Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1993, Qupperneq 20
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993
Iþróttir
EnskiboHmnafstað
Enska deildakeppnin í knatt-
spymu hefst nú um helgina.
Meistaramir í Manchester Un-
ited heQa titilvörnina á sunnudag
en þá mæta þeir Norwich á úti-
velli. Arsenal tekur á móti
Coventry á laugardag, Aston
Villa á móti QPR og Liverpool á
móti ShefSeld Wednesday og
Leeds leikur á útvelh gegn Man.
City, svo einhveijir leikir séu
nefndir.
Ferguson stefnir hátt
Alex Ferguson, stjóri United,
hefur tekið stefnuna á meistara-
titilinn og að auki hyggur hann á
stóra hluti í Evrópukeppninni.
Hann segir lið sitt hafa alla burði
til að vinna að minnsta kosti einn
bikar í vetur.
Fimm liðabarátta
Ferguson spáir þvi að hð Arsen-
al, Liverpool, Leeds, ShefField
Wednesday og Aston VUla eigi
eftir að veita Manchester United
mesta keppni í vetur.
Arsenal eða Liverpool
Fyrrum leikmaður Man. Utd,
Steve Coppell, sem stjórnaði hði
Crystal Palace á síðasta keppnis-
tímabih, er þeirrar skoðunar að
Man. Utd. nái ekki að verja titil-
inn og að baráttan komi til með
að standa á milli Arsenal og
Liverpool.
Kendall býður í Bright
Howard Kendah, fram-
kvæmdastjóri Everton, hefur
boðið Shefíield Wednesday eina
milljón punda fyrir framherjann
Mark Bright.
Leeds seldi Whyte
1. deildarlið Birmingham hefur
fest kaup á varnarmanninum
Chris Whyte frá Leeds fyrir 250
þúsund pund.
GhanabúitilPSV
Ghanabúinn Nii Lamptey hefur
verið lánaður frá Anderlecht til
hollenska félgsins PSV. Lamptey,
sem er 18 ára gamall, er landshðs-
maður og leikur í stöðu fram-
heija.
Boksicfer hvergi
Króatinn Alen Boksic verður
áfram í herbúðum frönsku Evr-
ópumeistaranna í Marseille í vet-
ur. Til stóð að Boksic gengi til liðs
við Lazio á Ítalíu en á siðustu
varð ekkert úr því.
Sixers-liðiðtilsölu
Mestallt lið Philadelphia 76eÞrs
er nú komið á sölulista eftir að
liðið samdi við Shaw Bradley fyr-
ir 190 mhljónir kr. Miðherjarnir
Manute Bol og Charles Shackle-
ford, framherjarnir Ron Ander-
son, Eddie Lee Wilkins og Armon
Gilliam og bakverðirnir Greg
Grant og Mitchell Wiggins eru
ahir falir.
Frank Johnson samdi
Phoenix Suns hafa gert eins árs
samning við bakvörðinn Frank
Johnson. Kappinn er varamaður
fyrir nafna sinn, Kevin Johnson,
og lék í hans staö allnokkuð í
fyrstu úrslitaleikjunum gegn
Chicago í júní sl. Frank þótti
standa sig allvel og því kemur á
óvart að hann skuli ekki fá lengri
samning.
Dudley samdi til 7 ára
Portland Trailblazers hefur
gert sjö ára samning við miðheij-
ann Chris Dudley en hann hafði
ekki áhuga á lengri dvöl hjá New
Jersey Nets þrátt fyrir fyrirheit
um hærri laun. Þá hefur Seattle
SuperSonics gert eins árs samn-
ing við framheijann Vicent
Askew. -GH/BL
Kolbeinn Pálsson, formaður KKÍ, tók á móti drengjalandsliðsstrákunum við komuna til landsins. Á myndinni óskar Kolbeinn Axel til hamingju með árang-
urinn. Strákarnir fengu blóm að launum.
DV-mynd ÆgirMár
Drengjalandsliðiö í körfuknattleik:
Sýnir að ýmislegt er hægt
- ef menn leggja sig fram, segir Axel Nikulásson þjálfari
Drengjalandsliðið í körfuknattleik
kom til landsins í fyrrakvöld frá
Tyrklandi en þar tók hðið þátt í 12
liða úrslitakeppni Evrópumótsins.
Liðið hafnaði í 9. sæti og vann meðal
annars það afrek að sigra Þjóðverja
tvívegis í keppninni. Þjóðveijar eru
sem kunnugt er Evrópumeistarar
karlalandsliða í körfuknattleik.
Möguleiki á fleiri sigrum
„Ég er mjög sáttur við þennan árang-
ur og hann sýnir að ýmislegt er hægt
ef menn leggja sig fram. Það hefði
verið gaman að vinna einn leik til
viðbótar og ég tel að möguleiki hafí
verið á sigri gegn ítölum og Tyrkjum.
Strákarnir voru hræddir við Rúss-
ana en þeir eru alls ekki ósigrandi,"
sagði Axel Nikulásson, þjálfari
drengjalandshðsins í spjalli við DV.
Árangur liðsins er sá langbesti sem
íslenskt körfuknattleikshð hefur náð
hingað til og Uðið steig mörgum
skrefum lengra en drengjalandslið
okkar hafa hingað til stigið.
Ótrúlegt hvað ísland er
komið langt í körfubolta
„Þátttaka okkar í úrslitakeppninni
vakti mikla athygU og öU liðin mættu
vel undirbúin tfí leiks gegn okkur
nema Frakkar. Þeir héldu að við
værum bandarískt menntaskólaUð
sem fengið hefði íslenska passa. Eft-
irUtsmaður FIBA á mótinu minntist
sérstaklega á okkur í ræðu í lokaat-
höfn mótsins og sagði að ótrúlegt
væri hvað við værum komnir langt
í körfuboltanum," sagði Axel.
„Þjóðveijar sögðust hafa lagt mikla
peninga í Uð sitt og ósigurinn gegn
Islandi væri mikiU ósigur fyrir þá.
Þeir kenndu því um að þeir hefðu
verið undir mikiUi pressu,“ sagði
Axel.
Helgi Guðfinnsson
stigahæsti maður mótsins
Axel hældi öllum leikmönnum ís-
lenska Uðsins mjög og minntist einn-
ig á þátt Brynjars Péturssonar,
sjúkraþjálfara úr Grindavík. Hann
nuddaði strákana, lét þá teygja og
kom þeim í keppnisfært ástand eftir
erfiða leiki og slæmar byltur. Axel
taldi hann eiga stóran þátt í því að
íslenska Uðiö bætti sig í hverjum leik
meðan önnur lið voru að gefa eftir.
Helgi Guðfmnsson var stigahæsti
Skaginn mætir Þór
- þrír aðrir leitór einnig á dagskrá
Fjótir leikir fara fram f Get-
raunadeildinni í knattspymu í
kvöld. Topplið Skagamanna fær
Þór í heimsókn á Akranes. Skaga-
menn hafa örugga forystu í deild-
inni og hafa leikið frábærlega i
sumar. Skagamenn hafa verið í
miklu stuði undanfarið og skorað
9 mörk í síðustu tveimur leikjum.
Róöurinn verður þvi augljóslega
mjög þungur fyrir Þórsara.
Fylkir og FHmætast í Árbænum.
Fylkismenn eru í næstneðsta sæti
og í slæmum málum, sérstaklega
efþeir vinna ekki í kvöld. FH-ingar
eru í öðru sæti. Þeir hafa leikið vel
i sumar og eru sem stendur í Evr-
ópusæti. Fylkir vann FH í leik lið-
anna í mjólkurbikarnum og FH-
ingar hafa eflaust hug á að hefna
ófaranna.
Eyjamenn fá Val i heimsókn og
má búast við spennandi leik. Eyja-
menn eru skammt frá fallsæti og
þurfa á öllum stigum að halda til
að koma sér af hættusvæðinu.
Valsmenn eru um miðja deild en
eygja smámöguleika á að beijast
um Evrópusæti.
Fram og Keflavík mætast á Laug-
ardalsvelli. Bæði þessi liö eru í efri
hlutanum og í harðri baráttu um
Evrópusæti. Stigin verðaþví mikil-
væg í Laugardalnum eins og raun-
ar á öllum knattspyrnuvöllum
kvöldsins. Leikur Fram og ÍBK
hefst klukkan 20 en hínir þrír leik-
ir kvöldsins hefjast kl. 19.
-RR
maður mótsins með 172 stig, 30 stig-
um meira én næsti maður. Helgi fékk
158 stig í kjöri manns mótsins og
varð í öðru sæti. Sá sem kjörinn var
fékk 160 stig en það var 2,12 m hár
Grikki. Sá var frákastahæstur á mót-
inu. Helgi tók aðeins 8 fráköstum
færra, þrátt fyrir að vera með
minnstu mönnum mótsins. Ólafur
Ormsson var meðal efstu manna í
skoruöum 3ja stiga körfum, en mikið
mæddi á þeim Ólafi, Helga og Arn-
þóri Birgissyni í mótinu.
Næsta mót í Þýskalandi
Liðið tekur þátt í milliriðli EM ungl-
ingalandsliða í Þýskalandi síðar í
þessum mánuði. Mótheijarnir þar
verða auk heimamanna, sem eiga
harma að hefna, Úkraína, Slóvenía,
Rúmenia og Lettiand.
„Það verður erfiður róður í Þýska-
landi, sérstaklega gegn Þjóðverjum.
Þeir verða örugglega grimmir á
heimavelh. Slóvenar eru með sterkt
lið og eins Úkraína, en hinar þjóðim-
ar eru svipaðar og við,“ sagði Axel.
Liðið heldur utan 24. ágúst.
-BL
Svisslendingar
unnu!
Svisslendingar uimu Svía, 1-2,
í vináttulandsleik í knattspyrnu
í Gautaborg í gærkvöldi. Thomas
Brolin skoraði fyrsta mark leiks-
ins fyrir Svia en Svisslendingar
svöruðu með mörkum frá Adrian
Knup og Alain Sutter.
-RR
KBSskoraði
sjomork
Einn leikur fór fram í D-riðli 4.
deildar í gærkvöldi. KBS vann
stórsigur á Sindra, 7-3. Bergþór
Friðriksson gerði 3 mörk fyrir
KBS, Ríkharður Garðarsson 2 og
Jón Hauksson og ívar Ingimund-
arson eitt hvor. Hermann Stef-
ánsson gerði öll 3 mörk Hornfirð-
inga
-MJ
NM 21 árs landsliða í handknattleik:
Sterkt lið til Noregs
- Þorbergur búinn að velja 15 leikmenn
Norðurlandamót 21 árs landsliða
í handknattleik verður haldið í
bænum Arendal í Noregi um helg-
ina. Þar keppa landshð íslands,
Svía, Norðmanna, Dana og Finna
um Norðurlandameistaratitihnn
og er þetta í fyrsta sinn sem Norð-
urlandamót er haldið í þessum ald-
ursflokki. Þorbergur Aðalsteins-
son landshðsþjálfari hefur vahð 15
manna landshðshóp sem skipaður
er þessum leikmönnum:
Markverðir:
IngvarRagnarsson......Stjörnunni
Reynir Reynisson.........Víkingi
Þórarinn Ölafsson............Val
Aðrir leikmenn:
Björgvin Björgvinsson ..Breiðabliki
Páh Þórólfsson..............Fram
Sigfús Sigurðsson............Val
Róbert Sighvatsson ....Aftureldingu
Valgarð Thoroddsen..........Val
JónFreyrEgilsson.......Haukum
Jason Ólafsson.............Fram
Ólafur Stefánsson...........Val
Dagur Sigurðsson............Val
Aron Krisjánsson.......Haukum
Rúnar Sigtryggsson..........Val
Patrekur Jóhannesson ..Stjömunni
Fyrstu leikir íslendinga eru á
föstudag en þá verður leikið gegn
Svíum og Finnum. Á laugardag
verður leikið gegn Dönum og á
móti Norðmönnum á sunnudag.
Þetta er síðasta verkefni íslenska
hðsins fyrir heimsmeistaramótið
sem hefst í Egyptalandi 8. septemb-
er.
Þetta íslenska hð varð Norður-
landameistari 18 ára landsliða fyrir
tveimur árum og á því í raun titil
aðveijaiNoregi. -GH/BL