Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Síða 44
Gro Harlem verður fyrir hörðum árásum í bók eftir flokksbróður:
Óvænt lýst sem
útsmognum ref
- flokksmenn hafa brugðist ókvæða við og saka bókarhöfund um smekkleysu
Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, er ekki vön því að fá á sig gagnrýni fyrir harðlyndi og pólitísk-
an refshátt. Nú heldur einn flokksbræðra hennar því fram i bók aö hún hafi notað sér sjálfsmorð sonar sins til að
taka öll völd í flokknum. Stuðningsmenn Gro eiga ekki orð til að lýsa hneykslun sinni á þessari skoðun.
Simamynd Reuter
Gro Harlem ávann sér traust Norðmanna fyrir alþýðlega framkomu og sann-
girni. Hún var hin mjúka kona sem skar sig úr i hópi allra gömlu og þreyttu
karlanna. Hér er hún í hópi barna við upphaf ferils sins í stjórnmálunum.
„Hún átti að láta flokksmenn vita
áður af fyrirætlunum sínum og gefa
þeim þannig tækifæri til að átta sig
á nýjum aðstæðum. Þess í stað ákvað
hún að segja af sér formennsku öll-
um að óvörum og útiloka þannig
umræður um stefnu flokksins í mik-
ilvægum málum,“ segir norski þing-
maðurinn Inge Staldvik í mjög kröft-
ugri gagnrýni á Gro Harlem Brundt-
land forsætisráðherra í nýrri bók.
Gagnrýni Staldvik hefur komið
Norðmönnum í opna skjöldu því Gro
Harlem hefur nánast setið á friðar-
stóh síöustu mánuðina eða allt frá
því hún hætti sem formaður Verka-
mannaflokksins um áramótin.
Það er þó vonum seinna að upp úr
sjóði í flokknum en mörgum finnst
sem Staldvik hefði getað gagnrýnt
Gro með smekklegri hætti en raunin
hefur orðið.
Staldvik kallar bók sína Nóg er
nóg. Þar gerir hann upp við sinn
gamla flokk og flokksformann eftir
að hafa verið í minnihluta í flokkn-
um um hríð og talið sig bera skaröan
hlut frá borði.
Dauði sonarins dreginn
'"inn í stjórnmálin
Þegar Gro Harlem sagði af sér for-
mennsku um áramótin har hún við
að álagið sem fylgdi því að sjá á eftir
syni sínum, sem framdi sjálfsmorö
mánuði áður, væri sér ofraun og að
hún gæti ekki einbeitt sér lengur.
Hún viki því sem formaður og menn
áttu almennt von á að stóll forsætis-
ráðherra losnaði skömmu síðar. Svo
fór þó ekki.
Ræða Gro vakti grífurlega athygh
í Noregi og víðar um lönd því hún
er einn af kunnari stjómmálaleiðtog-
um í Evrópu. Gro grét í ræðustólnum
og áheyrendur stóöu á öndinni.
Minnstu munaði að fjölmiðlar
misstu af uppákomunni því þeir
fíöfðu takmarkaðan áhuga á leiðin-
legu flokksþingi. Eftir ræðuna ruku
allir upp til handa og fóta.
Samúð allra var með Gro og svo
er enn því þingmaðurinn Staldvik
hefur ekki aflað sér vinsælda með
skrifum sínum. Þvert á móti er hann
úthrópaður fyrir ósmekklega árás á
forsætisráðherrann.
Kenning Staldviks er að Gro hafi
notað sér dauða sonarins í pólitísk-
um tilgangi. Hún hafi spilað út sterk-
asta trompinum sem hún átti til að
þagga niður í andstæðingum sínum
innan flokksins og þá sérstaklega
þeim sem eru andvígir inngöngu í
Evrópubandlagið.
Sakar Gro Harlem
um harðneskju
Kenning Staidviks gengur upp aö
því leyti að flokksmenn hafa ekki
þorað að lyfta fingri gegn henni þaö
sem af er árinu. Hitt er annað mál
hvort hún notfærði sér beinlínis
sjálfsmorð eigin sonar í hinni póht-
ísku refskák. Því trúa Norðmenn al-
mennt ekki.
En Staldvik gengur enn lengra og
segir að Gro fari með yfirgangi í
flokknum. Hún hafi um sig hirð já-
bræðra sem hún stjórni eins og
strengjabrúðum. Þetta er ekki sú
ímynd sem Gro hefur meðal almenn-
ings. Hún þykir móðurleg og ræðan
fræga á flokksþinginu þótti sanna að
hún tæki sína eigin fjölskyldu fram
yfir póhtískan ávinning.
í bók Staldviks kemur Gro fram
sem harðneskjuleg kona, tilfinninga-
laus og ósanngjöm. Sjálf hefur hún
ekkert vfijað segja um ásakanir
Staldviks og aðstoðarmenn hennar
hafa fengið það hlutverk að svara
bókarhöfundi fuhum hálsi.
Orðlausir yfir
smekkleysunni
Blaðafuhtrúi hennar, Öystein
Singsaas, segir að ummæhn í bókinni
séu ósönn, særandi og ótrúlega
smekklaus. „Gro átti í miklum erfið-
leikum í einkalífi sínu þegar hún
flutti ræöuna. Ég á ekki orð til lýsa
því hve það er iha til fundið að segja
að hún hafi notað sér samúö í sinn
garð sem tromp í póhtískum leik,“
segir Singsaas.
Rune Gerhardsen, forseti borgar-
stjómar í Ósló og líklegur fokksfor-
maður í frmatíðinni, hefur einnig
tekið svari Gro og segir að sér komi
fuhyrðingar Staldviks algerlega í
opna skjöldu. Gerhardsen á þó sam-
kvæmt kenningu bókarinnar að hafa
misst öll sph úr hendi sér við ræðu
Gro á flokksþinginu. Hann hefur far-
ið fyrir andstæðingum Gro innan
verkamannaflokksins.
Valdarán?
Staldvik segir að það hafi verið eins
og hvert annað valdarán að gefa
flokksmönum aðeins sólarhring th
að velja nýjan formann. Þá var kjör-
inn Thorbjöm Jagland samkvæmt
vhja fráfarandi formanns. Flestir
bjuggust við að fá lengri tíma th
umhugsunar.
„Ég fann aldrei th þess á flokks-
þinginu, og heldur ekki síðar, að Gro
ætlaði að nota fjölskylduhagi sína sér
th framdráttar. Ég skh ekki þetta tal
um valdarán í flokknum,“ segir Ger-
hardsen. -GK
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL1993
Gro Harlem Brundtland hefur
reynt að sameina störf við lands-
og hússtjóm.
Gro Harlem Brundtland:
Forsætis-
ráðherra í
uppvaskinu
„Ég hef ekki hlakkað th neins
eins og að verða móðir. Ég held
aö hlutverk móðurinnar krefjist
ekkí minni ábyrgðar en að
stjórna ríki,“ sagði Gro Harlem
Brundtíand, forsætisráðherra
Noregs, þegar hún leit um öxl
eftir tíu ár á toppnum í norskum
stjórnmálum.
Hún varð formaður norska
verkamannaflokksins og forsæt-
isráðherra skamma hríð árið 1981
eftir að Oddvar Nordli hrökkl-
aðist frá. Stjómin stóð tæpt og
Gro varð að segja af sér sama ár.
En hún hefur upp frá þessu verið
í fremstu röö áhrifamanna í Nor-
egi og var konan sem umfrara
aðrar hnekkti veldi karlanna í
stjómmálunum.
Hún varð fyrst kvenna flokks-
formaður og forsætisráöherra.
Tíu árum eftir það vom konur
búnar að taka völdin í tveimur
öðrum flokkum; Kaci Kuhmann
Five í íhaldsflokknum og Anna
Enge Lahnstein í Miöflokknum.
Stjómmálaferhl Gro hefur ekki
veriö snurðulaus. Hún hefur þrí-
vegis orðið forsætisráðfTerra og
farið fyrir minnihlutastjórnum
sem hafa átt i erfiðleikum með
að koma málum fram. Nú hefur
hún farið fyrir landsstjórninni
frá haustinu 1990 og er traustari
í sessi en oftast áöur.
Gro er Iæknir aö mennt Hún
er fædd árið 1939 og þvi 54 ára
gömul. Eiginmaður hennar er
Ame Olav Bmndtland og hefur
tekist vel upp í hlutverki maka
ráðherrans. Þau áttu fiögur börn
en einn sonurinn er látinn og
dauði hans hefur orðið tilefni
nýjasta upphlaupsins í norskum
stjómmálum.
hlutverki maka forsætisráðherra
óaðfinnanlega. Hér er hann að
skoða föt í verslun í Reykjavik
suniariö 1991.
Gro hefur vakið athygli fyrir aö
reyna aö sameina húsmóðurstörf-
in og landssljómina. Heima sinnir
hún uppvaskinu og er að því leyti
ólík Kaci Kullmann sem viöur-
kenndi eftir að hún var kjörin
formaður að eiginmaðurinn sinnti
heimhisstörfunum nú einn.