Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Page 22
FÖSTUDAGUR 30: APRfl. 1993
22
Hagnýt lögfræði
____________________________________________________________________jL.________
„Því ná lögin ekki til bílaviðskipta á milli venjulegs fólks né heldur til
tjóns sem verður vegna bilunar í heimilistæki sem fjölskyldan fékk t.d.
í jólagjöf frá afa og ömmu.“
Skaðsemis-
ábyrgð
- aukin neytendavemd
Með skaösemisábyrgð er átt við
ábyrgð sem framieiðendur eöa
dreifingaraðilar bera á tjóni sem
hlýst af ágalia á vöru sem þeir hafa
framleitt eða dreift. Með ágaUa er
átt við að vara sé ekki jafn örugg
og vænta mátti. Felst í þessu aukin
vernd fyrir neytendur.
Hvað vemda lögin?
Lögin um skaðsemisábyrgð ná til
þess tjóns sem verður á mönnum
eða munum vegna þess að sölu-
hlutur er haldinn einhverjum
skaðlegum eiginleikum. Þessir
skaðlegu eiginieikar koma fram við
notkun eða geymslu eftir að varan
er komin í hendur kaupandans.
Lögin ná einungis til skaða sem
verður út fTá skaðræðishlutnum
en taka ekki til tjóns sem kynni að
verða á hlutnum sjálfum. Þau taka
einungis til hluta í eigu neytenda
en vemda ekki hluti sem á að selja
áfram eða nota í atvinnurekstri.
Hvenær stofnast
bótaréttur?
Vara telst haldin ágalla skv. lög-
unum ef hún er ekki jafn örugg og
vænta mátti með hhðsjón af því
hvenær henni var dreift, hvemig
hún var boðin og kynnt og hvemig
mátti ætla að varan yrði notuð.
Það telst hins vegar ekki ágalli
ef seinna kemur betri vara á mark-
aðinn én sú sem áður var seld.
Til þess að eiga rétt á bótum verö-
ur þolandi tjónsins að sanna að
hann hafi orðið fyrir tjóni, hversu
miklu fjóni, að varan hafi veriö
haldin ágaUa og að þessi ágalii hafi
leitt til Ijónsins.
Bótaréttur stofnast hins vegar
ekki ef ágalli er vegna ófrávíkjan-
legra fyrirmæla ríkisins um gerð
vörunnar eða þá að ómögulegt hafi
verið að finna ágaliann á grund-
velli fræðilegrar eða tæknilegrar
þekkingar þegar vörtmni var
dreift
Ef framleiðandi getur sýnt fram
á að ágallinn, sem olli tjóni, hafi
ekki verið fyrir hendi þegar hann
dreifði vörunni þá ber hann ekki
bótaábyrgð.
Hverjir bera ábyrgð
Þeir sem bera ábyrgð skv. lögun-
um em framleiðendur og dreif-
ingaraðilar.
Framleiðendur teljast þeir sem
búa til fullunna vöru, hluta vöm,
láta af hendi hráefni eða afla afurða
Umsjón
ORATOR
Félag laganema
úr náttúrunni. Undir hugtakiö
framleiðendur fallá einnig þeir sem
flyfja vöm til landsins í því skyni
að selja hana, leigja eöa versla með
á annan hátt.
Dreifingaraðilar em þeir sem
dreifa vöm án þess að falla undir
hugtakið framleiðandi.
Ef sá sem orðið hefur fyrir tjóni
getur ekki komist að því hver fram-
leiöandinn er þá getur hann snúið
sér til dreifingaraðilans. Dreifmga-
raðilinn ber þá ábyrgð nema hann
geti án óþarfa tafa skýrt frá því
hver hinn raunvemlegi framleið-
andi (innflytjandi) var.
Hlutþarf að afhenda
í atvinnuskyni
Bótaábyrgð stofnast ekki sam-
kvæmt lögunum nema hlutur sé
látinn af hendi í atvinnuskyni til
neytanda. Með því er átt við að
seljandinn (sá sem afhendir) hafi
slíkt að atvinnu. Því ná lögin ekki
til bílaviðskipta á milli venjulegs
fólks né heldur til tjóns sem verður
vegna bilunar í heimilistæki sem
fjölskyldan fékk t.d. í jólagjöf frá
afa og ömmu.
Nýlögenekki
réttamýjung
Þrátt fyrir að lögin um skaðsem-
isábyrgð séu nýsett er talið að regi-
ur, áþekkar þeim sem lögin geyma,
hafi verið í gildi á íslandi. Að
minnsta kosti em til dómafordæmi
sem gerá ríkar kröfur til framleið-
enda eða seljenda neytendavam-
ings. Með lögfestingunni urðu regl-
ur þessar skýrari og gera auknar
kröfur um aðgæslu á herðar fram-
leiðendum og dreifíaðilum. Lögin
um skaðsemisábyrgð tóku mið af
réttarþróun í Evrópu og voru ein
fyrstu lögin sem tóku mið af EES-
samningnum.
Matgæðingnr vikuimar
DV
Kjúklinga-
salat
- með pastaskeljum og vínberjum
„Þessi réttur er góður sem léttur aðalréttur, borinn
fram með hvítvíni eða vatni og góðu brauði. Ekki er
verra að nota afgang af kalkún í staðinn fyrir kjúkling-
inn,“ sagði Anna Pála Vignisdóttir matvælafræðingur
sem er matgæðingur DV nú. Anna Pála miðlar upp-
skrift af kjúkhngasalati. í hana þarf eftirfarandi:
350 g pastaskeljar
3 matsk. frönsk salatolía (French dressing)
125 g blá vínber, skorin í helminga og steinar fjarlægðir
2 sellerístönglar, skornir í þunnar sneiðar
1 græn paprika, skorin í bita
50 g ristaðar cashew-hnetur
750 g kjúkhngakjöt af steiktum kjúklingi, skorið í bita
Aðferð
Sjóðið pastað, sigtið og blandið saman við salatol-
íuna. Kryddið með salti og pipar og látið kólna.
Takið frá nokkur vínber til að skreyta með og bland-
iö síðan öhu saman í skál.
Sósa
75 g þurrkaðar apríkósur
2 matsk. olífuoha
1 laukur, skorinn smátt
1 matsk. milt karrí
2 tesk. tómatþykkni
2 matsk. sítrónusafi
2 matsk. púrtvín eða sætt sérrí
250 ml majonsósa
1 doha hrein jógúrt
Hellið heitu vatni yfir apríkósurnar svo það rétt
hylji þær og látið standa í 20 mínútur.
Steikið laukinn í olíunni þar til hann er mjúkur.
Bætið þá karríinu út í og steikið aðeins. Bætið síðan
öhu sósuefninu út í ásamt apríkósunum og vatninu
og sjóöið við vægan hita í smástund. Kryddið aðeins
Anna Pála Vignisdóttir matvælafræðingur.
með salti og pipar. Kæhð.
Blandið saman við majonsósu og júgúrt og setjið
saman við salatið. Kæhð í a.m.k. 3 klst. Ef þetta verð-
ur of þykkt þá þynnið með meiri jógúrt.
Raðið salat- eða ísbergblöðum í skál og hellið blönd-
unni yfir. Skreytið með vínberjum.
Anna Pála skorar á Kristin Guðmundsson meðferö-
arfuhtrúa.
Hinhliðin
Launin best þegar
ég vinn erlendis
- segir Ágúst Guðmundsson kvikmyndaleikstjóri
„Laun mín eru sveiflukennd en
best þegar ég vinn erlendis," segir
Ágúst Guðmundsson kvikmynda-
stjóri sem sýnir á sér hina hliðina
í helgarblaði DV að þessu sinni.
Fullt nafn: Ágúst Guðmundsson.
Fæðingardagur og ár: 29.06.’47.
Maki: Kristín Atladóttir.
Börn: Einn sonur og einn fóstur-
sonur.
Bifreið: Citroön GSA Pahas ’82.
Starf: Kvikmyndaleikstjóri.
Laun: Sveiílukennd en best þegar
ég vinn erlendis.
Áhugamál: Ýmsar afurðir andans,
einkum bókmenntir.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Þrjár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Vera í beinni útsendingu.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Tala ófullur við mjög
drukkna menn.
Uppáhaldsmatur: Langouste
thermidor.
Uppáhaldsdrykkur: Veuve Chcqu-
ot.
Hvaða iþróttamaður fmnst þér
standa fremstur í dag? KR-ingur-
inn, sonur minn.
Uppáhaldstímarit: Fréttabréf Fé-
lags kvikmyndagerðarmanna.
Hver er fallegasta kona sem þú
Ágúst Guðmundsson.
hefur séð? Catherine Deneuve.
Ertu hlynntur eða andvígur rikis-
stjórninni? Oftar andvígur en
hlynntur. Á öðrum forsendum þó
en flestir aðrir, t.d. tel ég Sighvat
hafa staðið sig nokkuð vel við
skelfilegar aöstæður.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Höfund Njálu.
Uppáhaldsleikari: Gísh Halldórs-
son.
Uppáhaldsleikkona: Jeanne More-
au.
Uppáhaldssöngvari: George Brass-
ens.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ingi-
björg Sólrún, en ég myndi samt
aldrei kjósa flokkinn hennar.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Jón í rafmagnsauglýsingunni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Leiknar
íslenskar myndir.
Ertu hlynntur eða andvigur veru
varnarliðsins hér á landi? Þegar
herinn fer, sem ég trúi að verði
fyrir aldamót, þá verðum við ekki
spurð áhts.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 1.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Jón Múh
meö djassþáttinn sinn.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Hauk-
ur Hergeirsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Sá sem
ég stundaöi síöast er orðinn að
hstasafni.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: ÍBV.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Að gera eftirminni-
lega bíómynd.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Fæ ég frí?