Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1993, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993
Söfhun fyrir barnastarfsemi Stígamóta:
Markaösdagur
á Lækjartorgi
Það var hægt að gera reyfara-
kaup á öllu milli himins og jarðar
á markaðsdegi Lionsklúbbsins Víð-
arr sunnudagirm 13. júnl
Allt fiá því í febrúar hafa meðlim-
ir Lionsklúbbsins Víðarr verið að
safna ýmsum munum, stórum og
smáum, fyrir þennan markaðsdag.
Ástæðan íyrir honum er söfiiun
fyrir bamastarf Stígamóta en þau
eru mörg bömin sem eiga um
að binda vegna kynferðislegs of-
beldis.
Það vom basði einstaklingar og
fyrirtæki sem lögðu til munina sem
dl sölu vom. Einnig vom það mörg
íyrirtæki sem studdu söfiiunina
með peningaffamlagl Reykjavík-
urborg lagði sitt af mörkum með
því að lána allan þann búnað og
mannafla sem þurftL
Einnig vora það fjölmargir
skemmtikraftar sem lögðu fram
vinnu sína, t.d. Dbdeland-band
Lúðrasveitar Kópavogs, Reynir
Jónasson harmóníkuleikari, söng-
sveitin Svartír strumpar, Snigla-
bandið, Lipstick Lovers og Ríó tríó.
Söfnunin gekk ffam úr vonum
og næstum allt seldisL Áætlað var
Það voru þelr Asgeir Höskuidsson
og Kjartan Mogensen sem báru
hitann og þungann af þessum
markaðsdegi.
að u.þ.b. 750 þúsund krónur hefðu
safhast á þessum degL En þeir sem
komust ekki niður á Lækjartorg
þennan dag tíl að leggja sitt af
mörkum geta nálgast gíróseðil í
næsta íslandsbanka og komið
þannig sinu framlagi til Stígamóta.
Það er rétt að benda á að opið hús
er hjá Stigamótmn á hveijum degi
frá kl. 9-19 á Vesturgötu 3 og sím-
inner 626868. HMR
Það var hægt að gera kjarakaup á Lækjartorgi. Sem dæmi um vöruúr-
valið má nefna kertastjaka, sófa, jakka, töskur, myndir, hljóðfæri o.m.fl.
DV-myndir HMR
Smáauglýsingar
Odýrí tjaldvagninn. Frumsýnum
ódýran og vandaðan, 4ra manna
fiölskylduvagn, með fortjaldi, sem
kemur mjög á óvart, verð aðeins kr.
269.800 stgr., takmarkað magn. Verið
velkomin í sýningarsal okkar.
Víkurvagnar, Síðumúla 19, s. 684911.
Volvo FL 614 ’90 til sölu, ekinn 71.000
km, burður 7 t, góð dekk, kassi árg.
’91, lengd 7,10, breidd 2,55, 3 hurðir
hægra megin, ein vinstra megin, plast
í gólfi, 2 t lyfta með álpalli, skipti
möguleg. S. 91-38944 og 985-22058.
■ Bílar til sölu
Glæsilegur Ford Econoline 250, árg. '78,
til sölu, 4x4, glæsileg, ný ferðainnrétt-
ing, vaskur, eldavél, allur bíllinn ný-
upptekinn, 33" dekk á álfelgum, allur
bíllinn sem nýr, skipti á ódýrari, eða
gott staðgreiðsluverð. Uppl. í síma
91-682248 og vs. 91-670630.
Til sölu Citroén húsbíll, árg. '84. Bíllinn
er allur innréttaður, með svefnplássi
fyrir 3. Fæst á góðu verði ef samið er
strax. Uppl. í síma 91-20935.
Subaru Legacy Arctic, árg. '92, til sölu,
ekinn 6.000 km. Upplýsingar í síma
91-617195, 91-681965 og 985-31195.
VW Golf GL, árgerð ’86, 1500, til sölu,
4ra dyra, ekinn 128 þúsund km.
Staðgreiðsluverð kr. 350.000. Uppl. í
síma 985-41467.
23
Sviðsljós
Þafi voru þeir Guðgeir frá Kjötbank-
anum og Valdimar frá nautgripa-
bændum sem sáu um að grilla ofan
i mannskapinn.
Starfsfólk Örva í- Kópavogi og
nautgripabændur geröu sér glaðan
dag í Viðey nýlega í glampandi sól
og sumarveðrL Órvi er vemdaöur
vinnustaður og starfsfólk hans fer
árlega í stutt ferðalag. í ár var farið
út í Viðey í boði nautgripabænda og
Kjötbankans en Örvi framleiðir aö
hluta umbúðir utan um Kjötveislu
sem er framleiösla þessara tveggja
aðila.
Á boöstólum vom grillaðir ham-
borgarar og nautasteikur eins og
hver gat í sig látíð. Eftir matinn var
dansað og sungiö við harmóníkuleik
Karls Jónatanssonar.
HMR
Menning
Ein Ijósmynda Mary Ellen Mark á Kjarvalsstöðum.
lif skúmaskot-
anna leitt í ljós
- Mary Ellen Mark á Kj arvalsstöðum
Listin að fanga galdur augnabliksins er ekki á allra
færL Keppikefli ljósmyndara hefúr löngum verið að
höndla þann galdur með því að vera á réttum stað á
réttum tíma. Fréttaljósmyndin nær þessu markmiði
þegar best lætur en í meirihluta tilvika er þar um
samspil tílviljunar og innsæis ljósmyndarans að ræða.
Uppstillingar listrænnar ljósmyndunar em annars
eðlis. Þar er myndbygging og blær myndarinnar í fyr-
irrúmi líkt og í málverki jafiiframt því sem inntakið
öðlast - þegar vel tekst til - nýja og áður ókunna dýpt.
Hinn kunni bandaríski ljósmyndari, Mary Ellen Mark,
sem sýnir nú myndir sínar á Kjarvalsstöðum, samein-
ar á einstakan hátt þessa tvo grannþætti úrvalsljós-
myndunar.
Bak við tjöldin
Sýning þessi er farandsýning og var opnuð í Banda-
ríkjunum fyrir tveimur árum í tilefhi af tuttugu og
fimm ára starfsafinæli listakonunnar. Þennan tíma
hefur sýningin ferðast vítt og breitt um heiminn og
hvarvetna hlotið mikla athygh. Það er líka óhætt að
segja að myndraðir Mary Ellen Mark séu alþjóðlegar.
í þessi tuttugu og fimm ár hefur hún ferðast m.a. um
Tyrkland og fleiri Evrópulönd, Suður-Ameríku og Ind-
land auk Bandaríkjanna. Nýjasta myndröðin á sýning-
unni er frá Indlandi; myndir af sérstæðu fólki á bak
við tjöldin í ferðasirkusum. Þessar myndir em í senn
átakanlegar og fullar af mannlegri hluttekningu; það
er fegurðm utan hinna viðteknu norma sem listakonan
sækist eftír að ná fram og tekst í flestum tilvikum af-
burðavel og án þess að gert sé lítið úr viðfangsefhinu.
Hér má Ld. nefha til mynd af trúðum að hvíla sig og
aðra mynd af liðugri stúlku með hvolpinn sinn.
Á jaöri samfélagsins
Myndröðin frá Tyrklandi er sú elsta á sýningunni.
Af þeirri röð að dæma hefur listakonan alla tíð verið
staðföst í listrænni nálgun sinnL Hún leitar þar, líkt
og í seinni myndröðunum, að ímynd hins sérstæða sem**
lifir á jaöri samfélagsins, útskúfað en stolL Myndir frá
Bandaríkjunum em ekki síður athyglisverðar. Þar ber
að mínu viti hæst myndröð af fíkniefnaneytendum og
ennfremur röð mynda af geðsjúklingum og holdsveik-
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
um á sjúkrastofnunum. Myndir af heimilislausum í
Bandaríkjunum em einnig eftirminnilegar og ná e.Lv.
hvað best að ná utan um það frásagnarform sem lista-
konunni virðist vera ofarlega í huga. Myndimar segjá^
flestar hverjar langa og örlagaríka sögu; í ásjónunum
sem þær birta býr ólga sem hefur kraft til að geta af
sér nýja sköpun í huga áhorfandans. Þegar svo er
komið hlýtur list ljósmyndarans að kveikja líf með því
að leiða í ljós. Háleitara getur markmiðið varla verið.
Sýningunni á ljósmyndum Mary Ellen Mark lýkur
þann 11. júll