Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Qupperneq 30
röSBTtMótíR
Kvikmyndir
One False Move:
Áhugaverðar persónur í oíbeldismpd
Um miðja næstu viku mun
Laugarásbíó taka til sýningar saka-
málamyndina One False Move,
kvikmynd sem vakið hefur mikla
athygli vestan hafs og fengið mjög
góða dóma hjá gagnrýnendum.
Hinn þekkti bandaríski kvik-
myndagagnrýnandi Roger Ebert
skrifaði: „One False Move er saka-
málamynd sem lyftir þér upp og
ber þig áfram í rísandi spennu,
kvikmynd sem gerð er af ótrúleg-
um krafti. Á stuttum lista yfir bestu
kvikmyndir um ofbeldisfulla
glæpamenn á One false Move að
vera í heiðurssæti við hlið mynda
eins og In Cold Blood, Henry:
Portrait of a Serial Killer, Bad-
lands, The Executioner’s Song og
At Close Range. One False Move
er mikil kvikmynd, ein af þeim
bestu á árinu og kynnir komu hæfi-
leikaríks leikstjóra, Carl Frankl-
ins.“ Svo mörg voru þau orð Eberts
og ekki lítið hrós um kvikmynd
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
leikstjóra sem ekki hefur áður leik-
stýrt kvikmynd í fullri lengd.
Eins og komið hefur fram íjallar
One False Move um glæpi og
glæpamenn. Handritið skrifuðu
Billy Bob Thomton og Tom Epper-
son. Myndin byrjar á því aö segja
eina sögu um þijá glæpamenn sem
eru á flótta frá Los Angeles til Ark-
ansas og endar á því að segja tvær
sögur. Seinni sagan er um sam-
skipti lögregluforingja í smábæ og
tveggja harðra lögreglumanna frá
Los Angeles sem koma til Arkansas
til að hjálpa til að hafa uppi á
glæpamönnunum og leggja gildru
fyrir þá. Myndin skýrir nokkuð
jafnt frá athöfnum glæpamann-
anna og lögreglunnar um leið og
upp á yfirborðið kemur samband
sem er á milli þessara tveggja hópa.
Handritshöfundur
og leikari
Eitt aðalhlutverkið í One False
Move leikur Billy Bob Thorton.
Hann skrifar einnig handritið, sem
hefur mikið verið lofað, ásamt
æskuvini sínum Tom Epperson.
Leikur Thorton hinn illskeytta Ray
sem er moröingi og eiturlyfjasali,
Cynda Williams leikur unnustu
hans í myndinni en þess má geta
að hún er eiginkona Thortons.
Það þarf engan að undra að
myndin er látin gerast að miklu
leyti í Arkansas, bæði Thorton og
Epperson ólust upp á þeim slóðum.
Thorton hefur verið viðloðandi
leiklist allt frá því að hann var í
barnaskóla. Eftir að hafa ferðast
um með leikhópum og leikið í
hljómsveitum ákvað hann að verða
um kyrrt í Los Angeles. Þar byrjaði
hann ásamt félaga sínum að skrifa
kvikmyndahandrit og seldi nokkur
en One False Move er það fyrsta
sem notað hefur verið. „Þessi kvik-
mynd kom ekki neins staðar að.
Margt er úr raunveruleikanum,
ekki þó söguþráðurinn en bak-
grunnurinn, persónumar og raun-
sæið. Thorton segist hafa notið þess
að skrifa handritið af One False
Move en segir að það sé alls ekki
ætlun hans að festast í að skrifa
ofbeldisfull handrit. Hans uppá-
haldshandritahöfundur er Horton
Fobte og segir Thorton takmark
sitt að skrifa gott dramatískt hand-
rit um líf venjulegs fólks og nefnir
Tender Mercies sem frábært slíkt
handrit.
Carl Franklin
„Hann er besti leikstjóri sem ég hef
Þrátt fyrir mikið ofbeldi hefur One False Move fengið mjög góðar viðtök-
ur.
unnið með,“ segir Bill Paxton um
Carl Franklin en Paxton leikur
einn lögreglumanninn. Carl
Franklin hafði gengið ágætlega á
leiklistarbrautinni áður en hann
sneri sér að leikstjóm. Sem leikari
byrjaði Franklin feril sinn á ekki
ómerkari hátíð en Shakespeare
Festival í New York en flutti fljót-
lega til Los Angeles þar sem hann
hefur búið í mörg ár. Lék hann
jöfnum höndum í leikhúsi og sjón-
varpi í tvo áratugi, oft stór hlutverk
en var samt alltaf baka til, ef svo
má að orði komast.
Árið 1986 ákvað hann að tími
væri kominn til að auka þekkingu
sína.og settist á skólabekk í Amer-
ican Film Institute þar sem hann
útskrifaðist tveimur árum síðar úr
leikstjórnardeild. Hans fyrstu
verkefni sem leikstjóri var fyrir
Roger Corman og fetaði hann þar
með í fótspor margra þekktra leik-
stjóra sem hafa byijað feril sinn
hjá Corman. Ekki leikstýrði hann
þó kvikmyndum í fullri lengd held-
ur var sjónvarpið hans vettvangur.
Lokaverkefni hans við American
Film Institute, Punk, varð til þess
að honum var boðið að leikstýra
One False Move. Þegar því var lok-
ið tók hann að sér kennslu við AFI
og vann í leiðinni að gerð sjón-
varpsþátta sem nefndir voru Shel-
ton Avenue. í þessum þáttum er
fylgst með einni svartri fjölskyldu
yfir eina helgi.
One False Move hefur orðið til
þess að beina augum manna að
Carl Franklin sem varla getur tal-
ist til ungu reiðu svörtu mannanna
í Hollywood, enda maður með
tveggja áratuga reynslu í kvik-
myndabransanum, en þarna er
greinilega kominn leikstjóri sem á
eftir að láta að sér kveða í framtíð-
inni.
-HK
Kvikmyndahátíðin í Cannes:
Eins og mörgum er kunnugt
verður kvikmynd Óskars Jónas-
sonar, Sódóma Reykjavík, meö í
helstu hliðarkeppninni á kvik-
myndahátíðinni í Cannes sem
verður haldin 13.-24. maí. Er þetta
mikil viöurkenning fyrir Óskar og
kvikmynd hans og verður gaman
að fylgjast meö gengi hennar á
þessari virtustu kvikmyndahátíð í
veröldinnl
Það sem vekur kannski mesta
athygli þegar listinn yfir þær kvik-
myndi sem sýndar verða í Cannes
er skoðaður er hve hlutur Banda-
ríkjanna er lítill miðaö við fyrri ár
en bandarískar kvikmyndir hafa
hirt mörg stærstu verðlaunin á
undanfórnum árum. Þess í stað eru
breskar og franskar kvikmyndir
mest áberandi.
Hápunkturinn að margra mati
verður samt hvorki bresk, banda-
rísk eða frönsk kvikmynd heldur
er beðið með mestrí eftirvæntingu
eftir nýjustu kvikmynd Wim
Wenders sem er framhald Hiroins
yfir Berlín sem að raargra mati er
besta kvikmynd Wenders hingað
til. Aðrir þekktir leikstjórar, sem
eiga nýjar kvikmyndir á hátíðinni,
eru Akira Kurosawa, Peter Gre-
enaway og Taviani-bræöur, svo að
einhveijir séu nefndir.
í þetta skipti eru þaö aðeins þrjár
bandarískar kvikmyndir sem
keppa um aöalverðlaunin, Gull-
pálmann og fimm aörar sem sýnd-
ar verða utan keppni en nokkrar
kvikmyndir, sem aöstandendur
hátíöarinnar gerðu sér vonir um
að yrðu frumsýndar í Cannes, fást
ekki á hátíöina. Má þar nefna nýj-
ustu mynd Martin Scorsese, Jonat-
han Demme ogRobert Altman. „Ég
reyndi allt sem ég gat til að fá að
sýna þessar myndir,” segir aðal-
skipuleggjari hátiðarinnar, Gilles
Jacob, „en greinilegt er að áherslu-
breyting hefur orðið hjá bandarísk-
um framleiðendum og svo eru sum-
ar myndanna, sem hefðu komið til
greina á hátíðina, ekki tilbúnar."
Áður hafði verið auglýst að loka-
mynd hátíðarinnar yrði nýjasta
kvikmynd Steven Spielberg, Ju-:
rassic Park, en nú hefur henni ver-
ið kippt út og lokamynd hátíðar-
innar verður franska myndin
Toxic afair með Isabella Adjani í
aðalhlutverki.
Á síðasta ári var fjórðungur allra
mynda, sem sýndar voru á kvik-
myndahátiðinni í Cannes, banda-
rískar. Það var til þess að einhverj-
ir fóru að kalla hátíðina „Holly-
wood á Rivierunni”. Jakob sagði
víð blaðamenn að á undanförnum
árum hefðu hann og starfsmenn
hans verið ásakaðir um að gera
bandarískum kvikmyndum of hátt
undir höföi en nú væri hann ásak-
aður fyrir að hafa þær of fáar.
Sú breska kvikmynd, sem beðið
er eftir með hvað mestri eftirvænt-
ingu, er nýjasta kvikmynd Ken-
neth Brannagh, Much Ado About
Nothing, sem byggð er á leikriti
eftir William Shakespeare. Auk
Brannagh og eiginkonu hans,
Emmu Thompson, leika í mynd-
inni Micliael Keaton, Denzel Was-
hington og Keanu Reeves.
Að undanfömu hafa margir úr
kvikmyndaheiminum lagt öflun
fjár til styrkar rannsóknum á al-
næmi lið sitt og verður haldin mik-
U veisla í Cannes 20. maí þar sem
vonast er til að safnist miUjón doll-
arar. Þeir sem standa fyrir þessari
hátíö eru meðal annars Elizabeth
Taylor, Pedro Almodovar, Bern-
ardo Bertolucci og Anthony Hopk-
ins.
Plaköt, sem gefin hafa verið út
fyrir kvikmyndahátíðina í Cannes,
hafa ávallt vakið athygli, Á plak-
atinu í ár verður mynd af Cary
Grant og Ingrid Bergman í kvik-
mynd Alfred Hitcheocks, Notorío-
us. Eru þau í atriði sem margir
vUja meina að sé lengsti kossinn á
hvíta tjaldinu. Notorious var gerð
1946 og það er einmitt fyrsta árið
sem kvikmyndahátíöin í Cannes
var haldin.