Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR1993
Skák
Einstaklingskeppni norrænnar skólaskákar:
JónViktor vann alla
Tíu íslensk ungmenni tóku þátt í
einstaklingskeppni í norrænni skóla-
skák, sem fram fór í Asker í Noregi
fyrr í mánuðinum. Keppni þessi er
ein flögurra árlegra Norðurlanda-
móta í skólaskák, sem haldin eru til
skiptis í löndumun. íslendingar hafa
oftast verið sigursæhr á þessum
mótum, einkum þó í yngri flokkun-
um og sú varð einnig raunin í Asker.
Samaniagt fengu Islendingar flesta
vinninga, eða 36 - tveimur vinning-
um betur en Svíar, sem urðu í 2. sæti
og sex vinningum meira en Danir sem
hrepptu þriðja sætið. í tveimur flokk-
um af fimm varð íslendingm- Norður-
landameistari. Amar E. Gunnarsson
í flokki 13-14 ára og Jón Viktor Gunn-
arsson í flokki 11-12 ára. Árangur
Jóns Viktors er sérdeihs frábær en
hann gerði sér htið fyrir og vann aha
andstæðinga sína. Þar með endurtók
hann afrek sitt frá mótinu í fyrra sem
haldið var í Svíþjóð.
í flokki skákmanna 17-19 ára sigr-
aði Norðmaðurinn Roy Fyllingen
með 5,5 v. af 6 mögulegum. Kristján
Eðvarðsson hafnaði í 9. sæti og Sigur-
bjöm Bjömsson í 11. sæti, báðir
fengu 2 v. Krisfján átti gjömnnið tafl
gegn Fylhngen í 2. umferð en glutr-
aði því niður á óskiljanlegan hátt.
Þetta virtist hafa slæm áhrif á hann
og hann náði sér ekki aftur á strik.
Magnús Öm Úlfarsson varð 1 4.
sæti í flokki 15-16 ára með 3,5 v. og
Hhðar Þór Hreinsson í 11. sæti með
2 v. Þar varð Svh hlutskarpastur,
Erik Hedman, sem fékk 5 v.
í flokki 13-14 ára sigraði Amar E.
Gunnarsson eins og áður sagði, eftir
harða keppni við Matthías Kjeld.
Þeir fengu báöir 5 vinninga og höfðu
algjöra yfirburði. Amar var hærri á
stigum og hreppti því titilinn. Inn-
byrðis skák þeirra lauk með jafntefh
en Matthías slapp þar með skrekkinn
eftir aö hafa lehcið af sér manni sem
Amar vildi ekki.
Jón Viktor og Bragi Þorfmnsson
börðust um sigurinn í flokki 11-12
ára og hafði Jón betur í úrslitaskák
þeirra. Bragi, sem varö Norður-
landameistari í yngsta flokki í fyrra,
varð í 2. sæti með 4 v. Bráðefnilegir
piltar þar á ferð.
Sigurður Steindórsson varö í 4.
sæti í skákmanna 10 ára og yngri,
með 3,5 v. og Davíð Kjartansson varð
í 5. sæti með 3 v.
Liðsstjórar og fararstjórar voru
Ólafur H. Ólafsson og Ríkharður
Sveinsson. í mótsblaðinu segir að
íslendingar geti þakkað hðsstjórun-
um góöan árangur á mótinu. Þeir
hefðu gengið mhli herbergja undir
miðnættið og haft með sér fjarstýr-
ingar fyrir sjónvarpstækin. Að sögn
Ríkharðs gátu phtamir þá ekki skipt
um rásir og urðu að sætta sig við að
horfa á norska sjónvarpið. Sofnuöu
þeir því að vonum fljótt og vel og
komu hvhdir hhdar th.
Lítum á snotra sóknarskák frá
mótinu, sem tefld er í flokki 15-16
ára. Eftir mistök í 9. leik fær svartur
engan frið th þess að ljúka hðsskipan
sinni.
Hvítt: Magnús örn Úlfarsson.
Svart: Sauli Keskinen (Finnalndi)
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
Þessi leikmáti Fischers í einvíginu
við Spasskí sl. haust nýtur nú mikhl-
ar hyhi.
3. - e6 4. 0-0 Rge7 5. c3 a6
Skákin Kasparov - Kramnik, á
Immopar-atskákmótinu í París í
fyrra tefldist: 5. - d5 6. exd5 Dxd5 7.
Hel!? g6 8. b4!? Bg7 9. Bb2 0-0 10. c4
Dh5 11. Bxg7 Kxg7 12. bxc5 Dxc5 13.
d4 Db6 14. Rc3 með vænlegri stöðu á
hvítt - Kramnik gafst upp í 26. leik.
6. Ba4 d5?!
Timman valdi einnig þennan eðli-
lega leik í einvígi við Spasskí í Amst-
erdam 1977. En svo virðist sem vara-
samt sé að ráðast svo snemma th
atlögu á miðborðinu. Stungið hefur
verið upp á 6. - c4!? sem e.t.v. er besti
leikurinn.
7. exd5 Dxd5 8. d4 Rg6
Eftir 8. - Bd7 9. Hel Hd8? (betra er
9. - cxd4) 10. c4! Dxc4 11. Rbd2 Dd5
12. Bb3 Dh5 13. Re4 (hótar 14. Rd6
mát!) Rf5 14. dxc5 náði Spasskí
sterkri stöðu í áðumefndri skák við
Timman. Áfram tefldist 14. - Bc8 15.
Bd2 Be7 16. Ba4 0-017. Bxc6 bxc6 18.
Re5 Dxdl 19. Haxdl og endatafhö er
vænlegt á hvitt.
9. Be3
Eðhegra er 9. Hel - svartur leikur
nú best 9. - cxd4 og næst 10. - Bd7.
Hann gætir sín ekki á lævísri brellu
Magnúsar.
9. - b5?
I A m
A 4 A AAA %
A A w
A &
&
& & B A &
2 w 2li
A BCDEFGH
10. c4! bxc4
Ekki 10. - Dxc4? 11. Bb3 Db412. Bd2
og drottningin lætur líf sitt fyrir
guðsmann.
11. Rc3 Dd712. d5! exd513. Rxd5 Db7
Ef 13. - Baða svarts er að hmni
komin. Eftir textaleikinn gæti svart-
ur átt von um líf eftir t.d. 14. Hel Be6
en næsti leikur Magnúsar setur strik
í reikninginn.
14. Bf4!
Þennan frábæra leik er erfiðara að
finna heldur en 10. c4! en frá sjónar-
Umsjón
Jón L. Árnason
hóh síghdra skákfræða er hann auð-
skilinn. Eftir þvinguð uppskipti á f4
stendur e-hnan opin og svartur hefur
misst mikhvægt vald á miðborös-
reitnum e5. Hvítur hótar 16. Re5 og
þar að auki 16. Dd5 og leppunin á c6
verður óbærheg.
14. - Rxf4 15. Rxf4 Be7
Tapar strax. Skárri kostur er 15. -
Bd7 16. Hel+ Re7 (16. - Be7 17. Rd5
Be6 18. Re5 vinnur mann) en ekki
þarf að horfa lengi á svörtu stöðuna
th þess að sjá hve hún er vonlaus.
Hvítur gerir líklega best með 16. Re5
Bxa417. Dxa4 + Db518. Dc2 og svart-
ur situr áfram í súpunni.
16. Re5 Bd7 17. Dd5! Hc8 18. Dxf7+
Kd8 19. Hadl
- Og svartur gafst upp.
-JLÁ
Bridge
Bridgehátíð 1993:
Sveit Glitnis sigraði
Eins og kunnugt er af fréttum sigr-
aði sveit Ghtnis í sveitakeppni
Bridgehátíðar. Sveitina skipuðu
nokkrir af bestu bridgesphurum
landsins, Aðalsteinn Jörgensen,
Bjöm Eysteinsson, Guðmundur Sv.
Hermannsson, Helgi Jóhannsson og
Ragnar Magnússon. Það er óhætt að
segja að þetta hafi verið Bridgehátíð
forseta okkar, þ.e.a.s. Bridgesam-
bandsins, því Helgi og Guðmundur
em forseti og varaforseti BSÍ, en þeir
urðu sem kunnugt er í þriðja sæti í
tvímenningskeppninni.
Ég spáði „gömlu meisturunum"
góðu gengi og um tíma leit út fyrir
að sú spá myndi rætast. Þeir Beha-
donna og Forquet vom í öðm sæti í
tvímenningskeppninni, þegar tvær
umferðir vora eför, en þá gáfu þeir
eför og enduðu í fimmta sæö sem
er samt í góðu lagi. í sveitakeppninni
náðu þeir sér aldrei á flug en enduðu
samt í efri hluta.
Ég fylgdist með þeim félögum í
tveimur leikjum og hér er afrakstur-
inn.
í leiknum gegn Zia missö Beha-
heimur
íáskrift
ppll 1
Belladonna ræðir málin við bræðurna Hermann og Olaf Lárussyni.
Hitt spihð er frá leiknum við Metro.
Það er ekki laust við að meistara-
heppnin hafi fylgt ítölunum í því.
N/A-V
♦ Á D 10 7 6 3
V 86
♦ D542
+ D
♦ 52
»ÁD42
♦ Á G 10
+ 8 7 5 4
* G 9 8
V KG
♦ K873
+ Á K G 10
* K 4
V 10 9 7 5 3
♦ 96
+ 9 6 3 2
Umsjón:
Stefán Guðjohnsen
donna af guhnu tækifæri th þess að
vinna leikinn. Ég þori að veðja aö
hann hefði unnið spihð fyrir 20 árum
og farið létt með þaö.
V/N-S
♦ 743
♦ D 4 2
♦ 742
+ 9643
♦ 952
V 10 6
♦ G 10 9 5
♦ KDG2
♦ Á D 10 6
V Á K 3
♦ KD86
+ 10 7
VG9875
♦ Á 3
A Á Q K
í opna salnum sátu n-s Forquet og
Behadonna, en a- v Robson og Co-
hen. Sagnir gengu þannig:
Vestur Norður Austur Suður
pass pass lhjarta dobl
pass 2lauf pass pass
dobl pass pass 2öglar
dobl pass pass 2spaðar
pass pass dobl pass
pass pass
Meistaraheppnin fylgdi Behadonna
þegar Cohen ákvað að trompa út. Þar
með gat hann svínað trompi tvisvar,
fengið þijá slagi á hjarta og einn á
ögul. Hann sphaði hins vegar þrisvar
hjarta og endaði einn niöur.
í opna salnum sátu n-s Jón St.
Gunnlaugsson hrl. og Björgvin Guð-
mundsson, en a-v Behadonna og
Forquet. Eina geimið sem stendur í
a-v em fimm lauf en ítahmir fundu
annað sem erfitt var að bana:
Norður Austur Suður Vestur
2spaðar dobl pass 3hjörtu
pass 4hjörtu pass pass
pass
Ég held að menn geö verið sammála
um það að það sé úölokað fyrir norð-
ur að spha út höum spaða. En þaö
þurfö th þess aö bana spihnu og Ital-
imir skrifuðu 620 í sinn dálk. Á hinu
borðinu féhu a-v í þriggja granda
ghdruna og töpuöu 200.
meðal keppenda á opna móönu í
Capelle la Grande í Frakklandi
sem lýkur í dag. Er tefldar höfðu
verið sex umferðir af níu hafði
Hannes Hlífar Stefánsson 4,5 v„
Þröstur Þórhailsson og Helgi Áss
Grétarsson höföu 4 v„ Margeir
Pétursson, Guðmundur Gísiason
og Tómas Björnsson höföu 3,5 v.
ög Ahdri Áss Grétarsson 2,5 v.
Efstur var ísraelsmaðurinn Ba-
burin með 5,5 v. Þátttakendur em
um 400, þar af 20 stórmeistarar
og 60 alþjóðlegir meistarar. í
sjöttu umferð gerðu m.a. Margeir
og Guðmundur jaftitefii.
Lands-
keppni viö
Frakka
Ðagana 16.-28. niars verður háð
landskeppni íslendinga og
Frakka 1 Hafnarfirði. Teflt er á
Öu boröum og fer keppnin þannig
fram að hver íslendinganna teflir
við aha Frakkana.
Frakkar munu senda sitt sterk-
asta hð, m.a. stórmeistarana
Lauöer og Renet og að öllum lik-
indum Boris Spasskí, sem nú
slehör sárin eför rimmuna við
Judit í Búdapest. Lið íslands hef-
ur ekki endanlega verið ákveðiö
en tíu efstu menn á sögum em
Jóhann Hjartarson, Margeir Pét-
ursson, Jón L. Árnason, Helgi
ÓJafsson, Hamies Hlífar Stefáns-
son, Kari Þorsteins, Þröstur Þór-
hahsson, Héðinn Steingrímsson,
Björgvin Jónsson og Helgi Áss
Grétarsson.
Reiknuð hafa verið Elo-sög fyr-
ir atskákir þar sem umhugsunar-
tími er 30 mínutur á keppanda.
Þetta eru fyrstu sög sinnar teg-
undar á íslandi og því berað taka
þau með fyrirvara. Listinn er
engu að síður forvitnhegur, eink-
um fyrir þá sök að Kari Þor-
steins, íslandsmeistarinn frá því
í fyrra, skákar stórmeistumnum.
íslensku Elo-sögin fyrir kapp-
skákir eru lögð öl grundvahar og
reiknað er með tuttugu skákum
á mann, jafnvel þótt þeir liafi teflt
færri. Tiu skákmenn hafa 2400
sög eöa meira:
1. Kari Þorsteins 2595
2. Helgi Ólafsson 2590
3. Jóhann Hjartarson 2585
4. Margeir Pétursson 2570
5. Hannes Hlífar Stefánsson 2560
6. -7. Friðrik Ólafsson og Jón L.
Árnason 2520
8. Þröstur Þórhailsson 2435
9. Helgi Áss Grétarsson 2425
10. Héðinn Steingrimsson 2410
Friðrik
gpgri
heimsliði
kvenna
Friörik Ólafsson stórmeistari
hefur fengið boð um að tefla á
skákmóö i Vínarborg í sumar og
hefur hann fullan hug áaðþekkj-
ast þaö. Ura er að ræða keppni
„gömlu meistaranna" við heims-
lið kvenna.
í höi Friðriks verða m.a.
Smysiov, Geller, Panno ogLarsen
en kvennahðiö skartar m.a. Polg-
ar-systmm, loseliani og kín-
verska heimsmeistaranum Xie