Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1993, Síða 14
14
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 ,
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Einkavæðing í plati
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur hafa lagt
til að Strætisvögnum Reykjavíkur verði breytt í hlutafé-
lag. Eftir því sem best verður skihð mun borgarstjóra
ætlað að skipa stjóm hlutafélagsins eða tilnefna fulltrúa
í hana. Jafnframt er gert ráð fyrir að stofnuð verði svo-
kölluð stjómamefnd um almenningssamgöngur sem
hefur eklti afskipti af rekstri hlutafélagsins en mótar al-
menna stefnu í samgöngumálum borgarinnar.
Strætisvagnar Reykjavíkur hafa verið hluti af borgar-
kerfmu á þann hátt að fyrirtækið hefur heyrt undir borg-
arstjóm sem kýs stjóm yfir hinum daglega rekstri og
leggur til fjármagn til fyrirtækisins. Strætisvagnamir
hafa verið þjónusta borgarinnar við borgarbúa enda vart
á færi annarra að reka umfangsmikið leiðakerfi ef vel á
að vera og viðráðanlegt fyrir almenning. Reykjavíkur-
borg hefur þar af leiðandi þurft að greiða allverulegar
upphæðir með rekstrinum eins og algengt er og eðlilegt.
Nú hafa menn áhuga á að einkavæða þennan rekstur.
Sérkennilega er þó að því staðið ef hlutabréf eiga ekki
að seljast á opnum markaði og Reykjavíkurborg á að
vera eini hluthafinn eins og borgarstjómarmeirihlutinn
hefur tilkynnt. Áfram ætiar borgin að greiða strætis-
vagnagjöldin niður og engar breytingar em fyrirhugaðar
á fargjöldum eða þjónustu. Svo er að minnsta kosti sagt.
En til hvers er þá þessi einkavæðing? Áfram verða
Strætisvagnar Reykjavíkur eini aðilinn sem sinnir þess-
ari þjónustu. Áfram á Reykjavíkurborg að standa undir
hallanum. Áfram á borgarsþóri eða borgarstjóm að bera
ábyrgð á fyrirtækinu með því að skipa því stjóm og hafa
það allt í hendi sér.
Talsmaður meirihlutans segir að með þessum skipu-
lagsbreytingum verði skorið á miðstýringu og afskipti
stj ómmálamanna af daglegum rekstri. Það er sosum
góðra gjalda vert ef það gengur eftir. En erfitt er að sjá
hvemig borgarfulltrúar og meirihluti hverju sinni getur
firrt sig ábyrgð á fyrirtæki sem Reykjavíkurborg er eini
eignaraðilinn að. Og sem skipar stjóm og hefur það á
valdi sínu hversu miklir peningar em látnir af hendi
rakna til að fyrirtækið eigi fyrir útgjöldum.
Einkavæðing er æskileg í rekstri þar sem samkeppni
fær notið sín og um er að ræða atvinnustarfsemi sem
þarf að skila arði. En það er sjónhverfmg og sjálfsblekk-
ing ef menn standa fyrir einkavæðingu í orði sem hvergi
kemur fram á borði. Og menn geta ekki sagt í öðm orð-
inu að afskiptum stjómmálamanna sé afsalað en í hinu
orðinu fullyrt fyrirfram að engar breytingar verði á leiða-
kerfi eða fargjöldum. Það er auðvitað ljóst að borgar-
stjóm Reykjavíkur mun áfram bera fulla og óskoraða
ábyrgð á Strætisvögnum Reykjavíkur, hvort sem stöfun-
um hf. verður bætt aftan við heiti fyrirtækisins eða ekki.
Að minnsta kosti meðan hluthafmn er einn og hluthafinn
heitir Reykjavíkurborg.
Slíkar kúnstir flokkast ekki undir einkavæðingu,
nema þær séu til þess gerðar að gefa nýrri stjóm umboð
til að hækka fargjöld og minnka þjónustu um leið og
borgarfulltrúar meirihlutans þvo hendur sínar af þeim
ákvörðunum. Þá kemur tilgangurinn í ljós og einkavæð-
ingamafngiftin notuð sem yfirvarp. Þá er þetta einka-
væðing sem mun mælast illa fyrir.
Af öllum mönnum eiga sjálfstæðismenn að varast að
misnota einkavæðingarstefnuna og koma óorði á hana.
Skipulagsbreytingin hjá Strætisvögnum Reykjavíkur er
engin einkavæðing þegar stjórnmálamennirnir ætla bæði
að halda og sleppa. Efiert B. Schram
Tímasprengja
í Kosovo
Nú er óhætt aö afskrifa Bosníu,
niðurstaðan þar hefur orðið nýtt
Palestínuvandamál. Ein þjóð hefur
verið hrakin af sínu landi til að
rýma fyrir annarri, eða öllu heldur
tveimur öðrum. „Vemdarsvæði“
múslíma verða ekkert annað en
nýr Vesturbakki og nýtt Gaza, allar
hugmyndir um að stiila til varan-
legs friöar á þessum slóðum á næst-
unni era óskhyggja. Það sem ennþá
verra er, sigur Serba (og Króata) í
Bosníu er fyrirboði þess sem koma
skal. Ný Balkanstrið vofa yfir,
framhald af hinum fyrri sem lauk
1913. Ef svo fer munu þau hefjast
í Kosovo. Þegar og ef þar að kemur
mun umheimurinn ekki geta látið
við það sitja að fárast og íjargvið-
rast, önnur ríki munu óhjákvæmi-
lega dragast beint inn í átökin.
Vagga serbneskrar
menningar
Kosovo er sjálfur grunnur hinnar
sögulegu Serbíu. Þar upphófst
menning þeirra sem þjóðar, þar eru
elstu minjar þeirra og helgidómar,
í stuttu máli er Kosovo Serbum
heilagt land.
Kosovo er hérað í Serbíu og hafði
sjálfstjórn til 1989 en frá því Milo-
sevic komst til æðstu áhrifa þáð ár,
einmitt með því að höfða tú þjóð-
emiskenndar Serba og heita því að
Kosovo yrði um alla eilífð serb-
neskt land, hefur Kosovo verið
stjómað beint frá Belgrad. En sá
galh er á að Kosovo er nú að níu
tíundu hlutum byggt Albönum,
Serbar eru aðeins rúmlega 150 þús-
und en Albanir tæplega 1,8 mihjón-
ir. Samt eru Albanir undirokaðir,
þeir eru að heita má réttlausir, þeir
eru útlendingar í eigin landi þar
sem serbneski minnihiutinn er al-
ráður. Mjög mikil ólga er og hefur
lengi verið í Kosovo.
Serbneskir þjóðemissinnar hafa
þá stefnu að reka alla Albani yfir
landamærin til Albaníu. Sama gild-
ir um Makedóníu þar sem tæpur
þriðjungur íbúa, eða um 700 þús-
und, er Albanir. Makadónía heitir
á máli Milosevics og hans manna
Suður-Serbía. íbúar Albaníu hafa
lengi veriö þess fullvissir að um
leið og niðurstaöa verði fengin í
Bosníu komi röðin að Kosovo og
það stríð yrði með allt öðrum brag
en menn hafa hingað til kynnst í
Bosníu
Erlend íhlutun
Hatur Serba á Albönum er mikiu
dýpra en hatrið á múshmskum
slövum í Bosníu. Albanir eru ekki
slavar, þeir tala heldur ekki serbo-
króatísku eins og þjóðimar þrjár í
Bosníu. Þeir eiga sér annan upp-
nma og þeir eru nær ahir múslím-
ar, bæði í Albaníu sjálfri, Kosovo
og Makedóníu. Þegar röðin kemur
að Kosovo í útþenslupóhtík Serba
KjáUarinn
Gunnar Eyþórsson
blaðamaður
með meiri þjóðemishreinsunum
en dæmi eru um hingað til, gæti
eftirfarandi atburðarás farið af
stað: Albanía skerst í leikinn með
íbúum Kosovo. Albanskir íbúar
Makedóníu, sem em um 20% íbú-
anna, gera uppreisn til stuðnings
löndum sínum í Kosovo. Serbar
nota þá það sem átyhu th að gera
innrás í Madedóníu. Þetta leiðir tU
þess að Búlgaría og Grikkland gera
líka innrás í Madedóníu sem bæði
gera tilkall tU síðan í stríðunum
1912 og 1913. AUt þetta mundi mjög
líklega knýja Tyrki til aðgerða tíl
hjálpar trúbræum sínum og skjól-
stæðingum í Albaníu, auk þess sem
Tyrkir eiga óafgreidd mál við Búlg-
aríu vegna brottreksturs um 400
þúsund Tyrkja frá Búlgaríu fyrir
nokkrum árum og við Grikki út af
öðm. Og ef Tyrkir skærust í leikinn
gæti svo farið að rússneskir þjóð-
emissinnar og panslavar fengju
því framgengt að Rússar blönduðu
sér í átökin við hhð Serba. Óhugs-
andi er að hinn vestræni heimur
gæti þá setið hjá, svona stríð væri
aht annað en Bosnía. Kosovo er sú
hvehhetta sem gæti sprengt þessa
sprengju. Vestræn ríki notuðu ekki
tækifærið sem þau höfðu tU að
koma í veg fyrir stríðið í Bosníu.
Þau hafa enn tækifærið tíl að koma
í veg fyrir að þetta gerist. En tíl
þess þarf meiri samstöðu, betri for-
ystu og meiri djörfung en leiötogar
heims hafa hingað tU sýnt. Þessi
atburðarás er ekki aðeins tilgáta,
heldur raunveruleg og yfirvofandi
hætta. Gunnar Eyþórsson
„Serbneskir þjóðernissinnar hafa þá stefnu að reka alla Albani yfir landa-
mærin til Albaniu," segir í texta'greinarhöfundar.
„Samt eru Albanir undirokaðir, þeir
eru að heita má réttlausir, þeir eru
útlendingar í eigin landi þar sem serb-
neski minnihlutinn er alráður.“
Skodanir annarra
Hagvöxtur í Bandaríkjunum
„Ýmsir hagvísar gefa til kynna aö ládeyðan sem
einkennt hefur efnahagslífið í Bandaríkjunum á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs muni víkja fyrir mun
öflugri hagvexti það sem eftir er ársins. Shk upp-
sveifla gæti orðið kveikjan að auknum hagvexti víða
í Evrópu á seinni hluta ársins og jafnvel gefið Þjóð-
veijum nægjanlegt spark tíl þess þeir komist upp
úr mestu efnahagskreppu seinni tíma á fyrri hluta
næsta árs.“ Sverrir Sverrisson í Mbl. 10. júní
Röðin komín
að Sjjálf stæðisf lokknum
„Nú er hins vegar röðin komin að Sjálfstæðis-
flokknum. í ljósi yfirlýsinga Jorsætisráðherra er
tæpast annars að vænta en hann og forysta flokksins
beiti sér fyrir svipaðri uppstokkun á sínu hði.
Velheppnuð hrókering í ráöherrasveit Sjálfstæðis-
flokksins myndi enn frekar auka lUcur á velgengni
og frískleika ríkisstjórnarinnar. í hði flokksins á
Alþingi em ungir og vaskir menn, sem myndu sóma
sér vel í ráðherrastóh ekki síður en Össur Skarphéð-
insson og Guðmundur Ámi Stefánsson."
Leiðari í Alþbl. 10. júní
Rússar I Lettlandi
„Að gera Rússa að annars flokks íbúum í ríki,
sem þeir líta á sem heimaland sitt, mun sennUega
skapa fleiri vandamál en að viðurkenna að þeir, jafnt
sem innfæddir íbúar Eystrasaltsríkjanna, em fórn-
arlömb kommúnismans og gefa ætti þeim tækifæri
tU að taka þátt í lýðræðislegri uppbyggingu lands
síns. Það ætti nýja stjómin í Lettlandi að gera, auk
þess að leggja áfram áherslu á markaðsvæðingu
efnahagslífsins.“ Leiðari í Mbl. 10. júní