Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Síða 10
Uflönd
Fylgið dvínar ört og
afrekin enn óunnin
- forsetinn segir að sér hafi gengið verr að koma málum fram en hann vildi
DeKlerkbiðst
afsökunará
apartheid
F.W. de
Klerk, forseti
Suður-Afríku,
baðst í gær af-
sokunar á því
að tlokkur
hans, þjóðar-
flokkurinn,
skyldi hafa
komið á aðskilnaðarstefhunni í
landinu. Þá sagði hann að Nelson
Mandela, leiðtogi Aftíska þjóðar-
ráðsins, hefði tii að bera þá
mannkosti sem þyrftu að prýða
forseta. Þjóðarráðiö hefði þó ekki
nægilega reynslu til að stjórna.
Ekki náðist í leiötoga blökku-
manna til að fa álit þeirra á afsök-
unarbeiðninni.
Nelson Mandela sagði i sjón-
varpsviðtali að hann mundi fall-
ast á hvítan forseta í Suður-Afr-
íku ef sú yrði niðurstaöan í fyrstu
kosningunum sem allir kynþætt-
ir fengju að taka þátt I
Reuter
Stuttar fréttir
„Ég er sáttur við árangurinn til
þessa en hef komist að því að gangur
mála er ekki sá sem ég vildi,“ sagði
Bill Clinton Bandaríkjaforseti eftir
fyrstu hundrað daga sína í embætti.
Hefð er fyrir því í Bandaríkjunum
að forseti fái frið til að sanna sig á
þessu tímabili sem gjaman er kennt
við hveitibrauðsdaga.
Nú tekur óvægnari stjórmálabar-
átta við og hefur Clinton þó ekki far-
ið varhluta af gagnrýni til þessa.
Fylgi hans dvínar ört og nýjustu
skoðanakannanir sýna að hann hef-
ur nú aðeins tiltrú helmings kjós-
enda en þegar hann tók við embætti
voru fast að 80% þeirra skoðunar að
honum myndi farnast vel á forseta-
stóli.
Afrekin hafa líka látið á sér standa.
Clinton hefur lent í vandræðum í
ýmsum málum og hann verður að
sætta sig við að samdráttur er í efna-
hagslífnu eftir að George Bush skil-
aði búinu í vexti.
Þingið hefur reynst honum erfiö-
ara en spáð var. Margir demókratar
hallast á sveif með repúblikönum í
efnahagsmálum og fjárlagahallinn
er enn sá sami og áður. í kosninga-
Ástir samlyndra hjóna í Hvíta hús-
inu. Símamynd Reuter
baráttunni notaði Clinton haliann
með góðum árangri gegn Bush.
Skoðanakannanir sýna einnig að
fólki þykir nóg um hik Clintons í '
utanríkismálum. Honum er hrósað
fyrir góða sambúð við Rússa en á
öðrum sviöum hefur verr tekist til.
Sérstaklega sakna menn afgerandi
ákvarðana varðandi stríðið í Bosníu.
Almenningur er þó sáttur við ár-
angurinn í heilbrigðismálum en þar
er forsetafrúin Hiilary Rodham við
stjómvölinn.
Reuter
Nýstjómarskrá
Borís Jeltsín hefur kynnt drög
aö nýrri stjómarskrá þar sem
tekiö verður upp forsetalýðræði
i Rússlandi i líkingu við þaö
franska.
Þeir stóru styðja Jettsín
Leiðtogar sjö helstu iðnríkja
heims hafa lýst yfir stuöningi við
steíhu Jeltsíns Rússlandsforseta.
Ófriður vtö fríðarborðið
Eftir fyrstu viku endumýjaðra
samningaviðræðna araba og
ísraelsmanna eru samninga-
mennimir bæði óánægöir og ráð-
villtir og láta ófriölega.
Fimmtán útiagar heim
í þaö minnsta fimmtán paiest-
ínskir útlagar fá að snúa heim frá
óbyggðunum í Suður-Libanon
eftir vetursetu þar.
Sáttum iækkun vaxta
Leiðtogar sjö helstu iðnríkja
heims hafa náð sátt um að vinna
aö lækkun vaxta og draga úr rík-
isútgjöldum.
EES stadfestur i Noregi
Norska Stórþingið hefur stað-
fest samninginn um EES.
Skinn hækkaenn í Höfn
Refaskinn hækkuðu enn á síð-
asta degi voruppboösins í Kaup-
mannahöfn. Hækkunin nam allt
aö 22%.
Vandræði hjá Uoyds
Tryggingarisinn Loyds í Lund-
únum hefur tilkynnt björgunar-
aðgerðir vegna stöðugt versnandi
fjárhags.
Líranáfailandafæti
ítalska liran stóð mjög höllum
fæti á gjaldeyrismörkuðum í
morgun. Búist er við gengisfalii í
dag.
SelduObserver
Breska blaðiö Observer hefur
verið selt nýjum eigendum,
keppinautnum The Guardian.
Bók um Saddam Hussein
Leyniskytta úr breska hemum
hefur skrifaö bók um xmyndað
tilræði við Saddam Hussein ír-
aksforseta. Höfundurinn fær
góða greiöslu fyrir. í bókinni
heppnasttilræðið. Reuter
Díana prinsesa og Karl hittust í gær í boði hjá Mario Soares, forseta Portúg-
als, í Lundúnum. Karl þótti venjufremur fýldur á svip og var ekki að sjá
að mikill fögnuður væri yfir samfundunum. Þau eru skilin að borði og sæng.
Símamynd Reuter
Viðburðaríkir dagar hjá konimgsfjölskyldunni:
Dæmdur morðingi límdi
sig við hlið hallarinnar
Uppi varð fótur og fit í Bucking-
hamhöli í gær þegar maöur nokkur
límdi sig við hallarhUöið. Ekki
hækkaði brúnin á kóngafólkinu þeg-
ar í ljós kom að dæmdur morðingi
var á ferð.
Þetta þykir ekki góð byijun á heim-
sóknum hins sauðsvarta almúga í
hölUna. Nú verður hún opin almenn-
ingi gegn gjaldi enda sverfur að í búi
drottningar þegar þingmenn vilja
sem minnst leggja af opinberu fé í
sjóöi hennar. Búist er við um 400
þúsund gestum árlega og vonast
menn tíl að þeir verði betur uppaldir
en sá sem límdi sig við hUðið.
Það bar annars til tíðinda að Karl
og Díana hittust í boði hjá Mario
Soares, forseta Portúgals, en hann
er í opinberri heimsókn í Bretlandi.
Þau hafa ekki látið sjá sig saman
opinberlega upp á síðkastið og engir
sérstakir fagnaðarfundir urðu að
þessu sinni. Karl var meira að segja
áberandi fýldur á svip. Það þykja þó
ekki tíðindi.
Reuter
Sanna líf fyrir 3,4
milljörðum ára
Nýlegur steingervingafundur í
Ástralíu hefur leitt til þess að nú er
vitað með vissu að líf var kviknaö á
jörðinni fyrir 3,465 mUljörðum ára.
„Þetta eru elstu góðu sannanirnar
fyrir lífi,“ sagði steingervingalíffræð-
ingurinn J. William Schopf, forstöðu-
maður stofnunar við Kalifomíuhá-
skóla, sem rannsakar þróun og upp-
runa Ufs á jörðinni.
Þar var hann að vísa tU stein-
gervinga af þráðlaga örverum sem
fundust í basaltgrjóti við bæinn
Marble Bar í vesturhluta ÁstraUu.
Steingervingarnir sanna tilvist eU-
efu msmunandi afbrigða af örverum
sem Schopf sagöi aö væru mUU 3,46
og 3,47 mUljaröa ára gömul.
„Þetta eru elstu þekktu stein-
gervingarnir," sagði Schopf. „Það er
ekki vitað um neitt eldra en þetta
sem með vissu er hægt að túika sem
líf.“
Schopf sagöi að þessir nýju stein-
gervingar væru sérstaklega forvitni-
legir þar sem lífverurnar væru tölu-
vert frábrugönar hver annarri og
virtust einnig vera færar um ljóstil-
lffun, eins og plöntur.
„Það var ekki einasta líf á þessum
tíma heldur er þetta sönnun þess aö
þaö var þegar mjög fjölbreytt," sagöi
Schopf.
Reuter
Stáliðnaðarmenn í verkfall
Stærsta verkalýðsfélag Þýska-
lands, IG Metall, tilkynnti í gær aö
félagar þess í stál- og vélaiðnaði í
austurhluta Þýskalands mundu
leggja niður vinnu á mánudag. Það
verður fyrsta löglega verkfallið í
þessum landshluta eftir sextíu ára
stjórn nasista og síðan kommúnista.
Verkfalliö er boöað vegna ákvörð-
unar atvinnurekenda að segja upp
kjarasamningi frá 1991 sem hefði
fært verkamönnum 20 prósenta
launahækkun í þessum mánuöi.
Reuter
Bosníu-Serbar ætla að
skoða friðaráætlun aftur
Sáttasemjcirar í borgarastríðinu í
fyrrum lýðveldum Júgóslavíu hafa
boðað deiluaðila til ráðstefnu í
Aþenu um helgina eftir að Bosníu-
Serbar sögðust mundu skoða aftur
friðaráætlun sem þeir höfnuðu fyrr
í vikunni.
Leiötogar Serba í Bosníu, sem eru
undir þrýstingi frá Slobodan Milo-
sevic Serbíuforseta, boðuðu þing-
fund þann 5. maí til að „meta í
smáatriðum alla þætti framkom-
innar áætlunar, þar á meðal nýjar
upplýsingar."
Með fundinum í Aþenu ætla
sáttasemjararnir Owen og Vance
að gefa Bosniu-Serbum annað
tækifæri tii að undirrita friðaráætl-
unina sem íslamstrúarmenn og
Króatar hafa þegar fallist á, áður
en gripið verður til aögerða gegn
þeim.
Clinton Bandaríkjaforseti hefur
efasemdir um að fundurinn í
Aþenu muni binda enda á stríðsá-
tökin í Bosníu.
Reuter
Teikning Lurie