Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1993, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR19. MARS1993
13
Menning
Verðlaunaverk. Lampi úr áli. Hönnuður og framleiðandi Pálmar Krist-
mundsson. Sýnandi: Epal.
íslenskur
hönnunardagur
Þann 4. mars sl. var boðið til íslensks hönnunardags og er það í fjórða
sinn á átta árum sem slíkur dagur er haldinn. Sem fyrr er það félagið
„Form ísland", félag áhugamanna um hönnun, í samvinnu við fyrirtæki
í húsgagna- og innréttingaframleiðslu sem heiðurinn á af þessu fram-
taki. Húsgagnaiðnaður hér á landi hefur átt mjög í vök að verjast gagn-
vart síauknum innflutningi og því er það dálítið kraftaverk á tímum sam-
dráttar og almenns úrræðaleysis að fyrirtæki í þessari grein skuli vera
reiðubúin að verja umtalsverðu fé til kynningar á vaxtarbroddi nýsköpun-
ar í íslenskri hönnun. Enn merkilegra er þetta framtak í ljósi þess að
fæstar af þeim nýjungum sem kynntar voru eru líklegar til að skila höf-
undum sínum og framleiðendum umtalsverðum tekjum. Einn söluaðilinn
orðaði það svo að með því að bjóða til sölu innlenda nýsköpun væri hann
að nýta arð af eigin innflutningi til aö svala þörf fyrir faglegan metnað
í starfi. Það að breyta hugmynd í sýningarhæfa frumgerð („prótótýpu")
útheimtir mikla vinnu og umtalsverð fjárútlát og oft fer annað eins eða
meira í að breyta athyghsverðri frumgerð í markaðshæfa framleiðslu-
vöru.
Sú hefð hefur skapast á hönnunardegi að sýna einstök verk í húsakynrr-
um viðkomandi fyrirtækja. Þessi tilhögun er réttmæt, að mati greinarhöf-
undar, og á hún sinn þátt í að gera þennan dag að áhugaverðum við-
burði. Það að sýna nýhönnun á „heimavelli" er fyrirtækjunum hvati til
fjárstuðnings sem hönnunin nýtur góðs af. Með hreinni samsýningu hönn-
uða væri höggvið á viss grasrótartengsl en ýmsir hönnuðir telja einmitt
nálægðina við framleiðsluna og handverkið vera einn helsta kostinn við
það að starfa hér á landi. Þá er það í sumum tilvikum kostur að geta
borið hina innlendu hönnun saman við þá erlendu vöru sem henni er
ætlað að keppa við.
Þó að flest fyrirtækin legðu metnað sinn í að standa sem best að kynn-
ingunni voru því miður nokkur frávik. Þannig var í sumum tilfellum
erfitt fyrir htt kunnuga að átta sig á þvi hvaða nýju verk var verið að
sýna, innan um hinn hefðbundna sölulager. Dæmi var um að erlendri
framleiðslu væri stiht upp við hlið hinnar íslensku án þess að slíkt væri
sérstaklega tilgreint. Úr þessu þarf að bæta í framtíðinni. Einnig er það
Hönnun
Pétur H. Ármannsson
umhugsunarefni hvort ekki þurfi að kynna sjálft hönnunarferlið betur.
Ég er t.a.m. ekki viss um að allir þeir sem sýningamar skoðuðu geri sér
fuha grein fyrir muninum á frumgerð annars vegar og markaðshæfri
framleiðsluvöru hins vegar. Frumgerðir nytjahluta verður að skoða og
meta á aht öðrum forsendum en fuhmótaða söluvöru. Að baki hvers hlut-
ar býr hugmynd sem hönnuði tekst misvel að útfæra í frumgerð sinni.
Oft er sú túlkun, sem valin er, aðeins ein af mörgum. Algengt er að stærð-
arhlutfóh, efnis- og htaval taki breytingum. Eins er frágangur og hand-
verk misjafnt að gæðum og ýmis tæknheg útfærsluatriði ekki að fuhu
leyst. Slíkt er ekki aðalatriði, fremur hitt að hugmyndin feh í sér hið
gullna jafnvægi formfegurðar og notaghdis sem er aðalsmerki góðrar
nytjahstar. Viss hætta getur verið í því fólgin fyrir hönnuð að klæða frum-
gerð sína í of endanlegan (sértækan) búning á slíkri sýningu. Með því
móti er oft lokað á leiðir sem ella hefðu staðið th boða sem valkostir í
frekari úrvinnslu. Áhugaverðast er að mínu mati þegar hönnuði tekst
að sýna hugmynd sína í mótun. Á þann hátt er áhorfandanum boðið að
gerast virkur í hönnunarferhnu, t.d. með því að vega og meta sama hlut-
inn í mismunandi efnum og útfærslum.
Nánar verður fjallað um einstök verk á hönnunardegi í tveimur grein-
um.
URVALSSPENNUSAGA
BLÓÐRÚWIR
Spennusaga af gamla skólanum þar sem engin leið er að gera upp á milli
hinna grunuðu fyrr en kemur að sjálfu lokaatriðinu þar sem lesandinn finn-
ur spennuna, regnið og myrkrið jafn glöggt og hann væri sjálfur á staðnum.
Bók þarf ekki að kosta 2000 krónur til að vera góð!
Úrvalsbækur kosta aðeins kr. 790,-
og ennþá minna í áskrift
Á næsta sölustað
eða í áskrift í síma