Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1993, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993
11
Sviðsljós
Hreinsunardegi lýkur
með grillveislu
Það er ott sem íbúar við ákveðnar götur eða í hverfum taka sig saman
og halda veislu til að kynnast betur innbyrðis. Þannig var það um daginn
hjá íbúum Hliðartúnshverfis í Mosfellsbæ. Eftir að allir höfðu hjálpast að
við að hreinsa hverfið var slegið upp stóru tjaldi og Hafsteinn Gilsson sá
um að grilla ofan i mannskapinn sem var orðinn svangur eftir erfiðið.
________________________DV-mynd HMR
Kokkteilboð í Heiðmörk
Það er ekki oft sem viðrar til
veisluhalda utanhúss hér á íslandi
en þegar vel viörar þá er sjálfsagt að
nýta það. Það gerðu MR-ingar sem
eiga 10 ára útskriftarafmæii í ár og
héldu upp á það laugardaginn 12.
júní. Byrjað var á að fara upp í Heið-
mörk, þar sem starfsfólk Skíðaskál-
ans í Hveradölum beið með ljúffeng-
an kokkteil. Eftir að fólk hafði rifjað
upp gömul kynni um stund var farið
í Skíðaskálann og haldið áfram langt
fram á nótt.
HMR
Þær Sigríður Asta Arnadóttir, Ragnhildur Thorlacius, Hulda Gunnarsdóttir
og Helga Knudsen voru brosmildar og kátar enda veðrið og tilefnið fyrir
hendi. DV-mynd HMR
Orri Már Kristinson, Gunnar Guðmundsson, Berglind Rut Þorsteinsdóttir og Sigvaldi Þorsteinsson voru ánægö
með pylsurnar eftir að hafa tekið þátt í Borgarspitalahlaupinu. DV-myndir HMR
Hún Sandra Gunnarsdóttir á framtíðina fyrir sér i golfi.
Mikil gleði
áfjöl-
skyldudegi
Borgar-
spítalans
Árlega halda íþróttafélag Borgar-
spítalans, Starfsmannaráð Borgar-
spítalans og Velunnarafélag Borg-
arspítalans fjölskyldudag sem í ár
bar upp á laugardaginn 12. júní.
Dagskráin byijaði með gróður-
setningu plantna á vegum Velunn-
arafélagsins, þá var hlaupið Borg-
arspítalahlaupið og eftir það biðu
hlaupagarpanna grillaðar pylsur
og Svali.
Fjölmörgum leiktækjum frá
íþrótta- og tómstundaráði Reykja-
víkur var komið fyrir á lóð spítal-
ans og kunni unga kynslóðin vel
að meta það.
HMR
Dyttað að í Bjartsýnisbrekku
Það fylgir sumrinu að menn snyrti húsin sín og lóðina í kring. í Bjartsýnis-
brekku hjá Hafravatni var sláttuvélin drifin upp á þak um helgina, enda
sprettan góð í blíðviðrinu sem búið er að vera. DV-mynd HMR
Sýning aldraðra að Hlévangi
Nýlega hélt hið hressa fólk á Hlévangi, dvalarheimili aldraða í Keflavík,
sýningu á vetrarstarfi sínu. Sýningin vakti mikla athygli og þar gaf að lita
alls kyns handavinnu og keramik sem aldraðir hafa unnið að frá áramót-
um. Á myndinni má sjá Jóhönnu Þorsteinsdóttur og Láru Guðmundsdóttur
með nokkur verka sinna. DV-mynd ÆMK
AUKABLAÐ
BORQARMESBLAÐ
Á morgun, 16. júní, mun 20 síðna aukablað
um Borgarnes fylgja DV.
Meðal efnis:
Abstrakt og fomar bækur.
Upphaf búsetu í Digranesi.
Kylfingar og farfúglar.
Bankastjóri lyftir sér upp.
Kaggi í stofunni og gamli Ford í garðskálanum.
Kynntist bakaradótturinni og settist að.
Pitsur og vodki í mjólkurbúi.
Borgarnesblað
- 20 síður -
- á morgun -