Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993
Fréttir
Fær bætur ffyrir óþarfa
vistun í fangageymslum
- dómstólar sýkna eigendur neta ítrekað af ákærum um ólöglega veiði
Héraösdómur Reykjavíkur hefur
dæmt ríkissjóð til að greiða Gústav
Daníelssyni frá Hvammstanga 50
þúsund krónur í skaðabætur auk
vaxta vegna vistunar hans í fanga-
klefum lögreglunnar á Blönduósi í
15 klukkustundir í ágúst 1991. Dóm-
urinn taldi það hafa verið óþarfa að
vista manninn í fangageymslu og til-
kveðja menn frá RLR sem hafði í for
með sér lengri frelsisskerðingu en
efni stóðu til. Þrátt fyrir þessa niður-
stöðu taldi héraðsdómur þó ljóst að
Gústav hefði gerst hlutdeildarmaður
í broti gagnvart opinberum starfs-
mönnum fyrir handtöku.
Málið er sprottið af harðvítugum
deilum nokkurra aðila sem hafa lagt
net fyrir utan Hvammstanga við
landeigendur við laxveiðiána Mið-
íjarðará. Málavextir eru þeir að
veiðieftirhtsmaður, lögreglumaður
og fleiri fóru í eftirhtsferð um Mið-
fjörð tíl að kanna netalagnir í sjó í
ágúst 1991. Norðan Hvammstanga-
hafnar komu þeir að neti sem lagt
hafði verið út af skeri. Veiðieftirhts-
maðurinn tók netið úr sjó og afhenti
það lögreglumanninúm.
Hótuðu að henda
yfirvaldinu í sjóinn
Þegar komið var til Skagastrandar
beið eigandi netsins við bryggjuna
ásamt Gústav og fimm öðrum mönn-
um. Hófust nú harðar deilur og
krafðist eigandinn þess að fá netið
sitt afhent. Því var svarað að lagt
hefði verið hald á það og fór lögreglu-
maðurinn að sækja bifreið sína. Á
meðan var gengið hart að veiðieftir-
htsmanninum og hótuðu menn því
að henda honum í sjóinn afhenti
hann ekki netið. Síðan tókust menn
á um netið og tókst eigandanum og
félögum hans aö koma því í bíl hans
þrátt fyrir að veiðieftirhtsmaðurinn
stigi á það og reyndi að hindra menn-
ina. Óku menn síðan á brott á tveim-
ur bílum.
Tók þá veiðieftirhtsmaðurinn á
sprett í átt aö lögreglubílnum og
veittu embættismennimir hinum
síðan eftirfor. Lögreglan á Blönduósi
stöðvaði síðan for netamannanna á
Blöndubrú og voru Gústav, eigandi
netsins, og þriðji maður færðir 1
fangageymslur. Netið var tekið í
vörslu lögreglunnar.
Bótaskylda ríkis ef
lögregla fer offari
í stefnu sinni taldi Gústav athafnir
lögreglu móðgandi og harkalegar og
að ekki hefði verið gætt lögskylds
réttar sakaðs manns og hefði frelsis-
skerðingin verið honum þungbær.
Samkvæmt lögum myndast bóta-
skylda af hálfu ríkisins ef handhafi
ríkisvalds fer offari. Með hhðsjón af
því að eðhlegt hefði verið hjá lög-
reglu að taka skýrslur af mönnunum
sem komu við sögu og láta þá síðan
lausa taldi dómurinn að lögreglan
hefði gengið of langt með aðgerðir
sínar að því er snýr að vistun í fanga-
klefum. Handtakan hefði hins vegar
átt rétt á sér.
Eins og að framan greinir tók hér-
aðsdómur afstöðu til þess atriðis að
Gústav og félagar hindruðu opinber-
an starfsmann við embættisstörf.
Varðandi það atriði taldi ríkissak-
sóknari á sínum tíma ekki ástæðu til
opinberrar málshöfðunar, það er
ákæru. Það mál fór og fer því ekki
lengra.
Veiðimenn sýknaðir
Vegna netalagnaima í sjónum við
Hvammstanga hafa héraðsdómstólar
tekið nokkur slík mál fyrir og voru
þrir sýknudómar kveðnir upp í þvi
sambandi. Ríkissakóknari ákvað að
una þeim dómum. í einu málinu var
sakfellt og var því máli áfrýjað.
Hæstiréttur komst síðan að þeirri
niðurstöðu að ósannað hefði verið
að um ólöglegar netaveiðar í sjó hefði
verið aö ræða.
-ÓTT
Starfsmenn Flugleiða vilja losna við tóbakið:
Vinnustaðurinn reyk-
laus frá 1. september
- reykingarþábannaðaríölluEvrópuflugi
Öskubakka má finna víðs vegar i skrifstofubyggingu Flugleiða við Reykjavik-
urflugvöll. Þeir verða hins vegar meö öllu óþarfir frá og með 1. september
næstkomandi þegar Flugleiðir verða reyklaus vinnustaður. Þau Mekkin
Bjarnadóttir og Gunnar Ólafsson sýna vilja starfsmanna í verki.
DV-mynd ÞÖK
Þröstur Ólafsson um kvótafrumvarpið:
Frestun til 1996?
„Meirihluti starfsmanna Flugleiða
reykir ekki og hefur sá hópur hvatt
mjög til þess að Flugleiðir verði reyk-
laus vinnustaður. Þeir sem ekki
reykja vilja síðan hjálpa hinum til
að hætta að reykja. Það á eftir að
ræða nánar um hvemig takmarkinu
verður náð en við erum sammála um
að fara jákvæðu leiðir.a í málinu og
forðast öh boð og bönn. Við efumst
ekki um aö reyklaus vinnustaður
muni skila sér aftur til fyrirtækisins
og starfsfólksins á mjög jákvæðan
hátt og þá í mjög víðum skilningi,“
sagði Már Gunnarsson, starfs-
mannastjóri Flugleiða, þegar Flug-
leiðafólk kynnti fyrirætlanir sínar
um að gera þennan stóra vinnustað
reyklausan.
Stefht er að því að allir vinnustaðir
Flugleiða verði reyklausir frá og með
1. september næstkomandi. 1200-
1300 manns vinna hjá Flugleiðum, á
vinnustöðum um aht land, svo fyrir-
tækið verður því stærsti reyklausi
„Eg tek mjög nærri mér þessar
ásakanir Hannesar. Þetta er óverð-
skuldaö níð. Ég veit ekki hvað hon-
um gengur til en mér þykir mjög
ómaklega að mér vegið,“ segir Sigrún
Stefánsdóttir sjónvarpsfréttamaðin-
um staðhæfmgar Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar dósents í kjaU-
aragrein í DV á þriðjudaginn.
Hannes heldur þvi fram að Sigrún
hafi verið ein þeirra starfsmanna
Sjónvarpsins sem sýndu vanþóknun
sína á ráðningu Hrafns Gunnlaugs-
sonar í fi-amkvæmdastjórastöðu á
Sjónvarpinu með því að klappa,
stappa, æpa og orga uppi á þingpöU-
um þegar ráðning Hrafns var til
umfjöUunar á Alþingi.
„Það er mjög að mínum starfs-
heiðri vegið en ég ætla ekki í mál við
Hannes. Þetta mál er honum bara til
vansæmdar."
Sigrún segist telja það nauðsynlegt
vinnustaður landsins að Ríkisspít-
ölunum undanskUdum. Reyklausa
stefnan er orðin til fyrir tUstiUi
starfsfólksins sjálfs og hefur þegar
verið myndaður vinnuhópur um
máhð sem nefnist samstarfshópur
um heilnæmt vinnuumhverfi. í
hópnum er bæði reykingafólk, fyrr-
um reykingafólk og fólk sem aldrei
hefur reykt.
Fram til 1. september verður
tíminn aðaUega notaður til fræðslu
og námskeiða um reykingar og skað-
semi þeirra og þau jákvæðu áhrif
sem það hefur í for með sér að „drepa
í“. Mun starfsfólk frá Krabbameins-
félaginu Uðsinna Flugleiðamönnum
til að ná settu marki auk starfs-
manns tóbaksvamanefndar.
Reykleysi hjá Flugleiðum mun ekki
aðeins ná til vinnustaða á jörðu niöri
því ekki er leyft að reykja í flugvélum
á innanlandsflugi og frá og með 1.
september verður bannað að reykja í
öUuEvrópuflugifélagsins. -hlh
að starfa á fjölmiðU jafnhUða kennsl-
unni í hagnýtri fjölmiðlun við Há-
skóla íslands. Henni finnist Hannes
kasta steini úr glerhúsi. Hann kenni
í Háskólanum og Verslunarskólan-
um og riti bækur samhUða kennsl-
unni en Sigrún hefur verið í fuUu
starfi við HI auk þess sem hún hefur
starfað sem verktaki hjá Sjónvarp-
inu.
Starfsmannafélag Sjónvarpsins
hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem
Hákon Már Oddsson, Baldur Þ. Jón-
asson og PáU Sigurbjömsson, starfs-
menn Sjónvarpsins, segjast hafa
staðið nærri Sigrúnu á áhorfenda-
pöUum Alþingis. „Hún hvorki stapp-
aði, æpti né orgaði. Hvorki í eitt
skipti eða annaö. Meint lófatak henn-
ar hefði ekki náð að ijúfa kyrrö í
hljóðum sal,“ segir í yfirlýsingunni.
-GHS
Þröstur Ólafsson, annar formanna
tvíhöfðanefndarinnar, sagði í samtaU
við D V, um þá deUu sem uppi er inn-
an þingmannaUös stjómarflokkanna
um sjávarútvegsfrumvarp það sem
byggt er á tiUögum tvíhöfðanefndar-
innar, að stöðvim frumvarpsins nú
gæti orðið til þess að það kæmi ekki
aftur á dagskrá fyrr en 1996.
„Þetta er svo viðkvæmt mál að
ótrúlegt er að það verði tekið tU með-
ferðar rétt fyrir sveitarstjómarkosn-
ingamar næsta vor. Þá er hins vegar
ekki nema eitt ár í þingkosningar og
ekki verður betra að taka það fyrir
þá. Eftir þær kosningar er komið að
stjómarmyndunartilraunum og því
Ijóst að ekkert verður gert fyrr en
1996,“ sagði Þröstur.
„Ég get alveg tekið undir þetta með
Þresti,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra.
Þröstur sagöi ennfremur að ef
frumvarpið yrði stöðvað nú yrðu
núverandi lög um stjómun fiskveiða
áfram í gUdi. í þeim er gert ráð fyrir
að smábátamir fari inn í kvótakerfið
og fái hver um sig aflamark á næsta
fiskveiðiári. -S.dór
Stuttar fréttir
Versiaðerlentiis
íslendingar eyddu samtals 1,5
mUIjarði á ferð um Evrópu á síð-
asta ársfjórðungi 1992. Þetta er
niðurstaöa könnunar sem gerð
var fyrir Hagfræðistofnun Há-
skólans. Skv. Mbl. hefðu sömu
innkaup hér getað aukið lands-
framleiðslu um 787 milljónir og
fjölgað ársverkum um 72.
Völd Kjúkka verði skert
Nefnd á vegum heUbrigðisráð-
herra vinnur að frumvarpsdrög-
um sem eiga að skerða mjög
ábyrgð og áhrif hjúkrunarfræð-
inga og auka ábyrgð lækna.
Tíminn greinir frá þessu.
Deilurmeðallækna
Þriðji hver heimilislæknir hef-
ur sagt síg úr Læknafélagi
Reykjavíkur. Ástæðan er ágrein-
ingur mUli þeirra og sérfræðinga.
Heimild fc'l verkfalls
Flugvirkjar samþykktu á fé-
lagsfundi í gær að veita stjóm og
trúnaðarráði Flugvirkjafélagsins
heimUd til verkfaUsboðunar.
Erlendir aðUar fjárfestu aðeins
fyrir 814 mUljónir á íslandi í fyrra
þrátt fyrir rýmkaöar heimildir.
Að stærstum lUuta var um fram-
lag Alusuisse til ÍSAL að ræða.
Íslendíngar fjárfestu fyrir 541
milljón í útlandinu í fyrra.
Greiðslukortin notuð
Tæpt ár er síðan bensínstöðv-
arnar byijuðu að taka við
greiðslukortum. Samkvæmt upp-
lýsingum Mbl. eru kortin notuö
í 20 til 30% filvika.
Verkbanniaflétt
Bygginganefnd ReykjavUtur
heimUaði í gær Vegagerðinni að
hefja á ný framkvæmdir við EU-
iðaárbrúna. Vegagerðin hefur
faUist á að sækja um leyfi tU
nefhdarinnar,
Verðhrunágúrkum
Gúrkuverð hefur lækkaö gífur-
lega á undanfömum dögum
samfara auknu framboöi. Al-
gengt verö er tæpar 100 krónur
kílóiö en var um 300 krónur þegar
innlendar gúrkur komu á mark-
að i vor. Mbl. greindi frá þessu.
Ásakanir Hannesar
eru óverðskuldað níð
- segir Sigrún Stefánsdóttir