Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1993, Side 30
42
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1993
Afmæli
Oddný Aðalbjörg Jónsdóttir
Oddný Aðalbjörg Jónsdóttir hús-
móðir, Rauðalæk20, Reykjavík, er
sjötugídag.
Starfsferill
Oddný fæddist á Þorvaldsstöðum
í Breiödal, S-Múlas., en ólst upp hjá
Kristínu Helgu Þórarinsdóttur á
Dísastöðum fram að fermingu. Þá
flutti hún aftur að Þorvaldsstöðum.
Oddný var í farskóla í Breiðdal en
sótti einnig vomámskeið í Hús-
mæðraskólanum á Hallormsstað
1942. Hún fluttist að Búðum í Fá-
skrúðsfirði 1943 og starfaði á karl-
mannafataverkstæði hjá Kaupfélagi
Fáskrúðsfirðinga á Fáskrúðsfirði og
Búðum, KFFB.
Oddný var í stjórh Slysavarna-
deildarinnar Hafdísar, lengst af rit-
ari. Hún var einnig í stjórn Kvenfé-
lagsins Keðjunnar og ritari þar um
tíma, í skólanefnd í nokkur ár, í
bamaverndarnefnd og varamaður í
hreppsnefnd. Á Búðum starfaði hún
síðast í bóka verslun KFFB.
Oddný fluttist til Reykjavíkur 1981
og starfaði um tíma hjá Sandholts-
bakaríi en síðar í mötuneyti borgar-
innar í Hafnarhúsinu og við afleys-
ingar á dagheimili. Hún er einn af
stofnendum Félags áhugamanna
um steinafræði og ritari þess.
Fjölskylda
Oddný giftist 21.5.1944 Þorvaldi
Jónssyni, f. 18.8.1908, fyrrverandi
póst- og símstöðvarstjóra á Fá-
skrúðsfirði og umboðsmanni Eim-
skips og Ríkisskips. Hann er sonur
Jóns Davíðssonar verslunarstjóra
og Jóhönnu Hólmfríðar Kristjáns-
dóttur. Þau bjuggu á Fáskrúðsfirði
en em nú bæði látin.
Böm Oddnýjar og Þorvalds eru:
Jóhanna Ásdís, f. 30.8.1944, kenn-
ari, gift Vilmundi Víði Sigurðssyni
kennara og eiga þau þrjú börn;
Guðný Björg, f. 25.10.1945, umboðs-
maður, Fáskrúðsfirði, gift Sigurði
Þorgrímssyni skipaafgreiðslu-
manni og eiga þau þrjú böm; Jóna
Kristín, f. 26.9.1959, sóknarprestur
í Grindavík, gift Ómari Ásgeirssyni
sem rekur rækjuvélaþjónustu og
eiga þau tvær dætur; Kristján, f. 4.5.
1962, dagskrárgerðarmaður, sam-
býliskona hans er Helga Jóna Óð-
insdóttir og eiga þau eitt barn.
Systkini Oddnýjar eru: Sigurður,
f. 23.5.1916, d. 16.4.1986, fram-
kvæmdastjóri Litlu-Sendibílastöðv-
arinnar; Kristín Björg, f. 17.9.1917,
húsmóðir á Fáskrúðsfirði; Árni
Björn, f. 26.9.1918, bifreiðastjóri á
Hreyfli; Björgólfur, f. 28.11.1919, b.
í Tungufelli í Breiðdal; Helga Björg,
f. 10.11.1920, húsmóðir, Egilsstöð-
um; Einar Björgvin, f. 29.1.1922,
húsasmíðameistari Borgarnesi; Hlíf
Þórbjörg, f. 26.1.1924, húsmóðir,
Seltjarnarnesi; Jónas, f. 6.4.1926, d.
29.11.1980, vegaverkstjóri, Breið-
dalsvík; Hlífar Pétur, f. 9.4.1929, b.
á Þorvaldsstöðum; Guðmundur
Þórður, f. 20.8.1930, bóndi; Óskar
Siguijón, f. 24.5.1932, húsasmíða-
meistari á Seltjarnarnesi; og Þórey,
f. 5.5.1936, fótsnyrtifræðingur í
Reykjavík.
Foreldrar Oddnýjar voru Jón
Björgólfsson, f. 5.3.1881, d. 10.5.1960,
b., Þorvaldsstöðum, S-Múlasýslu, og
Guðný Jónasdóttir, f. 30.10.1891, d.
7.1.1956, húsmóðir.
Ætt
Jón var sonur Björgólfs, b. á Snæ-
hvammi í Breiðdal, bróður Guðrún-
ar, langömmu Vésteins Ólasonar,
prófessor í Óslóarháskóla. Bjögólfur
var sonur Stefáns, b. í Snæhvammi,
Bjamasonar, b. á Þverhamri, bróð-
ur Jóns, langafa Jóns, fóður Ey-
steins, fv. ráðherra, og Jakobs,
prests og rithöfundar.
Móðir Jóns var Kristín Jónsdóttir,
b. á Þverhamri, Bjarnasonar, b. á
Þverhamri, Stefánssonar, b. á Þver-
hamri, Magnússonar, prests á Hall-
ormsstað, Guðmundssonar. Móðir
Jóns var Þórdís Höskuldsdóttir, b. í
Múla í Álftafirði, Gíslasonar, b. á
Starmýri, Magnússonar, b. á Svín-
Oddný Aðalbjörg Jónsdóttir.
hólum, Eyjólfssonar. Móðir Magn-
úsar var Herdís Magnúsdóttir, b. á
Búlandsnesi, Höskuldssonar, prests
í Heydölum, Einarssonar, bróður
Ólafs á Kirkjubæ.
Oddný tekur á móti gestum á
heimili dóttur sinnar og tengdason-
ar, Ránargötu 1, Grindavík, eftir kl.
17 á afmælisdaginn.
Daníel Ágústínusson
Daníel Ágústínusson, fyrrverandi
aðalbókari, Háholti 7, Ákranesi, er
áttræðurídag.
Starfsferill
Daníel fæddist á Eyrarbakka og
ólst þar upp. Hann stundaði nám
við Héraösskólann að Laugarvatni
og lauk kennaraprófi 1936.
Hann var kennari við Héraðsskól-
ann að Núpi í Dýrafiröi 1936-37, við
Barna- og unglingaskólann í Stykk-
ishólmi 1937-39 og við Gagnfræða-
skóla Austurbæjar 1947-54.
Daníel var erindreki Framsóknar-
flokksins 1939-47, bæjarstjóri á
Akranesi 1954-60, aðalbókari hjá
bæjarfógetanum á Akranesi
1961-84, sambandsritari UMFÍ
1933-57, forseti Sambands bindind-
isfélaga í skólum 1935-36, form.
milliþn. í póstmálum 1943-44, end-
urskoðandi Síldarverksmiðju ríkis-
ins 1943-78, í íþróttanefnd ríkisins
1943-75, í stjórn Félagsheimilasjóðs
1947-75 og í miðstjórn Framsóknar-
flokksins 1946-86.
Hann sat ennfremur í Raforkuráði
og síðar Orkuráði frá 1946-87, var
formaður 1954-62, sat í stjóm Anda-
kílsárvirkjunar 1955-78 og frá 1982,
í fulltrúaráði Brunabótafél. ísl.
1955-62 og 1970-74 og varaþingmað-
ur Vesturlandskjördæmis 1959-78.
Daníel tók sex sinnum sæti á al-
þingi, var bæjarfulltrúi á Akranesi
1962-82, forseti bæjarstjórnar Akra-
ness 1970-71,1972-73 og 1974-77, í
stjórn Sementsverksmiðju ríkisins
1967-89, í undirbúningsnefnd að
byggingu hafnar við Grundartanga
og síðar hafnarnefnd 1975-78.
Hann sendi frá sér ritið Dönsku
ungmennafélögin árið 1949 og hefur
ennfremur skrifað greinar í blöð og
tímarit, einkum í Tímann og Skin-
faxa. Einnig var hann ritstjóri
blaðsins Magna á Akranesi 1961-78.
Fjölskylda
Daníel kvæntist 15.8.1942 Önnu
Erlendsdóttur, f. 9.8.1919, húsmóð-
ur. Hún er dóttir séra Erlends Þórð-
arsonar í Odda í Rangárvallasýslu
og Önnu Bjarnadóttur húsmóður
fráÁlftanesi.
Böm Daníels og Önnu era: Er-
lendur, f. 18.10.1942, löggæslumaður
á Selfossi, kvæntur Grétu Jónsdótt-
ur frá Björk í Sandvíkurhreppi og
eiga þau þrjár dætur; Ingileif, f. 18.8.
1944, húsmóðir og kennari á Ytra-
Hólmi, Innri-Akraneshr., gift An-
toni Ottesen, bónda og oddvita á
Innra-Hólmi, og eiga þau þijá syni.
Fyrir átti Ingileif eina dóttur.
Bróðir Daníels er Eyjólfur, f. 10.5.
1910, b. í Steinskoti, Eyrarbakka.
Fóstursystir Daníels er Bjamdís
Guðjónsdóttir, húsmóöir í Reykja-
vík, gift Úlfari Magnússyni bifreiða-
stjóra.
Foreldrar Daníels era Ágústínus
Daníelsson, b. í Steinskoti á Eyrar-
bakka, og Ingileif Eyjótfsdóttir hús-
móðir þar. Þau bjuggu allan sinn
hjúskapartíma á Eyrarbakka.
Daniel Ágústínusson.
Ætt
Ágústínus var sonur Daníels Þor-
steinssonar b. í Kaldárholti í Holt-
um, og Vilborgar Jónsdóttur frá
SkálmholtiíFlóa.
Ingileif var dóttir Eyjólfs Þorleifs-
sonar, Eyjólfssonar, frá Snorrastöð-
um í Laugardal, og Sólveigar Þor-
leifsdóttur frá Fossi í Grímsnesi.
Þau bjuggu í Mýrarkoti í Grímsnesi.
Daníel verður erlendis á afmælis-
daginn.
Guðmundína Pétursdóttir
Guðmundína Pétursdóttir verka-
kona, Eyrargötu 3, Suðureyri við
Súgandaíjörð, er áttatíu og fimm ára
ídag.
Starfsferill
Guðmundína fæddist að Laugum
í Súgandafirði og ólst þar upp. Hún
var verkakona á Suðureyri lengst
af en fór á sínum yngri áram oft til
starfa í öðram byggðarlögum og
dvalist þá m.a. um skeið við þjón-
ustustörf í Reykjavík.
Síðari hluta ævinnar bjó Guð-
mundína lengi með Þórði bróður
sínum og Kristjönu móður þeirra á
Eyrargötunni. Nokkru eftir andlát
móður sinnar fór hún til dvalar á
Elliheimilinu á ísafirði en síðustu
ár hefur hún dvalið á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á ísafirði.
Fjölskylda
Guðmundína á tvö börn sem hún
ól upp ein. Þau era: Högni Egilsson,
f. 17.9.1930, háskólakennari í upp-
eldisfræðum, búsettur í Noregi,
kvæntur Liv Randy (fædd Opdal) frá
Noregi sem einnig er uppeldisfræð-
ingur og háskólakennari og eiga þau
eina dóttur. Einnig á Högni kjör-
dóttur frá fyrra hjónabandi; Hulda
Karlsdóttir, f. 1.2.1937, matráðskona
hjá íslandsbanka á Akureyri, búsett
á Akureyri, gift Gylfa Þorsteinssyni
bátsmanni og eiga þau sjö syni.
Guðmundína átti ellefu systkini,
fimm þeirra era nú látin. Systkinin
era: Friðbert, f. 1909, fyrram b. í
Botni í Súgandafirði, kvæntur
Krisljönu G. Jónsdóttur og eignuð-
ust þau fimm börn en eitt þeirra er
nú látið; Sigríður, f. 1910, fyrram
húsmóðir á Suðureyri, sambýlis-
maður hennar var Jónas Sigurðs-
son sem nú er látinn og eignuðust
þau sex börn; Þórður, f. 1913, nú
látinn, vélstjóri á Suðureyri, og
eignaðist hann eitt bam; Páll H., f.
1914, nú látinn, b. á Laugum í Súg-
andafirði, var kvæntur Guðrúnu
Karvelsdóttur og eignuðust þau sjö
böm, en eitt þeirra er nú látiö;
Kristján Pétur, f. 1915, dó ungur;
Jófríður, f. 1916, núlátin, húsmóðir
á Stað í Súgandafirði, var gift Þórði
H. Ágústi Olafssyni b. sem einnig
er látinn og eignuðust þau fimm
böm, en eitt þeirra er nú látið; Sig-
mundína, f 1918, nú látin, húsmóðir
í Hafnarfirði, var gift Herði Vigfús-
syni blikksmið og eignuðust þau sjö
böm; Kristjana, f. 1920, húsmóðir í
Hafnarfirði, gift Ásgrími Jónssyni
skipasmið og eignuðust þau fjögur
böm, en eitt þeirra er nú látið; Elísa-
bet, f. 1922, húsmóðir í Hafnarfirði,
gift Þorláki Sigurðssyni sjómanni
og eiga þau átta börn; Sigurbjörg,
f. 1924, húsmóðir á Suðureyri, var
gift Aðalbimi Guðmundssyni
verkamanni sem nú er látinn og
eignuðust þau sjö böm; og Svein-
björg, f. 1926, húsmóðir á Akureyri,
gfift Sigurði Haraldssyni og eiga þau
tvöböm.
Foreldrar Guðmundínu voru Pét-
ur Sveinbjömsson, f. 1881, d. 1950,
Guömundína Pétursdóttir.
b. á Laugum í Súgandafirði, og
Kristjana Friðbertsdóttir, f. 1884, d.
1981,húsmóðirþar.
Foreldrar Péturs vora Guðmund-
ur Jónsson frá Önundarfirði og
Ingibjörg Jónsdóttir frá Bolungar-
vík. Foreldrar Kristjönu voru Frið-
bert Guðmundsson í Hraunakoti,
áður hreppstjóri í Vatnadal í Súg-
andafirði, ogsíðari k.h., Sigmund-
ína Sigmundsdóttir húsmóöir.
eff viö þurfum aö
tala í ffarsímann!
Við hvetjum þá sem eiga stórafmæli á Þeir sem ekki hafa myndirtiltækar geta
næstunni að senda okkur myndir til birt- fengið teknar af sér myndir í þessu skyni
ingarmeðafmælístilkynningumblaðsins, á ritstjórn DV, Þverholti 11.
Myndirnar eru síðan endursendar. Ættfræðideild
Til hamingju
með afmælið
18. mars
Guðjón Daníelsson,
Kolmúla, Fáskrúðsfjarðarhreppi,
Bergþór Guðj ónsson,
Skólabraut 31, Akranesi.
Fanney Lárusdóttir,
Hlíóarvegi 45, Siglufirði.
Ágústa Sigurðardóttir,
Flókagötu7, Reykjavík.
Egill Hjartarson,
Skaftahlíð 32, Reykjavik.
Hans Valdimarsaon,
Miðhúsum, Reykjaíjaröarhreppi.
Brynhildur Friðþjófsdóttir,
Greniteigi 22, Keflavík.
Ágúst Geirsson,
Langagerði 3, Reykjavik.
Magnús Eyjólfsson
atvinnubíJstjóri,
Fagrabæ 2, Reykjavík.
Eiginkona
Magnúsarer
Alda Þórunn
Jónsdöttirfull-
trúi.
Þauverðaaö
heiman á af-
mælisdaginn.
Jón Þórisson,
Norðurgötu 46, Akureyri.
50ára
Kristján Sigurður Guðmunds-
son bóndi,
Steinum III, A-Eyjafjöllum.
Þórhildur Gísladóttir,
Álfhólsvegi 89, Kópavogi.
Jóna Jónsdóttir,
Vallarbarði 12, Hafnarfirði.
Jóhanna Björnsdóttir,
Hlíöarbyggð31, Garöabæ.
Magnús Þór Sveinþórsson,
Birtingakvísl 40, Reykjavik.
Gunnar Jóhannesson,
Barrholti 27, Mosfellsbæ.
Terence James Ronald Ashton,
Skeljagranda 1, Reykjavík.
Hörður Þorgilsson,
Hagamel 43, Reykjavik.
Guðmundur Bjarni Traustason,
Gaukshólum2, Reykjavík.
Nói Jóhann Benediktsson,
HlíðarhjaUa 53, Kópavogi.
Hólmfríður Jóhannesdóttir,
Skólavegi4, Hrísey.