Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1993, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
Fréttir
5,5 miUjóna skaðabótadómur gegn Sjúkrahúsi Suðurlands:
Sátt við niðurstöðuna en
peningar eru ekki allt
- segir Jóhannes Brynleifsson 1 Þorlákshöfn, faðir drengsins sem fæddist með varanlegan heilaskaða á sjúkrahúsinu fyrir 7 árum
„Við erum sátt viö niðurstöðu
dómsins en peningar eru ekki allt og
koma aldrei til með aö bæta upp líf
sonar okkar. Réttlætinu hefur verið
fullnægt og ég vona bara að dómur-
inn vekji starfsfólk sjúkrahúsa til
umhugsunar og veiti mæðrum og
börnum sem þar koma í heiminn
góða umönnun. Við forum ekki fram
á meira með okkar máli,“ sagði Jó-
hannes Brynleifsson, vörubílsstjóri í
Þorlákshöfn, í samtali við DV en
hann og Sigríður Garðarsdóttir fisk-
verkakona eru foreldrar Arons
Rafns, drengsins sem fæddist fyrir 7
árum á Sjúkrahúsi Suðurlands á Sel-
fossi með varanlegan heilaskaða.
Eins og sagt var frá í DV í gær
komst Héraðsdómur Suðurlands að
þeirri niðurstöðu að heilaskaðann
mætti rekja til mistaka sem urðu við
fæðingu Arons og sjúkrahúsið var
dæmt til að greiða 5,5 milljónir króna
í skaðabætur. Aron Rafn er metinn
100% öryrki og dvelst nú á vistheim-
ilinu Lambhaga á Selfossi en er tek-
inn heim til sín í Þorlákshöfn um
helgar og aðra frídaga.
Of langur málarekstur
Aron Rafn fæddist 9. ágúst 1986 og
tveimur árum síðar ákváðu foreldrar
hans að fara í mál gegn sjúkrahúsinu
eftir að ítarlegar læknisrannsóknir
höfðu útilokað sjúkdóma eða erfða-
galla sem orsakir fyrir heilaskaða
Arons.
Næst var haft samband við félags-
ráðgjafa sem setti saman meö þeim
bréf og sendi landlækni. Þau áttu
fund með landlækni sem lét þá fara
fram rannsókn á fæðingunni. Eftir
þá rannsókn ályktaði siðanefnd
lækna að mistök heföu átt sér stað
og sendu Jóhannesi og Sigríði bréf
þess efnis. Það var þá sem þau
ákváðu endanlega að höfða mál gegn
sjúkrahúsinu.
Málareksturinn tók langan tíma,
alltof langan að mati Jóhannesar og
máliö var að velkjast í kerfinu um
það leyti sem ný lög tóku gildi um
aðskilnað dómsvalds og umboðs-
valds í héraði. „Þennan tíma var
óvissan gífurlega erfið. Þegar lög-
fræðingurinn tilkynnti að við hefð-
um unnið í héraðsdómi þá urðum
við auövitað himinlifandi."
Algjörlega ósjálfbjarga
Aron Rafn er 100% öryrki í dag og
hefur alla tíð verið bundinn í hjóla-
stól, algjörlega ósjálfbjarga. Hann er
á lyfjum við miklum krampaköstum
sem hann fær reglulega og er í eftir-
hti Péturs Lúðvíkssonar, læknis á
Landspítalanum. „Pétur tók við Ar-
oni tveggja daga gömlum á Land-
spítalanum og við viljum meina að
hann hafi bjargað lífi Arons. Annar
læknir á Landspítalanum sagði við
okkur fyrst að við mættum fara aö
kalla á prest því ekki væri víst að
Aron myndi lifa af nóttina. Pétur
hefur reynst okkur einstaklega vel
og allt starfsfólk á vökudeild Land-
spítalans," sagði Jóhannes.
Margar vökunætur
Jóhannes sagði líf fiölskyldu sinn-
ar hafa verið mjög erfitt síðustu 7 ár
og útheimt miklar fórnir. „Vökunæt-
umar voru margar, fyrstu 5 árin tók-
um við ekkert frí. Fyrstu nætumar
héma heima sat ég uppréttur með
hann nótt eftir nótt og varð að mgga
honum allan tímann til að hann
svæfi. Ef ég hætti að mgga honum
þá vaknaði hann. Hann getur á eng-
an máta tjáð sig nema aö öskra,
stundum alveg heilu dagana. Hann
situr eða liggur alla daga, borðar
ekki nema með mikilli fyrirhöfn og
í dag er hann mjög illa á sig kominn
líkamlega og er með þroska á við 3
mánaða gamalt barn.“
Gekk berserksgang á
spítalanum
Jóhannes og Sigríður eiga líka 3
ára gamlan strák, Pétur Frey. Hann
var tekinn með keisaraskurði og
sagði Jóhannes að htlu hefði munað
að hlutimir endurtækju sig frá fæð-
ingu Arons. „í fæðingu Arons hætti
útvíkkunin og nákvæmlega það
sama gerðist með Pétur á Landspítal-
anum. Ég sá hvað var að gerast og
varð alveg vitlaus og gekk berserks-
gang um ganga spítalans. Ég heimt-
aði að Pétur Lúðvíksson læknir yrði
kahaður til, sem var gert, og hann
fyrirskipaði strax keisaraskurð.
Núna eigum við heilbrigðan og
hressan strák þar sem Pétur Freyr
er. Hann er okkur mikih gleðigjafi
og við vildum ekki án hans vera.
Honum þykir líka vænt um bróður
sinn og er farinn að átta sig á veik-
indum hans eða eins vel og 3 ára
snáði getur gert,“ sagði Jóhannes.
Jóhannes vhdi koma þeim skila-
boðum á framfæri til annarra for-
eldra, sem stæðu í svipuðum sporum
og þau, að hika ekki við að leita rétt-
ar síns. „Það er ekki alltaf hægt að
horfa framhjá óhöppum eða mistök-
um. Því á starfsfólk sjúkrahúsa ekki
að bera ábyrgð eins og við hin gerum
í okkar daglega lífi? Öll erum við
mannleg og gerum mistök í lífinu en
það verður að taka á þeim eins og
þau koma fyrir,“ sagði Jóhannes aö
lokum í samtali við DV og vildi koma
á framfæri þakklæti til ahra sem
hafa stutt þau í baráttunni.
-bjb
Sjúkrahús Suðurlands:
Nýtum okkar frest
til umhugsunar
- segir stj ómarformaðurinn
„Viðbrögð okkar hggja ekki fyrir.
Við eigum eftir að ráðfæra okkur við
lögfræðing sjúkrahússins, sem er
staddur erlendis, en við höfum þijá
mánuði til að ákvarða hvort verður
áfrýjað eða ekki og munum nýta
okkur þann umhugsunarfrest,"
sagði Guðmundur Búason, stjórnar-
formaöur Sjúkrahúss Suðurlands á
Selfossi, í samtali við DV, aðspurður
um viðbrögð sjúkrahússins viö dómi
Héraðsdóms Suðurlands sem sagt
var frá í DV í gær.
Guðmundur sagðist hafa átt von á
hverju sem var í niðurstöðu dóms-
ins, miðað við dóm svipaðs eðlis sem
féh á Akureyri í vetur. „Ég get hvorki
sagt að dómurinn hafi komið mér á
óvart né ekki. Núna er dómurinn
kominn og við munum ráðfæra okk-
ur við lögfræðing um framhaldið.
Að sjálfsögðu er þetta erfitt mál fyrir
sjúkrahúsið. Ábyrgð sjúkrahúsa er
orðin meiri en áður og kröfumar
meiri,“ sagði Guðmundur.
-bjb
AðalbjörgREH:
Sjómaður slasast
Vinnuslys varð um borð í neta-
bátnum Aðalbjörgu II. RE í gær-
morgun þegar báturinn var á veiðum
á Faxaflóa. Sjómaður fékk gogg í
augað og hélt skipið strax til hafnar
í Reykjavík og kom þangað rúmlega
þremur tímum seinna.
Sjómaðurinn var fluttur á Borgar-
spítalann og þaðan á Landakot þar
semhanngekkstundiraðgerð. -pp
Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Tjarnargötu. Stórvirkar vinnuvélar snúast daglangt og nýjar pipur teygja sig
DV-mynd JAK
eftir götunni
é'
Hlíf og Dagsbrún gera sérkjarasamning við Eimskip:
Felur í sér allt að 27 prósent launaskerðingu
- segirtrúnaðarmaðurDagsbrúnarhjáLöndunhf.
„Okkur gremst mest hversu
varnarlausir við erum gagnvart
undirboðum félaga okkar í Dags-
brún. Viö gerum okkur grein fyrir
að skipin landa þar sem kjörin eru
best en gagnvart okkur gæti þessi
samningur við Eimskip falið í sér
aht aö 27 prósent launaskerðingu,"
segir Friðrik Jakobsson, trúnaðar-
maður Dagsbrúnar hjá Löndun hf.
í Reykjavík.
Verkamannafélagið Dagsbrún og
Hlíf í Hafnarfirði hafa gert sérkja-
rasamning við Eimskip varðandi
vinnu félagsmanna sinna við upp-
skipun á frystum afurðum úr tog-
urum. Samningurinn nær hins
vegar ekki til Dagsbrúnarmanna
sem vinna við uppskipun á vegum
Löndunar hf. en það fyrirtæki sem-
ur beint við útgerðaraðha.
Mikil óánægja ríkir nú meðal
starfsmanna Löndunar vegna
samningsins, en alls 12 manns
vinna á vegum fyrirtækisins við
löndun. Hafa þeir komið mótmæl-
um sínum á framfæri við forsvars-
menn Dagsbrúnar, bæði skriflega
og í beinum viðræðum við þá.
Að sögn Friðriks felur samning-
urinn í sér að gjaldskrá við upp-
skipun í Hafnarfirði og Reykjavík
verði samræmd. Ástæðcm sé meðal
annars sú að Dagsbrún hafi undir-
boðið Hafnfirðinga fyrr í vetur með
thvísun til þess að taka ætti færi-
band í notkun við uppskipun.
Reyndin sé hins vegar sú að færi-
bandið hafi lítið verið notað.
í bréfi, sem starfsmennirnir hafa
sent Dagsbrún, er þess krafist að
forysta Dagsbrúnar segi tafalaust
af sér. „Með gerðum sínum og við-
móti hefur Dagsbrúnarforystan
sýnt ófyrirgefanlegan valdhroka og
sýnt það og sannað aö hún er langt
í frá verkefnum sínum vaxin,“ seg-
ir meðal annars í bréfinu.
Að sögn Halldórs Björnssonar,
varaformanns Dagsbrúnar, hefur
samningurinn í fór með sér litlar
breytingar á kjörum uppskipunar-
manna hjá Eimskip. Hins vegar
kunni samningurinn aö leiða til
þess aö kjör starfsmanna Löndun-
ar lækki, en þó því aðeins að stjórn-
endur þess fyrirtækis taki mið af
samningnum við Eimskip.
„Við vorum ahs ekki að semja
fyrir starfsmenn Löndunar. Mér
vitanlega höfum við nánast engin
afskipti haft af samningum þeirra,"
segir Hahdór.
-kaa