Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1993, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1993, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993 Spumingin Lesendur Hefurðu sótt Oháðu lista- hátíðina? Sigurður Jónsson: Nei, en ég get hugsað mér að fara. Dagskráin er góð. Hneyksli gagn- vart listamönnum Björn R. Ólafsson skrifar: Aftur er gengið framhjá samtökum listamanna. Borgaryfirvöld hafa tek- ið stefnuna á veglegt og dýrt lista- safn, réttara væri að segja listahöll og öllu skal tíl kostað. Nú skal gera Korpúlfsstaöi að helsta listasafni þjóðarinnar og það er ekki verið að hafa samráð og samvinnu við samtök listamanna í landinu. Það er engu líkara en að listamönn- um komi þaö hreint ekki við hvað er að gerast í menningarmálum hjá hinu opinbera. Þetta er alveg furöu- leg afstaða hjá yfirvöldum. Það mætti halda að allir þeir sem tengjast þessu verki séu á sérstökum dagpeninga- taxta, svo mjög virðist liggja á þessu öUu saman. Þaö mætti benda á að skylda er að birta aUar áætlanir og kostnaðarUði skilmerkUega alveg fiá byijun. Komið hefur fram að safnið eigi fyrst og fremst að vera poppUstasafn. Nú eru sérfræðingar ekki allir sam- mála um ágæti slíkrar listar og telja aö það besta úr henni standist engan veginn samanburð við klassíska Ust. Hér er átt við poppmyndlist en ekki popptórUist. Heyrt hefi ég sérfróða menn úttala sig um hana og segja aö megnið af henni sé harla Utils virði og eigi eftir að stórlækka í verði. Þetta sé í raun plakatUst sem er á færi flestra auglýsingamanna. Kosturinn við gerð þessara mynd- verka er hve fljótunnin þau eru og hve auðvelt er að fjölfalda þau með nútímatækni. Poppverkin sem eiga að prýða UstahölUna og draga að gesti eru engin stórlist. Það ætlar að verða dýrt fyrir skattgreiðendur, sem koma til með að greiða aUan kostnaðinn, að fyrrverandi borgar- stjóri lét plata sig. Það eru fleiri Ustgreinar i landinu og sumar hafa varla fengið viður- kenningu hjá því opinbera og eru á götunni með húsnæði. Hvað með tón- Ustarhús? Veglegt og fullkomið tón- Ustarhús er ekki til í landinu. ís- lenskir tónUstarmenn hafa marg- sannað að þeir eru í fremstu röð. Jóna Björk Elmarsdóttir: Nei, og hef ekki hugsað mér það. Listaverk bandaríska listamannsins Andy Warhols teljast til popplistar. Góðir tónleikar í Tívolí Ásgeir Ragnarsson skrifar: Tónleikamir í Tívolnnu í Hvera- gerði laugardaginn 5. júní voru frá- bær tónUstarviðburður. Ný dönsk, Siifurtónar og Todmobile fóru hrein- lega á kostum og ekki spiUtu hinar fjórar hljómsveitimar fyrir. Sveit- imar era greinilega í toppformi og á þessu kvöldi sannaðist þaö endan- lega svo ekki var um vfilst aö Todmo- bile er efmlegasta hljómleikasveit landsins. Það sem gerði þetta kvöld þó sér- staklega eftirminnUegt var hversu vel tónleikahald hentar þessu stóra húsi. Þó að fyrstu hijómsveitimar þyrftu að gjalda UtUlega fyrfi lélegan hljómburð var hann orðinn mjög góður þegar Uða tók á kvöldið og húsiö greinUega kjörið til tónleika- halds. Þar sem mikiU og fallegur gróður er í Tívoliinu og tækin vora opin á meðan hljómsveitimar spU- uðu myndaðist þama sérstaklega góð stemning. Sem áhugamaður um blómstrandi íslenskt tónlistarlíf vona ég að Tí voU- ið sjái ástæðu tU að standa fyrfi frek- ara tónleikahaldi þvi TívoUrokkið á laugardaginn var virkUega vel heppnuö uppákoma og hljómlistar- mönnunum og Tívolíinu til sóma. Guðríður Páhnarsdóttir: Nei, því miður hef ég ekki haft tima til að fara ennþá. En þetta er gott framtak. Sven Plasgárd: Nei, ég veit ekkert um hana enda aðeins verið á landinu í tvo daga. Díana Ósk Ármannsdóttir: Já, ég fór á tónieika í Faxaskála á miðviku- dagskvöldið og fannst það fint. Sigríður Kristjánsdóttir: Nei, en ég fer ef mér líst á eitthvaö. Ferðamannaiðnaður - Ferðaþjónusta „Tökum öll höndum saman og vinnum að þvi að útrýma orðskripinu feröa- mannaiðnaður og halda heldur á lofti orðinu ferðaþjónusta," segir í texta bréfritara. Birna Bjarnleifsdóttir skrifar: Annað þessara orða er orðskrípi, hitt er góð íslenska. Hvort orðið held- ur þú að sé viðurkennt af sérfræðing- um og því starfsfólki sem vinnur í þessari atvinnugrein? Svarið er ferðaþjónusta. Nýlega sást notað í DV orðið ferða- mannaiðnaöur þar sem réttara hefði verið að tala um ferðaþjónustu. At- hugum þetta aðeins nánar. Hvað þýðir orðið ferðamannaiðnaður strangt til tekið skv. íslenskri mál- venju? Orðið iðnaður þýðir í raun að breyta hráefni i fullunna vöra. Við tölmn þess vegna inn ullariðnað, mjólkuriönað, húsgagnaiðnað o.s.frv. Hér áður fyrr var oft talaö um að breyta mjólk í mat, ull í fat. Það er iönaður. Það sem raglar suma þá sem taka sér í munn orðið ferðamannaiðnaður er enska orðið tourist industry. Enska orðið industry þýðfi nefnilega annars vegar iðnaður og hins vegar ákveðin atvinnugrein. í íslenska orð- inu iðnaöur felst aðeins að breyta hráeíni í fullunna vöra. Sem betur fer höfum við ekki lagt það í vana okkar að taka ferðamenn sem heim- sækja okkur og saxa þá í spað eða hakka i bollur. Ferðaþjónusta er tiltölulega ung at- vinnugrein hér á landi og fjölmiðla- fólk fjallaði lengi vel lítið um ferða- þjónustu í greinum sínum og pistlum. Á síðustu árum hefur orðið nokkur breyting á, enda þótt lítið sé fjallaö um ferðaþjónustu á faglegan hátt. Starfsfólk ferðaþjónustunnar er hreykið af því að vinna þjónustu- störf, í starfsgrein sem er hreinrækt- uð þjónustugrein. Á ferðamálaráð- stefnu sem haldin var í Vestmanna- eyjum árið 1985 var samþykkt að starfsgreinin skyldi kölluö ferða- þjónusta á íslensku. Tökum öll hönd- um saman og vinnum að því að út- rýma orðskrípinu ferðamannaiðnað- in og halda heldur á lofti orðinu ferðaþjónusta. Hringið í síma 63 27 00 milli kl. 14 og 16-eóaskrifiö Nafn og si'manr. vrröur að fylgja bréfum Jón E. skrifar: Það vakti athygli mína er fréttfi birtust um það í blöðum að hinn failegi steinbogi yfir Ófærafoss í Eldgjá væri brotinn. í frétt Morg- unblaðsins frá atburðinum er gert ráð fyrir þvi að boginn hafi brotnað af náttúralegum orsök- um, áin hafi sorííð bogann í sund- ur vinstra megín. Einhvern veginn á ég erfitt með að sætta mig við þá skýringu. Boginn virtist traustbyggður og stóð langt fyrir ofan ána. Þvi finnst mér rniklu sennilegra að skemmdarverk hafi verið unnið á boganum og einhver óprúttinn hafi brotið hann. Er ekki hægt að láta fara fram rannsókn á því hvort svo gæti verið? Hæfasti maðurinn Sigurður hringdi: Fjölmiðlar era uppfullir af þvi þessa dagana að það sé dæmi um mikla spillingu að embætti seðla- bankastjóra skuli nánast vera ráöstafað til Jóns Sigurðssonar sem er að láta af embætti við- skipta- og iönaðarráðherra. Fjöl- margfi, og þá aðallega pólitískfi andstæöingar Jóns, ná ekki upp i nefið á sér fyrir reiði yfir þess- ari spillingu. En hafa þessir sömu menn hug- leitt þaö hvort verið geti að Jón Sigurðsson sé einfaldlega hæfasti maðurinn í þetta embætti? í min- um huga er það enginn vafi að betri maður er ekki til i þessa bankastjórastööu, sem er eitt valdamesta embætti landsins. Mismunur ávægi Friðjón skrifar: i fréttum í fjölmiðlum hefur maður getað lesið um þaö að tekj- ur ríkissjóðs af bifreiöum eru stööugt að vaxa. Samt sem áður vex ekki aö sama skapi þaö hlut- fall sem ríkissjóður leggur til vegamála. Hér á íslandi er það hlutfall 30,6% af tekjunum. Samsvarandi tölur fyrfi Norö- urlöndin era 40% í Danmörku, 60% í Svíþjóð, 72% í Finnlandi og 100% í Noregi. Geta stjómvöld endalaust svínaö á bifreiðaeig- endum með þessum hætti? Setur spennu i íslandsmótið Hallgrímur hringdi: Úrslitin í fjórðu umferð íslands- mótsins í knattspymu vora sér- lega ánægjuleg. Fram aö ftórðu umferö virtist svo sem Skaga- menn væru í sérflokki og útlit fyrir þrautleiöinlegt íslandsmót þar sem eitt lið myndi stinga önn- ur af. En bæði Skaginn og Kefla- vik, sem sátu á toppnum, töpuðu og deildin jafhaðist við þau úr- siit Vonandi kemur það fram i auknum áhorfendaijölda, þrí ekki veitir félögunum af pening- unum. Raunveruleg kjarabót Bima hringdi: Það er alltaf verið að tala um að kjör launþeganna fari versn- andi hér á landi. Undanfariö hef- ur verð á íslenskum vöram farið lækkandi, allt að 10%. Þaö hlýtur að vera raunveruleg kjarabót til fólksins. Mikilvægast af öllu er að halda verðbólgunni niöri því það er hún sem rýrfi kjörin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.