
eru næðingskuldar.
Og ekki hefur Eyjólfi Þorgeirssyni
í Króki í Garði fallið umgengnin sem
best þegar hann orkti:
Innan um bæinn eins og skass
æðir þessi kona.
Fleiri hafa fætur og rass
en flíka því ekki svona.
Æði oft veldur áfengisneysla upp-
lausn hjónabands og sviptir menn
réttu mati á aðstæðum, stundum
með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Ekki veit ég um höfund næstu vísu
en ætia má að hann hafi verið málinu
kunnugur:
Brennivín og brúðarást
bijálar skynseminni.
Þetta mörgum þykir skást
þó í veröldinni.
En afleiðingin getur orðið eitthvað
í líkingu við það sem Rósberg G.
Snædal lýsir svo:
Sætzt og rifist sitt á hvað,
sök hjá báðum mikil.
Hvort að annars hjartastað
hafa þau engan lykil.
Og þá eiga hér við orð Þórarins
Bjamasonar, jámsmiðs í Reykjavík,
sem yrkir um fallvaltíeikann (í
hjónabandinu?):
Glötuð dáö og gengi breytt
gefst ei náðartími.
Þar sem allt var áður heitt
er nú gráðað hrími.
Mér finnst ekki úr vegi að ljúka
þessum þætti með orðum bandaríska
rithöfundarins James Grover Thurber:
„Þriðja hvert hjónaband endar með
skilnaði, í hinum tveimur er barist uns
yfirlýkur." TorfiJónsson
18 FYRIRTÆKI ERU Á
MARKAÐNUM IVIEÐ
ÓTRÚLEGT
VÖRUÚRVAL:
• Barnafata
lagerinn
• Blómalist
• Fínar línur
• Hjá Kára
• Hlauptu og
kauptu
• Hiimmel
• Karnabær
• Kókó
• Kjallarinn
• Nína
• Pósedon
• Sjónvarps-
miðstöðin
• Skóhúsið
• Skæði
• Sonja
• Steinar musík
& myndir
• Stúdíó
• Valborg
EHH MEIRI
VERBLÆKKUH!
A STORÚTSÖLU-
MARKAÐNUM
FAXAFEN110 HÚSIFRAMTÍOAR.
STÆRSTIMARKAÐUR SINNAR
TEGUNDARÁ ÍSLANDI, NÝJAR VÖRUR
TEKNARINNÁ MARKAÐINN, DAGLEG
TILBOÐ, 18FYRIRTÆKIERU ÞARMED
GÍFURLEGT VÖRUÚRVAL 0G ENN
LÆKKA
VERÐIN!
EKKIMISSA AF
STÓRÚTSÖLU-
MARKAÐNUM!
VIÐSKIPTAVINIR ATHUGIÐ aö meðan
verslað er geta börnin horft á
skemmtilegar barnamyndir í sérstöku
barnaherbergi og fullorðnum er boðið
uppá FRÍTT kaffi.
MARKAÐURINN
ER Í FAXAFENI 10.
HÚSI FRAMTÍÐAR
OPNUNARTÍMI:
MÁNUD. TIL FIMMTUD.
13:00 TIL 18:00
FÖSTUDAGA
13:00 TIL 19:00
LAUGARDAGA
10:00 TIL 17:00
SUNNUDAGA
13:00 TIL 17:00
OG l7 LL T'l
HINN EINI SANNI STÓRÚTSÖLUMARKAÐUR
FAXAFENI 10, HÚSI FRAMTÍÐAR