Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Page 4
4 LAUGARDAGUR 6. NÖVEMBER 1993 Fréttir Áfengisdauðir unglingar í undralandi mótsagna - unglingur kvaðst vilja lifa hratt og stutt en skilja eftir sig fallegt lík Þó svo að Þingvellir, Gullfoss, Bláa lónið og fleiri perlur íslands hafi komiö við sögu í fréttaþættinum „Inside Edition“ á sjónvarpsstöðinni ABC síöastliðið fimmtudagskvöld, var það ekki fegurð landsins sem fréttamenn beindu augum sínum að. Myndavélunum var einkum beint að drykkj uvandamálum unglinga og meðal annars fengu bandarískir sjónvarpsáhorfendur nasasjón af ástandinu í miöbænum um dæmi- geröa helgi. Að sögn Skúla Valbergs Ólafssonar og Aðalbjargar Haildórsdóttur, sem fylgdust með þættinum í Flórída, var niðurstaða fréttarinnar sú að það væri afar erfitt fyrir íslenska ungl- inga að segja nei við áfengi í þjóðfé- lagi þar sem mikil drykkja væri við- tekin venja. í raun tíðkist enn vafa- samar drykkjuvenjur víkinganna í þessu undralandi mótsagna. í þættinum sagði fréttamaður þátt- arins að drykkjuvandamál íslend- inga væri svo alvarlegt að þeir leit- uðu á náðir Bandaríkjamanna um lausn. Rætt var við Harvey Milk- mann sem unnið hefur við uppsetn- ingu meðferöarheimihs fyrir ungl- inga á íslandi. Sagði Harvey íslenska unglinga horfast í augu við marga álíka áhættuþætti og bandarískir unghngar; þunglyndi væri algengt og sjálfsmorðstilraunir tíðar. Raett var við unglinga á ferð um miðbæ Reykjavíkur og fullyrt að áfengisvandamálið næði niður til 12 ára bama. Birt voru myndskeið af ryskingum, áfengisdauðum ungling- um, handtökum, gleði og söng þar sem flaskan var sjaldan langt undan. Bandarískir sjónvarpsáhorfendur voru leiddir í gegnum miðbæinn þar sem unglingar undir lögaldri drukku vinsælasta drykkinn, landa í kók, beint fyrir framan nefið á lögregl- unni. Einn unglingurinn sem rætt var við sagðist hafa drukkið frá ellefu ára aldri og jafnvel tekið fram áfengi í kennslustund og fengið litlar ákúrur fyrir. Annar sagði foreldra sína báða alkóhólista og að hann ætlaði sér að „lifa-hratt og stutt en skilja eför sig fallegt lík“. í þessu samhengi benti fréttamaöurinn á að 28 prósent karla og 11 prósent kvenna á íslandi hefðu farið í áfengismeðferð. Fram kom í þessari 10 mínútna frett að lögreglan lokar mánaðarlega 30 ólöglegum brugghúsum. Bent var á að bruggaramir hefðu mestan hagnað af því að selja landann krökkum, jafnvel inni á skólalóðúm. í einu bmgghúsanna var haft eftir Gesti Guðmundssyni rannsóknar- lögreglumanni að landinn væri óþverri og að neysla hans væri hættuleg. í samtali við fréttamann „Inside Edition" sagði Ásta Ólafsdóttiy áfengismeðferðarfulltrúi að hugtak- ið misnotkun væri ekki til í hugum ísiendinga þegar kæmi að áfengi. Þá sagði Þórarinn Tyrfingsson, yfir- læknir á Vogi, að mikið atvinnuleysi ylh því að margir bmgguðu. Hann tjáði fréttamanninum að 1 prósent stúlkna og 2 prósent drengja á ís- landi kæmu til áfengismeðferöar áð- ur en tuttugu ára aldri væri náð. -kaa í Kringlunni stendur nú yfir sýning á öllum bestu fréttaljósmyndunum í World Press Photo-keppninni. Þarna eru sýndar 200 myndir fró öllum heimshornum og af öllum helstu fréttaviðburðum á liðnu ári. Sýningin hófst í gær og hér má sjá þá Ben ten Berge, sýningarstjóra fró Hollandi, og Ólaf Jónsson, frá Listasafni ASI, skoða nokkrar úrvalsmyndir við opnunina. Ókeypis aðgangur er öllum opinn á verslunartíma. DV-mynd GB Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra: Misskilningur að Fiskistofa sé ettthvert bákn - Fiskiþingsfulltrúar eru að skamma rangan aðila Hörð gagnrýni hefur komið fram á fiskiþingi á hina nýstofnuðu Fiskistofu. Hún er köhuð skrímsli eða bákn sem þanist hefur út langt umfram það sem ætlað hafi verið í upphafi. Tihaga kom fram á þing- inu um að Fiskistofa yrði lögð nið- ur. Og enda þótt hún hafi ekki ver- ið samþykkt var stofnunin mjög gagnrýnd. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráöherra stofnaði Fiskistofu. Hann var spurður að því hvort hún væri orðin að einhverju risabákni, langt umfram það sem í upphafi var stofnað til. „Nei, þessi gagnrýni er mjög röng. Fiskistofa er ekki útþanið bákn nema síður sé. Með stofnun Fiskistofu var færð saman starf- semi sem í stærstum dráttum var á þremur stöðum áður. Þaö er starfsemi sem var hér í sjávarút- vegsráðuneytinu, hjá Ríkismati sjávarafurða, sem var lagt niður, og tölvudeild Hafrannsóknastofn- unar. Tilgangurinn með því að færa tölvudeildina, veiðieftirhtið og gæðaeftirhtsmálin undir einn hatt var að ná fram hagræðingu í rekstri. Það hefur tekist því nú er 10 mönnum færra við þessi störf en áður var. Við kaupum síðan þjónustu af Fiskifélagi íslands, sem er skýrslugerö. Segja má að eini kostnaðarhðurinn í rekstri Fiski- stofu sem má gagnrýna sé samn- ingurinn sem við höfum gert við Fiskifélagið um kaup á þessari þjónustu. Þar erum við að greiða yfirverð," sagði Þorsteinn Pálsson. Hann var þá spurður hvort sú harða gagnrýni á Fiskistofu, sem komið hefur fram á Fiskiþingi, væri á misskilningi byggð. „Ég held að þessi gagnrýni eigi rætur að rekja til þess að Fiskifé- lagið hefur verið að ganga í gegnum erfiða tíma. Það hefur ekki sama stuöning í sjávarútvegi og áður var. Eftir að hagsmunafélög hinna ýmsu greina sjávarútvegsins hafa vaxið upp og orðið að sterkum fé- lagsskap, hafa áhrif Fiskifélagsins dvínað. Ég held að gagnrýnin end- urspegh óánægju með þá þróun og þá þykir rétt að skamma Albaníu þegar spjótunum er beint að Kína,“ sagði Þorsteinn Pálsson. -S.dór Fyrrum forstöðumaður Bifreiðaprófa ríkisins steftiir ríkinu: Krefst 20 milljóna bóta vegna uppsagnar - áskilur sér rétt til að kalla forseta íslands fyrir dóm sem vitni Guðjón Andrésson, fyrrum for- stöðumaður Bifreiðáprófa ríkisins, hefur stefnt Þorsteini Pálssyni dóms- málaráðherra og Friðriki Sophus- syni fjármálaráðherra vegna brott- vikningar hans úr starfi vorið 1991. Hann krefst 20,6 mihjóna króna í skaöabætur. Málið hefur verið tekið tíl meðferðar 1 Héraðsdómi Reykja- víkur. Lögmaður Guðjóns hefur áskihð sér rétt til að kaha ráðherrana báða sem vitni fyrir dóminn, svo og Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís- lands, og Davíð Oddsson forsætisráð- herra. Það var Óh Þ. Guðbjartsson, þáver- andi dómsmálaráöherra, sem skipaði Guðjón í framangreinda stöðu. Snemma árs 1991 kæröi Lögreglu- stjóraembættið í Reykjavik Guðjón til RLR vegna 6 ökuprófa sem farið höfðu fram hjá Bifreiðaprófum ríkis- ins. Við rannsókn RLR kom í ljós að tvö prófanna voru Guðjóni óviðkom- andi, við tvö þeirra voru ekki gerðar athugasemdir en við síðustu tvö virt- ust einhverjar „yfirsjónir" hafa átt sér stað. Óh thkynnti Guðjóni síðan að mál- inu væri lokið. Nokkrum mánuðum síðar, þegar Þorsteinn Pálsson varð dómsmálaráðherra, vék hann Guð- jóni úr starfi og var RLR beðið um endurrannsókn á framangreindum tveimur prófum sem eitthVað virtist athugavert við. Þegar ríkissaksóknari hafði fengið rannsóknargögn RLR í hendur og farið hafði verið yfir máhð var ákveðið að aðhafast ekki frekar - Guðjón var ekki ákærður. Hann hef- ur ekki þegið laun frá ríkinu frá 1. september 1991 og fer nú m.a. fram á bætur vegna tekjumissis og miska. Hann hefur m.a. haldið því fram að ráðuneytið hafi tafið að thkynna honum um niðurstöðu ákæruvalds- ins um nokkurra mánaða skeið. Ástæöan fyrir því að Vigdís Finn- bogadóttir verður hugsanlega kölluð fyrir sem vitni er sú að forsetinn kahaði dómsmálaráðherra fyrir stuttu eftir að Guðjóni var vikið frá störfum. Davíð Oddsson kom hins vegar að máhnu með þeim hætti að hann ræddi viö Guðjón og fólk tengt honum á vissum stigum málsins. -Ótt Tómas Ingi Olrich: Orðrétt tilvitnun í þingræðu Tómas Ingi Olrich alþingismaður sendi DV í gær eftirfarandi bréf: „í DV í dag, 5. nóvember, er höfö eftir mér thvitnun í þingræðu sem ekki er orðrétt eins og ég las hana fyrir blaðamann DV. Ég hef rætt máhð við blaöamanninn og er ljóst að hann hefur feht brott úr tilvitnun minni atriði sem geta valdið því að thvitnunin misskhjist. Vil ég hér með fara þess á leit við blaðið að thvitnun mín verði leiðrétt, en hún var svo orðrétt (feitletrað er það sem niður féh í DV): „Ég held að það sé alveg ljóst að þessi skýrsla hefur orðið þeim, sem óskuðu eftir því að sérstök nefnd yrði sett í það að rannsaka samskipti Hrafns Gunnlaugssonar viö opin- bera aðha, mikil vonbrigði og er það að vonum vegna þess að meginniður- staða skýrslunnar er að sjálfsögöu sú að hvorki hafi þessi starfsmaður brotið af sér í starfi né heldur hyglaö sér.“ Eins og thvitnunin er ranglega eftir höfð í DV getur hún skhist á þann hátt að þar sé um fjárlaganefnd Al- þingis að ræða, en í máli mínu kom skýrt fram að þar var minnst á sér- staka nefnd sem óskað var eftir, í þingsályktunartillögu á 116. löggjáf- arþingi, að annaðist rannsókn, m.a. fjárhagslegra tengsla Hrafns Gunn- laugssonar við Ríkisútvarpið og menntamálaráðuneytð. Þótt þessi mistök snerti ekki grundvallarathugasemdir mínar við fundarstjóm forseta Alþingis við ut- andagskrárumræður um skýrslu Ríkisendurskoðunar, er engu að síð- ur mikhvægt að thvitnanir mínar séu rétt eftir hafðar."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.